Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
22.06.2006 at 19:15 #554794
Sæll Siggi, ef þú berð myndina frá mér og þína mynd saman þá er þor næstum alveg eins, enda sátu við nokkur saman við varðeldin í fyrra, og tóku myndir af krökkunum.
kveðja Dagur
22.06.2006 at 16:47 #554790Nú eru 46 fullornir og 22 börn skráð í Landgræðsluferðina.
Kveðja Dagur
22.06.2006 at 16:43 #555060Ég setti inn myndir frá landgræðsluferinni í fyrra og vefurinn notar dagsetningar á myndum þegar þær voru teknar, en myndavélin setur dagsetningu inn í JPG formið.
Kveðja Dagur
21.06.2006 at 22:38 #554786Eftir að hafa plantað nokkrum birkiplöntum er grill í boði klúbbsins og eftir það er kvöldvaka hjá Útivist.
Það er alltaf varðeldur og er það mjög vinsælt hjá krökkunum
[img:fxxwbuqi]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/3929/32491.jpg[/img:fxxwbuqi]En sumir eru heldur nálægt.
[img:fxxwbuqi]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/3929/32490.jpg[/img:fxxwbuqi]
Kveðja Dagur
20.06.2006 at 13:49 #554782Nú eru 24 fullornir og 16 börn skráð í ferðina
kveðja Dagur
20.06.2006 at 00:17 #554778Einhverjir ætluðu að hittast á Select kl 18 á föstudaginn og verða samferða þaðan í Mörkina
20.06.2006 at 00:00 #554774Það voru 9 skráðir á fundinum bæði þeir sem voru mættir og aðrir sem voru fjarverandi, eða samtals um 20 skráðir í Jónsmessuferðina.
19.06.2006 at 19:05 #554770Það er alltaf mikil traffík á Jónsmessu í þórsmörk.
260 manns eru skráðir í göngu útivistar yfir fimmvörðuháls, síðan f4x4 og eftir eru austurleið og aðilar á vegum ferðafélags Íslands.
Bara að fylgjast með öðrum yfir árnar og fara varlega, í Bása hjá Útivist.
þú þarft ekki að fara yfir Krossá.
Einnig er mjög líklegt að þú náir sambandi við f4x4 félaga með VHF.
Kveðja Dagur
18.06.2006 at 22:25 #554766Það eru allir velkomnir, bara að skrá sig til að við vitum hvað margir ætla að mæta.
17.06.2006 at 07:56 #198106Landgræðsluferð í Þórsmörk 24. júní
Helgina 24. júní verður farin hin árlega landgræðsluferð Ferðklúbbsins 4×4 í Þórsmörk. Tjaldstæði hafa verið tekin frá í Strákagili í Básum á Goðalandi.
Skipulögð dagskrá hefst klukkan eitt laugardaginn 24. júní, þegar safnast verður saman við Álfakirkjuna gegnt Langadal. Þaðan mun Guðjón Magnússon kynningarfulltrúi Landgræðslunnar leiða hópinn norður yfir Krossá á Merkurranann þar sem unnið hefur verið að uppgræðslu í samvinnu Ferðaklúbbsins og Landgræðslunnar í um það bil áratug.
Í þetta sinn verður plantað birkiplöntum auk þess að dreifa áburði eftir þörfum. Starf klúbbsins hefur borið mikinn árangur og það er ánægjulegt að sjá hversu gróðri á Merkurrananum fer fram, ár frá ári. Myndir úr fyrri ferðum eru á vefsíðu Umhverfisnefndar http://um44.klaki.net.
Markmiðið er að börn og fullorðnir eigi góða stund saman og um kvöldið verður sameiginleg máltíð í boði klúbbsins. Vegna undirbúnings og innkaupa þurfa menn að skrá sig í ferðina. Skráningar þurfa að berast ekki seinna en fimmtudaginn 22 júní
26.05.2006 at 21:09 #553244Miðað við staðsetninguna á bílnum hlítur ökumaðurinn að vera fatlaður, ef ekki með skírteini uppá það, andlega fatlaður!!
24.05.2006 at 01:02 #552756ég skill ekki þessa áráttu að nota þyrlur til leita.
Litlar flugvélar eru margfalt ódýrari í rekstri og mjög gott er að leita úr þeim og svo er hægt að kalla í þyrlu, eða björgunarsveitir þegar eitthvað sést sem þarfnast nánari skoðunar.
28.04.2006 at 22:31 #551386Hvar færðu þessu hlutföll og á kvaða verði?
Þetta einmitta það sem þarfí Pattann
27.04.2006 at 20:03 #551296sjá [url=http://www.f4x4.is/new/forum/?file=bilarogbreytingar/5527:22q16nt1]þetta[/url:22q16nt1]
Kveðja Dagur
27.04.2006 at 14:07 #551148Í þessari [url=http://www.swri.edu/4org/d02/Abstracts/ir323abstract.pdf:2maoeg4u]skýrslu[/url:2maoeg4u] er mælt með að nota [url=http://www.primrose.com/wtds/402%20Lubri-Power%20WTDS.pdf:2maoeg4u]Bætiefni[/url:2maoeg4u] í olíuna ef hún er blönduð með steinolíu(Jet1).
27.04.2006 at 11:49 #551142Til eru mælieiningar um eginleika eldsneytisolíu.
Blossamark/flash point= Hitastig sem gasuppgufun verður næg til að loga í stuttan tíma.
Brunamark/fire point= hitastig sem uppgufun er næg til að viðhalda loga.
Sjálkveikimark/spontaneousignition point=hitastig sem sjálkveiking verður við.
Kveikihæfni/zetantala= kveikihæfni olíu við þjöppun í ákveiðinni vél.(fylgir gjarnan blossamarki, hlutfallstala)
Flókamark/Móðumark/flock point= hitastig sem vax fer að skiljast út.
Storknunarmark/poir point= hitastig sem olían hættir að vera fljótandi.
Stíflumark/cold filter plugging point = hitastig sem veldur stíflun við [url=http://www.octel-starreon.com/Fuel_Analysis_Low_Temperature.htm:sfo74b73]ákveðnar[/url:sfo74b73] aðstæður.
Dælumark = hitastig sem ákveðin dæla hættir að geta dælt oíunni,
Varmagildi/calorific value= orkuinnihald kcal/kg, eða KJ/kg.
Blossamark er lægra í léttara eldsneyti (bensín- steinolía), en orkuinnihaldið er einnig minna bæði eru færri kg í hverjum lítra og einnig minni orka á hvert kg á móti díseloliu, en vaxið í díselolíunni hefur hæðsta orkuinnihaldið kcal/kg, en einnig hæðsta storknunarmarkið°C.
Einnig eru til mun [url=http://www.swri.edu/4org/d08/petprod/fees.htm:sfo74b73]fleiri[/url:sfo74b73] mæliaðferðir
Kveðja Dagur
04.04.2006 at 13:10 #548124Til að fá frostþol -33°C miðað við töfluna frá MMC / Skeljungi er hlutfall disel undir 50% af blöndunni, en ekki var daelan í Hrauneyjum merkt sérstaklega vegna þess.
Einnig er mjög mikilvægt að smurhaefni blöndunar sé maegileg fyrir eldsneitiskerfið.Steinolía % *? Tvígengisolía C.a. frostþol í ºC
0 0 -18 til -25
20 0 -20 til -27
30 0 -22 til -29
40 0,5 -24 til -31
50 0,75 -26 til -33kveðja Dagur
02.04.2006 at 10:28 #548050Samkvæmt handbók ESSO er sríflumark vetrarolíu -24 til -28°C og sumarolía -11°C, en samkvæmt upplýsingum Skúla er frostþolið -33°C, sem er með ólíkindum og hef ég ekki heyrt slíka tölu áður.
kveðja Dagur
20.03.2006 at 22:42 #546972Hér voru margir dregnir yfir [img:1zedbemr]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/4364/30027.jpg[/img:1zedbemr]
20.03.2006 at 22:19 #197589Í kvöldfréttum kom fram hjá Helga Björnssyni jarðeðlisfræðingi að bara ein leið væri fær á Hofsjökul, Mýrdalsjökul og á Bárðarbungu og ættu menn að leita sér upplýsinga áður en menn fara á jökul.
Hafa menn skoðanir á þessu?
Kveðja Dagur
-
AuthorReplies