FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Dagur Bragason

Dagur Bragason

Profile picture of Dagur Bragason
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 381 through 400 (of 583 total)
← 1 … 19 20 21 … 30 →
  • Author
    Replies
  • 27.08.2007 at 09:16 #595468
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Vertu blessaður Kalli Kapteinn.
    Þín verður sárt saknað hér á Fróni, enda hefur annar eins bullukollur ekki sést á netinu.
    Vona að suðræn sólin brenni þig ekki upp.
    Kveðja Dagur





    27.08.2007 at 01:56 #594952
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    uppfort.
    Nr. Nafn Fj. -Bilar
    1 Arnþór Þórðarson 4 -2
    2 Einar Sól 2 -1
    3 Logi Már 1 -1
    4 Ábni Stikubani 1 -1
    5 Ella aupair 5 -1
    6 Karl I. Guðjónsson 3 -1
    7 Dagur 3 -1
    8 Magnús 3 -1
    9 Jón Ebbi 2 -1
    10 Stefán Baldvinsson 2-1
    11 Freysi 2-1 í bíl
    Samtals: 26 í skála 2 í bíl -12 bílar





    26.08.2007 at 11:28 #594944
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Vegna takmarkaðs skálapláss í Jökulheimum ætti skráningu að vera lokið í öruggt kojupláss, en eithvað er hægt að þjappa.
    En þeir sem geta gist í bílum og tjöldum geta skráð sig, takið fram ef svo er.

    En Samkvæmt bestu upplýsingum er þetta um skálaplássið:
    Skálarnir taka samtals 20 í kojur ef við pössum að pör verði í breiðu kojumum í gamla skála þar að auki eru dýnur á loftinu á gamla og til að setja á gólfið í stóra skálanum þannig að það er auðvelt að troða 10-15 í viðbót.

    Nr. Nafn Fj. -Bilar

    1 Arnþór Þórðarson 4 -2
    2 Einar Sól 2 -1
    3 Logi Már 2 -1
    4 Ábni Stikubani 1 -1
    5 Ella Auper 5 -1
    6 Karl I. Guðjónsson 3 -1
    7 Dagur 3 -1
    8 Magnús 3 -1
    9 Jón Ebbi 2 -1

    Samtals: 25 -10

    [img:2lsw9o97]http://www.jorfi.is/myndir/jokulh-s.gif[/img:2lsw9o97]





    25.08.2007 at 10:27 #595292
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Ég er fylgjandi sérmerkingum á erfiðum leiðum þar sem bílaleigubílar og vanbúnir eiga ekki að vera.
    Samkomulag þyrfti að nást við bílaleigur um merkingar á vegum og í bílum.
    Að leigja út breytta bíla, til almennra túrista, ætti ekki að vera leifilegt, án sérstakrar tryggingar og námskeiðs.





    25.08.2007 at 08:35 #595284
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Að setja kröfur um aukin búnað og kunnáttu til að komast á hálendið er ekki í okkar verkahring.
    En við gætum vottað ökumenn sem sýna hæfni í ferðamennsku, umgegni um hálendið, fjarskiptum, rötun, viðgerðum ofl.
    Ef við setjum okkur markmið sem bæta ferðamennsku um hálendið, þá er mögulegt að aðrir fylgi á eftir





    24.08.2007 at 19:15 #594936
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Verð með tvo ungliga á bláum bíl.
    kveðja Dagur





    20.08.2007 at 20:37 #594922
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    um stikuferðir og aðra starfsemi Umhverfisnefndar F4x4 er að finna [url=http://um44.klaki.net/:2t8cs377][b:2t8cs377]hér[/b:2t8cs377][/url:2t8cs377]





    12.08.2007 at 16:26 #594556
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hér er [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=gpsogleidir/9855:391wuk2s][b:391wuk2s]þráður[/b:391wuk2s][/url:391wuk2s] frá því í vor þar sem óskað er eftir ferlum frá félagsmönnum og sjálfboðaliðum í ferlun nú í sumar.
    Nokkrir aðilar hafa verið að ferla með LMI í sumar og hefur Jón Snæland yfirumsjón með verkefninu.

    [img:391wuk2s]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/3929/44163.jpg[/img:391wuk2s]
    Ferlun á Vatnahjallaleið upp úr Eyjafirði nú í sumar.
    kveðja Dagur





    09.08.2007 at 23:46 #594206
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    náttúruverdarlaga vegna utanvegaaksturs vélknúiinna ökutækja er skilyrtur vegna lanbúnaðar, rannsóknarstarfa, verklegra framkvænda, línulagna ogfl, en ekki vegna ferðamennsku.
    Þeir sem flugu þessari flugvél og óku á henni utnavega og gerðu spjöll, huldu einkennisstafi flugvélarinnar og geta því vart verið í lögmætum tilgangi þarna utanvega.
    Ef einhver hefur myndir af þessu þá má hann gjarnan koma þeim til klúbbsins.
    Ath einkennisstafir vélarinnar eiga einnig að sjást á mælaborði vélarinnar.
    kveðja Dagur umhverfisnefnd





    06.08.2007 at 14:16 #594424
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Burðarþol eða styrkur hluta er verulega háður lögun eða formi.
    Þegur rákir eru þrikktar í stálplötur þá myndast form sem hefur styrk í allar álagsstefnur, en slétt plata hefur mjög lítin styrk á Y ás.
    Annars getur þú stúderað [url=http://en.wikibooks.org/wiki/Solid_Mechanics:1rwk2fvy][b:1rwk2fvy]burðarþol[/b:1rwk2fvy][/url:1rwk2fvy] hérna.
    Verði þér að góðu :)





    03.08.2007 at 13:11 #594194
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hlutverk umhverfisnefndar F4x4 er skýrt í [url=http://www.f4x4.is/new/files/archive/Log_Ferdaklubbsins_mai_2006.pdf:gagsvbr5][b:gagsvbr5]lögum[/b:gagsvbr5][/url:gagsvbr5] félagsins og segir:
    "Umhverfisnefnd. Hlutverk hennar er að sjá um tengsl við hlutaðeigandi yfirvöld
    og samtök ásamt kynningu og fræðslu í umhverfismálum. Kjósa skal 5 menn í
    hana."
    Markmið nefndarinnar og annara er einnig skýrt í [url=http://www.f4x4.is/new/files/archive/Log_Ferdaklubbsins_mai_2006.pdf:gagsvbr5][b:gagsvbr5]lögum[/b:gagsvbr5][/url:gagsvbr5] félagsins:
    "2. grein.
    Markmið félagsins eru:
    . Að ná til sem flestra sem áhuga hafa á ferðalögum um landið á
    fjórhjóladrifsbifreiðum.
    . Að gefa gott fordæmi um umgengni og verndun landsins með jákvæðri
    eftirbreytni og umræðu um náttúruvernd.
    . Að gæta hagsmuna félagsmanna varðandi búnað fjórhjóladrifsbifreiða og annað er
    lýtur að fjórhjóladrifsbifreiðum og ferðalögum í samráði við viðkomandi yfirvöld.
    . Að efla þekkingu félagsmanna á öllu því er við kemur útbúnaði
    fjórhjóladrifsbifreiða og ferðalögum um byggðir og óbyggðir landsins.
    . Að efla tengsl og kynni félagsmanna."
    Þessi markmið eru ekki bundin engöngu við eina nefnd heldur ættu þessi markmið að vera allra sem gengið hafa í F4x4.
    Menn geta látið gott af sér leiða með því að bjóða sig fram í starf F4x4 og eða stutt við starf félagsins með öðrum hætti.
    Kveðja Dagur umhverfisnefnd F4x4





    03.08.2007 at 00:36 #594372
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Betra er að vera vitlaus 1 augnablik og spyrja, en að vera vitlaus það sem eftir er, þar að segja ef fengin eru óvitlaus svör.
    Vöðin eru ágæt nú í þurrviðrinu, en þarfnast aðgæslu og þá sérstaklega vaðið yfir Kaldaklofshvísl, sem er grýtt og bertra að fara rólega.
    Einnig er betra að nota brúna á Emstruá,en ekki fara við hliðina á henni, ens og ljósmyndari gerði fyrir nokkrum árum, en bíllinn hans var að mestu plokkaður úr farveginum.
    Einnig er hægt að bíða eftir vetrinum og eru þá vöðin stundum auðveld, en ekki gengur að vera á 33" Hilux til að komast að þeim.
    kveðja Dagur





    31.07.2007 at 12:03 #594164
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Þetta þyrlueftirlit er samvinnuverkefni sýslmannsembættana og ríkislögreglustjóra ásamt landhelgisgæslunar.
    Líklegast kemur kæra frá sýslumanninum á Hvolsvelli, ef hún kemur, en er á hreinu með þátt landvarðar, eða var lögreglan að hlera eins og áður?
    Þetta með undanþáguákvæðið í náttúruverndarlögum, þá reyndi Ólafur Helgi að nota það á þann hátt að vegir sem myndast við td. landbúnaðarstörf væri ferðamönnum óheimilt að ferðast um.
    Einnig gæti ferðamennska á línuvegum og öðrum vegum vegna einhverra framkvæmda, talist óheimil ef þetta viðhorfs Ólafs Helga nær fram að ganga.
    Í Gullskipsvegamálinu var ökumaður sakfeldur um utanvegaakstur á vegi sem er uppbyggður að hluta og stikaður og á kortum, því vegurinn átti að vera eingöngu til landbúnaðarstarfa og landeiganda heimilt að takmarka umferð.
    Á þetta viðhorf féllst hæstiréttur ekki á og sýknaði ökumanninn.
    Ef einhver veit hverjir eiga hér í hlut þá máttur gjarnan láta vitia.

    Kveðja Dagur s-8940095





    30.07.2007 at 23:25 #594160
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Bessy skrifar þetta um [url=http://www.visir.is/article/20070729/FRETTIR01/70729009:jwejxhk2][b:jwejxhk2]frétt[/b:jwejxhk2][/url:jwejxhk2] á Vísir.is

    "29. júlí 2007 kl. 13:58
    bessy64@visir.is
    Akstur utan vegar
    Við erum ekki jeppahyski heldur vorum við að keyra slóða sem hefur verið keyrður í fjölda ára við smalamennskur á okkar afrétti sem liggur inn að Torfahlaupi og er keyður í fjöruborði Álftarvatns þar sem enginn gróður er og er í mesta lagi 200 metrar. Þetta mál er byggt á samskiptarörðuleikum landvarðar í Álftarvatnskofa og er blásið upp eins og alltaf í fjölmiðlum. Þetta er vægast sagt til skammar bæði landi og þjóð að ekki sé hægt að keyra þekkta slóða sem ekki eru merktir inn á kort og ekki valda neinum spjöllum á náttúrunni. Landvörður Álftarvatnskofa þarf að kynna sér betur hvernig ekið er inn á þessum afrétt þar sem fólkið sem hér var á ferð hefur gert frá barnsblautu beini."

    Þarna vísar Bessy í að þessi leið hafi myndast við smölun á afrétti og sér þá sýslumaður tækifæri í að kæra þetta sem utanvegaakstur á vegi sem myndast vegna undanþáguákvæðis í náttúruverndarlögum, vegna landbúnaðarstarfa.
    Ólafur Helgi reyndi að koma þessum rökum að í Hagavatnsmálinu, en dómarinn vildi ekki hlusta á það, en þegar málsaðili er að reyna að verja sig með þessum rökum þá er hann að leggja vopnið í hendur sýslumanns.
    Hinsvegar hefur ferðaþjónustan notað þessa leið í fjölda ára og þessi rök um utanvegaakstur á vegi eru hlægileg og tók Hæstiréttur ekki mark á því í utanvegamálinu á Gullskipsveginum á Skeiðarársandi.
    En hinsvegar væri gott fyrir flesta ferðamenn, aðra en þá sem teknir eru við Álftarvatnið núna, að sýslumaður haldi málinu áfram og málið færi fyrir hæstarétt, því þarna hefur sýslumaður ákaflega veik rök, en full þörf er á að Hæstiréttur úrskurði með skýrum hætti hver réttur ferðamanna er á þessu landi voru.
    Kveðja Dagur





    30.07.2007 at 12:30 #593920
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Ómar Ragnarsson tjáir sig um þessi mál á [url=http://omarragnarsson.blog.is/blog/omarragnarsson/:96pq3cdn][b:96pq3cdn]bloggsíðu[/b:96pq3cdn][/url:96pq3cdn] sinni:

    26.7.2007 | 22:38

    UTANVEGAAKSTUR – ÓKLÁRAÐ MÁL.
    Dómstólar landsins eru að mínum dómi á réttu róli þegar þeir túlka vafa og óljós ákvæði laga um utanvegaakstur hinum ákærða í vil. Í forystugrein Morgunblaðsins í dag kemur fram að höfundur leiðarans fylgist ekki nógu vel með ástandi þeirra mála. Í fyrra kynnti Jónína Bjartmars þáverandi umhverfisráðherra fyrirætlanir um það hvernig staðið yrði að merkingu viðurkenndra vega og slóða og þá kom fram að mikið verk er enn óunnið í þeim efnum.

    Það er því ótímabært að hamast í þessu máli fyrr en því verki er lokið, en það felst í því að merkja inn á kort Landmælinga Íslands alla þá vegarslóða sem viðurkenndir eru þannig að eftir það verði hægt að dæma með vissu um það hvort lög hafa verið brotin eða ekki.

    Sem dæmi um það verk sem ólokið er má nefna, að þegar ég leit af handahófi á það á þáverandi korti Landmælinga hvort vegarslóði, sem liggur inn að Brúarjökli væri á kortinu, kom í ljós að hann var það ekki.

    Það hefði þýtt eftir strangri túlkun laganna að allir þeir fjölmörgu sem óku þá leið á þeim tíma hefðu verið að brjóta lögin.

    Afar ósanngjarnt hefði verið á þeim tíma að ákæra allt þetta fólk. Ástæðurnar voru tvær: Þar sem slóðinn byrjaði var og er stórt skilti vegagerðarinnar sem á stendur: "Brúarjökull 8 km."

    Þetta skilti er jafn vandað og traust og venjuleg skilti Vegagerðarinnar sem allir helstu þjóðvegir landsins eru merktir með.

    Í öðru lagi var það fáránlegt að ekki væri viðurkennd eina slóðin vestan Jökulsár á Dal sem liggur upp að Brúarjökli.

    Rétt eins og þessi slembiathugun mín leiddi í ljós að hér þyrfti að vinna betur að verki hefur komið í ljós að engin leið er að klára það á vandaðan hátt nema hafa samráð við kunnugustu menn í héraði sem og önnur samtök ferðamanna svo sem Ferðaklúbbinn 4×4.

    Þessi vinna stendur nú yfir og það er ekki fyrr en henni er örugglega lokið sem hægt verður að fara að dæma menn af sanngirni og viti.

    Sem dæmi um menn sem hafa allt að hálfrar aldar reynslu af slóðum og leiðum á hálendinu vil ég nefna Völund Jóhannesson á Egilsstöðum sem á sínum tíma vann með Vegagerðinni og öðrum sem fóru um hálendi Austurlands að finna bestu slóðirnar og merkja þær.

    Slíka menn þarf að leita uppi og fá til samstarfs um þetta mikilvæga verk.

    Mér er kunnugt um að á því svæði sem Völundur hefur verið manna kunnugastur um í nær hálfa öld er ekki enn búið að fara um og ákveða um merkingar slóða en það mun standa til síðar í sumar.

    Þangað til held ég að menn ættu að geyma stríðsaxirnar og lofa þeim sem verkið vinna að ljúka því vel og örugglega.

    Völundur hefur sagt mér að mjög miklu hafi alltaf skipt að merkja leiðirnar vel og hafa um þær góðar upplýsingar.

    Sé það ekki gert villast margir og slóðarnir liggja út um allt.





    29.07.2007 at 18:18 #594140
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Leiðin að Torfahlaupinu frá Álftarvatni að fjallabaki liggur í vatnborðinu eins og kort frá Landmælingum Íslands og Kortagerðastofnun Bandaríska varnarmálaráðuneytinu frá 1990.
    [img:q7errvzx]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/3929/44057.jpg[/img:q7errvzx]
    bessy64@visir.is bloggar á þessa [url=http://www.visir.is/article/20070729/FRETTIR01/70729009:q7errvzx][b:q7errvzx]frétt[/b:q7errvzx][/url:q7errvzx] að bílarnir hafi verið á þessari hefðbundnu leið sem ég og fleiri hafa ekið margtoft áður.

    Kveðja Dagur





    25.06.2007 at 18:35 #592194
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    fyrir góða ferð.
    Eins og sést á þessari mynd frá Gund, var þetta afslöppunar og sólarferð.
    [img:3j1bjt26]http://www.gundur.com/albums/Thorsmork/61.jpg[/img:3j1bjt26]
    ásamt því að nokkrar plöntur og fræ rötuðu í jörðina.
    Þökkum Guðjóni, Garðari og Guðmundi, allir frá Landgræðslunni, kærlega fyrir skemmtilega ferð.
    Kveðja Dagur





    21.06.2007 at 23:49 #592184
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Nú er skráningu lokið og nú er að skila sér inn í Mörkina og taka þátt í starfinu.
    Ef einhver er að fara í mörkina á laugardeginum með aukapláss í skottinu, þá er alveg tilvalið að bjóða sig fram í fóðurflutninga F4X4, því steikin verður afgreidd á föstudegi og geymd í kæliklefa hjá Alkul ehf Funahöfða 7 fram á laugardag og ætlar Gunnar Hróðmarsson að stjórna fóðurflutningum á laugardegi kl 0900 og eru vaskir fóðurflutnigamenn beðnir um gefa sig fram við Gunnar í síma 8626578

    kveðja Dagur





    16.06.2007 at 06:14 #592532
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Til þess að tíminn verði réttur þá þarf olíutíminn og ventlatíminn að vera í sama vinnuhring.
    Ekki er nóg að tímamerkin standist því mótorinn fer 2 snúninga ámeðan kambásinn fer 1 snúning.





    16.06.2007 at 05:47 #592110
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hvað er í gangi?
    Hingað til hafa einhverjar greiðslur verið algjört aukaatriði.
    Ég var hvattur til að ná samningum við Útivist um tjaldgjöld og er það gjald Útivist innheimtir á staðnum fyrir að skaffa okkur aðstöðu.
    Ekki er um aðrar gjaldtökur ræða, en okkar framlag til Landgræðslunar er okkar sjálfboða starf.
    Þetta miðakerfi kom mér algjörlega á óvart og var ekki búið að fjalla um það í umhverfisnefndini, en sumir vilja hafa einhvern aga á hlutunum.
    Vona að þetta skýri málið.
    Kveðja Dagur





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 381 through 400 (of 583 total)
← 1 … 19 20 21 … 30 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.