Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
12.11.2009 at 20:37 #208224
Seinni haustferð Eyjafjarðardeildar verður farin helgina 27-29 nóvember. Ekinn verður Vatnajökull. Á föstudeginum 27. verður ekið í Snæfell og gist þar. Á laugardeginum 28. verður ekið á Grímsfjall og gist þar. Þaðan verður svo ekið af jökli niður Köldukvíslajökul og heim til Akureyrar á sunnudeginum 29. nóv. Fararstjóri er Elías Þorsteinsson. Nánari ferðatilhögun verður sett hér inn á þráðinn. Áhugasamir skrái sig hér á vefinn eða með því að hafa samband við Elías.
Skráðir eru
Elías Þorsteinsson (Patrol 44)
Erlingur Harðarson (Ford 44)
Gísli Pálsson (Land Rover 44)
Sigurgeir Pálsson (Land Rover 46)Kveðja
Björn Pálsson
07.11.2009 at 14:48 #665202Kl. 9 í morgun lagði undirritaður af stað frá Leiru einsamall, hitti fyrir Sigurbjörn í Réttarholti, Jón Ásgeir Pétursson frá Akurhóli, Friðrik Eyfjörð frá Finnastöðum og Kristin í Höfða þegar komið var út í Grýtubakkahrepp, skömmu síðar birtist Jón Gunnar. Þá voru komnir 4 bílar til að fara út á Látraströnd. Ferðin gekk vel og sögðu heimamenn margar sögur á leiðinni og flest allar þúfur nefndar með nafni. Eftir Látraströnd var hringurinn tekinn um Þengilhöfða og endað í kaffihlaðborði á verkstæðinu hans Bjössa í Réttarholti. Flott verkstæði hjá kallinum.
Takk fyrir góðan dag, myndasýning verður á næsta fundiBjörn Pálsson A 809
06.11.2009 at 20:54 #665200Brottför 9.00 frá Leiru í fyrramálið
kv
Bjössi
05.11.2009 at 20:51 #665198Enn eru laus pláss í dagsferð
05.11.2009 at 13:21 #665196Hripleki ei hrjáir mig
né hitalykt og sviti
04.11.2009 at 20:32 #665190Með vísun í vinnuferðarþráð:
Jú það er rétt Erlingur, ég legg hendur á fólk á hverjum degi, þó gert í góðum tilgangi. Það er bara svona spari að fletja út andlit bifreiða, og ég nota Landann í það.
Þess ber að geta að Bjössi í Réttarholti er búinn að bóka leiðsögumanninn.Kveðjur
Bjössi
04.11.2009 at 18:03 #665188vil minna á dagsferðina ( og koma þessum þræði upp fyrir vinnuferðarþráðinn)
04.11.2009 at 15:12 #665186Sendið endilega inn pósta til skráningar
Skráður:
Björn Pálsson A809
03.11.2009 at 23:03 #207980Ferðanefnd Eyjafjarðardeildar kynnir:
Dagsferð á vegum Eyjafjarðardeildar verður farin n.k. laugardag, þann 7. nóvember. Ekin verður leiðin út Látraströnd að Grímsnesi undir leiðsögn heimamanns. Staldrað verður við hjá eyðibýlum og merkilegum stöðum. Á bakaleiðinni ætlar Bjössi í Réttarholti að taka á móti hópnum og sýna verkstæði sitt. Ætlunin er svo að aka í gegnum Skuggabjargaskóg á heimleiðinni.mbk
Bjössi
20.10.2009 at 22:55 #663166Kæru félagar
Ég ætla að blása til dagsferðar til vinnu á laugardaginn upp í Réttartorfu og mun leggja af stað frá Leiru 8.30. Skráið ykkur hér eða látið í ykkur heyra, þið sem ætlið með. Hvernig líst Erlingi á að slást í för?
kv
Bjössi
23.09.2009 at 22:05 #656678Þátttökulisti:
Erlingur Harðarson = 2
Björn Pálsson = 2
Hafþór Jörundsson = 2
Ólafur Ágúst Pálsson = 2
Jóhann Hauksson = 2
Haukur Stefánsson = 111 manns á 6 bílum og veðurspá með besta móti
kveðja
Bjössi
15.09.2009 at 18:53 #656642Sæll Erlingur
ég veit ekki hvað þetta = merki á að merkja, en ég er með einn farþega(=2) og Ólafur Ágúst er líka með einn (=2), ef að um er að ræða 7 ökumenn og 10 farþega þá er einungis pláss fyrir einn í viðbót í gistingu í Gæsavötum.
kv
Bjössi
12.09.2009 at 00:48 #656632ég mun mæta í ferðina, kveðja
Ólafur Ágúst Pálsson á vegum Bjössa Páls jr
09.09.2009 at 21:07 #656622upp
08.09.2009 at 22:02 #656618Ég ætla mér að mæta í ferðina.
Fínar myndir, sérstaklega þær sem sýna menn anda að sér pylsumBjössi jr
02.09.2009 at 17:15 #656004[quote="Dolli":lio663c0]Hvað ertu til í að borga mikið ???…þau kosta ný rúm 240 þús…
Á eitt og fortjald..pakki sem útlegst á 320 þús…[/quote:lio663c0]Hvernig tjald er þetta sem þú átt? Maggiolina eða Columbus? Small, med, large?
kv
Bjössi
30.08.2009 at 20:52 #655264Kæru jeppamenn á stór-Eyjafjarðarsvæðinu:
Ég vil hvetja menn til að mæta á félagsfundinn þriðjudagskvöldið næstkomandi kl 20.00 í húsi bjsv Súlna. Nýjir félagar velkomnir.Kveðja
Björn Pálsson jr
24.08.2009 at 21:31 #655240Hér með staðfestist að ég hef lesið tilkynninguna
Björn Pálsson
03.04.2009 at 17:03 #644926Veðrið verður [url=http://www.yr.no/sted/Island/Eyjafjardarsysla/Súlumýrar/][b:1p7n2pn0]gott[/b:1p7n2pn0][/url]
02.04.2009 at 18:47 #644912Ég ætla mér að mæta á svæðið með börnin
kv
Bjössi
-
AuthorReplies