FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Dagur Bragason

Dagur Bragason

Profile picture of Dagur Bragason
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 441 through 460 (of 583 total)
← 1 … 22 23 24 … 30 →
  • Author
    Replies
  • 26.03.2007 at 23:20 #585736
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Ragnheiður Bragadóttir dómstjóri austurlands hefur nú dæmt tvisvar menn seka um utanvegaakstur.
    Í dómi veiðimanns fyrir austan var hann réttilega dæmdur fyrir utanvegaakstur utanvega, en einnig dæmdur fyrir utanvegaakstur á vegi sem er stikaður, á öllum kortum, en grafin í sundur á einum stað og samkvæmt dómsorði "mátti vera augljóst að vegurinn er aflagður".
    Í Gullskipsvegamálinu er einnig einkennileg röfærsla, eða að maðurinn er dæmdur fyrir utanvegaakstur því vegurinn er óljós og fáfarinn.
    Ekki virðast önnur rök skipta máli fyrir dómarann.
    Til umtals kom hvort F4x4 ætti að skipta sér af dómi veiðimanns, en ákveðið að F4x4 ætti ekki að skipta sér af því máli því vissulega var um utanvegaakstur að ræða, að hluta.
    Þetta er umdeilanlegt því ákveðnir aðilar í UST vilja nota þennan dóm sem eitthvað dæmi um utanvegaakstur í hópvinnu þeirra og VÍK og þá sértaklega bent á þennann hluta dómsins "utanvegaakstur á vegi"
    Vörn veiðimanns virðist aðalega hafa snúist um að sonurinn yrði ekki sakfelldur og tók á sig alla sök, þó sumt hafi verið ósanngjarnt.
    Ekki var séð að nokkurri vörn hafi verið viðhöfð og því er þessi dómur veiðimanns alls ekki til fordæmis.
    Hæstaréttardómurinn er ekki sá dómur sem ég vildi sjá, en ég vildi að dómurinn tæki á þessum þáttum:
    Gott væri að Hæstiréttur úrskurði um þessi undanþáguákvæði í nátturverdarlögum og þarafleiðandi túlkun ákæruvaldsins um að slóðir sem myndast vegna landbúnaðastarfa, þar sem má aka utanvega vegna undanþáguákvæðis, eru öðrum óheimilt að aka, og eru því kærðir fyrir utanvegaakstur.
    Mikilvægt er að komi fram að akstur á gömlum bændslóðum, sem voru til löngu áður en umrætt undanþáguákvæði var til, geti fallið undir þetta.
    Einnig má gagnrýna þessar undanþágur, sem heimila utanvegaakstur í atvinnuskini, þegar öllu öðru fólki er bannað að stunda utanvegaakstur þó engar raskanir eða skemmdir verða af þeirra völdum.
    Kveðja Dagur





    22.03.2007 at 20:16 #585724
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    "Einkennikegt" að aðilinn sem kærir í þessum utanvegakærum tengist alltaf UST, enda er Árni Bragason æðsti yfirmaður landvarða víðast á landinu og á það einnig við um Skaftafellsþjóðgarði.
    Hér má sjá plön um vegagerðina á sínum tíma.

    [img:2mish4mm]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/3929/41398.jpg[/img:2mish4mm]





    20.03.2007 at 09:50 #488056
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Tók olíu um daginn fyrir rúmar 6000 hjá shell í sjálfafgreiðslu.
    Á nótunni kom fram afsláttur rúmar 300kr. eða 5%.





    20.03.2007 at 09:50 #493102
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Tók olíu um daginn fyrir rúmar 6000 hjá shell í sjálfafgreiðslu.
    Á nótunni kom fram afsláttur rúmar 300kr. eða 5%.





    18.03.2007 at 21:52 #585030
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Sæll þorsteinn.
    Þú finnur þetta í gegnum linkinn á umhverfisnefnd Alþingis.
    Eitt vakti sérstaklega athygli mína eða hvað 3 umræðan og athvæðagreiðslan tók langan tíma, eða frá 23:56 til 23:56 og er ég ekki viss um að áhorfandi hefði tekið eftir henni að hún hefði farið fram.

    Kveðja Dagur





    18.03.2007 at 18:57 #585026
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Frumvarpið er orðið að [url=http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=133&mnr=395:4dwtsqqu][b:4dwtsqqu]lögum[/b:4dwtsqqu][/url:4dwtsqqu] á Alþingi.
    Allir viðstaddir þingmenn
    [url=http://www.althingi.is/dba-bin/atkvgr.pl?nnafnak=36973:4dwtsqqu][b:4dwtsqqu]samþykktu[/b:4dwtsqqu][/url:4dwtsqqu] frumvarpið.





    16.03.2007 at 00:16 #584168
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Þetta sagði stef með punktum og strikum, gjörsamlega óskiljanlegt fyrir þá sem ekki eru á hennar bylgjulengd.
    Kveðja Dagur





    15.03.2007 at 22:42 #584628
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Ég tel að sveitarstjórnir vera betur fallnar til að stjórna þjóðgarði en UST.
    Sveitarstjórnir og íbúar nálægt þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum eru brenndir af fyrri stjórn þjóðgarðsins, eða UST og fyrirrennara þess, sem hundsaði þær hvað eftir annað.
    UST getur varla talist talsmaður þjóðarinnar því UST er alls ekki lýðræðislegt apparat og stýrist heldur af embættismönnum sem túlka lög og reglur eftir sínu höfði og þurfa ekki að taka tillit til almúgans. Þessir embættismenn hafa tilhneigst til að sitja í embætti ævilangt og er þessi frétt um Árna því kærkomin breyting..
    Sveitarstjórnir eru því mun líklega betri fulltrúar þjóðarinnar, en UST, þó að þær verði varla fulltrúar 101 Reykjavík





    15.03.2007 at 22:24 #584164
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Radíó Amateur prófi er lokið.
    26 náðu G og 4 N og ekkert fall.
    Flestir sem tóku prófið er jéppamenn og í F4x4.
    Nú má búast við að stórum loftnetum fjölgi á fjöllum, en þau voru mjög algeng fyrir 20-30 árum.





    15.03.2007 at 08:39 #580248
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Jói umhverfisnefnd opnar í kvöld og hellir janvel uppá kaffi.





    14.03.2007 at 10:11 #584458
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Í Mogganum í dag er [url=http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1258626:dhff0tln][b:dhff0tln]frétt[/b:dhff0tln][/url:dhff0tln] um gjald á talstöðvar.
    Sigurður Ásgeirsson flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni tjáir sig um gjaldtöku á talstöðvum 4100 á VHF og 6400 á miðbylgju stöðvum.
    Þarna er verið að taka gjald af öryggistækjum án þess að nokkur þjónusta komi í staðin og telur flugstjórinn að menn muni fjarlægja þessi öryggistæki úr bílum og litlum flugvélum í kjölfarið.





    12.03.2007 at 23:41 #584338
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Fór yfir vaðið við Sóeyjarhöfða og suður.
    Smá föl var á veginum, enginn krapi sjáanlegur, nokkur snjór utan við veginn eða fínt færi.





    12.03.2007 at 17:14 #584220
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Viftukúplingin á að stífna þegar hún hitnar og er þá gjarna laus þegar búið er að vera dautt á bílnum í nokkurn tíma og því köld. (Rangt hjá Lárusi)
    Heitt loft frá vatnskassanum hitar kúplinguna og fer þá viftuspaðinn að ganga hraðar og þar með kæla vatnið í vatnskassanum.
    Ef vatnskassinn er lélegur þá hitnar loftið minna og viftan fer ekki á fullan hraða og gerist þetta það sama ef dregst kalt loft framhjá vatnskassanum t.d ef hlífar eru brotnar.





    03.03.2007 at 14:52 #583170
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Varðandi kaup Frumherja á aðalskoðun þá setti ég [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=bilarogbreytingar/9300:2nfr9r5l][b:2nfr9r5l]þetta[/b:2nfr9r5l][/url:2nfr9r5l] á spjallið.
    Undirtektir voru litlar eins og bíleigendum kæmi þetta ekki við og heldur engin viðbrögð frá stjórn eða tækninefnd F4x4.
    Ég sendi bréf á samkeppni@samkeppni.is í eigin nafni, sem bíleigandi og mótmælti þessum kaupum.





    21.02.2007 at 23:29 #581672
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hvað?? er öllum sama hvort þeir þurfa að mæta endalaust í endurskoðun út af einhverju tittlingaskít.
    Þannig var það þegar Frumherji var með einkaleifi, þá mátt menn gjöra svo vel að mæta í endurskoðun, ef skrúfa var laus á númerplötunni, eða olíudropa neðan á olíupönnunni.
    Ekki mátti herða skrúfuna á staðnum, nei gjöra svo vel að borga aftur og sýna skoðunarmanninum að þú hafir hert skrúfuna.





    21.02.2007 at 23:22 #581830
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Á þessum tíma þegar EIK var fátækur námsmaður var vatnið dýrara en bensínið og ódýrustu bílarnir 2-3 tonna blikkbeljur eða svokölluð sófasett.
    Það eru víst eitthvað breyttir tímar.





    21.02.2007 at 12:38 #199749
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Í frétt Moggans er sagt frá því að Frumherji hf. hefur keypt allt hlutafé í bifreiðaskoðunarfyrirtækinu Aðalskoðun hf. Kaupverðið er trúnaðarmál en kaupin eru gerð með fyrirvara um að Samkeppniseftirlitið geri ekki athugasemdir við viðskiptin. Félögin verða rekin áfram sitt í hvoru lagi með sama hætti og verið hefur.
    Eru menn sáttir við þetta?
    Vilja menn aftur EINOKUN á skoðunum bíla.
    Fyrir mig var mikill munur að losna við einokunina á sínum tíma og ég vil alls ekki að þessi kaup verði leifð.
    Sendum Samkeppniseftirlitunu póst og mótmælum þessum gjörningi.





    18.02.2007 at 19:19 #580824
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Kolbrún Halldórsdóttir hafði aðalalega áhyggjur af því að UST stjórnaði ekki vatnajökulsþjóðgarði:
    "Það þýðir ekki endilega að sarga þurfi sundur æðarnar sem liggja til [url=http://www.althingi.is/raeda/133/rad20070123T180220.html:y31y2ytn][b:y31y2ytn]opinberra[/b:y31y2ytn][/url:y31y2ytn] stjórnsýslustofnana jafnvel þótt þær hafi verið svo óheppnar að vera settar niður í Reykjavík. "
    Svo minnist hún á [url=http://www.althingi.is/raeda/133/rad20070123T174952.html:y31y2ytn][b:y31y2ytn]fund[/b:y31y2ytn][/url:y31y2ytn] á Hornafirði þar sem Árni Bragason flutti ræðu.
    Einning telur hún að þjóðgarðurinn þurfi endilega að fylgja [url=http://www.althingi.is/raeda/133/rad20070123T160921.html:y31y2ytn][b:y31y2ytn]erlendri[/b:y31y2ytn][/url:y31y2ytn] fyrirmynd:
    "það að fylgja leiðsögn alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna IUCN í þessum efnum. Allt sem lýtur að vinnu nefndanna sem hafa starfað að þessum undirbúningi sem varðar svæðisskiptingu IUCN og skilgreiningu þeirra samtaka á ólíkum svæðum sem geta heyrt til þjóðgarði, þó svo verndarkvöðin sé mismikil, allt er þetta til fyrirmyndar og í samræmi við þá nútímalegu hugmyndafræði sem IUCN hefur rutt braut í þjóðgarðamálum."
    Steingrímur J Sigfússon hafði mest [url=http://www.althingi.is/raeda/133/rad20070123T164648.html:y31y2ytn][b:y31y2ytn]áhyggjur[/b:y31y2ytn][/url:y31y2ytn] af því að hugsanlegir virkjunarstaðir væru ekki innan Þjóðgarðsins. en þetta hafði hann að segja um aðkomu að stjórn þjóðgarðsins:
    "Þau sjónarmið eru vissulega fullgild að eðlilegt er að hafa í huga þann mikla fólksfjölda sem býr á suðvesturhorni landsins og á landfræðilega beint aðild að málinu í gegnum það svæðaskipulag sem lagt er til grundvallar. Ég vil segja að ég held að einn vandasamasti partur þessa máls, sem enn er óþroskaður að ýmsu leyti, sé stjórnsýsluþátturinn. Það þarf að fara vel yfir það hvort þarna næst jafnvægi sem þarf að tryggja milli þess að heimaaðilar, landeigendur, sveitarstjórnarmenn og hagsmunasamtök, t.d. ferðaþjónustuaðilar og áhugamannasamtök svo sem náttúruverndarsamtök á viðkomandi svæðum, verði áfram fullvissuð um að verða höfð með í ráðum og hafi áhrif á umsýslu og stjórn einstakra svæða."





    18.02.2007 at 18:04 #580822
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Tilvitnun úr [url=http://www.althingi.is/raeda/133/rad20070123T182724.html:udz7kseh][b:udz7kseh]andsvari[/b:udz7kseh][/url:udz7kseh] Jónínu Bjartmarz:
    "Vatnajökull og nágrenni hans er perla sem þjóðin á sameiginlega. Það er auðvitað grundvallaratriði að tryggja öllum jafnan aðgang að svæðinu, hvort sem við erum að tala um göngufólk, jeppafólk eða vélsleðamenn, að allir geti notið þess sem svæðið hefur upp á að bjóða og allir geti notið frjálsræðisins og víðáttunnar á hálendinu innan ákveðinna marka svo ekki gangi á auðlindina."

    Hér er andsvar Jónínu í 1. umræðu um Vatnajökulsþjóðgarinn og er henni umhugað að aðgengi almennings sé virt.

    Hér er 1 [url=http://www.althingi.is/altext/133/01/l23153647.sgml:udz7kseh][b:udz7kseh]umræðan[/b:udz7kseh][/url:udz7kseh]

    Hér er tilvitnun úr [url=http://www.althingi.is/raeda/133/rad20070123T154600.html:udz7kseh][b:udz7kseh]andsvari[/b:udz7kseh][/url:udz7kseh] Rannveigar Guðmundsdóttur:
    "Ég hef ferðast mjög mikið um óbyggðir á Íslandi og finnst það það eftirsóknarverðasta sem hægt er að hugsa sér hvað varðar ferðamáta og frí. Hvergi er betra að eiga unaðsstundir en á fjöllum eða inni í óbyggðum. Ég fer líka stundum á jökla en í jöklaferðir mínar hef ég farið akandi. Ég átti þess kost að fara í ferð á Vatnajökul fyrir tveimur árum. Það er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma, að aka upp á þennan víðfeðma jökul og dveljast þar og keyra hann allan í norður og keyra hann allan í suður og eiga þar næturgistingu undir bláhimni í unaðsveðri. Það er auðvitað alveg einstakt að eiga þess kost að upplifa þetta.

    Mér finnst mikilvægt að áfram verði hægt að fara í slíkar ökuferðir inn á jökla, bílar eru eins og smádeplar í íshafinu og eftir þá fennir fljótt í slóðir. En jafnframt verður að taka alveg sérstaklega á því að allir sem eru á gönguferð, hvort sem það er á göngu eða skíðum, lendi ekki í því að bílar séu á þeirra slóðum. Það er grundvallaratriði, enda í þeirri ferð sem ég fór voru mjög ströng skilyrði um það hvert bílar mættu aka vegna þess að á sama tíma var mjög mikið fjölmenni að ganga á Hvannadalshnjúk og truflaði þar hvorugt annað, ef hægt er að orða það þannig.

    Ég tek eftir því að í 15. gr. er ákvæði um akstur vélknúinna ökutækja utan vega í þjóðgarðinum. Þá vaknar spurningin: Á þetta líka við jökulinn sjálfan? Er verið að setja þarna inn ákvæði sem lokar á eitthvað sem gífurlegur fjöldi fólks lítur á sem eitthvað það eftirsóknarverðasta í ferðum á okkar einstaka landi, en það er möguleikinn að keyra á jöklum? Er þarna strax í upphafi verið að loka á að vélknúin ökutæki, vel útbúnir jeppar eða önnur ökutæki megi fara á jökul? Mér finnst mikilvægt að þetta komi fram og ég mun leggja mikla áherslu á að við skoðum það í nefndinni. Ég er alveg sannfærð um að ef hugsunin er þannig á bak við ákvæði 15. gr. að þarna eigi að loka á eitthvað sem er orðin mikil hefð á Íslandi þá séum við að fara villur vega, það er mín skoðun."

    [url=http://www.althingi.is/raeda/133/rad20070123T162604.html:udz7kseh][b:udz7kseh]ræða[/b:udz7kseh][/url:udz7kseh] Arnbjargar sveinsdóttur:

    "Ég átti þess kost að sitja í þingmannanefndinni svokölluðu sem kom með grunninn að þeim tillögum sem hér eru orðnar að frumvarpi. Hér hafa margir aðrir komið að málum. Ég hafði mjög mikla ánægju af því að vinna í þessari nefnd og taka þátt í störfum hennar með öðrum ágætum þingmönnum. Við höfðum mjög mikið samráð við umhverfissamtök, ferðamálasamtök, heimamenn, sveitarstjórnarmenn og alla þá sem við gátum ímyndað okkur að hefðu skoðun á því með hvaða hætti við ættum að byggja upp Vatnajökulsþjóðgarð."
    Henni virðist ekki hafa dottið í hug í útvistarfélög hefðu eitthvað um málið að segja, enda var ekkert talað við þau.

    Halldór Blöndal hafði meðal annars þetta að [url=http://www.althingi.is/raeda/133/rad20070123T173343.html:udz7kseh][b:udz7kseh]segja[/b:udz7kseh][/url:udz7kseh] :

    "Ég hygg að flestir Íslendingar séu sammála um að þessi öræfi eigi að fá að halda sér eins og þau eru. Ekki kemur til greina að breyta farvegi Kreppu og færa hana til Austurlands eins og suma hefur dreymt, það kemur auðvitað ekki til greina. En á hinn bóginn er nauðsynlegt í þessum þjóðgarði eins og öðrum að fólk geti komist um hann með auðveldum hætti því að reynslan sýnir að ef vel er frá stígum og vegslóðum gengið og þeir tryggilega merktir, ég tala ekki um ef hægt er að byggja þá eitthvað upp, þá kemur það í veg fyrir að ekið sé utan vegslóðanna."





    18.02.2007 at 15:09 #580816
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Þessi umsögn er ágæt að flestu leiti en ég vil vekja athygli á þessu:

    "Þó er heimilt að aka slíkum tækjum á jöklum og leyfðum vetraraksturssvæðum"

    Þarna er vísað til þess hugtaks sem ég vil ekki taka upp eða "ALLT ER BANNAÐ NEMA AÐ ÞAÐ SÉ SÉRSTAKLEGA LEYFT"

    Þessi leyfðum vertaraksturssvæðum er sett í staðin fyrir leyfðum vetraraksturleiðum.

    Mun betra væri að banna umferð sérstaklega á svæðum sem rík ástæða er fyrir lokun á og ástæður rökstuddar,





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 441 through 460 (of 583 total)
← 1 … 22 23 24 … 30 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.