Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
30.09.2007 at 12:21 #598176
Breyting á breytingartillögu Á 1 Grein.
F4x4 þurfi að samþykja stöðvar sem eru notaðar á tíðnum F4x4 með merki klúbbsins sem er sett á stöðvarnar og tilgreindur leifishafi-kallmerki, gerð og númer stöðvar.Stef
Þetta kemur alls ekki á óvart!kveðja dagur
1. gr
Fjarskiptakerfi Ferðaklúbbsins 4×4 má hver sá nota sem er gildur félagsmaður í Ferðaklúbbnum 4×4. Veitir þetta afnotarétt og rétt til að forrita tíðnir klúbbsins inn í talstöðvar sem eru VIÐURKENNDAR AF FERÐAKLÚBBI 4X4 OG í eigu og notkun félagsmannsins, MERKTAR MEÐ LEIFISMERKI OG KALLMERKI F4X4.
30.09.2007 at 11:32 #598164Tillaga að fjarskiptareglum F4x4.
Breyttur texti er með stórum stöfum og einnig hefur nokkuð af textanum verið fellt út.Kveðja
dagur / R1698 / TF3DBBreyttar Fjarskiptareglur Ferðaklúbbsins 4×4
1. gr
Fjarskiptakerfi Ferðaklúbbsins 4×4 má hver sá nota sem er gildur félagsmaður í Ferðaklúbbnum 4×4. Veitir þetta afnotarétt og rétt til að forrita tíðnir klúbbsins inn í talstöðvar sem eru VIÐURKENNDAR AF PÓST OG FJARSKIPTASTOFNUN OG í eigu og notkun félagsmannsins.
2. gr
Þeir sem nota fjarskiptakerfi Ferðaklúbbsins 4×4 skulu auðkenna sig með AUÐKENNI F4X4 í upphafi samskipta og þegar þess er óskað.
3. gr
Félagsmönnum er skylt að ganga eftir AUÐKENNI óþekktra aðila sem nota fjarskiptakerfi Ferðaklúbbsins 4×4 til að tryggja að eingöngu gildir og GILDIR félagsmenn noti kerfið.
4. gr
Notkun fjarskiptakerfis Ferðaklúbbsins 4×4 í atvinnuskyni er óheimil, þó geta aðilar fengið tímabundið leyfi til slíkrar notkunar háð samþykki stjórnar svo framarlega sem slík notkun trufli ekki notkun félagsmanna.
5. gr
Viðbragðsaðilum, svo sem björgunarsveitum, er heimilt að vakta og nota fjarskiptakerfi Ferðaklúbbsins 4×4 í þeim tilgangi að auka öryggi félagsmanna. Notkunarreglur þessar takmarka ekki notkun á kerfinu í neyðartilfellum.
6. gr
Til fjarskiptakerfis Ferðaklúbbsins 4×4 teljast leyfi til notkunar á þeim tíðnum, rásum eða hópum sem klúbburinn hefur fengið úthlutað í sínu nafni og sá fjarskiptabúnaður sem er í eigu hans..
7. gr
Rekstur fjarskiptakerfis Ferðaklúbbsins 4×4 er í höndum fjarskiptanefndar klúbbsins, sem kosin er á aðalfundi.
8. gr
Stjórn Ferðaklúbbsins 4×4 er heimilt að gera afnotasamninga við þriðja aðila svo fremi sem slík notkun brjóti ekki í bága við önnur ákvæði í reglum þessum.
9. gr
NOTENDUR FJARSKIPTAKERFIS FERÐAKLÚBBS 4X4 SKULU GÆTA TRÚNAÐAR ANNARA NOTENDA KERFISINS
29.09.2007 at 11:20 #597830Þegar maður sér pósta eins og þennann að ofan frá Hauk Weihei, þá skilur maður þörfina að settar eru reglur um auglýsingarnar á Vefnum.
28.09.2007 at 20:38 #597818Mér hreinlega ofbýður þetta tal að úthýsa Yaris úr auglýsingum á vefnum.
Þetta er einn vinsælasti bíll meðal sparsamra Íslendinga og svo er einnig hægt að fá gripinn með drifi á flestum hjólum.
Það að heimta að bíllinn er með millikassa til að hann megi verða auglýstur á þessum virðulega og hægfara vef, eru alltof strangar kröfur, enda þyrfti að bæta að minnstakosti meter við bílinn svo að þessi merkilegi millikassi rúmist.
Hver myndi kaupa ofurlangan Yaris með millikassa, sem næði jafnvel aftur fyrir plastið, sem kallað er stuðplast?
Ég vil biðja virðulega félagsmenn að stilla auglýsingakröfum í hóf.
Kveðja Dagur
20.09.2007 at 00:11 #596720Nú er að styðja við Magnum í þessu mikilvæga starfi, að fylgjast með Litludeildinni, með öllum tiltækum ráðum og miðla öllum upplýsingum um gang mála til aðstandenda.
Ekki er hægt að leggja þetta á einn mann, sem trúlega verður fastur í að veita áfallahjálp.
Óskað er því eftir sjálfboðaliðum í fjarskiptadeild og er Tryggvi sérstaklega beðinn um að koma með morslykilin svo að allar hugsanlegar fjarskiptaaðferðir verði dekkaðar.
Í slóðaskönnun vantar fólk til að rýna í gervihnattakort og er Dúkkan og pabbi hennar beðin um að koma með upplýsingar um alla helstu drullupolla á hálendinu, lögun og umfang. Einnig er mikilvægt að fyrirfram skipulagðar flóttaleiðir úr þessum pollum verði planaðar.
Fjölda manns þarf einnig í viðbragðstöðu við allar varahluta og partasölur, til að redda varahlutum með hraði.
Sjálfboðaliða vantar í margar deildir í vðbót, svo sem aðstoð við hjálparsveit, ef einhver kallaði hana út.
Hafið bara samband við Magnum.
18.09.2007 at 23:09 #596664Litlanefndin er langflottust og fréttir af hennar ferðum eru það líflegasta sem byrtist á vefnum.
Þó að maður nefni einhverja aðstandendur þá er tilgangurinn auðvitað að hafa sem mestan og bestan fréttaflutning af ferðum nefndarinnar.
Kveðja Dagur líklegur sófariddari.
17.09.2007 at 23:00 #596646Ekki held ég að áhyggjufullar mæður, tengdamæður og aðrir aðstandendur, róist við lestur fréttapisla á Borð við þennann. Allt komið í óefni löngu áður en ferðin er farin.
Ofsi, er ekki rétta að setja inn róandi hugvekju, eða bara góðar fréttir, svona rétt til að koma á ró.
16.09.2007 at 21:47 #596622Nú er farið að snjóa og hætt við krapa og sköflum.
Er deildin búin að koma sér upp tilkinningaskildukerfi sem sér um að tilkinna nánustu um ferðalanga, samanber vandræði sem fjallað er um á þessum [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=fjarskiptamal/9071:4j0nkzju][b:4j0nkzju]þráði[/b:4j0nkzju][/url:4j0nkzju] .
Einnig er hægt að hafa fréttir um gang mála hér á netinu og sýna maka, mæðrum og öðrum nánum fjölskildumeðlimum hvernig á að fara á netið og fylgjast með.
Að hafa fréttaþjónustu um vefinn er gott mál, aðeins að setja góðann aðila í málið og hafa samband við hann þegar einhver kemst í fjarskiptasamband.Kveðja Dagur, sem hefur fengið björgunarseveit á hælana vegna fjarskiptaleysis.
16.09.2007 at 20:58 #200803Í morgunblaðinu 28/7 1965 þá byrtist þessi grein:
Þarna er bréfritari að kvarta undan því að Sprengisandsvegur skuli ekki ruddur í sýnu rétta vegastæði, heldur hafa mælingarmenn „að Norðan“ villst af leið sumarið 1964 og sett stikur niður á röngum stöðum og síðan hefur þessi villa mælingarmanna ráðið staðsetningu Sprengisandsvegar fram á vora daga.
Með von um síðbúna leiðréttingu.
Dagur, sem hefur farið Sprengisandin villu vega.
11.09.2007 at 23:53 #596392Það að einn er búin að spilla umhverfinu réttlætir ekki að annar geri það sama.
Umhverfisvernd er yfirlýst markmið F4x4 og vona ég sannarlega að félagsmenn taki það alvarlega.
Efnistökur víða um landið eru til lýta og t.d. er náman í Ingólsfjalli til skammar fyrir alla sem eru hlutaðeigandi.
Göngum um landið með virðingu og sýnum fyrirmyndar háttsemi.
10.09.2007 at 07:26 #596360um þetta er [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=umhverfismal/10364:15e44fnp][b:15e44fnp]hér[/b:15e44fnp][/url:15e44fnp] .
09.09.2007 at 22:48 #596330Pakkningarlím eins og Indijánahaus er bertra að nota varlega. Fletir sem eru límdir saman með þessu, festast saman og nást ekki í sundur aftur nema með látum.
Vélahlutir eins og driflokur sem þarf reglulega að opma skulu ekki límdir saman með Indijánahaus.
Til eru önnur efni sem þétta án þess að fletir límist saman.
Hylomar er eitt þessara efna og henta á samsetningum á gírkössum og drifbúnaði þar sem óverulegur þrýstingur er.
Auðvelt að opna aftur og jafnvel loka aftur þétt, án þess að setja þéttiefnið á aftur, en með Indijánahaus þarf að skafa fletina og setja efnið á ný, ef fletirnir hafa sloppið við skemmdir í sundurtekningunni.
Fletir sem hafa einhverja hreifingu skal ekki líma samam með hörðu lími því límið getur molnað undir álagi og þá verra en ekkert.
05.09.2007 at 23:18 #596038Er búinn að setja nokkrar [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/5621:3qsg857a][b:3qsg857a]myndir[/b:3qsg857a][/url:3qsg857a] á vefinn.
Þakka frábærann félagsskap og dugnað í ferðinni.[img:3qsg857a]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/5621/44659.jpg[/img:3qsg857a]
Kveðja Dagur
04.09.2007 at 19:10 #595952Takk fyrir frábæra skemmtun Arctictrucks menn.
04.09.2007 at 18:38 #595988Út frá myndinni að ofan má ætla að þessir trukkar, líklega þungir með brynvörn, eru á stórum en harðpumpuðum dekkjum og má búast við ljótum förum í votum jarðveginum ef ekki er hleyp úr.
Fyrsta kenslustund mætti vera î úrhleypingum svo hjlótist ekki skaði af Æfingunum.
Úr því að mynnst er á sýslumannin "á Selfossi?" þá er viðkomandi sýsli afar tregur að kæra "yfirvaldið", samanber lögreglumannin á mótorhjóli norðan í Henlinum.
Hann bíður frekar eftir einhverju "auveldara" skotmarki.
04.09.2007 at 13:01 #595980Ekki er mikið skjól á þessum bílum
[img:jksez9zz]http://www.mbl.is/frimg/4/36/436668A.jpg[/img:jksez9zz]
[url=http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1289427:jksez9zz][b:jksez9zz]Fréttin[/b:jksez9zz][/url:jksez9zz] er hér.
30.08.2007 at 22:04 #594984Uppfærð skráning
30. August 2007 – 22:53 | dagur, 210 póstar
Nr. Nafn Fj. -Bilar
1 Arnþór Þórðarson 4 -2
2 Einar Sól 0-0 hættir við.
3 Logi Már 1 -1
4 Ábni Stikubani 2 -1
5 Stgh1 án Ellu aupair 2 -1
6 Karl I. Guðjónsson 0 -0 hættir við
7 Dagur 3 -1
8 Magnús 3 -1
9 Jón Ebbi 2 -1
10 Stefán Baldvinsson 1-1
11 Freysi 2-1 í bíl
12 Páll áttundi 2-1
13 Jóhann Björgvinsson 1-0
14 Binni R2016 1-1
15 Halli 1718 3-1
Samtals: 25 í skála 2 í bíl -13 bílar
30.08.2007 at 15:57 #594978Uppfærð skráning
30. August 2007 – 22:18 | dagur, 210 póstarNr. Nafn Fj. -Bilar
1 Arnþór Þórðarson 4 -2
2 Einar Sól 0-0 hættir við.
3 Logi Már 1 -1
4 Ábni Stikubani 2 -1
5 Ella aupair 5 -1
6 Karl I. Guðjónsson 3 -1
7 Dagur 3 -1
8 Magnús 3 -1
9 Jón Ebbi 2 -1
10 Stefán Baldvinsson 2-1
11 Freysi 2-1 í bíl
12 Páll áttundi 2-1
13 Jóhann Björgvinsson 1-0
14 Binni R2060 1-1
Samtals: 29 í skála 2 í bíl -13 bílar
29.08.2007 at 21:48 #594976Ásahreppur hefur [url=http://www.asahreppur.is/PrentaFrett.asp?aID=827:1w9lsp5d][b:1w9lsp5d]samþykkt[/b:1w9lsp5d][/url:1w9lsp5d] stikun frá Jökulheimum í Sylgjufell.
Hér eru leiðbeiningar um hvernig [url=http://www.ferdamalastofa.is/upload/files/Merkingar_gonguleida(1).pdf:1w9lsp5d][b:1w9lsp5d]stikun[/b:1w9lsp5d][/url:1w9lsp5d] á gönguleiðum á að framkvæma.
Hér eru reglur um [url=http://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/leidbeiningar-og-stadlar/sumarthjonusta/7b241d8f0ac3ff2f00257116005fdb51?OpenDocument:1w9lsp5d][b:1w9lsp5d]kantstikur[/b:1w9lsp5d][/url:1w9lsp5d] frá Vegagerðinni.
Hér er [url=http://vgwww.vegagerdin.is/SthbThjon.nsf/4ce7e15e865691590025711d005526dd/7b241d8f0ac3ff2f00257116005fdb51/$FILE/%c3%81lags%c3%beol%20stika%20og%20evr%c3%b3pusta%c3%b0all.pdf:1w9lsp5d][b:1w9lsp5d]staðall[/b:1w9lsp5d][/url:1w9lsp5d] um álagsþol stika.
28.08.2007 at 22:18 #594964Nr. Nafn Fj. -Bilar
1 Arnþór Þórðarson 4 -2
2 Einar Sól 2 -1
3 Logi Már 1 -1
4 Ábni Stikubani 2 -1
5 Ella aupair 5 -1
6 Karl I. Guðjónsson 3 -1
7 Dagur 3 -1
8 Magnús 3 -1
9 Jón Ebbi 2 -1
10 Stefán Baldvinsson 2-1
11 Freysi 2-1 í bíl
12 Páll áttundi 2-1
13 Jóhann Björgvinsson 1-0
Samtals: 30 í skála 2 í bíl -13 bílar
-
AuthorReplies