Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.02.2007 at 14:38 #199719
Tekið af heimasíðu Jöfrí
Umsögn um frumvarp um vatnajökulsþjóðgarð.395. mál. Frumvarp til laga um Vatnajökulsþjóðgarð
Athugasemdir Jöklarannsóknafélags Íslands
12. febrúar 2007
I. Inngangur
Jöklarannsóknafélagið er samstarfsvettvangur vísindamanna og áhugamanna og hefur í yfir 50 ár starfað á og við Vatnajökul. Sjálfboðaliðar félagsins mæla árlega legu margra skriðjökulssporða og fylgjast þannig með jöklabreytingum. Þessi gögn ru síðan hagnýtt af vísindamönnum í rannsóknum á áhrifum loftslags á jökla. Einnig hefur félagið staðið fyrir rannsóknaleiðöngrum á Vatnajökul einu sinni til tvisvar á ári. Í þessum ferðum var grunnurinn að þekkingu á Vatnajökli lagður. M.a. hefur náðst fram góður skilningur á hegðun Grímsvatna, virkustu eldstöðvar Íslands. Þessi þekking gegndi m.a. mikilvægu hlutverki þegar lagt var á ráðin um lagningu vegar yfir Skeiðarársand upp úr 1970 og í umbrotunum samfara Gjálpargosinu haustið 1996.
Þessi árangur hefur náðst vegna þess að Jöklarannsóknafélagið hefur komið upp húsum á nokkrum stöðum á og við Vatnajökul: Á Grímsfjalli, í Jökulheimum, í Kverkfjöllum, Esjufjöllum og Goðahnjúkum. Húsin hafa öll verið smíðuð í sjálfboðavinnu og flutt á sinn stað af félaginu með nokkrum stuðningi opinberra aðila. Skálar JÖRFÍ eru eina ferðamannaaðstaðan inni á Vatnajökli.
Stór hluti ferðamanna sem leggur leið sína um jökulinn gistir í húsum félagsins, en ferðamönnum eru leyfð afnot þegar húsin eru ekki í notkun vegna rannsóknaferða á vegum félagsins eða annarra rannsóknaraðila. Félagið hefur starfað innan Skaftafellsþjóðgarðs í yfir 20 ár og átt gott samstarf við þá þjóðgarðsverði sem veitt hafa honum forstöðu. Vonast félagið til að samstarfið haldist jafn gott í nýjum og stærri þjóðgarði.
Jöklarannsóknafélagið fagnar því eindregið að að stofna skuli Vatnajökulsþjóðgarð á næstunni.
Jafnframt hvetur félagið til þess að garðurinn verði stækkaður og látinn ná til alls áhrifasvæðis jökulsins og Ódáðahrauns í heild sinni.
II. Almennar athugasemdir
Stjórnkerfi garðsins með sérstakri stjórn, fjórum svæðisráðum og nokkrum þjóðgarðsvörðum virðist þungt í vöfum. Einnig er svo að sjá að enginn einn þjóðgarðsvörður skuli vera yfirmaður alls garðsins. Þá einkennist frumvarpið af framsali valds til ráðherra um öll atriði sem máli skipta, m.a. hvað varðar verndaráætlun fyrir garðinn, sbr. heimild ráðherra til að leyfa mannvirkjagerð sem ekki er á verndaráætlun (2. málsgr. 13. greinar). Vafamál er að heppilegt sé að umhverfisráðherra á hverjum tíma sé svo áhrifamikill um stjórn garðsins.
III. Athugasemdir við einstakar greinar og breytingartillögur
1. Tillaga að breytingu á 4. grein
Jöklarannsóknafélagið gagnrýnir að ekki skuli reiknað með beinni aðkomu samtaka ferðamanna að stjórnun þjóðgarðsins. Skv. 4. grein frumvarpsins er gert ráð fyrir að í stjórn þjóðgarðsins sitji formenn svæðisráða, fulltrúi frá umhverfisverndarsamtökum og tveir fulltrúar skipaðir af ráðherra.
2
Hafa ber í huga að hér er ráðist í að gera verulegan hluta hálendisins að þjóðgarði. Á því svæði sem vernduninni er ætlað að ná til eru nokkuð fjölfarnar ferðamannaslóðir þar sem jeppamenn hafa verið langstærsti hópurinn í áratugi. Þessi tegund ferðamennsku styðst við hefðir sem fela í sér frelsi til að fara um landið en um leið að skemma það ekki. Eigi hálendið vestan og norðan Vatnajökuls að vera þjóðgarður í raun, er ákaflega mikilvægt að íslenskir ferðamenn og þjóðgarðsyfirvöld séu samstiga um þær reglur sem gilda eiga í garðinum. Það verður best tryggt með beinni aðkomu fulltrúa ferðamanna, t.d. með því að samtök útivistarfélaga skipi einn fulltrúa í stjórn, eins og samtökin gera nú fyrir skipulagsnefnd miðhálendisins. Því leggjum við til að orðalag 4. greinar breytist og verði svohljóðandi:
….. Í stjórn skulu sitja: formenn allra svæðisráða þjóðgarðsins, einn fulltrúi tilnefndur af umhverfisverndarsamtökum, einn fulltrúi skipaður af samtökum útivistarfélaga og tveir fulltúar skipaðir af ráðherra án tilnefningar, þ.e. formaður og varaformaður, eða átta fulltrúar alls.
Varamenn skulu skipaðir á sama hátt.
Ef átta þykir óheppileg tala, má fækka fulltrúum skipuðum af ráðherra í einn, og yrði þá fjöldi
stjórnarmanna sjö eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu.
2. tillaga að breytingu á 15. grein
Í 15. grein lagafrumvarpsins er talað um hvar heimilt sé að aka innan þjóðgarðsins.
Jöklarannsóknafélagið leggur áherslu á að vetrarakstur á snjó verði almennt leyfður á hálendinu við vestan- og norðanverðan jökulinn. Svo til öll umferð um þessi svæði að vetrarlagi fer fram á breyttum jeppum og vélsleðum. Því leggjum við til að í 2. málsgrein verði orðalaginu: „Þó er heimilt að aka slíkum tækjum á jöklum og leyfðum vetrarakstursleiðum, sbr. 3. málsgrein“ breytt í:
„Þó er heimilt að aka slíkum tækjum á jöklum og leyfðum vetraraksturssvæðum“
Með þessu móti hyrfi ósamræmi milli 2. og 3. málsgreinar þar sem talað er um svæði þar sem
heimilt er að aka á snjó að vetrarlagi. Einnig yrði það í samræmi við venjur í vetrarakstri, þar sem
snjóhula og aðstæður eins og stærðir og lega krapabláa ræður leiðum en ekki hefðbundnar
aksturslínur eða vegir. Rétt er að hafa í huga í þessu samhengi að ekki er kunnugt um skemmdir af
vetrarakstri á þessum svæðum, þó svo þar hafi sumstaðar farið hundruð bíla á hverjum vetri í 15-20 ár.
3. tillaga að breytingu á 19. grein
Í 19. grein lagafrumvarpsins eru ákvæði um hverjir hafi kærurétt til umhverfisráðherra. Ekki er ljóst
samkvæmt greininni að ferðamenn eða samtök þeirra hafi rétt til að kæra ákvarðanir. Orðalagið um
lögvarða hagsmuni mun útiloka langflesta landsmenn frá kærurétti. Í ljósi þess að í hópi
ferðamanna eru helstu notendur hálendishluta svæðisins væri eðlilegt að taka af vafa um kærurétt.
Við leggjum því til að lagagreinin hljóði svo:
Ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli laga þessara eru kæranlegar til umhverfisráðherra.
Úrskurður ráðherra er endanlegur úrskurður á stjórnsýslustigi. Kærurétt hafa allir þeir sem eiga
lögheimili á Íslandi.
3
Ef af einhverjum ástæðum er talið nauðsynlegt að takmarka kærurétt, viljum við til vara leggja til
eftirfarandi breytingu:
Ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli laga þessara eru kæranlegar til umhverfisráðherra.
Úrskurður ráðherra er endanlegur úrskurður á stjórnsýslustigi. Kærurétt samkvæmt þessari grein
eiga þeir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda hinni kærðu ákvörðun og umhverfisverndar- eða
ferðamannasamtök sem varnarþing eiga á Íslandi, enda séu félagsmenn samtakanna 30 eða fleiri
og það samrýmist tilgangi samtakanna að gæta þeirra hagsmuna sem kæran lýtur að.
Umhverfisverndar- eða ferðamannasamtök teljast samtök sem hafa umhverfisvernd eða ferðalög að
meginmarkmiði. Þau skulu vera opin fyrir almennri aðild, gefa út ársskýrslur um starfsemi sína og
hafa endurskoðað bókhald.
4. tilllaga að breytingu á 21. grein
Í 21. grein er fjallað um heimildir til að taka gestagjöld innan þjóðgarðsins. Þessi heimild virðist
mjög víðtæk og ekki er samræmi milli frumvarpsins og greinargerðar um þetta atriði. Í greinargerð
er eftirfarandi texti: „Gert er ráð fyrir að um hefðbundið þjónustugjald sé að ræða og ekki er gert ráð
fyrir að það verði innheimt annars staðar en þar sem þjónusta á vegum þjóðgarðsins er veitt.“ Við
leggjum til að texta lagagreinarinnar verði breytt til samræmis og hljóði eftirfarandi:
Í reglugerð má ákveða að taka gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu.
Fjárhæð gjaldsins skal birt í reglugerð ……
IV. Lokaorð
Að lokum viljum við vara eindregið við því að hugmyndir um upphleyptan heilsársveg inn í
Jökulheima við Tungnaárjökul verði að veruleika. Slíkur vegur myndi draga mjög úr sérstæðum
áhrifamætti Tungnaáröræfa en þau eru einhvert eyðilegasta svæði hálendisins. Félagið setur sig að
sjálfsögðu ekki upp á móti endurbótum á sumarvegi þessa sömu leið. Vilji yfirvöld þjóðgarðsins hafa heilsársveg að jöklinum myndi nægja að halda opnum þeim vegi sem þegar er til að Skálafellsjökli. Það myndi einnig efla ferðamannaiðnað tengdan jöklinum í Austur-Skaftafellssýslu meðan heilsársvegur frá Hrauneyjum í Jökulheima myndi fyrst og fremst tengjast ferðamannaiðnaði
á suðvesturhorni landsins.
Fyrir hönd Jöklarannsóknafélags Íslands,
Magnús Tumi Guðmundsson, formaður Magnús Hallgrímsson, varaformaður Þóra Karlsdóttir, gjaldkeri Þorsteinn Þorsteinsson, ritari
Árni Páll Árnason, meðstjórnandi
17.02.2007 at 21:51 #580788Var það þessi [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=umhverfismal/6640:3asko1qy][b:3asko1qy]þráður[/b:3asko1qy][/url:3asko1qy] ?
17.02.2007 at 16:02 #580408Hér er mynd af trukk sem notaður er í eyðimörkum við leit að olíu.
Þessi dekk ættu að hafa töluvert flot.
Hér er [url=http://www.oxy.com/PUBLICATIONS/PDF/Oxy_Today.pdf:2x3vso07][b:2x3vso07]linkur[/b:2x3vso07][/url:2x3vso07]
[img:2x3vso07]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/3929/39896.jpg[/img:2x3vso07]
14.02.2007 at 20:45 #580440Þetta hljómar eins og fyrsti bíllinn minn sem náði rúmlega 100 þegar unglingurinn ég var að gefa í og svo 10-15 km á rúntinum, en þetta var Fíat 128 árg. ’70 með 1 hólfa Holley blöndungi 4 bullur sem gáfu samtals 999 ccm rúmtak.
10.02.2007 at 14:35 #580014Þekkir einhver bílinn?
[img:efiu8loz]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/3929/39586.jpg[/img:efiu8loz]
10.02.2007 at 14:34 #580012Hér er myndin [img:32b9x8qk]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/3929/39585.jpg[/img:32b9x8qk]
29.01.2007 at 17:15 #577842Gunnar getur þú útskýrt fyrir mönnum hvaða fjarskiptabúnaður virkar á þessu svæði?
29.01.2007 at 16:35 #576790Nú er UST að [url=http://www.mbl.is/mm/atvinna/starf.html?adno=563824:3goq0vx6][b:3goq0vx6]auglýsa[/b:3goq0vx6][/url:3goq0vx6] eftir sérfræðingi við umhverfis og útivistarsvið stofnunarinnar.
Ætli Árni verði ekki forstjóri, Trausti tekur við af Árna sem Forstöðumaður og nýr sérfræðingur í starfið hans Trausta.
Þið félagar getið náttúrulega sótt um starfið.
28.01.2007 at 21:29 #577722Ég held að það sé jafn mismunandi og fjöldi tegunda.
Í Motorola er númerið skráð í sendinum og mig minnir að það sé skráð í tólinu á Dancal.
28.01.2007 at 17:47 #577716Það hvellsprakk hjá mér 38" radíal á 90km hraða á malbikinu.
þrýstingur var um 25 pund.
Gúmíið rifnaði frá vírnum, sjá mynd.[img:2qn6xa6m]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/4598/32693.jpg[/img:2qn6xa6m]
25.01.2007 at 13:21 #577024Á Alþingi hefur [url=http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=133&mnr=395:3ijjt30o][b:3ijjt30o]1 umræða[/b:3ijjt30o][/url:3ijjt30o] farið fram og málið sent umhverfisnefnd Alþingis.
Nú er að vona að nefndarmenn hafi fengið umsagnir SAMÚT í hendur og einnig geta einstaklingar sent Umhverfisnefnd Alþingis sínar egin umsagnir.
12.01.2007 at 23:16 #575246waistgate ventillinn er Líklega innbyggður í kuðingnum og hef ég séð slíkan kuðung með skarð í ventlasaetimu, en auðelt er að ssjóða í þetta með nikkel þraeði.
Ef þetta skarð er í ventlasaetinu þá má ekki búast við m9klum þjappþrýstingi.
12.01.2007 at 22:49 #575140þú virðist eitthvað fróður um störf umhverfisnefndar F4x4, allavega segist þú geta nefnt hverjir eru besservisserar 4×4.
þetta starf í nefnd F4x4 er oft ekki skemtilegt, því sótt er að markmiðum F4x4 úr mörgum áttum, en stundum er vörn best með sókn og virðist á stundum að að fulltrúar umhverfisnefndar séu óbilgjarnir á tíðum, en svona er póltík.
Vonast sannarlega að þú leggir okkur lið.
kveðja Dagur.
ps. ae kemur ekki fram í titli.
10.01.2007 at 00:20 #574442Í upphafi þinghalds á Íslandi fyrir umþaðbil 1100 árum var mottóið hjá lögsagnarmönnum og lögréttarmönnum að land skuli byggjast með lögum og ólögum eyða.
Nútíma lagaspekúlantar hafa skilgreint þetta á þann veg að ólög eru þau lög sem enganveginn er hægt að framfylgja.
Segjum sem svo að Árni fái umhverfisráðherrann sinn, hver sem það nú verður eftir kostningar, til að banna tínslu á steinum sem hafa einhvað merkilegt nafn.
Þessu banni verður auðvitað að framfylgja og verður Árna ekki í vandræðum og hringir í vin sinn sýslumanninn á Selfossi, sem hann hefur svo oft leiðbeint áður í að finna utanvegaaksturs menn á gömlum götum sem landmælingar Ísland eru löngu búnar að gleima að hefðu verið nokkurntímann til.
Hann hefur grun um að túristar, sem gengu laugarveginn hefðu eitthverja óhreina steina í poka sínum og mikilvægt væri að ná þeim áður en þeir lentu í ruslafötunni á Flugstöð Leifs Eiríkssonar, vegna hins ofurháa yfirviktar gjalds Flugleiða.
Sýslumaður kallar í Landhelgisgæsluna og fær hana til að taka sinn virtasta löggæslumann á hálendið við Torfajökul og sjá þeir þar túrista með níðþunga bakboka og lenda.
Hello, how dou you like Iceland??
Well it’s rather heavy.
Can i have a look in your back pack.
Yes sure you can take all the heavy stones out of it, it’s killing me.
Ok.
Svo tóku þeir steinana sem allir voru gráir og drullugir og ekki víst að hefðu nokkuð merkilegt nafn, enda er jarðfræði ekki kennd í lögregluskólanum.
Bye thanks for the help.
og áfram skokkuðu túristanir enda þurftu þeir að ná í Bása fyrir myrkur.
09.01.2007 at 07:59 #574436Í þessu viðtali nefnir Árni útlendinga, sem sópa upp steinum, en ekki er hægt að setja lög sem gilda engöngu fyrir þá. Ef einhver lög verða sett þá gilda þau fyrir alla nema kanski Árna sjálfan, sem getur samt veitt heimildir til efnistöku í krafti UST.
Mun vænlegra eru leiðbeiningar og áróður, enda bera langflestir ferðamenn virðingu fyrir landinu.
Stöðvum þessi óþörfu bönn og leiðbeinum í staðin.
Ef þessi stefna um að banna allt sem gæti hugsanlega skaðað náttúruna þá verður allt bannað eftir örfá ár, nema að það verði sérstaklega leyft, eða Norska leiðin sem fáum Íslendingum hugnast.
08.01.2007 at 20:36 #199322Nú í kvölfréttum sjónvarps segir Árni Bragason, forstöðumaður náttúrverdar og útvistasviðs Umhverfisstofnunar, að verði að setja lög um verndun steintegunda, svo óprútnir ferðalangar geti ekki tekið steinvölu með sér heim.
Árna væri betur að líta sér nær, því hann veitti heimild fyrir töku á 50 tonnum af hrafntinnu til að setja utan á Þjóðleikhúsið.
Einnig var veitt heimild fyrir utanvegaakstur, á þessu friðlýsta svæði við Hrafntinnusker, á fjórhjólum og sett ströng skilirði fyrir vöruflutningabíla að þer mættu aðeins keyra á svæðið á þeim slóða sem hann kærði Hlyn fyrir utanvegaakstur á.
Einnig veitti hann heimild fyrir því að stór hrafntinnusteinn á dómadalsleið, sem þekktur fyrir glæsileika, var lánaður á sýningu í Feneyjum, með því skilirði að honum yrði skilað. Þetta felur í sér utanvegaakstur á stórum vörubíl og svo eru miklar líkur að steinninn molni við þetta rask.
Nær væri að friða hálendið fyrir svona mönnum í stað þess að setja lög á allan almenning.
19.12.2006 at 12:48 #571852Saell Gunnar, ég aetla ekki að hvetja þig til að þegja, þótt ég er ekki sammála þér.
Auglýsingar um óábyrga hegðun, sem eru endurteknar oft, geta orðið til að sumt fólk telji að að umraedd hegðun er í lagi.
Spjallið hér er vettvangur til skoðannaskipta og er mönnum frjálst að viðra sýna skoðun.
Afsakið það vantar ae, í textann.
17.12.2006 at 18:25 #571830þessi auglýsing er svo fjári gott kennsluefni í því sem á ekki að gera og með umræðunni er tilganginum náð.
hinsvegar er ég ekkert mikið fyrir bönn, en hvet þá sem geta gert betur.
17.12.2006 at 14:47 #571754Mjög lítið er að finna á netinu um þetta, en hlutar eru þar og hér.
Hér er [url=http://www.eldhorn.is/hjorleifur/midhale.html:1x0eq5tl][b:1x0eq5tl]erindi[/b:1x0eq5tl][/url:1x0eq5tl] eftir Hjörleif Guttormsson þar sem hann leggur til takmarkanir á vélknúinni vetrarumferð.
Ég hef ekki séð svipaðar tillögur frá öðrum.
Hér er [url=http://umhverfisraduneyti.is/media/PDF_skrar/Vatnajokulstjodgardur_ahrif_a_ferdatjonustu.pdf:1x0eq5tl][b:1x0eq5tl]skýrsla[/b:1x0eq5tl][/url:1x0eq5tl] um áhrif þjóðgarðsins á ferðaþjónustu
Hér er [url=http://www.ust.is/media/fraedsluefni/Vatnajokulstjodgardur_AB.pdf:1x0eq5tl][b:1x0eq5tl]skýrsla[/b:1x0eq5tl][/url:1x0eq5tl] frá UST.
Hér er [url=http://www.umvefur.is/land/2002vatnajokuls.pdf:1x0eq5tl][b:1x0eq5tl]skýrsla[/b:1x0eq5tl][/url:1x0eq5tl] félagsfræðinga.
Hér er [url=http://www.fljotsdalur.is/media/fundarger%F0ir/sveitarstj%F3rn/2003/29.sveitarstj%F3rnarfundur%20%2005.08.2003.doc:1x0eq5tl][b:1x0eq5tl]sveitarstjórnarfundur[/b:1x0eq5tl][/url:1x0eq5tl] Fljótsdalshrepps.
Í þessum [url=http://www.karahnjukar.is/files/2002_9_27_urskurdur_ur_heild.pdf:1x0eq5tl][b:1x0eq5tl]úrskurði[/b:1x0eq5tl][/url:1x0eq5tl] er töluvert mynnst á Vatnajökul.
Hér fjallar [url=http://www.lv.is/files/2003_5_21_RO_erindi%20um%20Vatnajokulsthjodgard.pdf:1x0eq5tl][b:1x0eq5tl]Landvirkjun[/b:1x0eq5tl][/url:1x0eq5tl] um þjóðgarðinn.
Hér er [url=http://www.os.is/umsagnir/umsagnir1998/98020005tjodgardaramidh.html:1x0eq5tl][b:1x0eq5tl]umsögn[/b:1x0eq5tl][/url:1x0eq5tl] Orkustöfnunar.
Hér er skýrsla um [url=http://www.umhverfisraduneyti.is/media/PDF_skrar/Natturufar_og_natturuminjar_umhverfis_Vatnajokul.pdf:1x0eq5tl][b:1x0eq5tl]náttúrufar[/b:1x0eq5tl][/url:1x0eq5tl] .
Hér er [url=http://www.umhverfisraduneyti.is/media/Vefutgafa_baeklings/Vidauki_H.pdf:1x0eq5tl][b:1x0eq5tl]áfangaskýrsla[/b:1x0eq5tl][/url:1x0eq5tl] un þjóðgarð norðan vatnajökuls.
Hér er góður [url=http://www.f4x4.is/new/forum/?file=umhverfismal/1494:1x0eq5tl][b:1x0eq5tl]þráður[/b:1x0eq5tl][/url:1x0eq5tl] af vef F4x4
16.12.2006 at 23:51 #199186Nissan auglýsingin í sjónvarpinu er lýsandi dæmi um hvað á ekki að gera.
Þar er sýndur einhver jéppi, sem fer allt, og rótar upp jarðveginum þar sem hann fer. En enginn ætti að ferðast með þessum hætti, verskumerki skulu vera engin, þó að megi marka í snjó.
skora ég því á Ingvar Helgason hf að hætta byrtingu á þessari auglýsingu.
Dagur Bragason umhverfisnefnd F4x4
-
AuthorReplies