FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Dagur Bragason

Dagur Bragason

Profile picture of Dagur Bragason
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 501 through 520 (of 583 total)
← 1 … 25 26 27 … 30 →
  • Author
    Replies
  • 26.10.2006 at 22:01 #560876
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Sumar leiðir eru nokkuð gamlar og er leiðin sem mótorhjólamennirnir voru teknir á fyrir utamvegaakstur er bara eld-gömul.
    Kveðja Dagur
    Jórunn hét stúlka ein; hún var bóndadóttir einhvers staðar úr Sandvíkurhrepp í Flóanum; ung var hún og efnileg, en heldur þótti hún skapstór. Hún var matselja hjá föður sínum. Einhvern dag bar svo við, að hestaat var haldið skammt frá bæ Jórunnar; átti faðir hennar annan hestinn, er etja skyldi, og hafði Jórunn miklar mætur á honum. Hún var viðstödd hestaatið og fleiri konur; en er atið byrjaði, sá hún, að hestur föður hennar fór heldur halloka fyrir. Varð Jórunn svo æf við það og tryllt, að hún óð að hinum hestinum og reif undan honum lærið; hljóp hún þegar með það, svo ekki festi hönd á henni, upp að Ölfusá hjá Laxfossi, þreif þar upp bjarg eitt mikið úr hömrunum við ána og kastaði því nálega út á miðja á; síðan hljóp hún yfir á stillum þessum og mælti um leið:

    "Mátulegt er meyjarstig;
    mál mun vera að gifta sig."
    Heitir þar síðan Tröllkonuhlaup, aðrir segja Jóruhlaup. Þar hélt hún upp Ölfus, austan undir Ingólfsfjalli, og upp í Grafning, uns hún kom að hamragili því, sem liggur vestur úr Grafningi, skammt frá Nesjum; eftir því fór hún og linnti ekki á, fyrr en hún kom upp í Hengil. Þar tók hún sér bólfestu, og er þar síðan kallaður Jóruhellir, og varð versta tröll og grandaði bæði mönnum og málleysingjum.

    Þegar Jóra var sest að í Henglinum, var það siður hennar, að hún gekk upp á hnjúk einn í Henglafjöllum og sat löngum þar, sem síðan heitir Jórusöðull; er hann skammt frá sjónarhól hennar á háfjallinu. Af sjónarhól skyggndist hún um eftir ferðamönnum, sem um veginn fóru, bæði um Grafning fyrir vestan Þingvallavatn og um Dyraveg norðan undir Henglinum, sem liggur skammt frá hamragili því, sem áður er nefnt og heitir enn í dag Jórukleif, af því Jórunn lá þar oft fyrir ferðamönnum til að ræna þá eða drepa, eftir það hún var búin með hestlærið. Þar með gjörðist hún svo ill og hamrömm, að hún eyddi byggðina í nánd við sig, en vegirnir lögðust af. Þótti byggðamönnum svo mikið mein að þessari óvætt, að þeir gjörðu mannsöfnuð til að ráða hana af dögum; en engu fengu þeir áorkað að heldur.

    Nú, þegar í þessi vandræði var komið og engin ráð fengust til að vinna Jóru, því svo var hún kölluð, eftir það hún trylltist, né heldur til að stökkva henni á burtu, varð til ungur maður einn, sem var í förum landa á milli og var um vetur í Noregi. Hann gekk fyrir konung einn dag og sagði honum frá meinvætti þessum, sem í Henglinum byggi, og bað konung kenna sér ráð til að ráða tröllið af dögum. Konungur segir, að hann skuli fara að Jóru um sólaruppkomu á hvítasunnumorgun, "því ekki er svo vond vættur né svo hamrammt tröll til, að ekki sofi það þá," segir konungur. "Muntu þá koma að Jóru sofandi, og mun hún liggja á grúfu. Er hér öxi, er ég vil gefa þér," segir konungur og fékk honum um leið öxi silfurrekna; "og skaltu höggva henni milli herða tröllsins. Mun þá Jóra vakna, er hún kennir sársaukans, snúa sér við og segja: "Verði hendur við skaft fastar." Þá skaltu segja: "Losni þá öxin af skaftinu." Mun hvort tveggja verða að áhrínsorðum, og mun Jóra velta sér niður í vatn það, sem þar er ekki langt frá, er hún liggur í Jórukleif, með axarblaðið milli herðanna. Mun axarblaðið síðan reka upp í á þá, sem við hana mun kennd verða; þar munu Íslendingar síðan velja sér þingstað." Svo mælti konungur; en maðurinn þakkaði honum ráðin og axargjöfina. Fór hann síðan út til Íslands og fór að öllu sem konungur hafði fyrir hann lagt og banaði Jóru. Rættist öll spá konungs, og rak axarblaðið í á þá, sem síðan heitir Öxará, þar sem Íslendingar settu alþing sitt.





    22.10.2006 at 09:16 #198789
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Frétt fra RUV
    Banaslys varð á vegslóða skammt frá Landvegi ofan við Hrauneyjar í gær. Jeppi sem var á leið í átt að Köldukvísl fór út af veginum á ræsi sem er á slóðanum og valt ofan í læk. Varð ökumaðurinn, karlmaður á sextugsaldri, undir bílnum.
    Talið er að slysið hafi átt sér stað snemma í gærmorgun en þar sem fáir eru á ferð á þessum slóðum kom enginn að manninum fyrr en um þrjúleytið í gær. Björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli komu á staðinn auk fulltrúa Rannsóknarnefndar umferðarslysa. Vegslóðin þar sem slysið átti sér stað liggur af Landvegi ofan við Hrauneyjar að Búðarhálsi, um Trippavað á Köldukvísl. Slysið sér stað nokkur hundruð metrum frá Landvegi.





    10.10.2006 at 21:29 #560874
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Í Þessari [url=http://www.fi.is/news.asp?id=390&news_ID=556&type=one:8992z30a][b:8992z30a]frétt[/b:8992z30a][/url:8992z30a] frá Ferðafélagi Íslands er sagt hvaða leið er keyrð að Farinu við Hagavatn:

    Fréttir – FÍ vígir nýja brú yfir Farið.
    26.7.2006
    FÍ vígir nýja brú yfir Farið.
    Nýja brúin á Farinu er á móts við Einifellið um einn og hálfan kílómetra suðvestur frá skála félagsins. Ekið er að brúarstæðinu eftir melunum sunnan við Einifellið. Þar verður stutt athöfn en síðan er vígslugestum boðið að þiggja mat og drykk við skála félagsins.

    Ástæða þess að vígslan fer fram að kvöldi er sú að stór hópur frá FÍ kemur gangandi frá Skálpanesi þennan dag og þarf ná til vígslunnar við dagslok. Sú ganga er hluti af fjögurra daga gönguferð frá Skálpanesi að Hagavatni, Hlöðufelli, Skjaldbreið og um Klukkuskarð. Brúin opnar þessa gönguleið og vígsla hennar er þannig táknrænn þáttur þess.

    Ferðafélag Íslands hefur smíðað þrjár brýr á Farið, tvær uppi við útfall vatnsins og aðra á klöppunum neðan útfallsins. Nýja brúin er enn neðar og í beinni leið frá skálanum að Mosaskarði. Brúin er rammgerð og ætlað að vera fær bæði gangandi mönnum, vélsleðum og jafnvel hestum ef varlega er farið.





    10.10.2006 at 00:29 #560868
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hér er kort af svokallaðri Jóruleið eða Heybandsleið og er merkt staðsetning mótorhjólamanna þar sem þeir eru ákærðir fyrir utanvegaakstur.

    [img:2mqcnu1p]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/3929/34580.jpg[/img:2mqcnu1p]

    Og hér er kort frá LMI sem sýnir veginn frá Hestvíkinni upp Jórugil og inn að Sköflungi. [img:2mqcnu1p]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/3929/34542.jpg[/img:2mqcnu1p]





    09.10.2006 at 22:18 #560866
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hér er [url=http://www.fi.is/news.asp?id=390&news_ID=560&type=one:2rdrfmov][b:2rdrfmov]frétt[/b:2rdrfmov][/url:2rdrfmov] frá FI, en þessi staður er alveg við staðinn þar sem 2 drengir eru teknir fyrir utanvegakstur 2 mánuðum áður.
    Kveðja Dagur

    Fréttir – Opnun brúar yfir Farið
    1.8.2006
    Opnun brúar yfir Farið
    Ný gönguleið við suðursporð Langjökuls opnar:
    Ferðafélagið brúar Farið

    [img:2rdrfmov]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/3929/34573.jpg[/img:2rdrfmov]

    Fjölmenni var viðstatt þegar ný brú Ferðafélags Íslands yfir Farið skammt neðan við Hagavatn var tekin formlega í notkun sl. fimmtudagskvöld. Brúin opnar á ný skemmtilega leið við suðursporð Langjökuls, en fyrri brýr, alls þrjár hafa allar látið undan vegna jökulflóða eða snjóþunga.

    Nýja brúin er um 20 metrar á lengd og það breið að hún ætti að vera fær mönnum, vélsleðum og jafnvel hestum sé varlega er farið. Hún hvílir á þremur máttugum stólpum og var valin staður á móts við Einifell sem er um hálfan annan kílmómetra suðvestur frá Hagavatnskála Ferðaféalgs Íslands. Kunnugir telja brúarstæðið nokkuð öruggt, en þrjár fyrri brýr FÍ yfir Farið sem stóðu mun ofar hafa allar tekið af í stórflóðum.

    Það var vaskur hópur sjálfboðaliða úr röðum Ferðafélagsins sem reisti brúna og án þess að á neinn sé hallað var ferðafélaginn Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar þar fremstur í flokki. Brúarsmiðurinn var Stefán Helgason frá Vorsabæ. Marga fleiri mætti nefna. Brúargerðin var styrkt meðal annars úr Pokasjóði og þá lagði fjárlaganefnd Alþingis málinu lið og var Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og fyrrverandi formaður nefndarinnar meðal gesta við athöfnin, því til staðfestingar. Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ sem var aðalhvatamaðurinn að byggingu brúarinnar þakkaði öllum sem að brúargerðinni komu áður en hann klippti á borða og opnaði brúnna með formlegum hætti.

    Brúin sannaði síðan strax ágæti sitt daginn eftir þegar um 40 manna hópur á vegum FÍ undir fararstjorn Ólafs Arnar hélt áfram göngu sinni úr Skálpanesi niður að Laugarvatni, 4 daga ferð þar sem leið lá um frá Skálpanesi um Jarlhettudal að Hagavatni, um Mosaskarð og Lambahraun að Hlöðuvöllum og undir Skjaldbreið að Karli og Kerlingu og þar inn Langadal að og um Klukkuskarð og loks að baki Laugarvatnsfjalli og niður að Hjálmsstöðum. –





    09.10.2006 at 22:15 #560864
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Sjá að neðan





    08.10.2006 at 21:47 #562864
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Jórukleif er upp frá Hestvík við Þingvallavatn. Hún er kennd við bóndadóttur í Flóa er Jórunn hét. Er hestur föður hennar beið lægri hlut í hestati einu þá trylltist hún og varð að tröllkonu. Settist hún að í helli einum í Hengli, sem þá var nefndur Jóruhellir. Hún beið ferðamanna er þar áttu leið um, í kleif einni, sem einnig var nefnd eftir henni, Jórukleif. Hún rændi öllu af ferðamönnunum og drap þá síðan. Gat enginn stoppað hana fyrr en góð ráð komu frá Noregskonungi





    08.10.2006 at 21:10 #562846
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hryssu, merar, bikkju, jór, truntu – steinn, bjarg, vala, klettur.





    07.10.2006 at 20:17 #560858
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Var að skoða gömul kort sem ég notaði fyrir tíma GPS og vitið hvað. Vegurinn sem drengirnir voru teknir á fyrir utanvegaakstur á, er þar
    [img:fv6nmgwc]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/3929/34537.jpg[/img:fv6nmgwc]
    Kort LMI blað 5 1987

    Hér sést vegurinn frá skálanum við Hagavatn niður með Farinu.

    Fann annað kort sem sýnir veginn sunnan undir Einifelli og upp með Farinu að Hagavatni
    [img:fv6nmgwc]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/3929/34538.jpg[/img:fv6nmgwc]
    Jarðfræðikort Menningarsjóðs 1962 unnið af LMI

    [img:fv6nmgwc]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/3929/34881.jpg[/img:fv6nmgwc]

    Kort LMI 1949 Blað 6

    [img:fv6nmgwc]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/3929/34882.jpg[/img:fv6nmgwc]

    Öll þessi kort eru unnin hjá LMI, sem fullyrti að enginn vegur væri þarna á þeirra kortum.
    Kveðja Dagur





    03.10.2006 at 23:35 #559814
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hér er ferillinn hans Hlyns
    [img:2asrbyur]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/4674/34419.jpg[/img:2asrbyur]





    03.10.2006 at 21:40 #560856
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    GummiJ nefnir hér að ofan smalaslóða sem alls ekki á að stika.
    Ekki veit ég hvaða slóðir þetta eru, en í mínum huga þarf að stika hálendisvegi, þannig að ekki fari framhjá ferðamönnum að þeir eru á veginum, en ekki villuslóðum sem myndast þegar fólk áttar sig ekki á staðsetningu vegarins og gerir ný för og aðrir fylgja svo á eftir í þessar villuslóðir.
    Ég er hjartanlega sammála Erni í þessu máli og vona að sem flestir taki þátt í stikun fjallvega.
    Sumir fjallvegir eru mjög ógreinilegir og á það við sérstaklega þegar ekið er á klöpp, áreyrum eða hörðum melum og auðveldar stikum verulega ferðamensku á slíkum fjallvegum.
    Sumir virðast halda að vegir eru eingöngu þar sem jarðýta eða veghefill hefur farið um, en ekkert er fjær sannleikanum og eru skemtilegustu leiðirnar þar sem vegur líður um landslagið án þess að spilla því. Helst er ég á því að vernda þurfi góða fjallvegi fyrir þessum tækjum, en stika í staðinn þar sem vegurinn er hvað ógreinilegastur.
    Í ákæru sýslumannsins á Selfossi kemur fram að drengirnir eru kærðir fyrir að vera ekki á merktum vegi og er vísað í landakort frá landmælingum, þar sem LMI hefur ekki haft áhuga á að merkja veginn inn á sitt kort. Ef vegurinn hefði verið stikaður þá væru þeir á merktum vegi.
    Athyglisvert er að nákvæmasta kortið, sem sýnt í ákærunni, er kort sem LMI og Bandaríkjaher unnu saman og var seinast uppfært 1989,
    [img:3by25fw4]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/3929/34120.jpg[/img:3by25fw4]

    önnur kort voru mun ónákvæmari og ef að menn skoða kortið á vef LMI [url=http://avegi.lmi.is/:3by25fw4][b:3by25fw4]avegi.lmi.is[/b:3by25fw4][/url:3by25fw4] þá er vegurinn sýndur það breiður að bílar drengjanna eru á veginum upp að Hagavatni samkvæmt því.
    Kveðja Dagur





    01.10.2006 at 15:55 #561834
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    [img:ijfevk3h]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/3929/34315.jpg[/img:ijfevk3h]

    Mér finnst þetta líklegur staður og er þá myndin tekin til suðurs.
    Kveðja Dagur





    24.09.2006 at 23:36 #561210
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Það vantar .jpg aftast á rununa
    Kveðja Dagur





    24.09.2006 at 22:41 #560810
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Ég hef ekki séð neinar ásakanir á hendur bændum, en Örn Gunnarsson bendi á það að smalamennska færi nú í hönd og koma bændur þar vissulega að og ekki væru bændur sáttir við að vera tekinir af þyrlu og ákærðir við sitt starf.
    Máli snýst um að drengirnir eru á vegi og samt kærðir fyrir utanvegaakstur.
    Náttúru spjöll eru engin.
    Þetta er réttlætismál okkar allra.
    Kveðja Dagur





    23.09.2006 at 13:05 #560460
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Þyrla Landhelgisgæslunar var að fara í loftið nú kl 1303 og flaug til austurs.
    Nú er bara að vera réttum vegi.
    Kveðja Dagur





    21.09.2006 at 22:33 #560800
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Nákvæmnin í þessum staðsetingarpunkti er ekki upp á marga fiska eð ca 200 metra og gæti bíllinn þessvegna verið við skálann.
    N 64 27.700 W -20 14.800.
    Ekki veit ég nákvæmlega afstöðu þyrlu og bílanna eða hvernig þessir rauðu dílar voru fundnir, eða hvort hnitin hafi verið tekin í þyrlunni og síðan áætluð leiðrétting til að setja hnitin á bílana.





    21.09.2006 at 22:12 #560796
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Það er með ólíkindum hvað sýslumannsembættið á Selfossi sóar almanna fé í þessu máli.
    Drengirnir eru gripnir á vegi á þyrlu og tekin niður nöfn þeirra. Ekki áttu þeir von á að verða kærðir enda er brotaviljinn enginn.
    þeir taka aðeins 2 myndir af þyrlunni úr bílnum, en reyna ekki að afla fleiri sönnunargagna.
    Síðan finnur sýslumaðurinn það út að þessi vegspotti er ekki á korti landmælinga, eins og margir aðrir, og gefur út kæru.
    Drengjunum er boðin dómsátt uppá 25,000, en þeir kjósa frekar að halda mannorðinu hreinu.
    Sýslumaður fær svo stærstu björgunarþyrlu landsmanna TF Líf í vettvangsskoðun, enda er ómögulegt að lagaliðið gæti borið saman raunverlega staðsetningu vegarins og og kortið frá LMÍ, sem sýslumaðurinn telur svo heilagt.
    Ég held að sýslumaðurinn ætti að sjá sóma sinn í að falla frá þessari kæru, í stað þess hrella saklaust fólk.
    kveðja Dagur





    21.09.2006 at 19:54 #560790
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Ég var að fá þessar [url=http://www.flickr.com/photos/hagavatn/:182f658k][b:182f658k]Myndir af slóðinni[/b:182f658k][/url:182f658k] þar sem drengirnir óku.
    2 myndir eru teknar 3/6 þegar þyrlan lendir , en hinar í ágúst.
    Þegar þeir keyra til baka frá vatninu, missa þeir af vinkilbegju að skálanum og keyra lengra til suðurs og svegir síð slóðin aftur að skálanum til vinstri og eru þeir rétt ókomnir að skálanum þegar þyrlan
    lendir.
    Sýslumaðurinn umræddi telur að þeir hafi ekki verið á þeim vegi sem er á kortum landmælinga, en hefur einhver trakkað þessa leið og borið saman
    raunverulega staðsetninu vegarins að hagavatni og veginum eins og hann byrtist á kortum LMÍ?

    Kveðja Dagur





    20.09.2006 at 22:53 #560752
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Var að tala við faðir annars piltsins sem tekinn var fyrir utanvegaakstur við Hagavatn.
    Hann segir að myndin, sem kom í mogganum, er tekin úr öðrum bílnum þegar þyrlan lendir, og eru þeir þá staddir á slóðinni, eins og myndin sýnir.
    Piltarnir hafa verið kærðir og einnig boðið dómsátt upp á 25,000, en faðirinn hafi talið drengina á að taka þessu ekki heldur láta dæma í málinu.
    Staðsetningin umrædda er líklega tekin í þyrlunni og þaðan hafi verið meir en 100m í annan bílinn.
    Lögreglan tók nokkrar myndir eftir að þyrlan lenti og eru þær óljósar og ekki til að sýna afstöðu bíla miðað við slóðann.
    Einnig er staðsetningin 64 27,7N 20 14,8 W sem er staðsetningin í ákærunni, ótrúleg ónákvæmni í staðsetningu.
    Ég tel þetta mál mjög mikilvægt fyrir klúbbinn, að menn geti verið kærðir fyrir utanvegaakstur í slóð og ef hið opinbera kemst upp með það núna þá sjá þeir sér leik á borði að taka fleiri þegar þeim hentar.
    Þetta getur átt við þegar menn eru að keyra slóðir sem eru rangt eða illa merktar á kort, eða óljósar á yfirborðinu.
    Mér finnst að klúbburinn eigi að leggja smá vinnu í að komast að sannleikanum í málinu og styðja við þessa drengi.
    [img:1yq932jk]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/3929/34120.jpg[/img:1yq932jk]
    Meint staðsetning á bíl

    Hægt er að skoða kortið betur í myndasafni mínu myndir
    Kveðja Dagur





    20.09.2006 at 22:47 #560748
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Úr bréfi til stjórnar f4x4
    Í dag 19/9 er grein í Morgunblaðinu um tvo drengi sem teknir eru fyrir utanvegaakstur á slóð, sjá mynd.
    Þeir eru teknir á slóð við farið úr Hagavatni og sést á myndinni hvar þyrlan lendir við slóðina.
    Sýslumaðurinn Ólafur Helgi Kjartansson telur fráleitt annað en að bíllinn hafi verið utanvega.
    Miðað við frásögnina í greininni og aðstæður eins og þær eru á myndinni, eru drengirnir á greinilegri slóð.
    Ég tel að klúbburinn þurfi að kanna þetta mál í kjölinn og fylgja því eftir ef þurfa þykir.
    Ef svona á standa að, má búast við að hver sem er í klúbbnum geti verið tekinn á hefðbundnum slóðum og látinn sæta ákæru.

    Hægt er að lesa greinina í myndasafni mínu myndir
    Kveðja Dagur [img:2x4indzu]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/3929/34133.jpg[/img:2x4indzu]





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 501 through 520 (of 583 total)
← 1 … 25 26 27 … 30 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.