Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.09.2006 at 21:29 #560558
Hér er stakan áður en MHN náði að endur"bæta".
Skipstjóri í afleysingum…..
Hann var í fríi og lá í landi
að leysa af heima var enginn vandi,
konan var að því komin að fæða
og hvergi um húshjálp að ræða,
En hvað munar karlmann um kerlingarstörfin
þó kanski sé stundum fyrir þau þörfin?
Konan var heima og hafði engu að sinna
nema hugsa um krakka,það er ekki vinna.
Hún sagði:Elskan þú þarft ekkert að gera,
aðeins hjá börnunum heima að vera,
ég er búin að öllu,þvo og þjóna,
þú þarft ekki að bæta ,sauma eða prjóna.
Matur er útbúin allur í kistunni,
það ætti að duga svona í fyrstuni,
aðeins að líta eftir öngunum átta
,yla upp matinn og láta þau hátta"
Nú skyldi hann hafa það náðugt og lesa
og ná sér í ærlegan skemmtipésa,
hann var ekki sestur og var nokkuð hissa
er vældi í krakka:mér þarf að pissa"
Vart þeirri athöfn var að ljúka
er veinaði annar :Eg þarf að kúka"
Þarna var engin einasti friður
ef ætlaði hann að tylla sér niður,
Dagurinn leið svo í sífelldum önnum
sem ei voru bjóðandi mönnum,
þvílikt og annað eins aldrei í lífinu
útstaðið hafði hann í veraldarkífinu.
Ölduna stíga í ósjó og brælum
var ekkert hjá þessu,það kallaði hann sælu,
en þeytast um kófsveittur skammtandi og skeinandi
skiljandi áflogaseggina veinandi!
Ef eitt þurfti að éta varð annað að skíta
og engin friður í bók að líta,
en hún sagði"Elskan.þú þarft ekkert að gera
aðeins hjá börnunum heima að vera,"
N ú voru krakkarnir komnir í rúmið,
Kyrrlátt og sefandi vornætur húmið
seiddi í draumheimana angana átta
en ekki var pabbi farin að hátta,
Hann stóð þarna úfin úrvinda og sveittur
yfir sig stressaður,svangur og þreyttur,
og horfði yfir stofuna:"hamingjan sanna
hér á að teljast bústaður manna,
"Það skyldi hann aldrei á ævinni gera
í afleysingu slíkri sem þessari vera,
þó væri íboði og á þvi væri raunin
að þau væru tvöfölduð skipstjóralaunin"
, En þetta á konan kauplaust að vinna
og kallað að hún hafi engu að sinna
af daglangri reynslu hans virtist það vera
að væri stundum eitthvað að gera.
‘Afram með störfin ótt líður tíminn
Æ" aldrei friður nú hringir síminn,
halló, var sagt, það er sætt ég túlka,
þér er sonur fæddur og yndisleg stúlka.
Hann settist á stól og fann til svima og klígju,
hvað sagði hún að krakkarnir væru orðnir tíu,"
Ég þarf að taka til öruggra varna,
ég ákveð á stundinni að hætta að barna,
14.09.2006 at 21:52 #559570Hellaskoðunarferð er frestað ótímabundið, því allir virðast Vera uppteknir af væntanlegri 44"+ferðinni, einnig virðist litladeildin vera upptekin að redda storra skónúmeri.
Dagur
13.09.2006 at 23:49 #559568Minni á að skráning í Hellaskoðunarferðina er möguleg fram á fimtudagskvöld í Mörkinni.
08.09.2006 at 00:52 #198506Helgina 16 til 17 september er hellskoðunarferð á vegum umhverfisnefndar, í stað svokallaðrar baggaferðar.
Ætlunin er að skoða hella í Lakahrauni í leiðsögn Kristjáns Péturs frá Þverá og Jóhannesar Kristjánssonar, en fjölmargir áhugaverði hellar eru í hrauninu.
Boðið er uppá gistingu í Miklafellsskála, 18 svefnpláss, og einnig er hægt að tjalda við skálann.
Æskileg er að lagt verði af stað á föstudaginn 15/9 því farið verður að hellunum frá Miklafellskála um kl. 10 á laugardaginn.
Mælst er til að fólk verði vel búið með höfuðljós, handljós, hjálm (reiðhjóla), góða skó og annan búnað.
Skráningu er lokið
31.08.2006 at 01:20 #558942Til er fólk, sem betur fer, sem styður málstað þess með rökum og einning eru til rökleysingjar, sem enda umræðuna með útúrsnúningi, enda ráðalausir með öllu þegar á botninn er komið.
Með von um skynsamlegar umræður á netinu.
Dagur
26.08.2006 at 21:35 #558694Líklegustu ástæður fyrir stöðvun hringrásar eru að vatnslásinn opnar ekki eða að lofttappi stöðvar hringrásina.
Vatnslásinn getur einfaldlega bilað, misst út gasfyllinguna sem opnar hann, eða að lítið gat sem á að viðhalda lágmarkshreifingu á vatninu stíflast og kemst þá heita vatnið ekki að hitanema vatnslássins, sem opnar hann.
Þegar breytt er um vatnskassa þar að hafa í huga að loftlás geti ekki myndast. Lotflás getur auðveldlega myndast ef vatnskasssin er lægri en vatnsslangan frá vélinni, eða að hlykkur er á vatnsslönguni upp á við.
Vatnsdæla getur bilað, en að hún hætti alveg að dæla. þá þarf dæluhjólið að losna af öxlinum, eða vanti hreinlega reymina sem snýr dælunni.
21.08.2006 at 20:25 #558278þegar startkaplar eru ekki nægilega sverir til að flytja fullan startstraum, þá er oftast hægt að hlaða tómann geymi í nokkrar mínótur, í gegnum startkaplana, áður en startað er.
þetta gengur yfirleitt, ef geymirinn er ekki alveg ónýtur
18.08.2006 at 17:34 #558116Fossberg er með fína skápa frá stahlwille, með og án verkfæra. Það má lengi semja við Gretti fèlaga minn sem er sölumaður þar og eigandi.
01.08.2006 at 03:58 #557168Ofsi nefnir ekki í upptalninguni um erfiðar leðir, Svínaskarð í Kjós, svellað.
En Ofsinn og Jón Ebbi voru þar á Súkku og var ferðasagan birt á vefnum með eftirminnanlegum hætti,[url=http://www.f4x4.is/new/forum/?file=ferdir/169:ao67ygak][b:ao67ygak]"pínulítil ferðasaga"[/b:ao67ygak][/url:ao67ygak]
25.07.2006 at 21:49 #556764þegar ég keyrði sprengisand í fyrra þá voru alveg ný mjó hjólför utan við vegin að mestu, á um 30km kafla eftir 2 bíla.
ég náði svo þessum bílum rétt við Nýjadal.
þetta voru 2 Bresk pör á Suzuki bílum með breskum númerum, en þau sóru að þau hefðu hvergi keyrt utanvega.
Lét svo staðarhaldara í Nýjadal vita af þessum akstri, en trúlega hafa viðbrögðin engin verið.
kveðja Dagur
11.07.2006 at 17:16 #556036Hér eru tölur um olíuflæði fæðidælu og innsprautun í Patrol [img:bnc9gx3x]http://www.f4x4.is/new/files/thumbnails/?file=files/photoalbums/3929/32855.jpg[/img:bnc9gx3x]
Þetta er ekki vel læsilegt en þú getur séð þetta betur [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/?file=skyrinarmynd/3929:bnc9gx3x][b:bnc9gx3x]hér[/b:bnc9gx3x][/url:bnc9gx3x]
11.07.2006 at 01:03 #556028Ég hef aldrei séð eldsneitiskerfi án retúrlagnar aftur í tank og skoðaðu betur kerfið í bílnum þínum.
10.07.2006 at 19:55 #556020Í öllum díselolíukerfum sem ég þekki, dælir fordælan töluvert meira eldsneiti en það sem fer inn á vél og fer umframmagn oíu í gegnum þrýstistilli til baka í olíutankinn, en í bílum sem gerðir eru fyrir kalt loftslag er yfirleitt thermoloki á olíubakafærsluni sem beinir heitri olíu beint í olíusíuna í stað olíutanksins. [img:1uwi0jct]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/3929/32832.jpg[/img:1uwi0jct]
Thermoloki í Patrol stilltur á 30°CÞessi thermoloki gæti vantað eða verið bilaður hjá Tuddanum þegar hann lenti í verulegum vandræðum með vax í olíusíunni í vetur. Allur mekanískur vélbúnaður myndar hita við keyrslu og er hitamyndunin í réttu hlutfalli við þrýstingin á kerfinu. Í mörgum eldri bílum með forbrunahólfi er innsprautunarþrýstinurinn 140-160 bar en í nýjustu common rail kerfum er þrýstingurinn að nálgast 2000 bar og rafstraumurinn sem opnar spíssana allt að 70 A. Þennan búnað þarf að kæla og er olían sem fer til baka frá kerfinu kanski 20 °C heitari en olían að kerfinu. Þegar þykkari olía er notuð þarf oft að hita olíuna til að halda segjunni réttri og í skipum sem brenna svartolíu getur eldsneitishitinn verið 160°C og er segjumælir notaður til að stýra hitanum. En svartolíukerfi eru hönnuð fyrir þetta og þarf að hringrása heitri olíu um eldsneitisdælur, spíssarör og spíssa þegar vélin er stopp og er rýmd stimpla og spíssa ekki sú sama og í kerfum fyrir venjulega díselolíu. Einnig eru notaðir hitarar í tönkum og fyrir síur.
Hitun á olíu getur valdið tæringu, cavitasion, á elementum og eykur áhrif lífrænna sýra í olíunni og koksmyndun ef hitastigið verður of hátt.
Raki í olíunni getur valdið vandamálum þegar hitinn eykst og einnig minkar það magn olíu sem hvert slag í eldsneitisdælu rúmar því rúmtak olíunar eykst með hitastigi.
10.07.2006 at 15:58 #556012Olían í eldsneitskerfi díselbíla er notuð bæði til að smyrja og kæla og þegar olían er hituð upp þá minnka smureginlekar olíunar og kælingin verður minni.
Menn ættu að vera meðvitaðir um áhættuna þegar svona auglýsingarusl er tengt við eldsneitiskerfið.
Ávinningur er engin því eldsneitskerfið er hannað fyrir ákveðið hitastigbil og segjubil.
09.07.2006 at 22:34 #556048Er eitthvað að frétta frá Landgræðsluferð Eyjafjarðardeildar í kuldanum þarna norðurfrá?
Kveðja Dagur
28.06.2006 at 22:34 #555438Það er Sumarhátíðin, sem er reyndar merkt, landgræðsluferð eyjafjarðardeildar, stikuferð umhverfisnefndar, ekki komin dagsetning og væntanlega hellaferð umhverfisnefndar og vantar dagsetningu þar einnig.
Fleiri gætu hafa skipulagt ferðir sem mér er ekki kunnugt um.
Kveðja Dagur
28.06.2006 at 20:57 #555432Er það ekki vefnefndar að merkja inn á viðburðardagatalið, eða stjórn.
Ekki hefur verið merkt inn ferðir sem hafa verið undanfarið eða næstu ferðir.Kveðja Dagur
26.06.2006 at 18:29 #555198Þakka öllum fyrir vel heppnaðri ferð og þá sérstaklega Guðjóni Magnússyni, Garðari og Guðmundi að gera ferðina áhugaverða og skemmtilega.
[img:15vtt270]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/4598/32696.jpg[/img:15vtt270]
Náði bara 1 mynd af velheppnaðri sveiflu.Myndir [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/?file=ferdamyndir/4598:15vtt270]hér[/url:15vtt270]
22.06.2006 at 22:54 #554802Auglýst hefur verið að Útivist taki frá svæði fyrir okkur í Strákagili, en einhver annar hópur er þar einnig og verðum við að nýta plássið vel vegna þessa mikla áhuga félagsmanna.
Magnum fer snemma á morgun og ætlar hann að setja upp stórann fána F4X4.
Sjáumst.
Kveðja Dagur
22.06.2006 at 22:05 #554798Ekki er tekið við fleiri í mat, en samtals eru skráðir 81.
Áhugasamir geta þó komið, en þurfa að skaffa sína steik.
kveðja Dagur
-
AuthorReplies