Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.04.2009 at 15:30 #204269
Vil mynna félagsmenn að virða lokanir vegagerðarinnar vegna aurbleytu.
Lokanirnar eru birtar á þessu kortiFerðakveðja Dagur Umhverfisnefnd
13.03.2009 at 21:19 #643470Miðað við myndina og það að nefna ekki alla nothæfa hluti þá dettur mér helst í hug að nefna sambærilega hluti.
1 Skífmál mælir í MM.
2 Tommustokkur mælir í tommum eða CM.
3 Málband mælir í CM eða metrum.síðan er eflaust hægt að telja endalaust upp hluti sem þjóna sambærilegu hlutverki:
Míkrómeter, KM mælir, Nanómeter, Rauðviksmælir, mælir í ljósárum (sem er vegalengd, ekki tími).
Ýmis hugtök eru notuð um vegalengd: faðmur, þumamall, áln, fet, míla, dagleið, hársbreidd o.g.s.f.v.
05.03.2009 at 00:20 #20396404.02.2009 at 23:38 #640040Alveg rétt hjá Benna, þetta virkar náttúrulega ekki ef tíðnin er ekki rétt, enda eru þeir þá ekki að stilla á rétta rás.
04.02.2009 at 23:17 #639912The starter motor can be your problem.
When hot it’s not working.
It can be stuck carbon connecor in the motor.
That means removing the starter, cleaning and renew carbon connectors (kol á Íslensku).
The click you hear is in the starter relay, and it can also have bad contacts.
04.02.2009 at 22:31 #203744Legg til að vefaðgangi eftirfarandi persónu, verði lokað á vef f4x4, vegna misnotkunar á auglýsingum.
Hann er nú búinn að ryðja auglýsingum allra annara af forsíðunni með eigin auglýsingum.Birgir Ingólfsson
birab (hjá) simnet.is
04.02.2009 at 22:17 #640032Skúli hefur því miður rangt fyrir sér því báðir heyra suðið frá endurvarpanum, enda stillir squelsinn aðeins móttökunæmnina.
Freyr hefur hinsvegar rétt fyrir sér og nær Siggi ekki að lykla endurvarpann því hann hefur ekki nægan sendistyrk, eða að ekki er réttur sítónn sendur og opnar því sítóns squelsinn í endurvarpanum ekki fyrir hans sendingu.
30.01.2009 at 20:57 #637486Nýskráningar í hópinn.
Geir 38" 90 cruser
Bessi 38" hilux
Sigurjón 44" 80 cruser
Guðmundur 38" 90 cruser
Gunni Hási 44" 120 cruser
og kanski Einar Kjartanson 30"+? séríóka.kveðja Dagur
29.01.2009 at 23:28 #639252Als ekki rífa vélina í sundur til að að athuga hvort leki niður með stimplum.
Til er aðferð til að mæla þetta.
Glóðarkertið er tekið úr og viðkomandi stimpli, settur í nákvæmlega í topp stöðu, á þjöppu/afslagi.
Síðan er loftslanga með þrýstimæli sett í glóðarkertisgatið og loftþrýstingi hleipt á ca 3 bar og lokað fyrir. Síðan er að fylgjast með hvað þrýstingurinn sígur hratt.
Ef leki er þá er hægt að hlusta eftir honum hvort leki niður með stimpli( olíuáfyllingu), með sogventlum(loftinntaki), og með útblástursventlum( pústurrör).
Ef enginn þrýstingur myndast þá er ventill opinn(vélin ekki í þjapp/afslagi) og ef hún snýst þá er stimpillinn ekki alveg í nákvæmri topp stöðu.
Gott er að mæla alla strokka og eða mæla í annari samskonar vél til að fá samanburð.kveðja Dagur
21.01.2009 at 23:05 #638176Hluti af stjórn F4x4 og hluti af umhverfisnefnd 4×4 ásamt lögfræðilegum ráðunaut, áttum fund hjá UST í dag.
Fjallað var um stækkun friðlands við Þjórsárver,4 þar sem Setrið er sýnt innan stækkunarinnar.
Fullyrt var af hálfu UST að fullt samráð verði við klúbbinn varðandi stækkun friðlandsins en fjallað verður um stækkunina 2010-11.
Rætt var um Slóðanefnd ríkisins og var einnig fullyrt að samráð verði við útivistarsamtök á borð við F4x4 um hvaða slóða skal haldið opnum og hverjum ekki.
Einnig var fullyrt að þau vinnubrögð, sem lýst er hér að ofan, eigi við um eldri slóðanefndir en ekki þessa sem er í dag.
Þetta var alvarlegur en ánægjulegur fundur.kveðja Dagur Umhverfisnefnd F4x4
21.01.2009 at 21:46 #635506Til hamingu með áfangan strákar.
Myndir má sjá [url=http://traverse.npolar.no/expedition-diary/archive/2009/01/06/heavy-traffic-at-the-recovery-lakes:yzejq87q][b:yzejq87q]hér[/b:yzejq87q][/url:yzejq87q] og [url=http://traverse.npolar.no/expedition-diary/archive/2009/01/06/heavy-traffic-at-the-recovery-lakes:yzejq87q][b:yzejq87q]hér[/b:yzejq87q][/url:yzejq87q] .
kveðja Dagur
21.01.2009 at 21:45 #635504Til hamingu með áfangan strákar.
Myndir má sjá [url=http://traverse.npolar.no/expedition-diary/archive/2009/01/06/heavy-traffic-at-the-recovery-lakes:2qhwbg6p][b:2qhwbg6p]hér[/b:2qhwbg6p][/url:2qhwbg6p] og [url=http://traverse.npolar.no/expedition-diary/archive/2009/01/06/heavy-traffic-at-the-recovery-lakes:2qhwbg6p][b:2qhwbg6p]hér[/b:2qhwbg6p][/url:2qhwbg6p] .
kveðja Dagur
18.01.2009 at 00:54 #638172Í þessu tilfelli er slóðanefnd ríkisins að pressa á sveitarfélögin til að taka ákvörðun um mál sem kanski fæst sveitafélög eru eru tilbúin til.
Varðandi gagnasöfnun þá eru slóðir mældar af LMI og F4x4, en umsagnir vantar og þegar notendur koma kvergi að umsagnarferlinu, þá má vænta þess að ákvarðanir eru teknar án umsagnar og umræðu, eða eins og sagt er á götunni, út í bláinn.
kveðja Dagur
17.01.2009 at 14:01 #638164Hér að neðan er viðtal við Árna Bragason, þá forstöðunanns útivistarsviðs UST.
Í viðtalinu kemur greinilega fram að útivistarsamtök og almenningur yfirleitt á ekki að skipta sér af skipulagningu hálendisins fyrr en eftir að ákvarðanaferlinu er lokið.
Þó að Árni er hættur hjá UST þá virðist þessi verklagsregla í fullu gild hjá slóðanefnd ríkisins.
Þetta verklag getur aðeins leitt til ófriðar um alla ákvarðanatöku og er ekki til þess fallið að skapa sátt í þjóðfélaginu.kveðja Dagur
9.9.2005
Rás 2
DægurmálaútvarpiðÓstjórn á hálendi Íslands
Það ríkir óstjórn á hálendi Íslands þar sem félag jeppamanna veður uppi og tekur sér vald til að merkja leiðir. Vald sem það hefur alls ekki. Páll Ásgeir ræddi viðkvæm mál og umdeild við Árna Bragason en hann er forstöðumaður náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar.
Við fjölluðum hér fyrr í vikunni um jeppamenn eða það er réttara sagt félag jeppamanna sem heitir 4X4 sem að hugðist um þessa helgi fara í svokallaða árlega stikuferð félagsins og ætlunin var að stika leiðina milli Jökulheima og Vonarskarðs. Það kom svolítið babb í bátinn vegna þess að eftir tilmæli ef ekki beinlínis neitun frá oddvita Ásahrepps þá var hætt við þessa fyrirætlun og oddviti Ásahrepps, Jónas Jónsson, taldi reyndar að framkvæmdaleyfi þyrfti til þess að leggja niður þessar stikur en jeppamenn voru honum reyndar algjörlega ósammála. Hjá mér situr Árni Bragason, forstöðumaður náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar.
Páll Ásgeir Ásgeirsson: Velkominn Árni.
Árni Bragason, forstöðumaður náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar: Takk fyrir.
Páll: Hvað er svona hið rétta í þessu? Útskýrðu það fyrir okkur aðeins.
Árni Bragason: Ja þetta er skipulagsmál. Vegir eru fyrst og fremst skipulagsmál og á forræði sveitarfélaganna. Þannig að það sem Jónas segir þessum mönnum er að mínu áliti rétt.
Páll: Burtséð frá því, nú skilst mér að það sé deilt aðeins um sko hvaða framkvæmdir þurfi framkvæmdaleyfi.
Árni Bragason: Já en það sem að er kannski aðalmálið og þetta er jú hluti af miklu stærra máli sem er þessir vegir sem að, það eru vegslóðar um allt land sem ekki er búið að taka ákvörðun um. Það var starfandi hér nefnd síðast liðinn vetur sem skilaði af sér tillögum til umhverfisráðherra um að taka á þessum málum, reyna að ljúka þessum málum á næstu tveimur árum. Og ein af tillögunum var sú að það yrði endað með því að þetta færi allt í gegnum skipulagsferli sveitarfélaga og hreinlega inn í aðalskipulag.
Páll: Það var sem sagt niðurstaða nefndarinnar að þessi mál yrðu í rauninni á forræði sveitarfélaga.
Árni Bragason: Ja það er það samkvæmt lögum í dag og þarna var verið að ræða um eða leggja upp ákveðið verkefli sem ætti að fara eftir og það er alveg klárt að 4X4 menn hafa verið að ákveða ýmislegt upp á sitt einsdæmi. Ákveða að það væri betra að hafa þennan vegslóða frekar en hinn og ákveðið þá að merkja hann. Þeir hafa verið að gera verulega mikið gagn mjög víða með þessu en málið er að þeir eru bara ekkert að fara að lögum, þeir eru að taka sér vald sem þeir hafa ekki, taka sér vald sem sveitarfélögin hafa. Þannig að það rétta í þessu máli er það að sveitarfélagið ákveði hvar vegir og vegslóðar eiga að vera og síðan geta 4X4 menn tekið það verkefni fyrir sveitarfélagið að merkja.
Páll: Þessi lög hafa, þetta lagaumhverfi hefur verið í gildi lengi.
Árni Bragason: Já, já.
Páll: Nú kom það skýrt farm í samtölum mínum við fulltrúa jeppamanna að þeir virtust standa margir í þeirri trú að þeir þyrftu ekki leyfi neins til þess að gera þetta, þar sem að slóðinn væri þarna og það þyrfti bara að merkja hann.
Árni Bragason: Ja það er nú málið. Hvernig mynduðust þessar leiðir?
Páll: Með akstri.
Árni Bragason: Með akstri og akstri hverra?
Páll: Jeppamanna geri ég ráð fyrir. Þetta eru ekki beinlínis fólksbílaleiðir.
Árni Bragason: Já það er auðvitað málið en margar þessar leiðir hafa orðið til sem smalaleiðir bænda, eru að leita að fé, fara kannski einu sinni tvisvar á haustinu. Svo dettur einhverjum jeppamönnum í hug að það sé nú gaman að fara þessa leið og þá ákveða þeir bara að byrja að keyra og síðan bætist við og það fer að koma sumarumferð inn á leiðir sem engan veginn þola umferð. Þannig hafa margar þessar leiðir orðið til. Vissulega viljum við ferðast um landið okkar en það eru líka ákveðin svæði sem eru þannig að þau þola kannski ekki mikla umferð. Margar þessar leiðir eru líka þannig að þær verða bara mjög slæmar, sérstaklega við mikla notkun og ef það eru bleytur. Fyrri part sumars eftir að snjóa leysir þá þola þessar leiðir kannski enga umferð. Bændur kvarta yfir því að jeppamenn eru að fara inn í ja, t.d. rjúpnaveiðar margar þessar leiðir sem að eingöngu voru hugsaðar sem smalaleiðir. Þetta kallar á viðhald og hver á að sjá um þetta viðhald? Ekki er það Vegagerðin vegna þess að þetta eru ekki vegir. Þá lendir það á sveitarfélögunum. Þannig að við erum að kalla yfir okkur óstjórn og menn hafa leyft sér að haga sér bara að eigin geðþótta.
Páll: Það hefur ríkt óstjórn í þessu máli.
Árni Bragason: Já, það er alveg rétt og það eru ýmsir, það er ákveðinn hópur manna sem að telur sig vera í fullum rétti með að merkja en það er bara alls ekkert rétt. Þetta er mál sveitarfélaganna og það eru lög í landinu.
Páll: Þegar að þessir slóðanefnd sem að stundum er kölluð svo manna á milli, þegar hún skilar af sér þessu verkefni og leggur til að það verði komið böndum á þetta innan tveggja ára, breytir það núverandi ástandi?
Árni Bragason: Ja það þarf að fara í ákveðna vinnu. Það þarf að kortleggja leiðir og það þarf að taka ákvarðanir og það er kannski fyrst og fremst það sem er tímafrekt og kostnaðarsamt.
Páll: Og skilgreina þá hálendið eftir ferðamennsku?
Árni Bragason: Hvað viljum við? Hvar viljum við hafa vegi og hvar viljum við ekki hafa vegi. Það þarf að taka meðvitaðar ákvarðanir um það.
Páll: Er þessi vinna í gangi?
Árni Bragason: Hún er ekki í gangi í augnablikinu, nei.
Páll: Er það ekki vont?
Árni Bragason: Ja ég segi nei. Það er ákveðin vinna í gangi sem er vinna Landmælinga og Vegagerðarinnar við það að ljúka kortlagningu.
Páll: Kortlagningu þessara slóða.
Árni Bragason: Já.
Páll: Svo að það sé hægt að ákveða hverja þeirra má nota og hverja ekki.
Árni Bragason: Já. En vissulega gætu sveitarfélögin tekið til hendinni. Það eru upplýsingar, heilmikið af upplýsingum sem að liggja þegar fyrir þannig að það væri hægt að fara af stað en þetta er spurning um ja, ég held fyrst og fremst tíma og peninga. Getum við ætlast til þess að lítil sveitarfélög leggi mikla krafta í þetta?
Páll: En meðan að þessu verki er ekki lokið að þá er það, það er landið sem að líður fyrir það er það ekki?
Árni Bragason: Já fyrst og fremst, fyrst og fremst.
Páll: Ég heyrði líka í samræðum mínum bæði við jeppamenn og fulltrúa fjallamanna í ferðaþjónustu, nokkra gagnrýni á að þeir, meintir hagsmunaaðilar í þessu sambandi, fengju ekki að koma nógu mikið að þessari vinnu. Er það réttmæt gagnrýni?
Árni Bragason: Það er nú þannig þegar um er að ræða skipulag og skipulagsmál að þá er jú skipulagið auglýst og þar er aðkoma almennings, það er búið að tryggja það með lögunum. Þessir menn hafa ekki rétt samkvæmt lögum til þess að ákveða þetta fyrir sveitarfélögin, bara alls ekki, það er bara ekki þannig í skipulagsmálum. Það er jú skipulagsvaldið sem að á að leggja upp dæmið, kynna það fyrir almenningi sem getur komið með athugasemdir og síðan er það sveitarfélagsins að taka endanlega ákvörðun og síðan er slíkt skipulag staðfest af ráðherra.
Páll: Einmitt. Árni Bragason, forstöðumaður náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar, þakka þér fyrir.
17.01.2009 at 13:18 #638162Hér fyrir neðan er tilvitnun í skýrslu Starfshóps um stækkun friðlands Þjórsárvera:
"Í starfshópnum voru Árni Bragason frá
Umhverfisstofnun formaður, Egill Sigurðsson, tilnefndur af Ásahreppi, Þorgils Torfi Jónsson,
tilnefndur af Rangárþingi ytra og Gunnar Örn Marteinsson, tilnefndur af Skeiða- og
Gnúpverjahreppi. Starfshópurinn hélt fjóra vinnufundi, hitti helstu hagsmunaaðila og hefur nú
lokið störfum og leggur til meðfylgjandi breytingar á mörkum og friðlýsingu.""Breytt reglugerð um friðlandið.
Reglugerð friðlandsins verði breytt þannig að öll umfjöllun um lónhæð falli út og
eftirfarandi reglur verði settar:
1. Sérstök ráðgjafanefnd er Umhverfisstofnun til ráðuneytis um málefni friðlandsins. Hún skal
þannig skipuð, að Umhverfisstofnun, Landsvirkjun, sveitarstjórn Skeiða og Gnúpverjahrepps,
stjórn Afréttamálafélags Flóa- og Skeiðamanna, Ásahreppur og Rangárþing Ytra tilnefna einn
mann hver. Frjáls félagasamtök tilnefni einn fulltrúa. Starfstímabil fulltrúa er hið sama og
kjörtímabil sveitarstjórna. Umhverfisstofnun skipar formann ráðgjafarnefndar.
2. Mannvirkjagerð, jarðrask og aðrar breytingar á landi, svo og breytingar á rennsli vatna og
vatnsborðshæð, eru óheimilar nema til komi leyfi Umhverfisstofnunar.
3. Óheimilt er að skaða gróður og trufla dýralíf, svo og að hrófla við jarðmyndunum,
gæsaréttum og öðrum minjum.
4. Umferð ökutækja er óheimil utan merktra ökuslóða. Þó skal heimilt að nota bíla og vélsleða
á jökli og einnig á snjó og hjarni þegar gróðri stafar ekki hætta af.
5. Á tímabilinu 1. maí til 10. júní er umferð um varplönd heiðargæsar bönnuð.
6. Ríðandi mönnum er heimil för um svæðið á hefðbundnum leiðum í samráði við
sveitarstjórn. Þjórsárveranefnd og sveitarstjórn geta takmarkað ríðandi umferð um viðkvæm
svæði vegna gróðurverndar.
7. Flug neðan 3.000 feta hæðar yfir friðlandinu utan jökuls er óheimilt á tímabilinu 1. maí til
10. ágúst.
8. Reglur þessar hagga ekki hefðbundnum rétti bænda til umferðar vegna nytja og leita á
svæðinu. Um upprekstur á svæðið fer eftir reglum, sem viðkomandi sveitarstjórn eða stjórnir
afréttarmála setja að fengnum tillögum Þjórsárveranefndar.
9. Notkun skotvopna er óheimil á friðlandinu nema til minka- og refaveiða og skal hún vera í
samráði við sveitarfélögin."Það virðist nú þegar verið ákveðið hver þessi eini fulltrúi frjálsra félagasamtaka er:
Áhugahópur um verndun Þjórsárvera.
Fulltrú þeirra á fundum starfshópsins var Sigþrúður Jónsdóttir. starfsmaður Landgræðslunar.Fjallað var um skýrslu nefndarinnar í fjölmiðlum og tók Árni það skýrt fram að nefndin hefði talað við ALLA hagsmunaaðila á svæðinu.
Þannig að ljóst er að fulltrúi F4x4 eða annara útivistarsamtaka á hvergi að koma þarna nærri.
Skýrslu starfshópsins má sjá
[url=http://http://www.mbl.is/morgunbladid/itarefni/469.pdf:2zmnhv3d][b:2zmnhv3d]hér[/b:2zmnhv3d][/url:2zmnhv3d]
kveðja Dagur
05.01.2009 at 14:56 #636334Fór um helgina um Fljótshlíð og í Skófluklif við Strút.
Mjög snjólétt er á leiðinni í Mosa, en sneiðingurinn við Einhyrning ófær og töluvert svell í brekkunum ofan við Brúna yfir Markarfljót.
Sæmileg snjóalög eru austur af Hattfelli, en krapi í öllum lægðum og Mælifellssandurinn vart fær, nema þar sem landið er hæðst.
Flestar ár eru opnar, en einstaka snjóbýr eru enn.
Mæli eindregið með nagladekkjum og spili ef menn ætla syðra fjallabak.
Færi ætti að geta orðið mjög gott ef einhvertíman frystir.
kveðja Dagur
14.12.2008 at 22:12 #634688Hér er frétt frá veðurklúbbnum [url=http://rangarthingytra.is/frettir/1514/:276c4kyb][b:276c4kyb]Lunda[/b:276c4kyb][/url:276c4kyb]
Stórviðri og snjóavetur þegar Davíð hættir í Seðlabankanum.Þann 8.okt.var haldinn fundur hjá Veðurklúbbi Lundar. Jón Þórðar setti fund og bauð gesti velkomna þar með talinn gestinn okkar sem að þessu sinni var Jón Ragnar Björnsson. Ritari las fundargerð.
Jón Ragnar er fæddur að Ölvaldsstöðum í Borgarfirði 1943, ólst við venjuleg sveitastörf. Jón Ragnar lauk Búfræðikandidatsprófi við Landbúnaðarháskólann í Kaupmannahöfn . Er hann kom heim frá námi vann hann við hin ýmsu störf tengdum landbúnaði þ.á.m. hjá S.Í.S. Í dag starfar hann hjá Landgræðslunni í Gunnarsholti. Minntist hann á mikilvægi þess að græða landið, þá skaut Þorsteinn því að, að hann minntist þess að um vorið 1934 hafi verið orðið hvanngrænt, en viku síðar var orðið sandauðn eða því sem næst. Sagði Jón Ragnar að um 1000-1500 gestir heimsóttu Gunnarsholt á ári hverju. Hann vinnur einnig við uppsetningu á vefsíðum fyrir fyrirtæki m.a. bjó hann til vefsíðu Lundar.
Eftir kaffihlé sneri fólk sér að sjálfri veðurspánni.
Steini segir að eins veður verði fram að jólum, Guðni spáði uppstyttum og vætu inn á milli annars væri 2 vikur til vetrarnátta, Bjarnhéðinn segir að áfram verði skin og skúrir, Jón Helga segir að hann verði svona þar til breytir eða þannig, Billi segir svipað áfram sólskin m/ skúrum út okt, að lokum sagði Jón Ragnar að svona verður veðrið gott þar til Davíð hætti í Seðlabankanum en þá breyti í stórviðri með roki og rigningu síðan hörku snjóavetur og vakti þetta kátínu í hópnum.
Auðvitað flugu vísur hægri og vinstri en báðir hagyrðingarnir í hópnum þeir Jón Helgason og Guðni á Þverlæk létu sitt ekki eftir liggja en slógu botninn í fundinn með sitt hvoru vísunni.
Frá Jóni
Vetrarins spá skal vera flott
Þó veðurvitið sé alveg tæmt.
Líklegast verður veðrið gott
Og vonandi ekki mjög slæmt.
Frá Guðna
Áfram líður október
Engu þarf að kvíða.
Haustkálfurinn horfinn er
hér mun verða blíða.
14 manns sátu fundinn
07.12.2008 at 19:52 #634318Þetta torf hér að ofan er svokallað stofnanamál, sem fáir skilja.
Málið er að UST stofnaði vinnuhóp um stækkun friðlands Þjórsárvera og var Árni Bragason formaður hans.
Þessi vinnuhópur ræddi við flesta hagsmunaaðila, en sniðgekk F4x4, sem á þó langstærsta skálann á svæðinu og er því einn helsti hagsmunaaðilinn.
Í skýrslu hópsins er lagt til stofnun ráðgjafnefndar sem á að leggja línur um framkvæmd friðunar.Þar segir:
4. Umferð ökutækja er óheimil utan merktra ökuslóða og skal merking háð samþykkiráðgjafanefndar samkvæmt
1. tölulið. Þó skal heimilt að nota snjóbíla og vélsleða á jökli og einnig á snjó og hjarni
þegar gróðri stafar ekki hætta af.
Tilvitnun endar.Þetta virðist beinast sérstaklega að F4x4, sem á þó ekki að koma að einn eða annan hátt að þessu.
Kort af stækkun:[img:3d1avea0]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/3929/54495.jpg[/img:3d1avea0]
Í skýrslunni segir einnig til um stofnun ráðgjafanefdarinnar, en hún ætti að starfa á meðan friðlýsing varir:
1. Sérstök ráðgjafanefnd er Umhverfisstofnun til ráðuneytis um málefni friðlandsins. Hún skalþannig skipuð, að Umhverfisstofnun, Landsvirkjun, sveitarstjórn Skeiða og Gnúpverjahrepps,
stjórn Afréttamálafélags Flóa- og Skeiðamanna, Ásahreppur og Rangárþing Ytra tilnefna einn
mann hver. Frjáls félagasamtök tilnefni einn fulltrúa. Starfstímabil fulltrúa er hið sama og
kjörtímabil sveitarstjórna. Umhverfisstofnun skipar formann ráðgjafarnefndar.
Tilvitnun endar.
Þarna er fulltrúi UST formaður ráðgjafanefndar sem veita á UST ráðgjöf.
Þetta var að visu áður en Árni Bragason tapaði slagnum um forstjórastöðu UST, og hvarf til Línuhönnunar.
En þessi skýrsla er til og virðist enn unnið eftir henni og því er þetta alvarlegt mál fyrir F4x4.Þetta er á dagskrá Alþingis á morgun.
Dagskrá þingsins45. þingfundur 08.12.2008 kl. 15:00
1. Óundirbúinn fyrirspurnatími.
2. Viðbótarsamningar við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Albaníu og Króatíu 197. mál, þingsályktunartillaga utanríkisráðherra. Fyrri umræða.
3. Frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins o.fl. (framlenging aðlögunartíma) 179. mál, lagafrumvarp félags- og tryggingamálaráðherra. 1. umræða.
4. Dýravernd 186. mál, lagafrumvarp umhverfisráðherra. 1. umræða.
5. Uppbygging og rekstur fráveitna 187. mál, lagafrumvarp umhverfisráðherra. 1. umræða.
6. Náttúruverndaráætlun 192. mál, þingsályktunartillaga umhverfisráðherra. Fyrri umræða.
7. Lyfjalög 203. mál, lagafrumvarp h. 1. umræða.
Hér er[url=http://www.althingi.is/altext/136/s/0239.html:3d1avea0][b:3d1avea0]frumavarpið[/b:3d1avea0][/url:3d1avea0]
kveðja Dagur
06.12.2008 at 20:45 #634300Já ég gæti tildæmis fengið tölvukubbinn, á skynsamlegu verði? og sett hann til sýnis á mælaborðið, enda er ekki sökkull fyrir slíkt í rafkerfi 1/2 patta.
06.12.2008 at 19:19 #203327Nú í nýrri auglýsingu má sjá eftirfarandi texta.
Manni verður bara spurn hvort boddý, dekk eða grind fylgir með.Til sölu í Nissan Patrol 2,8L 1998, Varahlutir
mio, 6. desember 2008 – 18:52Túrbína.
Olíuverk
Soggrein.
Pústgrein
Altenator
Startari.
Millikassi.
Drifsköft aftan+ framan. úr 1996 árgerð
Intercooler
Loftkæli element (air condition)
Ventlalok
Viftukúppling
Viftuspaði
Kælivifta
Trekthlíf við viftuspaða
Tölvukubbur
Loftsíuhús
Orginal álfelga/dekk af 1998 1 stk
Upplýsingar í síma 8601123
-
AuthorReplies