FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Dagur Bragason

Dagur Bragason

Profile picture of Dagur Bragason
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 481 through 500 (of 583 total)
← 1 … 24 25 26 … 30 →
  • Author
    Replies
  • 16.12.2006 at 21:54 #571734
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Svona hegðun á Bláfjallarsvæðinu er ekki nokkrum til framdráttar og spillir fyrir þeim sem berjast fyrir góðri umgegni.
    Það að verkumerkin eru eftir bíl, eða bíla, virðist alltaf tengja F4x4 við málið, án þess að F4x4 hafi vitneskju um skemdarvargana.
    Svipuð hegðun varð til þess að vélknúin umferð var bönnuð tímabundið á Hvannadalshnjúk og einnig virðast umsagnaraðilar nota það sama gegn vélknúinni umferð í umsögnum um Vatnajökulsþjóðgarð.
    þess vegna er áríðandi að ná til sem flestra ökumanna og leiðbeina þeim í umgengni um landið.
    Dagur Bragason umhverfisnefnd F4x4





    12.12.2006 at 10:59 #570920
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hagsmunaaðilar hafa yfirleitt fengið að vera umsagnar aðilar á undirbúningsstigi lagafrumvarpa.
    F4x4 hefur ekki verið á þessum lista eða aðrir hagsmunaaðilar sem tengjast frjálsri ferðamensku eins og vélsleðamenn eða fyrirtæki sem selja búnað til jöklafara.
    Er ekki tími kominn að hagsmunaaðilar beyti sér í þessu máli.

    Kveðja Dagur





    11.12.2006 at 12:49 #570914
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Gott er að fá mismunandi sjónarmið á spjallið.
    Vatnajökull er umþað bil 10% af Íslandi og þá um 10000 ferkílómetrar og síðan er landið í kringum jökulinn kanski 2000 ferkílómetrar.
    Jökullinn ver sig sjálfur gegn átroðningi og geta eingöngu mjög vel búnir ferðamenn ferðast um hann í ca 9 mánuði af 12 og eru gönguhópar yfir þessa 9 mánuði nánast óþekkt fyrirbrigði og gönguhópar sem ferðast yfir jökulinn eru kanski 10 á ári. Þeir slóðar sem eru nú að jöklinum bjóða ekki uppá mikla umferð, en ef vatnajökulsþjógarður verður til eru þessir "umhverfissinnar" að tala um að malbika vegi að jöklinum og býður það hættunni heim með átroðningi við þessar malbikuðu leiðir.
    Kveðja Dagur





    10.12.2006 at 23:30 #199134
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    á hinu háa Alþingi er komið fram frumvarp um Vatnajökulsþjóðgarð.
    Markmið frumvarpsins er: Auðvelda skal almenningi aðgengi að þjóðgarðinum eftir því sem unnt er án þess
    að náttúra hans spillist og veita fræðslu um náttúru, sögu og mannlíf svæðisins.
    Umferð verður háð leifi:
    Umferð í þjóðgarðinum.
    Setja skal í reglugerð ákvæði um umferð gangandi vegfarenda, ríðandi eða hjólandi manna
    og um umferð vélknúinna ökutækja í Vatnajökulsþjóðgarði.
    Akstur vélknúinna ökutækja utan vega í Vatnajökulsþjóðgarði er bannaður. Þó er heimilt
    að aka slíkum tækjum á jöklum og á leyfðum vetrarakstursleiðum, sbr. 3. mgr., svo fremi
    sem jörð er snævi þakin og frosin. Í reglugerð er heimilt að banna akstur vélknúinna ökutækja
    á einstökum svæðum á Vatnajökli allt árið um kring eða á tilteknum tímum ársins.
    Í reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð skal gerð sérstök grein fyrir öllum vegum sem
    heimilt er að aka innan þjóðgarðsins. Enn fremur skal skilgreina þau svæði þar sem heimilt
    er að aka að vetri á snjó eða frosinni jörð og hvaða skilyrðum slíkur akstur er bundinn. Heimilt
    er að takmarka umferð á einstökum vegum, slóðum eða svæðum við tiltekinn tíma ársins
    eða binda hana við tiltekna notkun, svo sem vegna veiða, smölunar búfjár eða annarra landbúnaðarstarfa
    eða vegna rannsókna, ef það er talið nauðsynlegt vegna verndunar viðkomandi
    landsvæðis.
    Liggi landsvæði undir skemmdum og talið er nauðsynlegt að grípa til tafarlausra aðgerða
    getur viðkomandi þjóðgarðsvörður tekið ákvörðun um tímabundna lokun afmarkaðs svæðis
    fyrir umferð vélknúinna ökutækja. Ákvörðun þjóðgarðsvarðar um tímabundna lokun svæðis
    skal birt í B-deild Stjórnartíðinda og með öðrum áberandi hætti í dagblöðum og á vefsíðu
    þjóðgarðsins.
    Ákvæði þessara laga um akstur utan vega í Vatnajökulsþjóðgarði ganga framar ákvæðum
    náttúruverndarlaga um sama efni og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim.
    Gjald:
    Gjaldtaka.
    Í reglugerð má ákveða að taka gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu
    og aðgang að svæðinu til að mæta kostnaði við þjónustu og eftirlit með dvalargestum.
    Fjárhæð gjaldsins skal birt í reglugerð og byggjast á rekstraráætlun þjóðgarðsins alls sem
    stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs leggur fyrir umhverfisráðherra til samþykktar. Heimilt er að
    ákveða að gjaldið sé föst fjárhæð miðað við dagsdvöl í þjóðgarðinum og veiti aðgang að
    þjónustu á vegum þjóðgarðsins á öllum rekstrarsvæðum hans. Heimilt er þó að innheimta
    sérstaklega fyrir aðgang að tjaldstæðum innan þjóðgarðsins. Heimilt er að veita afslátt af
    gjaldinu ef greitt er fyrir lengri tíma í senn eða ef greitt er fyrir marga aðila í einu. Gestagjöld
    skulu renna til Vatnajökulsþjóðgarðs óháð því á hvaða rekstrarsvæði þau eru innheimt. Ráðherra
    ákveður nánara fyrirkomulag gjaldtöku í reglugerð að fengnum tillögum stjórnar þjóðgarðsins.
    Verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs.
    12. gr.
    Verndaráætlun.
    Eigi síðar en tveimur árum eftir stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs skal lokið gerð verndaráætlunar
    fyrir þjóðgarðinn.
    4
    Í verndaráætlun skal gerð grein fyrir markmiðum verndar á einstökum svæðum innan
    Vatnajökulsþjóðgarðs, einstökum verndaraðgerðum, landnýtingu og mannvirkjagerð, vegum,
    reiðstígum, göngubrúm og helstu gönguleiðum, umferðarrétti almennings og aðgengi ferðamanna
    að svæðinu.
    Svæðisráðin, hvert á sínu svæði, skulu vinna tillögu að verndaráætlun í samráði við
    Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands. Tillaga hvers svæðisráðs skal send stjórn
    eigi síðar en 18 mánuðum eftir stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Við gerð verndaráætlunar skal
    svæðisráð hafa samráð við eigendur lands innan þjóðgarðs á viðkomandi svæði, sveitarstjórnir
    og aðra hagsmunaaðila á svæðinu.
    Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs fer yfir tillögur svæðisráða og vinnur á grundvelli þeirra
    verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð. Stjórn skal gæta þess að verndaráætlun samræmist
    ákvæðum laga og reglugerðar um Vatnajökulsþjóðgarð. Stjórn getur gert breytingar á tillögum
    svæðisráða. Tillaga stjórnar að verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð skal unnin í
    samráði við Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands. Tillagan skal auglýst opinberlega
    og almenningi og hagsmunaaðilum gefinn kostur á að gera athugasemdir áður en endanleg
    tillaga er send ráðherra. Frestur til að gera athugasemdir við tillögu að verndaráætlun skal
    a.m.k. vera sex vikur frá birtingu auglýsingar.
    Tillaga stjórnar að verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð skal send umhverfisráðherra
    til staðfestingar. Umhverfisráðherra getur gert breytingar á verndaráætlun telji hann hana eða
    einstaka hluta hennar fara í bága við lög þessi, reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð eða
    verndarmarkmið þjóðgarðsins. Þegar umhverfisráðherra hefur staðfest verndaráætlun fyrir
    Vatnajökulsþjóðgarð skal hún auglýst í B-deild Stjórnartíðinda og tekur hún gildi við
    birtingu.
    Heimilt er að gera breytingar á verndaráætlun og fer um málsmeðferð samkvæmt ákvæðum
    3.-5. mgr. Stjórn þjóðgarðsins getur lagt til breytingar á verndaráætlun án þess að um það
    berist tillaga frá viðkomandi svæðisráði. Í þeim tilvikum skal ávallt leita umsagnar svæðisráðs
    áður en tillagan er send umhverfisráðherra. Verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð
    skal endurskoðuð eigi sjaldnar en á 10 ára fresti.
    Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um efni verndaráætlunar og málsmeðferð við
    gerð og staðfestingu hennar.
    13. gr.
    Réttaráhrif verndaráætlunar.
    Sveitarstjórnir eru bundnar af efni verndaráætlunar við gerð skipulagsáætlana fyrir landsvæði
    innan Vatnajökulsþjóðgarðs.
    Þessi verndaráætlun virðst eingöngu á valdi UST og allir aðrir eru bundnir af henni og hafa þá lítið sem ekkert að segja um það hvað er heimilt og hvað ekki.
    Ákvæði til bráðabirgða.
    1. Stjórn og svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs skulu skipuð fyrir 1. júní 2007.
    2. Unnið skal að kortlagningu vega og heimilla vetrarakstursleiða í Vatnajökulsþjóðgarði,
    sbr. 3. mgr. 15. gr., samhliða gerð verndaráætlunar fyrir þjóðgarðinn.
    og svo framvegis.

    Ég tel þetta frumvarp eins og það byrtist nú vera sértstaklaga til að hefta okkar ferðir á jökulinn án nokkurar sýnilegrar ástæðu og verðum því að gera alvarlegar athugasemdir við það.
    Kveðja Dagur





    07.12.2006 at 23:44 #560886
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Sæll Ingólfur.
    Sendu klúbbnum tölvupóst á f4x4@f4x4.is með upplýsingum um nafn kennitölu, heimilisfang, síma, tölvupóst og að þú viljir ganga í klúbbinn, þá er þetta komið.





    07.12.2006 at 23:40 #570664
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Til hamingju stjórn með góða samninga





    07.12.2006 at 17:48 #560878
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Nú er kominn [url=http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=S200600467&Domur=4&type=1&Serial=1&Words=:2hpee4fw][b:2hpee4fw]dómur 4-5[/b:2hpee4fw][/url:2hpee4fw] , í Hagavatnsmálinu þar sem piltarnir eru sýknaðir af ákæru um utanvegaakstur.
    Þar með eru allir 5 sýknaðir af utanvagaaksturskærum sýslumannsins á Selfossi í kjölfar afrdifaríks flugs þyrlu Landhelgisgæslunar 3 júní í sumar.
    Í öllum tilfellum voru atvik lítt rannsökuð og rökstuðningur sýslumanns, ef einhver var, ómarktækur.
    Kveðja Dagur
    Hér eru fyrri dómar: [url=http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=S200600460&Domur=4&type=1&Serial=1&Words=++%28+domsurlausn+like+%27%25utanvegaakstur%25%27+or+malsefni+like+%27%25utanvegaakstur%25%27+%29+:2hpee4fw][b:2hpee4fw]dómur 1[/b:2hpee4fw][/url:2hpee4fw] , [url=http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=S200600466&Domur=4&type=1&Serial=1&Words=++%28+domsurlausn+like+%27%25utanvegaakstur%25%27+or+malsefni+like+%27%25utanvegaakstur%25%27+%29+:2hpee4fw][b:2hpee4fw]dómur 2[/b:2hpee4fw][/url:2hpee4fw] , [url=http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=S200600465&Domur=4&type=1&Serial=1&Words=++%28+domsurlausn+like+%27%25utanvegaakstur%25%27+or+malsefni+like+%27%25utanvegaakstur%25%27+%29+:2hpee4fw][b:2hpee4fw]dómur 3[/b:2hpee4fw][/url:2hpee4fw]





    04.12.2006 at 20:15 #570290
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Þetta með 90+90=180 er að vísu rangt hjá mér og skrifað án umhugsunar.
    Umferðaröryggi vega er oft mjög ábótavant hér á landi og virðist oft þurfa hræðileg slys til að úrbætur verði gerðar.
    Ég fór þennan veg í morgun og var vörubíll á undan mér og sá ég varla útum framrúðuna vega salt-drullu sem vörubíllinn þyrlaði upp, en hann ók á ca 70 km hraða og alveg ómögulegt að komast fram úr vegna skyggnis og vörubíllinn reyndi ekki að nota vegöxlina sem vegagerðin hefur malbikað svo að hægfara bílar geti hleypt öðrum frammúr.





    04.12.2006 at 00:20 #570192
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Ég var nú ekki svo vinalaus að þurfa að stóla á 1 til að mæla með mér í Guinness, heldur var samhljóða atkvæði allra stofnfélaga og annara félaga sem mættir voru og gáfu mér athvæði sitt.
    Ekki spillti fyrir að umsóknin var í bundnu máli að hætti Gríms Thomsen, bara með öðrum orðum.
    Hinsvegar er mér umhugað um þessa vinalausu, en ég hef grun um að þeir komi ekki hér fram á spjallinu án hvatningar og hvet ég alla þá sem þurfa vini, eða telja sig vinalausa að gefa sig fram.
    Kveðja Dagur





    03.12.2006 at 22:41 #570184
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hvernig geta þeir sem eru svo gjörsamnlega utavinlausir að þeir finni ekki 3 meðmælendur til að staðfesta vinaleysi þairra?





    03.12.2006 at 22:30 #570254
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Þegar bílar keyra framan á hvorn annann á 90 km hraða er það svipað og bíll keyri á steinvegg á 180 km/klst.
    Erlendis þekkist að rifla vegmiðju og kanta til að ökumaður átti sig á að hann er kominn úr veglinu, og vekur þetta einning dottandi ökumenn.
    Að riffla vegi er ódýr aðgerð og áhrifarík og er hér [url=http://safety.transportation.org/htmlguides/RORcrashes/exec_sum.htm:j6svjf4r][b:j6svjf4r]slóð[/b:j6svjf4r][/url:j6svjf4r] á upplýsingar um áhrifamátt þessarar aðgerðar á þjóvegum.
    Þegar bíll lendir á þessu þá heyrist töluverður hávaði frá hjólbörðum og inn í bíl og varar ökumann við.
    Þetta hefur því miður ekki þekkst hér á landi, en frændþjóðir okkar á norðurlöndunum nota riflun á flestum þjóðvegum á milli þéttbýlistaða.





    24.11.2006 at 00:05 #566698
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    til að sjá þessa umræðu verða menn að vera loggaðir inn, en allir geta séð allt annað.
    hefur Ofsi eða einhver annar tölur um hvað margir logga sig inn af heildarfjölda lesenda síðunar.

    kveðja Dagur





    23.11.2006 at 23:08 #569188
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Það að loka öllum leiðum, sem ekki finnst veghaldari að, er fáránlegt og sýnir eingöngu afstöðu þeirra sem eru haldnir þeirri áráttu að öllu verður að miðstýra, á ensku "control freak" eins og Jeffrey Skilling CEO ENRON var haldin.

    Að vera veghaldari felur í sér ábyrgð og vald, að bera ábyrgð á veginum, en F4x4 gæti verið veghaldari allra slóða á hálendi Íslands, ef notaður væri fyrirvari eins og Landmælingar Íslands notar yfir ábyrgð þeirra á egin kortum, sjá tilvitnun:

    "LMÍ bera enga ábyrgð á því hvort afhent efni hentar til þeirra nota sem viðskiptavinur ætlast til. Allt efni eru afhent eins og það er á hverjum tíma í gagnasöfnum LMÍ þegar afhending fer fram. Viðskiptavini er kunnugt um að gæði efnis eru mismunandi eftir uppruna, bæði hvað varðar nákvæmni og áreiðanleika og bera LMÍ ekki ábyrgð á afleiðingum sem hljótast kunna af því. LMÍ eru því ekki ábyrgar fyrir beinu eða óbeinu tjóni sem viðskiptavinur og/eða viðskiptavinur hans kann að verða fyrir vegna notkunar á efni frá LMÍ eða afleidds efnis nema að því marki sem kynni að falla undir lög um skaðsemisábyrgð nr. 25/1991. Að öðru leyti undanþiggja LMÍ sig tjóni að því marki sem lög leyfa. Hvers konar ábyrgð, ef til kæmi, vegna afhendingar eða notkunar gallaðs efnis takmarkast við uppsett gjald fyrir afhendingu hins gallaða efnis. Viðskiptavinur ber alla ábyrgð gagnvart LMÍ á vinnslu og notkun þriðja aðila á gögnunum."

    Tilvitnun lýkur.

    Fyrirvari F4x4 sem veghaldara gæti verið svona:

    F4x4 ber enga ábyrgð hvort viðkomandi slóði er fær, eða að hann endi þar sem notandi ætlar, eða hvort skurður, gígur, eldfjall eða þvíumlíkt væri til trafala á slóðanum. Engin ábyrgð er tekin á því hvort ætlaður slóði er neðansjávar eða ofan, ekki er tekin ábyrgð á að sýslumenn sveimi yfir og nappi menn, eða engin ábyrgð er tekin á nokkrum sköpuðum hlut og væri því best fyrir ferðamenn að panta sólarlandaferð í stað þess að reyna ferðast um Ísland.

    Kveðja Dagur





    23.11.2006 at 22:56 #566682
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Það að loka öllum leiðum sem ekki finnst veghaldari að er fáránlegt og sýnir eingöngu afstöðu þeirra sem eru haldnir þeirri áráttu að öllu verður að miðstýra, á ensku "control freak" eins og Jeffrey Skilling CEO ENRON var haldin.
    Að vera veghaldari felur í sér ábyrgð og vald, að bera ábyrgð á veginum, en F4x4 gæti verið veghaldari allra slóða á hálendi Íslands, ef notaður væri fyrirvari eins og Landmælingar Íslands notar yfir ábyrgð þeirra á egin kortum, sjá tilvitnun:
    "LMÍ bera enga ábyrgð á því hvort afhent efni hentar til þeirra nota sem viðskiptavinur ætlast til. Allt efni eru afhent eins og það er á hverjum tíma í gagnasöfnum LMÍ þegar afhending fer fram. Viðskiptavini er kunnugt um að gæði efnis eru mismunandi eftir uppruna, bæði hvað varðar nákvæmni og áreiðanleika og bera LMÍ ekki ábyrgð á afleiðingum sem hljótast kunna af því. LMÍ eru því ekki ábyrgar fyrir beinu eða óbeinu tjóni sem viðskiptavinur og/eða viðskiptavinur hans kann að verða fyrir vegna notkunar á efni frá LMÍ eða afleidds efnis nema að því marki sem kynni að falla undir lög um skaðsemisábyrgð nr. 25/1991. Að öðru leyti undanþiggja LMÍ sig tjóni að því marki sem lög leyfa. Hvers konar ábyrgð, ef til kæmi, vegna afhendingar eða notkunar gallaðs efnis takmarkast við uppsett gjald fyrir afhendingu hins
    gallaða efnis. Viðskiptavinur ber alla ábyrgð gagnvart LMÍ á vinnslu og notkun þriðja aðila á gögnunum."
    Tilvitnun lýkur.
    Fyrirvari F4x4 sem veghaldari gæti verið svona:
    F4x4 ber enga ábyrgð hvort viðkomandi slóði er fær, eða að hann endi þar sem notandi ætlar, eða hvort skurður, gígur, eldfjall eða þvíumlíkt væri til trafala á slóðanum. Engin ábyrgð er tekin á því hvort ætlaður slóði er neðansjávar eða ofan, ekki er tekin ábyrgð á að sýslumenn sveimi yfir og nappi menn, eða engin ábyrgð er tekin á nokkrum sköpuðum hlut og væri því best fyrir ferðamenn að panta sólarlandaferð í stað þess að reyna ferðast um Ísland.

    Kveðja Dagur





    12.11.2006 at 23:26 #566652
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Vildi ekki setja þetta á opinn þráð.
    Margrætt vídeó sem var í vörslu sýslumanns var einnig nefnt í Hagavatnsmálinu.
    Úr spjalli mínu við Kristján í síma:
    Fyrst tók sýslumaður fram að myndband hefði veri tekið af "utanvegaaksturbrotunum".
    Á öðrum fundi var einning mynst á þetta myndaband og ætlaði sýslumaður að "athuga það".
    Á þriðja fundi með sýslumanni kannaðist hann ekkert við neitt myndband.
    Ég nefndi við Kristján að mynnast á þetta í dóminum og tók hann vel í það.
    Vegna þessa vil ég aðeins bíða og sjá.

    Kveðja Dagur





    09.11.2006 at 12:08 #567396
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Ekki vildi ég treysta syrk þessa Kínverska bíls.
    Þegar Evrópuþjóðir nota 8,8 bolta sem lágmarks styrk, eru kínverjar að nota 4,6 bolta sem auðveldlega er hægt að snúa í sundur með skiptilykli.





    05.11.2006 at 23:10 #566768
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Það eru komnar fleiri
    [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=folk/4878:1ef3ur93][b:1ef3ur93]myndir[/b:1ef3ur93][/url:1ef3ur93] frá árshátíðinni





    05.11.2006 at 20:34 #566760
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Til stóð að halda einhverskonar keppni í vatnsrennibrautinni, en eingöngu var rigningar vatn í brautinni og var það aðeins "einn" sem [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=folk/4878:29g3anmf][b:29g3anmf]ÞORÐI[/b:29g3anmf][/url:29g3anmf]
    Takk fyrir frábæra árshátíð.

    Dagur





    30.10.2006 at 21:18 #564398
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Ég væri alveg til að ferðast með rútu í Hveragerði á árshátíðina, eða sameinast á bíla.
    Varðandi dansherrana þá hef ég ekkert fengið um það ráðið, bara tekinn á gólfið.
    Kveðja Dagur





    30.10.2006 at 19:33 #565896
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hér má heira [url=http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4257288/1:1ylk11uy][b:1ylk11uy]viðtal[/b:1ylk11uy][/url:1ylk11uy] við Björn Þorra í kvöldfréttum útvarps í kvöld 30/10 þar sem hann greinir frá meintri spillingu sýslumannsembættisins á Selfossi.

    Frétt frá RUV
    Ölfus: Lögregla vænd um spillingu
    Verjandi tveggja manna sem ákærðir eru fyrir akstur utan vega í Ölfusi, sakar lögreglu um spillingu. Hann sagði fyrir rétti í dag að gögnum hefði verið hagrætt. Verjandinn segir að ökumennirnir hafi verið þrír, þriðji maðurinn sé lögreglumaður.

    Aðalmeðferð fór fram fyrir Héraðsdómi Suðurlands í morgun í máli tveggja manna sem ákærðir eru fyrir brot á lögum með því að aka utan vegar. Björn Þorri Viktorsson er verjandi mannanna tveggja.

    Í réttarhaldinu sakaði Björn lögregluna um spillingu. Hann segir lögreglumanninn, sem kom á vettvang 3. júní, ekki hafa skilað frumskýrslu fyrr en tíu dögum síðar. Þá hafi hann gert sína skýrsluna hvora á skjólstæðinga Björns en óvenjulegt sé að skipta máli upp. Lögreglumaðurinn sem sagður er hafa verið í för með skjólstæðingum Björns var nafngreindur í réttarhöldunum í dag. Björn segir hann ekki hafa verið við skyldustörf þegar þremenningarnir voru teknir. Þá segir Björn að ekki hafi verið unnt að kalla manninn fyrir rétt í dag þar sem hann sé staddur í Afganistan.

    Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segir að í gögnum málsins komi fram að einn lögreglumaður hafi verið á vettvangi 3. júní. Hann hafi verið í för með Landhelgisgæslunni að kanna akstur utan vega.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 481 through 500 (of 583 total)
← 1 … 24 25 26 … 30 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.