Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.03.2009 at 22:09 #642364
Ég hef fengið það staðfest núna að við erum með svefnloftið aðfararnótt laugardags og sunnudags og Hjörvarsskála aðfararnótt laugardags. Sunnanmennirnir eru með gamla skála. Þannig að þeir sem vilja lengja ferðina hafa gistingu á loftinu seinni nóttina.
Skálagjöld eru 1500 kr nóttin og verða innheimt á staðnum (koma með aura).
04.03.2009 at 18:03 #642356ertu viss, skv samtali mínu við Ferðafélag Akureyrar er hópur að sunnan með gamla skálann, er það ekki þinn hópur?
kv
Bjössi
04.03.2009 at 10:45 #642344Vil ég minna menn á að taka með sér aura fyrir skálagjöldum. Pétur R er ekki með posa
kv
Björn
04.03.2009 at 08:52 #203958Lagt af stað frá Skeljungi við Hörgárbraut kl. 17.00 (mæta tímanlega) föstudaginn 6.mars. Ekin verður Skagafjarðarleið upp í Laugarfell og gist þar, inn á miðju á laugardeginum og ekið heim samdægurs. Einhverjir ætla þó að ferðast lengur og koma heim á sunnudegi, best væri að þeir gæfu sig fram hér á spjallþræðinum.
Skráðir eru í ferðina:
Jóhann Hauksson +1
Björn Pálsson +1
Eiður Jónsson
Gísli Ólafsson
Ragnar Jónsson og Eysteinn
Guðmundur Jóhannsson +1
Elías þorsteinsson+1
Erlingur Harðarson
Gunnar Kristdórsson +2listinn er með fyrirvara um villur
kv
Björn
20.02.2009 at 14:15 #641122Vegna óhagstæðrar veðurspár og geysilegrar hálku í einni beygju, hafa meðlimir ferðanefndar tekið þá ákvörðun að breyta ferðaáætluninni. Farið verður í fyrramálið út í Flateyjardal og Laugarfellsferðin farin í mars (ferðum víxlað).
Mæting í Leiru kl 8 í fyrramálið.Sjáumst
Björn
20.02.2009 at 11:04 #641114Höldum okkar striki enn sem komið er, veðurspáin er ekki sem best en allir lifa í voninni. Í dag verður samin varaáætlun þannig að dagsferð verður farin. Fylgist með þræðinum og svo sjáumst við í fyrramálið
kv
Björn
19.02.2009 at 17:40 #641088Hér með tilkynnist að Valgeir Stefán Sverrison kemur með í ferðina og miklar líkur á því að hann hafi myndavél meðferðis.
kv
Björn
17.02.2009 at 22:00 #641056Verið er að kanna ástand sneiðinga í Vatnahjallavegi. Þegar upplýsingar liggja fyrir verður nákvæmara ferðaplan sett hér inn. Vel athugandi að fara Kerhólsöxl
kv
Björn
17.02.2009 at 16:51 #641048Eins og lesa má á heimasíðu Eyjafjarðardeildar og Erlingur getur líklega gert það eins og aðrir, þá verður farin nk. laugadag dagsferð í Laugarfell. Mæting á Leiru kl 8.
Ef einhverjar breytingar verða á fyrirkomulagi þessu verður það sett hér inn á vefinn.Björn Pálsson
28.01.2009 at 22:17 #639160ég kem með og alnafni minn líka. Þú tekur líklega spotta með nýsplæstu auga með?
kv
Björn
27.01.2009 at 21:58 #203664Næst komandi laugardag, 31.janúar, verður farin dagsferð á vegum Eyjafjarðardeildar . Lagt verður af stað kl. 9 frá Shell Hörgárbr. og stefnan tekin í Baugasel í Barkárdal. Allir velkomnir
fh. ferðanefndar
Björn Pálsson
26.09.2008 at 15:43 #629510það er customiserað tunnugrill á staðnum, taka með kol og olíu
stefnt að brottför frá Shell Hörgárbraut kl 10
kv
Bjössi
21.09.2008 at 20:31 #6294943 bílar nú þegar skráðir
Valli er að rannsaka hversu íllfært er upp Svarfaðardalsmeginog enn er pláss fyrir fleiri í ferðina
kv
Bjössi
19.09.2008 at 22:39 #629488Valli
Bjössiog enn er pláss fyrir fleiri
kv
Bjössi
16.09.2008 at 21:31 #202924Haustferð Eyjafjarðardeildar verður farin laugardaginn 27. September. Farið verður um Heljardalsheiði til Skagafjarðar og litið við í Laufskálarétt. Ekið um Skagafjörð og upp í Skiptabakkaskála þar sem gist verður. Á Sunnudegi verður ekið inn á Eyfirðingaleið og stefnan tekin á Laugarfell, eftir stopp þar verður haldið heim á leið.
Ætlunin er að leggja af stað kl. 10 frá eldsneytisverslun Skeljungs við Hörgárbraut. Áhugasamir vinsamlegast skrái sig á spjallþræðinum eða hringi í:
Baldur 8620469
Björn 8626634
Gísla 8942667
17.06.2008 at 21:27 #624512Eins og sést á svörum í þræðinum verða miklir skemmtikraftar í för, þó ekki rándýrir.
kv
Bjössi
15.06.2008 at 09:19 #202558Fjölskylduferð Eyjafjarðardeildar verður farin næsta laugardag, þann 21. júní. Lagt verður af stað frá Leiru kl 13.00 og ekið sem leið liggur inn í Leyningshóla þar sem brugðið verður á leik og boðið upp á hressingu.
Félagsmenn eru vinsamlega beðnir að skrá þátttöku á þennan þráð eða hringja í undirritaðanmeð bestu kveðjum
Björn Pálsson A 809
8626634
Skráning
1. Halldór G + 3
2. Baldur + 3
3. Björn P + 2
4. Stefán + 1 (ef hann fer ekki á sjó)
31.05.2008 at 21:49 #623820Sæll Elli
Defenderinn minn var farinn að ganga ójafnt og reykti nokkuð við gangsetningu í frostum í vetur, öll glóðarkerti heil. Mér var bent á þann möguleika að þetta EGR gæti verið osökin, og viti menn: hann steinhætti þessu eftir að þetta var rifið úr. Líklegast hefur þetta staðið opið við gangsetningu. Seinna meir bíður mín það verk að hreinsa sogreinina sem er öll löðrandi í drullu eftir búnaðinn. Til þess að fjarlægja þetta festi ég kaup á setti frá UK með því loforði að bíllinn yrði aflmeiri, það hef ekki ekki fundið enn.
kv
Bjössi
07.11.2007 at 20:36 #602430eru engar fréttir frá Kili?
mbk Stefán
07.11.2007 at 09:40 #201124Hef hug því að fara suður Kjöl á föstudag, veit einhver hvernig færið er núna?
mbk
Stefán Stefánsson
Ofurlandroverkall á Akureyri
-
AuthorReplies