Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
12.09.2009 at 12:05 #206445
Gaman að sjá jákvæða grein um Ferðaklúbbinn 4×4 í Morgunblaðinu í dag. Ekki veitir okkur jeppaferðalöngum af góðum frásögnum og jákvæðni í okkar garð. Flott grein eftir Sigurð Boga og fínt viðtal við Magnum. Nú verður að fjárfesta í laugardagsblaðinu 12.09.2009 og kíkja á síðu 18 – Þórður Ámunda og Pétur Þórðar flottir í mynd að berja niður stiku.
Kveðja Didda
R 3756
22.08.2009 at 14:12 #654952Ekki er komið að tómum kofanum hjá þér Jón. Skemmtilegur og upplýsandi pistill sem þú sendir frá þér. Hann sló aðeins á svartsýnina sem lagðist yfir mig í morgun. Gott mótvægi við grein Kolbrúnar, sem mér þótti heldur ómakleg. Því miður fær hún mjög gott rými bæði á forsíðu og inni blaðinu sjálfu. Reikna má með að það verði erfitt að fá andsvör birt á jafn sýnilegan máta – því miður. Kveðja Didda
17.06.2009 at 22:24 #648728SKRÁNING – SKRÁNING – SKRÁNING
Á föstudeginum 19. júni eru 94 ár síðan konur, 40 ára og eldri fengu kosningarétt á Íslandi. Þann dag stefnir Umhverfisnefnd 4×4 í árlega landgræðsluferð – nú skal haldið í Þjórsárdalinn.
Það er malbik alla leið. Því er hugmyndin ekki að vera í hópakstri, en sjálfsagt að láta vita að ég og co leggjum af stað frá Select á föstudeginum kl. 18:00.og allir sem vilja fljóta með eru hjartanlega velkomnir.
Engin formleg dagskrá er föstudag.
Á laugardag hefst vinnan kl. 10:00 og stendur hún fram eftir degi, eða eins lengi og plöntur, áburður og veður leyfa eða mannskapur treystir sér til. Grill er um kvöldið í boði Ferðaklúbbsins 4×4. Það er jafnframt eina máltíðin sem er í boði klúbbsins og þarf fólk því að koma sjálft með mat í aðrar máltíðir.
Sunnudagur er heimferðadagur og engin sérstök dagskrá þá, nema ef ákveðið verður að fara einhverja aðra leið en malbikið til baka, en það verður ákveðið á staðnum.
Tjaldstæðið heitir Sandártunga í Þjórsárdal og er skammt frá vinnusvæðinu, rétt neðan við Hjálparfoss. Staðsetning (N64 06.301 W19 57.199) – tjaldstæðið er frítt
Ef stefnt er í ferðina þarf taka með mat, nema þessa einu máltíð á laugardagskvöldinu. Að fenginni reynslu er nauðsynlegt að hafa með sér; flugnanet, hanska, sólarvörn og annað sem kemur upp í hugann við útilegur.
Þú getur skráð þig með þvi að svara þessum þræði eða sent póst á litlanefndin@f4x4.is
Skráningu lýkur á hádegi á fimmtudag. 18.júní
Munið að það þarf að skrá alla sem koma með svo hægt sé að gera ráð fyrir þeim í matarkinnkaupum.Við skráninguna þarf að koma fram
Nafn/nöfn
fjöldi
félagsnr.(ef um skráða félagsmenn er að ræða)
Bíll – (tegund, litur eða eitthvað spennandi sem þú villt deila með okkur hinum um bílinn þinn)
Kveðja Didda R-3756
15.06.2009 at 20:59 #648716Didda og Óli mæta með unglinginn – Rikki mætir semsagt líka – hress og kátur eins og unglinga er siður:) – Við verðum semsagt 3
kveðja Didda R-3756
15.06.2009 at 20:54 #649186Sælir
Greinilegt að miklar pælingar hafa verið í gangi varðandi nyjan vef – besta mál. Það verður gaman að fá að sjá vefinn þróast áfram.
Ég er með smáhugmynd um hvort hægt væri að útbúa tengingu milli liða á döfinni og skráningu á viðburðina. Þannig að ef viðburðir í liðnum á döfinni eru skoðaðir væri hægt að skrá sig í ferð/atburð beint af þeirri síðu etv. með því að smella á link sem tengist inn í skráningu.
Kveðja Didda R-3756
07.03.2008 at 21:48 #616400Jamm með 😉
-
AuthorReplies