FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Davíð Örvar Hansson

Davíð Örvar Hansson

Profile picture of Davíð Örvar Hansson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 236 total)
← 1 … 4 5 6 … 12 →
  • Author
    Replies
  • 09.03.2006 at 21:51 #546056
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Þetta er bannspurning m.v. aðra þræði sem innihalda orðið "færð" eða "færi".
    Annars hef ég haft spurnir af því að það sé sæmilegur snjór þarna fyrir jeppa og sleðaumferð.





    06.03.2006 at 21:17 #545670
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Margir eru fræðingar
    Aðrir aðeins kjaftur
    Læðast svo sem læmingjar
    Til sinna heima aftur
    –
    Á fjöllunum þar verða menn
    Að standa við stóru orðin
    Því að á okkar tímum enn
    Þekkjast manndómsmorðin





    02.03.2006 at 14:23 #545236
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Það stendur í samningnum að notast verði að mestu við "umhverfisvæna" gufuaflsvirkjun til að knýja álverið. Þar með er það gefið að farið verður í árnar, þá Skjálfandafljót eðs Jökusá á Fjöllum.
    Merkilegt er þó hvað þessi umræða einskorðast við Reykvíkinga!
    Kv. Davíð





    02.03.2006 at 10:12 #545226
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Þar sem ég hef nú spurnir af því að hér fari Húsvíkingar um þá væri gaman að heyra þeirra álit á þessu. Nú heyrir maður í fréttum að skv. könnunum landsvirkjunnar séu menn hlinntir álveri á þessum slóðum en síðan þegar talað er við menn á svæðinu er almenn óánægja. Svolítið ruglandi, ekki satt? Húsvíkingar, látið ljós ykkar skína!!!
    Kv. Davíð





    01.03.2006 at 11:17 #544992
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Ég setti tvær myndir í albúmið mitt sem segja allann sannleikann um hvað er Guðnasteinn og hvað er Goðasteinn. Myndirnar eru teknar af vef jarðvísindastofnunar og því nokkuð öruggar. Sprungan sem ég lenti í var rétt neðan við þann stað sem sprungan er merkt inná mynd 2, ath. ég lenti í sprungunni fyrir ári síðan ekki núna.

    Kv. Davíð





    01.03.2006 at 08:35 #544986
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Þessi umtædda sprunga sker akstursleiðina þegar þú ekur eftir gígbarminum. Jökullinn er náttúrulega krosssprunginn og stórvarasamur og ekki hægt að ræða um "sprunguna" á Eyjafjallajökli :)

    Kv. Davíð





    28.02.2006 at 21:16 #509832
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Vissulega getur þetta leitt til margs en ég trúi nú ekki að menn séu orðnir svona skinlausir fyrir verðmætum að þeim sé nokk sama þótt að þeir vellti bara vegna þess að þeir eru með velltibúr. Jafnvel þó að maður sé með búr þá skemmist bíllinn og það kostar. Flestir vilja forðast óþarfa útgjöld, er það ekki?

    Kv. Davíð





    28.02.2006 at 09:46 #544974
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Minn skilningur er sá að ég það er talsverður munur á færi og færð. Færið er síbreytilegt og virðast menn seint verða þreyttir að svara mönnum því. Hins vegar er færð allt annað t.d. færð á Eyjafjallajökul ræðst af því hvernig aðkoman er að honum. Þarf maður að keyra á grjóti að jökulrönd? Þá er spurning hversu grunt er á sprungunum, sjálfur lenti ég í sprungu á svipuðum slóðum og tíma fyrir ári síðan og væru upplýsingar um það ástand nauðsinlegar. Þar af leiðandi gæti verið gagnlegt fyrir þann sem spyr að vita aðkomuna og hvort að menn hafi orðið varir við sprungur sem síðan hjálpar honum að ákveða hvort hann ætti að fara á Eyjafjalljökul eða eitthvað annað.

    Datt þetta bara í hug.





    27.02.2006 at 11:04 #544652
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Sendi aðstandendum hins látna samúðarkveðjur og þeim slösuðu óska ég góðs bata.

    Davíð Örvar





    27.02.2006 at 10:40 #509794
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Held að í ljósi atburða undanfarinna vikna sé rétt að rifja upp umræðuna um veltibúrin. Held að þetta sé eitthvað sem ætti að vera okkar hagur að hafa í bílunum.. maður veit aldrei hvað gerist!

    Kv. Davíð





    15.02.2006 at 13:10 #542808
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    ..Toppar maður þá ekki aðeins vatnajökul með því að fara á Hvannadalshnjúk, Langjökul með því að fara á Geitlandið o.s.frv.? Kanski óþarfa flæking á einföldu máli.:)
    Kv. Davíð





    14.02.2006 at 21:17 #541998
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    En þó svo að ég þekki Ofsa ekki þá hef ég séð mynd af kauða og ég held að ég hljóti að vera kvenlegri en hann svo ekki sé talað um hve fágaðar og ofurkvenlegar hreifingar mínar eru þegar svo ber undir. Ef að þetta fer í hart skal ég fara í kvenleikakeppni við Ofsa þar sem málin verða kljáð :)

    Kv. Davíð





    14.02.2006 at 16:02 #541986
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    …Pláss fyrir mig? :(





    14.02.2006 at 15:40 #542624
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Hef ágætis sambönd við menn sem störfuðu á þessum slóðum síðasta sumar og voru þeir að renna sitt skeið á enda undir mitt sumar (þ.e. hellarnir).





    05.02.2006 at 12:05 #541550
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Þar sem jeppamenn eru með mikinn græjuáhuga þá geri ég ráð fyrir að það sé áhugi á þessum flugvélaflökum. Árni er hafsjór af fróðleik um þessi mál og búinn að fara örugglega hátt í 100 ferðir á Eyjafjallajökul og held ég að það gæti verið gaman að fá hann til að sýna okkur myndir úr þessum leiðöngrum á einhverjum fundinum. Ég ræddi þetta einhvern tíma við hann og tók hann ekki illa í það þannig að Hlynur þú verður að koma þessu í kring!

    Kv. Davíð





    02.02.2006 at 19:29 #541226
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Þessi dekk eru ekki henntug undir þennann bíl, alltof þung og stíf. Þú færð þér ekki Hilux diesel ef þú ert að leita af kraftmiklum bíl, það er bara ekkert flóknara en það. Að lokum þá átti ég svona bíl með 2.4 bensínvél og var ég með 5:71 hlutföll sem reyndust mér vel. Það eru margir sem munu á eftir koma og segja að þau brotni við minsta átak en það er bara spurning um að kunna að keyra þá eru allir sáttir :)

    Kv. Davíð





    01.02.2006 at 01:14 #540772
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Það sem ég var þó að tala um í upphafi er fólkið sem notar aukaljós eingöngu til þess að vera "töff" það er einmitt fólkið sem er ekkert að hugsa um hvort sá sem kemur á móti verði fyrir óþægindum eða ekki. Sjálfur bý ég í Norðurárdalnum og hef einmitt orðið var við "hnakkana" á flutningabílunum sem lýsa upp dalinn en þeir meiga flestir eiga það að þeir átta sig á styrk ljósana og lækka þau í tíma og hækka þau ekki fyrr en þeir eru komnir fram hjá. Þó verð ég að kalla það skrítið að einn bíllinn sem ég mætti í kvöld lýsti með 8 kösturum á móti mér meðan aðeins er leift að hafa 2 kastara skv. lögum, svona erum við nú löghlíðin á klakanum.
    Kv. Davíð





    30.01.2006 at 08:21 #540712
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Vissulega eru sumir svuntukastarar ekki slæmir meðan aðrir eru mjög óþægilegir þrátt fyrir að vera með dreifðan geisla. Þá er ég mjög sáttur við notkun kastara úti á þjóðvegum en mæli þó eindregið með að hafa kastara tengda háu ljósum bílanna…





    29.01.2006 at 21:36 #197191
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Ég verð að fá að lýsa andúð minni á því þegar menn keyra um Reykjavík eða aðra upplýsta þéttbýliskjarna með kveikt á ljóskösturum. Þá á ég bæði við venjulega ljóskastara sem eru framan á bílum og líka svuntukastara sem eru mjög vinsælir. Oft eru talsverð óþægindi að mæta þessum bílum sökum sterkra ljósa fyrir utan hversu mikill óþarfi það er þar sem óvíða í heiminum eru jafnvel upplýstar götur og í Reykjavík.
    Svo vill ég nú líka spyrja hvað málið sé með þessar parkljósaperur í köstörum? Mönnum þykir þetta voðalega töff að hafa þetta en þjónar þetta einhverjum tilgangi, sbr. þráð sem ég sá hér um daginn þar sem menn voru að elltast við marglitar parkljósaperur til að hafa í þessum kösturum? Þá á ég við ef ég er með dulítið bláar perur kemur þá svolítið blárri geisli úr kastaranum?
    Var bara svona að spá…

    Kv. Davíð





    25.01.2006 at 14:32 #540238
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Hafa samband við Activity – http://www.activity.is – 580-9900. Það eru eigendur skálanns.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 236 total)
← 1 … 4 5 6 … 12 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.