FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Dagur Bragason

Dagur Bragason

Profile picture of Dagur Bragason
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 401 through 420 (of 583 total)
← 1 … 20 21 22 … 30 →
  • Author
    Replies
  • 15.06.2007 at 00:51 #592082
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    hjá Rottunum, allaf stærstir.
    Varðandi Barböru, þá er henni gert að fylla uppí vísutölufjölskildumeðaltalsviðmiðunarfjölda samkvæmt ákvörðun Umhverfisnefndar. Brot á þessu verða litin mjög alvarlegum augum, eða hornaugum.
    Syndaaflausnir, eins og þær sem seldar voru til að fjármagna Péturskirkjuna í Róm, eru seldar með hverjum bíl í dag, en við seljum ekki slíkt, heldur erum við að fjárfesta í landinu fyrir komandi kynslóðir.
    kveðja Dagur





    13.06.2007 at 21:56 #592066
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Fyrirgefðu Magnum að ég tók ekki eftir að þú hefðir þegar skráð þig.
    Dúkkan hún elskulega Barbara tók að sér að uppfæra listann, en hún hefur nefnilega meirapróf á vefnum, en ekki ég.
    Kalli kafteinn, ég tek þessar afsakanir ekki gildar, þó að þú sért kvennmannslaus, bíllaus í kulda og trekki á götóttum gúmískóm, þá er það engin afsökun fyrir að mæta ekki.
    Það er örugglega nóg af hálftómum bílpöllum og tengadmömmuboxum og svo er líka boðið upp á steik og varðeld að ylja sér við.
    Kveðja Dagur





    12.06.2007 at 00:41 #592348
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Kærkomin breyting.
    Nú er hægt að skoða gömlu póstana aftur.





    11.06.2007 at 20:06 #592052
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Sæll Jón Ebbi og gott að fá ykkur með.
    Þetta með söfnuðinn var aðalega út af stílnum og eru þarna nokkur orð sem jafnan eru notuð saman:
    Jónsmessa, að messa og söfnuður, annars hefðu orð eins og flokkur, gengi, hópur, grúbba, stóð, lið, áhöfn, -verjar, torfa, eða slík orð dugað í staðin.
    Óskar Andri, ég var svoldið seinn með skráninguna.
    Það vantar enn þá menn sem þóttust GRÆNIR í þessum [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=umhverfismal/9801#77043:2fjffuc0][b:2fjffuc0]þræði[/b:2fjffuc0][/url:2fjffuc0] , á hvar er Kalli Kafteinn og Davíð K Davíðsson, og Magnum sjálfur er ekki kominn með formlega skráningu.





    10.06.2007 at 14:50 #592302
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hér er að finna [HTML_END_DOCUMENT][url=http://www.firebirds.org/menu15/dye2_p02.htm][b:18gd4v0s]Kort[/b:18gd4v0s] með staðsetningu DYE 1-4
    [/url]





    08.06.2007 at 22:18 #592032
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Blessaður vertu Jón að messa yfir okkur, en ég sakna enn söfnuðar Rottugengisins í skráninguna, en sú var tíðin að Jónsmessufarar voru að stórum hluta Rottur, hvattar af Ofsa í ferðina og jafnvel skráðar og greitt fyrir af sama manni.
    Semsagt félagar og vinir þínir eru tilbúnir að mæta og taka þátt í starfinu á meðan sjálfur situr heima.
    Vertu velkominn með í starfið.
    Kveðja Dagur





    08.06.2007 at 19:29 #592028
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Samningur hefur náðst við Útivist um afslátt af tjaldgjöldum í Básum um Jónsmessuhelgina.
    Formaður og ritari umhverfisnefndar F4x4 lögðu hart að framkvæmdastjóra Útivistar í þessu máli.
    Mikil áhersla var lögð á að þetta er ferð sjálfboðaliða í landgræðslu að fegra ásýnd Merkurinnar.
    Framkvæmdastjóri Útivistar brást vel við þessari málaleitan og bauð verulegan afslátt af tjaldgjöldum.
    Félagar og sjálfboðaliðar í landgræðsluferð F4x4 þurfa því aðeins að greiða 550 kr fyrir nóttina, eða það sama og félagsmenn Útivistar.





    06.06.2007 at 21:36 #592010
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Til hagræðis er gott að gefa upp nafn, fjölda fullorðinna og fjölda barna 12 ára og yngri.

    1. Barbara 1-2 fullorðnir 1-2 börn.
    2. Dagur 1-2 fullorðnir
    3. Gundur 2 fullorðnir 2 börn
    4. Guðni Jón Stef 2 fullorðnir
    5. Einar Sól 1 fullorðinn
    6. Ómar Wítt 1 fullorðinn 1 barn
    7. Björn Hansson 2 fullorðnir 2 börn
    8. Magnús Guðmundsson 2 fullorðnir 3 börn
    9. Árni Bergs 2 fullorðnir ? börn
    10. Jón Ebbi Halldórsson 6 Rottugengið
    11. Óskar Andri V.Eiriksson 3 fullorðnir
    12. Kjartan Gunnsteinsson 2 fullorðnir 1 barn Rottugengið
    13. Bjarki Clausen 2 fullorðnir 2 börn
    14. Ásgeir og Olga 2 fullorðnir
    15. Gísli R-3072 2 fullorðnir
    16. Ofsi 2 fullorðnir og 1 unglingur Rottugengið
    17. Sæmundur 2 fullornir og 3 unglingar Rottuviðhengi
    18. Ægir Sævarsson 2 fullorðnir 1 barn
    19. Magni R Þorvaldsson 3 fullorðnir Rottugengið
    20. Soffía Snæland 2 fullornir og eitt barn Rottuviðhengi
    21. Jenni 2 fullornir og einn unglingur Rottuviðhengi
    22. Bjarni Ingibergsson 2 fullorðnir 1 barn
    23. Gunnar Hróðmarsson 4 fullorðnir
    24. Danni 1 fullorðinn 1 barn
    25. Hermann Þór Jónsson 2 fullorðnir 1 barn
    26. Jóhann Björgvinsson 2 fullorðnir 2 börn
    27. Jóhannes Steinólfsson 3 fullorðnir
    28. Reynir 3 fullorðnir 1 barn Rottugengið
    29. Sigurður Egill 1 fullorðinn 1 barn
    30. Stefán Baldvinsson 2 fullorðnir
    31. Vilhjálmur Freyr Jónsson 1 fullorðinn 2 börn
    32. Sigurbjörn Hannsson 4 fullorðnir
    33. Þórarinn Guðmundsson 2 fullorðnir 1 barn.
    34. Karl Sigurjónsson 3 fullorðnir
    35. Þórður Antonsson 2 fullorðnir 1 barn
    36. Ágúst Sigurjónsson 2 fullorðnir 1 barn
    37. Gunnar & Mæja 2 fullorðnir
    38. Gunnar jones 226 2 fullorðnir
    39. Stefania og 1 fullorðin.
    40. Hjalti Eggertsson Selfossi 2 fullorðnir 2 börn
    41. Guðgeir Veigar Hreggviðsson 2 fullorðnir 1 barn





    30.05.2007 at 22:49 #591414
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Fjallað er um CDMA 450 í Blaðinu í dag og er talað við fulltrúa fjarskiptanefndar F4x4 Sigmund Sæmundsson.
    Ekkert nýtt kemur fram, en einnig nefnir hann VHF og IRDIUM.
    Sigmundur segir að CDMA 450 kerfið komi vel út á pappír??
    Er það langdrægnin eða eitthvað annað?
    Langdraegni NMT var allt að 180 Km í sjónlínu, en Síminn segir að langdrægni CDMA450 vera 100Km, en pappírar erlendra aðila nefna allt að 50Km langdrægni við bestu aðstaeður og lámarks álag.
    Vill fjarskipranefnd útskýra þetta misræmi.

    Kveðja Dagur





    30.05.2007 at 21:57 #591784
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Jón Snaeland heldur utan um þetta. þú finnur hann í stjórn f4x4





    25.05.2007 at 16:28 #590562
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    í þessu [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=fjarskiptamal/9919:1gwzlvdf][b:1gwzlvdf]spjalli[/b:1gwzlvdf][/url:1gwzlvdf] er sagt frá þessu CDMA 450.
    Síminn segir að kerfið dragi 100km, en prófanir segja allt að 50 km við bestu aðstoður með stefnuvirkum loftnetum og lágmarks álagi.
    kveðja Dagur R-1698 TF3DB





    24.05.2007 at 21:17 #589808
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Mikil kæling á þrýstilofti gefur yfirleitt af sér daggardropa, nema að loftið í inntaki er mjög þurrt.
    Áhrif dropanna í vélinni fer mikið eftir tegund og gæði eldsneitis. Vatnsinnspíting hefur verið notuð til að auka afl og lækkar þá brunahiti, en þrýstingur verður hærri vegna uppsuða á vatinu og því meira afl. Skaðleg áhrif vatnsdropanna fer aðalega eftir brennisteinsinnihaldi eldsneytisins og myndar vatnið þá brennisteinssýru með brennisteininum í eldsneitinu við bruna.
    Nútíma bensín og díselolía er nánast án brennisteins, en mikið af homum er í svartolíu.
    Einnig geta komið tæringarvandamál á málmflötum vegna snögguppsuðu (Cavitasion) þar sem vatsdropar snerta málm.
    Einnig getur mikið vat hamlað eðlilegum bruna.

    Kveðja Dagur





    24.05.2007 at 17:45 #591498
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Með leitarvél finnur maður svona [url=http://www.motul.is/default.asp?content=frettir&frId=3&id=363:2ejba57p][b:2ejba57p]snjóblásara[/b:2ejba57p][/url:2ejba57p] á 5 sekúndum. [img:2ejba57p]http://www.motul.is/myndir//Snjoblasarar/Snjoblasari10hp.jpg[/img:2ejba57p]





    24.05.2007 at 11:00 #590676
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Í sáttmála ríkisstjórnar er tryggt að ekki verður farið inn á ný svaeði, en orðalagið er svona:
    "Þar til sú niðurstaða er fengin verði ekki farið inn á óröskuð svæði án samþykkis Alþingis, nema rannsóknar- eða nýtingarleyfi liggi fyrir."
    Nýr Kjalvegur þarf að fara um land sem er í dag óraskað.
    kveðja Dagur





    23.05.2007 at 00:36 #581678
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Æðislegt að opinber stofnun nái niðurstöðu áður en allir aðrir eru búnir að gleima málinu!!
    Einfaldara mál getur þessi stofnun ekki fengið.
    1 mál 2 fyrirtæki = einföld niðurstaða





    22.05.2007 at 23:16 #591374
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Sæll Baldur.
    Ég var að skoða ummerki á Hellisheiðinni um daginn og þótti mér nóg um allt rask eftir Orkuveituna, og gamlir skálar við skíðabrekkur að hruni komnir.
    Eru miklar skemmdir eftir aðra en Orkuveituna?
    Er þetta svæði ónýtt til útivistar?
    Plön eru um allt að 450MW rafmagnsframleiðslu á heiðinni.
    Hafa Skátar eitthvað annað athvarf? og hefur orkuveitan stutt Skátahreifinguna í þessu máli?
    Eða eru Skátar sáttir við þetta?





    22.05.2007 at 01:26 #590668
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hér í [url=http://www.landvernd.is/myndir/UtanVegaSkyrsla.pdf:2f0rsitz][b:2f0rsitz]skýrslu[/b:2f0rsitz][/url:2f0rsitz] starfshóps umhverfisráðherra um vegi og slóða í óbyggðum sem Árni Bragason var formaður fyrir er svipað kort á bls. 7.
    Þetta hugtak um víðerni er líklegast fengið frá bandaríkjunum þar sem sett voru lög um "Wilderness" 1964 um svæði som voru alveg óbyggð og er lang stærsta svæðið um 15% af Alaska tekið í þessa vernd og má ekki gera vegi, hús eða eitthvað sem minnir á veru manna.
    Ínuitar fá að vera vísu áfram og á seinni árum er borað eftir olíu á svæðinu.
    Önnur svæði í Bandaríkjunum eru mun minni og flest undir 1% af heildar flatarmáli ríkjanna.
    Þannig að þessi þessi skilgreining á Ósnornum víðlendum hér á Íslandi yfir 30% af heildarflatarmáli landsins er út í hött miðað við hvað aðrar þjóðir eru að gera.





    22.05.2007 at 00:19 #591368
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Nú er flestum heimilt að stunda utanvegaaksur sem hafa atvinnu af því, eins og bændur, línumenn, símamenn, jarfræðingar, vatnamælingamenn, lögreglumenn, sjúkraflutningamenn, landsvirkjunarmenn, vegagerðarmenn og nú leiðsögumenn veiðimanna.
    Svo eru aðrir sem mega aka utanvega í björgun eins og slysavarnarfélög, en ég held að þeim er enn óheimilt að aka utanvega á æfingum og verður það líklega lagfært fljótlega.
    Semsagt allir mega aka utanvega sem hafa einhverra peningalega hagsmuni, en hinir sem eru bara ferðafólk verða að halda sér á réttum slóðum.

    Kveðja Dagur





    21.05.2007 at 19:54 #590664
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Þetta með 25 km2 er svolítið sérstakt. Það lætur lítið yfir sér, en þegar maður skoðar hvað liggur á bak við þessar hugmyndir þá kemur ýmislegt í ljós. [img:3r7q1g6f]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/3929/43109.jpg[/img:3r7q1g6f] Bleikur litur er fyrir víðerni og rautt fyrir friðlýst svæði.
    Þetta er skilgreining UST á umfangi 25 KM2 og er ekki mikið eftir fyrir slóðana hans Ofsa.
    Sjá [url=http://idnadarraduneyti.is/media/Rafraen_afgreidsla/Audlindaskyrsla_lokautgafa.pdf:3r7q1g6f][b:3r7q1g6f]skýrslu iðnaðarráðuneitis[/b:3r7q1g6f][/url:3r7q1g6f]
    Í lögum um náttúruvernd, nr. 44/1999, er ósnortið víðerni skilgreint sem landsvæði "sem er a.m.k.
    25 km2 að stærð eða þannig að hægt sé að njóta þar einveru og náttúrunnar án truflunar af
    mannvirkjum eða umferð vélknúinna farartækja á jörðu, er í a.m.k. 5 km fjarlægð frá
    mannvirkjum og öðrum tæknilegum ummerkjum, svo sem raflínum, orkuverum, miðlunarlónum
    og þjóðvegum, og þar sem ekki gætir beinna ummerkja mannsins og náttúran fær að þróast án
    álags af mannlegum umsvifum." Árið 2005 töldust 38.900 km2 landsins til víðerna eða um 38% af
    heildarflatarmáli Íslands, en til samanburðar þá töldust 39.900 km2 landsins til víðerna árið 2002.
    Einnig er búið að setja nákvæmar reglur hvað megi og s´æerstaklega hvað má ekki vera innan þessara víðerna:
    Nánari skýringar um hvað má og hvað ekki innan ósnortins víðernis er að finna í þessu [url=http://www.althingi.is/altext/123/s/0404.html:3r7q1g6f][b:3r7q1g6f]þingskjali[/b:3r7q1g6f][/url:3r7q1g6f] :
    1. Mannvirki, sem leyfð eru innan ósnortinna víðerna, skulu vera þannig gerð að mögulegt sé að fjarlægja þau og afmá ummerki eftir þau. Rústir og fornminjar, þar sem mjög lítil ummerki eru um mannvist, þurfa ekki að koma í veg fyrir að svæði sé skilgreint sem ósnortið víðerni. Gangnamannakofar og sæluhús, sem eru innan svæðis þegar það er lýst ósnortið víðerni, geta fengið að vera, en slík hús ber að mála í jarðlitum. Skálar í einkaeign, sem heimild er fyrir, eiga heldur ekki að koma í veg fyrir að svæði verði skilgreint sem ósnortið víðerni, en eigendur þeirra verða skilyrðislaust að lúta reglum um stærð, útlit, umgengni og umferð. Ekki á að leyfa nýja skála nema þá sæluhús fyrir göngufólk og þá ekki á áberandi stöðum eða þar sem um sérstakar náttúruperlur er að ræða.
    2. Akstur verði takmarkaður um ósnortin víðerni eins og frekast er kostur. Gangnamönnum verði heimill akstur að sæluhúsum og gangnamannakofum meðan á göngum stendur. Heimilt verði að veita undanþágur vegna viðhaldsverkefna og rannsókna, ef flytja þarf efnivið og tæki á vettvang. Sérstakar reglur verður að setja um akstur á snjó. Umferð vegna veiðiskapar skal miðuð við brýnustu nauðsyn vegna flutninga með afla eða bráð, t.d. við hreindýraveiðar.
    3. Fara ber varlega í að merkja göngustíga. Leggja skal áherslu á útgáfu góðra korta um svæðin og hafa vegvísa einfalda og lítt áberandi. Skilti með upplýsingum skulu vera einföld og á vel völdum stöðum.
    4. Ef nauðsynlegt er vegna öryggis að hafa göngubrýr skal hafa þær eins einfaldar og kost ur er.
    5. Girðingar verði fjarlægðar.
    6. Raflínur mega ekki sjást og fjarlægja ber leifar af símalínum.
    7. Fjarskiptaloftnet á fjöllum verður að leyfa vegna öryggismála, en þau á að hafa eins lítið áberandi og frekast er kostur.
    8. Lendingarstaðir flugvéla eiga ekki að vera merktir eða valtaðir innan þessara svæða. Af öryggisástæðum þurfa þeir þó að vera kunnir flugmönnum og leyfilegt að lenda, ef nauðsyn ber til.
    9. Gamlir reiðvegir fá að halda sér, en gæta skal varúðar ef þörf er talin á mörkun nýrra leiða.
    10. Sérstækar reglur í anda sjálfbærrar þróunar eiga að gilda um hvers konar nytjar, svo sem beit eða veiðiskap.
    11. Fiskirækt í ám og vötnum er óheimil innan ósnortinna víðerna.
    12. Landgræðsla og gróðursetning eiga ekki heima innan ósnortinna víðerna. Þó er heimilt að veita undanþágu vegna aðgerða sem miða að því að hefta jarðvegseyðingu.
    Mín niðurstaða er að þetta gangi berlega gegn hagsmunum klúbbsins ef engir slóðar megi vera innan þessara víðerna.
    Kveðja Dagur





    21.05.2007 at 12:35 #591408
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hér er [url=http://repositories.cdlib.org/cgi/viewcontent.cgi?article=5499&context=postprints:3kioqtvf][b:3kioqtvf]skýrsla[/b:3kioqtvf][/url:3kioqtvf] um CDMA og er hámarkslangdrægni um 50 km.
    Her er tilvitnun úr annari [url=http://www.srtelecom.com/en/products/whitepapers/Mobile-CDMA-Tech-for-Rural-WLL.pdf:3kioqtvf][b:3kioqtvf]skýrslu[/b:3kioqtvf][/url:3kioqtvf] :
    Advocates of CDMA-450 often claim a range of up to 50 km. However,
    CDMA is an interference limited system, not a propagation limited
    system. The 50km claimed range is true only under very light loading
    conditions. As soon as more users begin to connect to the base station,
    the range will decrease.
    Kanski að það verði sett upp sérstök gerð að CDMA 450 hér á Fróni?





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 401 through 420 (of 583 total)
← 1 … 20 21 22 … 30 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.