Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
11.04.2010 at 15:40 #690318
Virk náttúruvernd er ekki aðeins mikilvæg gagnvart almenningi heldur þurfa stofnanir á borð við UST eftirlit almennings.
Dæmi: [url:1gu7dgwe]http://epaper.visir.is/media/200611180000/pdf_online/1_2.pdf[/url:1gu7dgwe]
"Nýsir hf. sem sér um sýningarskála Íslands á Feneyja-tvíæringnum sótti um og fékk
leyfi til að fjarlægja næstum tveggja metra háan hrafntinnustein og flytja til Feneyja vegna hennar. Umræddur steinn, sem var áður á Dómadalsleið milli Landmannahelli s
og Frostastaðavatns,er þekktur fyrir glæsileika"
Þarna er verndað náttúrufyrirbrigði fjarlægt af sínum stað og sent til útlanda, en engin merki eru um að honum hafi verið skilað.
Hvað varð um steininn? Molnaði hann í fluningi eða er hann enn erlendis?
Ekki er mynnst einu orði í Íslenskum fjölmiðlum að á steinninn hafi verið á sýningunni.
Hvaða rökstuðning hefur UST til að gefa slíkt leifi? Eða er ekki heimild fyrir þessu?
Var þetta bara geðþóttaákvörðun starfsmanns UST, þar sem hann leikur sér að þjóðargersemum?
kveðja Dagur
10.04.2010 at 12:53 #690184Alvöru jéppakallar eru á gömlum vönum jéppum sem rata altaf heim, en ekki á heilabiluðum unggæðingum.
Ef við skoðum hverskonar bílar voru á ferlunarverkefni F4x4 og LMÍ þá voru traustustu bílarnir um tvítugt mest í ferlun, en einnig var ein unggæðingur þar sem búið var að skipta um mest af drifbúnaðinum og setja eitthvað gamalt og gott í stað nýmóðins malbiksöxla.kveðja Dagur sem ekur altaf á gömlum vönum jéppa.
14.03.2010 at 11:16 #686980Sé að kort Vegagerðarinnar er komið í lag, en engar lokanir vegna aurbleytu er sýndar.
14.03.2010 at 04:16 #686868Sælir.
Ég hef verið með nokkra pisla um umhverfismál og ekki finn ég fyrir skítkasti, frekar algjöru áhugleysi félagsmanna og oft spyr ég sjálfan mig, til hvers er ég að skrifa etthvað á vef F4x4, þegar ég finn ekki nokkurn áhuga hjá þessum félagsmönum F4x4, sem einir geta svarað á þessum vef.
14.03.2010 at 04:09 #211421Minni félagsmenn á að taka tillit til umhverfisins, en aurbleyta hefur fundist á slóðum nú í hitabyljunni í Mars:
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/03/13/vara_vid_ledju_a_vegaslodum/
Vonandi eru til slóðar til fjalla án aurbeytu, en vert að kanna færð.
Hinsvegar virðis Vegarðin ekki hafa nokkra hugmynd um færð eða annað samanber þetta kort:http://vegagerdin.is/umferd-og-faerd/faerd-og-astand/faerd-og-vedur/faerd-um-allt-land/island1.html
08.03.2010 at 18:51 #686012Hér eru linkar á efni fá samráðshópi um utanvegaakstur.
Ég er viss um að þú megir nota þetta, en þetta er gert í samráði við bílaleigur.
Þú getur lika haft samand við Ásgeir hjá UST asgeirb@umhverfisstofnun.is varðand prentað efni ofl.kveðja Dagur
[url:k282gzux]http://sites.google.com/a/ust.is/utanvegaakstur/baeklingur/Utanvegaakstur2009.pdf?attredirects=0&d=1[/url:k282gzux]
[url:k282gzux]http://sites.google.com/a/ust.is/utanvegaakstur/styrispjald–bilaleigur/St%C3%BDrispjaldme%C3%B0UVAfr%C3%A6%C3%B0slu.jpg?attredirects=0&d=1[/url:k282gzux]
06.03.2010 at 19:43 #686132Ég hef sjálfur ekið um þjórsárver, enda breytti ég bílnum í snjóbíl með því að hleypa hressilega úr dekkjum.
Þessi mynd var tekin við það tækifæri í janúar 2003.[img:2gklb7dt]http://www.f4x4.is/g2/main.php?g2_view=core.DownloadItem&g2_itemId=275887&g2_serialNumber=1[/img:2gklb7dt]
kveðja Dagur
06.03.2010 at 13:07 #686126Það þarf varla að taka fram að akstur vélknúna ökutækja innan friðlandsins í Þjórsárverum er bannaður: [url:3uc4obwx]http://www.ust.is/LogOgReglur/Fridlysingar/Fridlond/nr/251[/url:3uc4obwx]
En við vitum að reglulega er farið inn í friðlandið á ökutækjum, eins og ég bendi á að ofan.
Einhver nefndi ferð fuglafræðinga á ökutækjum inni í friðlandinu síðasta sumar, en ef för sjást eftir ökutæki, þá vitum við hverjum er kennt um.
í reglugerðinni seigir:"Umhverfisstofnun getur veitt heimild til þessa að vikið verði frá reglum þessum í einstökum tilfellum og kveðið nánar á um vernd svæðisins. Með friðlýsingu þessari er engin afstaða tekin til þess hverjir séu eigendur þess lands sem hún tekur til eða eigi þar takmörkuð eignarréttindi."
Þegar Kolbrún Halldórsdóttir var með æsing í blöðunum vegna hjólfara sem hún sá í Þjórsárverum, þá þögðu allir þessir opinberu aðilar, sem veittu og fengu heimild til aksturs í Þjórsárverum og þótti líklega bara gott að ferðafólki væri kennt um.
Undanfarið hefur áróður um að utanvegaasktur væri stóraukin á hálendi Íslands, en þegar er spurt hvar? þá er fátt um svör.
Nú hafa um 13000 manns undanþágu frá náttúruverndarlögum um akstur utanvega, en ekkert er hveðið á um upplýsingarskyldu þessara aðlila.
Meira seigja í nýlegri reglugerð um Vatnjökulsþjóðgarð, hafa þessir sömu aðilar opna heimild til utanvegaakstur, en þurfa samt ekki að tilkynna neitt til þjóðgarðsvarða.
Síðasliðið sumar voru jarðvísindamenn við rannsóknir við Kverkfjöll og víða þar sem bílar þeirra óku utan þekktra vega og leiða, þá eltu þá hópur útlendinga, sem héldu að akstur væri heimill þar sem þeir sáu aðra bíla aka.
Ekki hefur UST komið til varnar ferðafólki, þegar ásakanir um meintan óleyfilegan akstur er vegna akstur sem UST hefur heimilað og akstur þeirra sem hafa undanþágu frá náttúrverndarlögum.
Í umræðunni um Vatnajökulsþjóðgarð er bæði talað um að auðvelda aðgengi ferðamanna og lokun svæða vegna væntanlegs aukins átroðnings ferðamanna.
Nú eru mörg svæði Vatnajökulsþjóðgarð með takamarkað aðgengi, því vegslóðar eru ekki auðveldir yfirferðar, en ef sömu slóðar verða gerðir að fljótförnum vegum, þá mun ferðafólki fjölga umtalsvert. Hér er verið að vinna að aðgerðum sem vinna hvor gegn annari og er þá ekki betra aðhafast minna?
Í umræðunni hafa ýmsir varað við fjölgun ferðamanna og fjölgun torfærutækja sem gera ferðafólki kleift að ferðast um hálendið og á sama tíma er veitt stórfé í að laða ferðafólk til landsins.
Þarna vantar heildarsýn á málefnum hálendisins og stefnumörkun í ferðamálum.kveðja Dagur
06.03.2010 at 11:05 #211254Hvað eru margar ferðir á ökutækjum í Þjórsárver á ári?
http://www.npr.org/templates/story/story.php?storyId=16859927
Vonast eftir að félagsmenn setji inn upplýsingar um ferðir í Þjórsárverin hér.kveðja Dagur
02.03.2010 at 20:03 #211176Fulltrúar F4x4 verða á rás 2 kl 17,30 á morgun.
Þeir Skúli H Skúlason og Þorsteinn Víglundsson verða í viðtali á Rás 2.
Hægt er að klikka á þennan þráð til að hlusta :
http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/live/
14.02.2010 at 12:09 #683064Málstofa á mánudaginn: Ísland örum skorið
Næstkomandi mánudag verður málstofa LbhÍ á Keldnaholti kl. 15:15. Þar mun Andrés Arnalds, fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins, fjalla um landakort á villigötum, nýjar slóðir og vaxandi akstur utan vega. Andrés kallar erindi sitt: Ísland örum skorið. Andrés segir að vega- og slóðakerfi sé tvískipt. Annars vegar eru þær leiðir sem eru á skrá vegagerðarinnar. Hins vegar er urmull slóða utan hins opinbera kerfis. Sá hluti er mun stærri og hann hefur að mestu orðið til utan skipulags. Engar reglur gilda um birtingu ökuleiða á landakortum. Sjá nánar hér.Meira [url:2sz0gk00]http://www.lbhi.is/Uploads/document/Malstofa/Malstofa_15_februar_2010_kl_15_15_.pdf[/url:2sz0gk00]
14.02.2010 at 10:24 #683062Ég hvet félagsmenn til að fjölmenna á þennann fund.
Svona framsetning er bara til að skemma fyrir þeim sem vilja ferðast um hálendið.
31.01.2010 at 12:51 #680264Votta fjölskildu drengsins samúð mína og megi hann ná fullum bata.
31.01.2010 at 12:42 #680104Í fréttum Bylgjunar var sagt frá "Árshátíð " F4x4 í Setrinu og lesinn texti Diddu sem er hér á forsíðu vefsins.
[url:3dotsjqt]http://vefmidlar.visir.is/VefUtvarp/?channelID=BYLGJAN&programID=94d580b4-f0dc-4267-887f-d2d6b0fecba2&mediaSourceID=87e7c73a-ed0b-41e8-b883-19065667fa3c&mediaClipID=93465319-28f4-4a48-ad5e-9fbf0a2a7726[/url:3dotsjqt]
31.01.2010 at 04:55 #680214Banaslys á jökli:
Hálf fimmtug kona lést, og sjö ára sonur hennar slasaðist alvarlega, þegar þau féllu 30 metra ofan í sprungu á Langjökli í gær.
[url:1lamp0kx]http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item323065/[/url:1lamp0kx]
30.01.2010 at 21:20 #680088Förin sem Kolrún Halldórsdóttir fann í Þjórsárverum eru líklega eftir ferð eins og þessa:[url:3azq0fo4]http://www.npr.org/templates/story/story.php?storyId=16859927[/url:3azq0fo4]
01.01.2010 at 13:04 #673588Jón Snæland er verðugur titilsins maður ársins hjá F4x4.
Ég hef eitthvað lagt fram í þessa vinnu og tekið þátt í ferlun í 3 sumur og hefur það kostað mig töluvert í viðhaldi á bíl, en mitt framlag er lítilræði miðað við hvað Jón hefur lagt fram í þessa vinnu.
Annað sem Jón hefur umfram alla, sem ég þekki, er þekking á hálendi Íslands, en sú þekking gerir honum kleift að hafa góða yfirsýn yfir ferlunarverkefnið í heild.
Þessi yfirgripsmikla þekking Jóns er milkilsverð fyrir okkur sem vilja halda uppi ferðafrelsi á hálendinu.
Ég vil óska öllum gleðilegs ár og friðar og megi okkur takast að halda uppi umgengnisrétti okkar um hálendi Íslands.kveðja Dagur
30.12.2009 at 05:57 #673518Engar flugeldasýningar við hliðina á Ísaga takk fyrir.
Það gæti endað í ofsfengnum sprengingum, enda nóg af vetni og asitylen gasi rétt við bílastæðið.
09.12.2009 at 20:52 #209030Nú hefur Ferðafrelsisnefnd hafið störf og er mikið óunnið framundan.
Hérna fyrir neðan er bent á nokkur verkefni nefndarinnar, en vefsvæði nefndarinnar er hér:Nefndin vann að umsögn til nefndarsviðs Alþingis, umsögn un ný umferðarlög.
Nefndin vann að umsögn um þingálygtunartillögu landnýtingaráætlun mihjálendisins
Síðan hafa nefndarmenn unnið að greinarskrifum og tjáð sig í fjölmiðlum um málefnið.
Dagur svaraði grein Arndísu Soffíu Sigurðardóttir um Endurskoðun náttúruverndarlagaStofnanir sem heyra undir Umhverfisráðuneyti hafa sett á netið Náttúruvefsjá. Á vefsjánni má finna marga af þeim slóðum sem sem Ferðaklúbburinn og Landmælingar Íslands hafa mælt og einnig má sjá upplýsingar um náttúrufar, vatnafar, friðanir og áætlanir um friðanir.
Hér má sjá hvernig skálinn okkar Setrið fellur undir áætlanir um stækkun friðlandsins við Þjórsáver til austurs, en vestari mörkin sjást hér á myndinni:
Ferðaklúbburinn 4×4 hefur enn ekki fengið að koma að vinnu vegna stækkunar friðlandsins við Þjórsárver, þrátt fyrir að klúbburinn eigi umtalsverða hagsmuni á svæðinu, samanber myndina að ofan, en klúburinn á lang-stærstu fasteignina á umræddu svæði.
Fyrsti formaður starfshóps um stækkunina fullyrti í fjölmiðlum og í skýrslu um að haft hafi verið samband við alla hgsmunaaðila, en það er ekki rétt, því ekki var haft samband við ferðaklúbbinn.
Núverandi ríkisstjórn hefur sett tímamörk á stækkunarferlið og skal friðlandið stækkað árið 2010, en enn hefur Ferðaklúbburinn ekki fengið að koma að málinu.Þetta er lítill hluti þeirra verkefna sem ferðaflrelsisnefndin ætlar að vinna í næstu mánuði og er af nógu af taka.
kveðja Dagur
04.12.2009 at 14:21 #669994Ég er búinn að vera með svona loftsystem á brúsum síðan krapa 2000, en þá tók ég með 6st. 30L bensínbrúsa í staðin fyrir aftursætið í gamla Bronco og tæmdi afþeim með svona stút með þrýstilofti án þess að losa brúsana úr festingunum.
En að festa brúsa vel niður var mikið atriði í Gamla Stutta Broncó.Dagur
-
AuthorReplies