You are here: Home / Darri Mikaelsson
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Ég vildi bara biðja þá sem eiga leið í setrið frá Kerlingafjöllum að hafa augun opinn fyrir mannabrodda (í svartum poka) austan megin við seinna vaðið (kannski 10 – 15 m frá vaðinu)sem er circa 1km vestur við Þverfell.
Þeir ættu að liggja mjög nálægt veginum sennilega norðan megin við veginn.
Hnitið tekið frá korti er :
64 39.4977 N 19 9.3034 W
eða á UTM formi :
27 588101.5 Easting
7171655.3 Northing
Ef þeir finnst þá væri einn hofsjöklafari mjög Þakklátur.
Má finna mig í darriogfrida@internet.is eða themadhouse@internet.is
sími – 562 0939
gsm – 694 5075
Darri
Fyrir þá sem eru forvitnir um hvernig maður fer að að týna mannbrodda á þessari slóð þá var það þannig að ég, ásamt tveimur öðrum, hefðu gengið yfir Hofsjökulinn á skiðum og síðan gengið út á veginn að biða eftir farinu heim. Við tjöldum við veginn því við þurftum að biða í 3 tíma eftir að vera sóttir. Broddarnir voru einfaldnir skilnir eftir í hasanum að hlaða bílnum og koma okkur af stað heim.
Takk kærlega fyrir svarið og ábendingarnar.
kv.
Darri
Ég er í hópi sem hyggst ganga á gönguskíðum yfir Hofsjökull byrjun Júlí. Mig langar að spyrja ykkur hvernig munurinn er að fara upp frá setrinu og að fara upp frá Kerlingjafjöllum.
Á þessum tíma ársins er hægt að keyra alveg upp í snjó? Okkur langar að nota pulkur en það getur verið erfitt ef maður þarf að labba mikið til að komast í snjó.
Hvernig er norðan megin milli jökuls og Ingólfsskála?
Hefur einhver farið upp hofsjökul nýlega? Hvernig eru sprungurnar á þessari leið?
Er önnur leið sem kemur til greina?
Það er mikið spurt og ég verð mjög þakklátur fyrir allar upplýsingar sem þið getið veitt mér.
takk
Darri