Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
27.11.2007 at 22:38 #603234
Hjörsey 1955 er staðsetningagrunnur sem eldri landmælingakort voru miðuð við, en nú á tímum er mögulegt að nota hnattræna miðviðum og eru flest ný kort miðuð við WGS 84.
Ef tækið er stillt á Hjörsey 1955 og kortið miðað við WGS 84 þá kemur skekkja sem getur numið 200 metrum.
Af sömu ástæðu er æskilegt að að menn eru sammála kvort egi að nota metra eða fet í samskiptum flugmanna og flugumferðarstjóra.
kveðja Dagur
27.11.2007 at 22:16 #604734Afhverju 1/4 eða 5/8 loftnet?
1/4 loftnet eru tilvalin ef loftnetið stendur á góðu jarð plani eins og á miðjum topp og er þetta hin fullkomna uppsetning, en 5/8 loftnet er í raun 1/2bylgju loftnet með 1/4 leiðréttingu til að geta tengst venjulegri vhf talstöð með 50 ohm útgangi.
Þetta loftnet sendir og móttekur á efri 1/2 bylgju hlutanum en neðri 1/4 hlutinn er í andstöðu við efrihlutann og vinnur í raun á móti.
1/4 hlutinn er yfirleitt í hringvafi og því með minni útgeislun í hlutfalli við efrihlutann.
Vegna þessa er í lagi að neðsti hluti loftnetsins er í skugga eins og á frambretti.
TF3DB Dagur
25.11.2007 at 20:50 #604460Náði í Tryggva á NMT, en TETRA er nánast ónothæft vegna kjaftgangs milli Barböru og Agnesar.
Þau fóru línuvegin norðan við Hlöðufell og Skjalbreið og áttu um 7km í Kaldadalsveginn.
Gengið hefur hægt og þurftu flestir spotta nema Benni sem hefur dráttdrottininguna stef nánast altaf í spottanum. Grunur leikur á að hún tími ekki að hleypa menguðu borgarloftinu út á fallegu fjöllunum.
Skafrenningur og blint er á heiðinni og eins og vaninn er í svona ferðurm eru allir að bíða eftir öllum þega eitthvað bras er.
Fréttaritari
(ATH. orð fréttaritara skal taka með varúð og hugsanlegt er að valin orð henti stílnum betur en sanleikanum)
25.11.2007 at 20:14 #604370Nú er hópurinn kominn á Hvolsvöll, búnir að sulla í ám, lent í skafrenningi og hálku, 2 affelganir ofl.
Allir sam heilir og hressir, jafnevel þreittir.
kveðja
Fréttaritari
25.11.2007 at 15:09 #604362hjá þér Snorri
búinn að lagfæra textannkveðja Dagur
25.11.2007 at 14:13 #604358Var að tala við Arnþór og eik á NMT og voru menn að ljúka viðgerð á affelguðu TOYJO dekki á Hilux Hinriks.
Áttu þeir skammt eftir að Mælifelli. Óvíst er hvort Öldufellsleið eða Fljótshlíðin verði valin.
Snjómugga er en skaplegt veður.
Ástæðan fyrir að ekki náðist samband á 3,633MHz var að ekki hafði verið sett upp loftnet fyrir þá tíðni.
Fréttaritari
25.11.2007 at 13:11 #604356Var að tala við Lauga eða 13 ferðalangin hann Fararsníkir og sagði hann að NMT samband væri afleitt á fjallabaki og GSM samband hefði komið fyrr en NMT á leið niður í byggð.
Ameríski darumurinn hennar Lellu nr1. (GMC) hefði verið óttalega ræfilslegur til hjólanna útskeifur í meiralagi og gæti verið til vandræða á bakaleiðinni.
Breska heimsveldið var komið í sjálfheldu í gær og einhver vinna að ná því.
Færi var þungt á Mælifellssandinum að klöppunum við Hvanngilskrók en skaplegt þaðan, en búast má við að bæti í snjóalög í dag.
Fréttaritari
(ATH. orð fréttaritara skal taka með varúð og hugsanlegt er að valin orð henti stílnum betur en sanleikanum)
25.11.2007 at 11:57 #604354Að sögn fréttaritara hefur farið fram umtalsverð leit að Strútsferðahópnum.
Búið er að leita á 455MHz og 900MHz og finnast símar fararstjórana ekki. Leitað hefur verið á 3,633MHz og 1,849 MHz að HF stöð eik, en ekkert fundist.
Ekki hefur náðst heldur á 160MHZ enda er fréttaritari ekki í sambandi við endurvarpa, en Tryggvi er að kalla á rást 42 endurvarpa.
Tetrasamband á 380MHz er heldur ekkert því ferðalangarnir fengu tetrastöð Barböru ekki lánaða því hún er á fullu að klára batteríin hjá Tryggva og Agnesi í nýliðahópnum.
Fréttaritari
(ATH. orð fréttaritara skal taka með varúð og hugsanlegt er að valin orð henti stílnum betur en sanleikanum)
25.11.2007 at 11:47 #604450Að sögn fréttaritara eldaði Agnes meirháttar vegalambasteik í gærkveldi, en stef búðarsendill þurfti víst að skreppa í næstu búð eftir einhverju í sósuna.
Hópurinn er lagður af stað að Háafossi og er Forrunner hafður sem undanfari undir gjörgæslu Tryggva svo ekki verði farið að Lágafossi í staðin.
Einhver snjómugga er svo útsýnið er eitthvað minna en í gær.
Spurning er um framhaldið hvert ekinn verði línuvegurinn að Gullfossi, en ekki er víst að sá vegur henti öllum bílum.
Undanhald varð á þessari ferðatilhögun og viðrðist Forrunner stefna á malbikið að Geysi í Haukadal ásamt 6 öðrum bílum, en aðrir voru þegar búnir að velja traust malbikið frekar en óljósa stlóða.
Fréttaritari.
(ATH. orð fréttaritara skal taka með varúð og hugsanlegt er að valin orð henti stílnum betur en sanleikanum)
24.11.2007 at 18:41 #604346Í mínum huga er ekkert mjög áríðandi að fréttaritari sé sérlega nákvæmur og ekki ætlar fréttaritari að játa upp á sig annað eins óhæfu ferk eins og fara nafnavillt á jöklum og ám.
Þótt að akkúratmaðurinn hann Skúli játi sig sekann um þvílíkt annað eins, þá telur fréttaritari slík algjörlega óþarft.Að sögn fréttaritara Dagur
24.11.2007 at 17:17 #604336Þeir fóru víst upp á Sléttujökul við Innri Emstruá og voru, þegar ég talaði við eik, við 989m merkið á 25,000 kortinu eða í
63 45,150N 19 04,350W
Vona að þetta nægi akkúratmanninum honum Skúlakveðja Dagur
24.11.2007 at 17:08 #604442Einar Sól fór víst einn hring í láréttu plani, ekki lóðréttu, eða snérist á veginum og lenti með afturendan á undan, útaf veginum og skemdist afturhleri og felga.
Rocky á 29" var að affelga og er búinn að vera í vandræðum með kerti, en STEF á 3L disel var með ný kerti í varahlutakassanum.
Logn er og heiðskýrt, eða frábært ferðaveður.Kveðja Dagur
24.11.2007 at 14:52 #201247Hópurinn er kominn að Búrfelli, 14 bílar og er notuð leikaðferðinn, „maður á mann“ í fararstjórn.
Einar Sól rann til í hálku og fór eitthvað útaf vegi, en betra er að vera í fjórhjóladrifinu í hálkunni.kveðja Dagur
24.11.2007 at 14:43 #201246Í fréttum er þetta helst að 13 bíllinn laumaði sér í ferðina og er það „Litli“ Laugi kominn á stóra Patrollu.
Fóru þeir um fljótshlíð upp í Emstrur og uppá Mýrdalsjökul við Litlu Emstruá, komnir í 1000m hæð í sólskini.
Kóf er ofar á jöklinum og þungt færi og var Magnum að festa sig rétt í þessu.
Að sögn eik búast ferðalangar við að halda í átt að Skófluklifi úr þessu.
Óhöpp eru engin að undanskildu olíusulli aftan í Landrover, en Landrovereigendur eru ekki vanir að kippa sér upp við slíkt.
Meira síðar
Kveðja Dagur
19.11.2007 at 12:35 #603880Hvernig var það í þinni sveit Jón Ofsi, var hneggjað á Dönsku, kanski baulað á Sænsku og jarmað á Finnsku?
Ekki var það svo í minni sveit.kveðja Dagur
19.11.2007 at 00:07 #603876Irpa og Erpur eru af sama stofni.
Náskylt Jarpur og er þá átt við ljósan lit.
Þekkt dæmi um Erp er Íslenskur taktkjaftur og einnig Amerískur vestratöffari W. Earp.
Helst eru það hryssur sem bera nafnið Irpa, en einnig er þekkt að konur beri þetta nafn.
Líklegt er að Irpa nokkur hafi verið í þessu Irpuveri einhvern tíma, en ég fann ekki heimildir þar um.[img:1znts9q4]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/3929/45957.jpg[/img:1znts9q4]
Hér er Irpa frá Árnanesi í ættartölu Gnýs af sama bæ, en hún gæti hafa haldið til í Irpuveri.
Kveðja Dagur
12.11.2007 at 07:31 #201152Björgunarsveit aðstoðaði hóp fólks í Kerlingarfjöllum
Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út til aðstoðar hópi fólks sem var fast uppi í Kerlingarfjöllum í nótt. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var um hóp ungs fólks að ræða. Einn úr hópnum náði að hafa samband við föður sinn um kl. 22 í gær og lét vita að bílar þeirra höfðu fest sig og að hópurinn væri búinn að koma sér fyrir í skála. Við það slitnaði sambandið. Í framhaldinu var ákveðið í samráði við foreldra ungmennanna að senda björgunarsveitarmenn til þess að sækja hópinn.
05.11.2007 at 15:19 #601804Oftast er auðvelt að vera vitur eftirá, en í þessu tilviki er það ekki auðvelt.
Að koma venjlegum tjakki undir bíl í gegnum ís í á er ekki auðvelt og ekki veit ég hvernig hvernig átti að standa öðruvísi að þessu.
Öruggast hefði verið að sitja inni og aðhafast ekkert, en viðkomandi er ekki þekktur fyrir slíkt.
Sleggjudómar og alhæfingar út í bláinn eru löstur þeirra sem bera slíkt fram.kveðja Dagur
05.11.2007 at 13:21 #601800Þessi maður sem slasaðist er einn af vönustu ferðamönnum sem ég þekki og einn sá varkárasti.
En óhöppin verð yfirleitt óvænt og í þessu tilviki rennur drullutjakkur til og hann verður fyrir höggi sem mölvar á honum handlegginn.
Þarna slasast maður sem er oftast fyrstur til að koma öðrum til hjálpar þegar eitthvað bjátar á.
Vona sannarlega að hann grói sára sinna.Kveðja Dagur
24.10.2007 at 22:15 #600708það er greinilegt að klúbburinn hefur á að skipa einvala liði meðal félagsmanna.
Logi stóð sig einnig frábærlega eins og margir aðrir í stikuferðinni í haust og lét ekki rok eða rigningu aftra sér.
-
AuthorReplies