FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Dagur Bragason

Dagur Bragason

Profile picture of Dagur Bragason
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 301 through 320 (of 583 total)
← 1 … 15 16 17 … 30 →
  • Author
    Replies
  • 19.12.2007 at 12:49 #607016
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Langdrægni, hefur ekkert að gera með hvaða kynslóð kerfið er.
    Á 400-450MHz er langrogasta kerfið NMT sem er analog kerfi án innbyggðrar tímatakmörkunar fyrir merkið á leið milli endurvarpa og tækis.
    NMT samband hefur náðst um 180km milli síma og endurvarpa og er það hámark sem sjónlína næst vegna hnattlögunar jarðar.
    TDMA kerfi eins og GSM og TETRA hafa fasta tímtakmörkun hvað merkið getur verið lengi að ferðast á milli endurvarpa og viðtækis (á ljóshraða) og er TETRA með 56km takmörkun, án tillits hvort merkið dregur.
    Vennjulegur GSM er með 32km takmörkun.
    Þessi kerfi hafa einnig fastan fjölda tækja sem eru tengd samtímis á hverju bandi.
    CDMA hefur hinsvegar ekki fasta takmörkun, og er hún breytileg eftir fjölda notenda, gagnahraða, og hve markir eru tengdir.
    Einnig stilla sendar sendiaflinu eftir ástæðum.
    Þetta eru allt breytur sem CDMA þjónustufyrirtækið getur aðlagað að þörfum notenda sinna.
    Kerfið getur verið langdrægt með litla afkastagetu, eða afkastamikið með litla langdrægni.
    Ekki er hægt að fá allt, en kerfið á að aðlaga sig eftir aðstæðum.
    kveðja Dagur





    18.12.2007 at 00:41 #605580
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Dísel ljósavélar þurfa að ganga á fullum snúningi til að framleiða 50 Hz og án rafmagnsframleiðslu er svokallað tómgangsálag, eða það álag sem er á vélinni að snúa sjálfri sér og rafalanum.
    Þetta tómgangsálag er um 15-30% af heildarafli vélarinnar og miðað við þessa fínu töflu frá Ísak getum við sett núllpunktinn á 25%.
    Þetta tómgangs álag ræðst af stærð vélarinnar, snúningshraða og hvað hún þarf að knýja, loaftblásari, olíuverk, fæðidæla, rafali, altenator ogsfv.
    Á vél sem gengur konstant snúningshraða, án túrbínu er tómangseiðslan nánast fasti, en á vél með túrbínu er hlutfallið eitthvað hastæðara.

    100% rafmagn 100% álag = 9,4 L/klst. 24klst = 225,6 lítrar

    66% rafmagn 75% = 7 L/klst. 24klst = 168 lítrar

    33% rafmagn 50% = 4,7 L/klst. 24klst= 112,8

    0% rafmagn 25% = 2,35 L/klst. 24klst= 56,4

    Ágiskun á að vélin keyri á 25-30% álagi á köldum degi í Setrinu þíðir í raun 0-5% rafmagnsfraleiðsla, sem er ekki raunhæft.

    Gott hjá þér Ísak Fannar, en raunveruleikinn er yfirleitt aðeins flóknari en einfalt dæmi.

    Kveðja Dagur





    17.12.2007 at 23:04 #606958
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Flott hjá þér Einar ef þú kemur upp svona server og ég er tilbúinn að leggja mitt lið við svona verkefni, ef þú vilt.
    Kveðja Dagur TF3DB





    17.12.2007 at 07:39 #606930
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Svar til Benna
    Er með VHF, HF, og NMT , en TETRA verður vonandi fljótlega.
    Ekkert af þessu er frítt fyrir mig, nema af HF eru ekki gjöld utan leifisbréfið.
    kveðja Dagur





    17.12.2007 at 00:43 #606918
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Það sem mér finnst undarlegast við þetta CDMA kerfi símanns er að hvergi finnast skjöl um meinta langdrægni kefisins (100 km), en nokkuð er um skjöl sem segja annað (50 km)
    Ef þú Benedikt veist um nýrri og betri upplýsingar um raumverulega langdrægni kerfisins, þá er rétti staðurinn hér og nú að opinbera það.
    Kveðja Dagur





    16.12.2007 at 23:34 #606910
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hér er [url=http://www.srtelecom.com/en/products/whitepapers/Mobile-CDMA-Tech-for-Rural-WLL.pdf:8hwx91mu][b:8hwx91mu]skýrsla[/b:8hwx91mu][/url:8hwx91mu] þar sem langdrægni kerfisins er skoðuð.
    Hér er önnur [url=http://repositories.cdlib.org/cgi/viewcontent.cgi?article=5499&context=postprints:8hwx91mu][b:8hwx91mu]skýrsla[/b:8hwx91mu][/url:8hwx91mu] frá öðrum aðila, en báðar eru samstíga að langdrægni kerfanna er hámark 50 km radíus og minkar svo eftir álagi.
    Síminn hefur allt aðra sögu en þetta er úr frétt símanns:
    Kostir þessa nýja kerfis eru talsvert fleiri en gamla NMT kerfisins og munar helst um aukinn hraða í gagnaflutningum. Nýja kerfið mun hafa sömu langdrægni og NMT eða vel yfir 100 km við góðar aðstæður. Gagnaflutningshraði verður hinsvegar 100 sinnum meiri en í NMT kerfinu eða allt að 2Mbs sem gerir fólki kleift að tengjast internetinu á mjög hraðvirkan hátt. Þetta mun hafa gífurleg breytingu í för með sér fyrir fjallafólk, sumarbústaðaeigendur sem eru fjarri GSM og internetsambandi og býli sem staðsett eru utan alfararleiðar. Einnig mun kerfið ná út á miðin í kringum landið með sömu útbreiðslu og NMT gerir í dag.

    Dæmi hver fyrir sig, en þetta er frekar undarlegt, en Benni Akureyringur virðist vera tilfinningalega tengdur þessu kerfi.
    Kveðja Dagur





    14.12.2007 at 21:09 #606686
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Persónur sem geta ekki rætt um hagsmuni klúbbsins án þessa að hafa egin hagsmuni eða nátengdra fyrirtækja, í forgangi, get ég ekki talið trúverðuga.
    Það er sama hver sannleikurinn er, alltaf litaður af hagsmunum, sem koma klúbbnum ekkert við.
    Stöndum vörð um raunverulega hagsmuni klúbbs og félagsmanna.
    Dagur





    14.12.2007 at 20:40 #603390
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Það er svolítið erfitt að hætta við nú, því liðin eru tæp 6 ár.
    þurfti að raðtengja geimana í bílnum og horninu var haldið á + pólnum og hafði ekki tök á því að gera þetta á annan hátt.
    Að vísu var ég búinn að lofta út gasið áður en soðið var.
    Ég gerði mér grein fyrir þessu þá og þitt innlegg er ámynning um hvað hefði getað gerst.
    Allt fór vel og keyrði ég um 500 km með samoðið hrútshornið, en feginn var ég að fá nýtt.
    Þegar ég hugsa til baka, þá finnst mér mesta hættan að vera með ótraustan stýrisbúnað, sem gæti brotnað hvenær sem er og valdið slysi.
    ferðakveðja Dagur





    13.12.2007 at 10:41 #603376
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Rétr hjá þér Iceman, þetta er ekki besta aðferðiin, en vetni, sem er hættulegt myndast við hleðslu í rafgeiminum, en ekki afhleðslu.
    Rétt hjá þér bazzi, vantaði hleðslukaplana, engöngu með 1m auka kapal.
    Var þó með 2.5mm rústfrían vír og notaði venjulega töng til að halda vírnum við kapalinn, tvenn jöklagleraugu og var Gummi bróðir sem hélt hrútshorninu á rafgeimapólnum.
    það var annaðhvort að reyna þetta eða kalla eftir hjálp.
    kveðja Dagur





    12.12.2007 at 22:01 #603372
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Skoðaðu myndina betur





    12.12.2007 at 16:04 #603362
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hrútshornið brotnaði hjá mér á Hilux (næstum 90 Hö) í Beinadal 2002 og brotnaði þá hálsinn við kúluna, en þetta var brætt saman á staðnum ,enda var ekki auðvelt að komast úr Beinadalnum einbíla.
    Hrútshorninu var skilað til Toyota samsoðið, en það var ekki búið að vera viku í bílnum.
    Fékk nýtt að kostnaðarlausu.
    Kveðja Dagur

    [img:kb1l1tal]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/3929/46774.jpg[/img:kb1l1tal]
    [img:kb1l1tal]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/3929/46775.jpg[/img:kb1l1tal]





    12.12.2007 at 15:38 #606376
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Þessi tuner [url=http://www.ldgelectronics.com/products.php?cID=1&pID=8&v=1:3n8nmpfo][b:3n8nmpfo]LDG Z-100[/b:3n8nmpfo][/url:3n8nmpfo] gæti einning verið góður kostur.





    12.12.2007 at 13:59 #606152
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Félagsmenn eru varaðir við því sést hefur til Jéppakrækis, en hann er gjarn á að krækja í álitlega jéppa.
    Náðst hefur skuggamynd af búnaði Jéppakrækis og er hann heldur óhugnalegur. [img:w757n4cg]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/3929/46772.jpg[/img:w757n4cg]





    12.12.2007 at 12:43 #606370
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Ef ég hevði aldrei spurt heimskulegra spurninga og fengið greinargóð svör þá væri ég trúlega fáfróður í dag, betra að vera vitlaus í augnablik og spyrja, en að vera viltlaus það sem eftir er, þar að segja ef svarið er óvitlaust.
    Gufunesstöðvar ættu að vera í fullu gildi í dag, en það sem ræður notagildinu er hvað margir eru að nota stöðvarnar á hverjum tíma, eða hvað margir eru með kveikt á þessu og hlusta og svara.
    Amatöra rásirnar hafa enga þjónustu frá öðrum en Amaörum og byggist virkni kerfana eingöngu á þáttöku áhugamanna og gagnvirkni í samskiptum.
    Ef allir sem eiga gufunesstöðvar, þurkuðu rykið af þeim og kæmu þeim í brúk, þá geta þær orðið jafn gagnlegar og áður.
    Samskipti eigenda gufunesstöðva og amatöra á Gufunestíðni er ekki heimil í dag, en athugandi væri að sækja um undanþágu til P&F því "commercial" þjónustu er hætt á Gufunestíðnum.
    Æskileg væri að til væri skrá yfir nothæfar Gufunesstöðvar og eigendur þeirra, til að geta áttað sig á möguleikunum.
    CE merkingar er krafist við innflutning á nýjum tækjum, en hefur ekkert að gera með tæki sem á sínum tíma voru löglega flutt inn til landsins.
    Gömlu Gufunes loftnetin eru sum notuð við Amatör tæki í dag, en þá er spólan stytt aðeins, til aðlögunar við Amatör tíðni, 3,633 MHz.
    Ég vona að þetta svari einhverju, en aðrir eru fróðari en ég um þetta mál.
    Kveðja Dagur R-1698 TF3DB

    Hér er [url=http://andsbjorg.origo.is/article.aspx?catID=190&ArtId=37:2tp5w272][b:2tp5w272]skýrsla[/b:2tp5w272][/url:2tp5w272] frá Landsbjörg um fjarskiptamál og er þar á meðal þetta:
    "Hér áður fyrr voru gömlu góðu "gufunes" talstöðvarnar það eina sem virkaði á milli fjarlægra staða. Stöðvar þessar vinna á HF bandi sem nær frá 3-30 Mhz sem er á tíðniskalanum svo til það lægsta. Þessar stöðvar gátu auðveldlega náð landshorna á milli við góðar aðstæður og með rétt stilltum búnaði. Segja má að galdurinn á bak við langdrægni þeirra sé vegna þess hversu lág tíðnin er og því "skríður" hún eftir landslaginu á meðan hærri tíðnir endurkastast frekar í umhverfi sínu og drífa því styttra. Nú kann einhver að spyrja hvers vegna þetta kerfi er ekki eingöngu notað í dag ? Við því eru án efa mörg svör en hluti ástæðunnar er væntanlega sú að stöðvar þessar eru ekki alveg eins meðfærilegar og VHF stöðvar. HF stöðvar nota meira afl en hefðbundnar VHF stöðar en einnig þurfa þær stærri loftnet og sjálfvirkan tíðnistilli á milli loftnets og stöðvar. Flestir ættu að hafa tekið eftir jeppum sem, sérstaklega hér áður fyrr, báru stór og löng loftnet með spólu neðst sem var á stærð við gosdós. Talgæðin í gegnum þessar stöðvar voru ekki alltaf sem allra best og mikið af truflunum á rásunum. Þessir þættir ásamt fleirum hafa án efa átt mikinn þátt í vinsældum VHF stöðva enda um mikið framfara skref í fjarskiptum björgunarsveita að ræða. En sem betur fer eru enn margar sveitir, sérstaklega þó á landsbyggðinni sem enn hafa þessar stöðvar í farartækjum sínum. Þessar stöðvar geta án efa komið að góðum notum við réttar aðstæður, því hvet ég menn til að viðhalda þekkingu og nota þær eins oft og aðstæður leyfa."





    12.12.2007 at 00:06 #606364
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Takk fyrir svörin Snorri.
    Kosturinn við loftnet með spólu (loading coil) er það að þau vinna ágætlega á þeirri tíðni sem spólan lagar loftnetið að en að sama skapi verður loftnetið ekki eins gott fyrir aðrar tíðnir (narrow band).
    SG-230 alhæfirinn er með PI rás, en sumir mæla frekar með alhæfi með L rás fyrir vippu sem er styttri en 1/4 bylgja.
    Það að sleppa spólunni gerir loftnetið bandbreiðara yfir það svið sem alhæfir ræður við, en nýtingin verður ekki eins góð á lægstu böndunum.
    Ég veit ekki alveg hvernin helical undin loftnet haga sér, en líklega bandbreiðara en stöng með spólu.
    Nú er P og F að gefa úr heimildir til þeirra Amatöra sem sækja um að nota 5MHz bandið og gæti það band hentað innanlands og einfaldara er að útbúa bíl með loftneti fyrir 5MHz en 3,6 eða 1,8 MHz.
    Kanski er réttast að amatörar F4x4 muni sækja um þessa heimild og prófa innanlands á næst ári.
    Kveðja Dagur TF3DB





    11.12.2007 at 21:26 #606354
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Mikill munur er á þessum stöðvum.
    YAESU FT-7800R er 144/430 (137-144,420-470)MHz Dual Band FM Transceiver og
    Yaesu FT-857D er HF/VHF/UHF (0.1-56, 76-108, 118-164 and 420-470 MHz)multimode amateur transceiver.
    Þetta þýðir að efri stöðin er FM VHF/UHF sendir/móttakari og sú neðri er HF/VHF/UHF með margar mótunaraðferðir og getur einnig sent og móttekið VHF á SSB, FM, AM og fleiri mótunaraðferðum.
    kveðja Dagur TF3DB





    11.12.2007 at 21:07 #606142
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Nú er bara að gefa út disk með Jéppajólalögunum og einhver veðurbitinn veðraþefur væri ekki lengi að setja saman álitlegan fjórhjólakór.





    11.12.2007 at 21:01 #606348
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Snorri hvernig gengur að tjúna lofnetið fyrir 160-80M, en í manúal með SG-230 er mælt með: Minimum antenna lengths: 8 feet(3.3 to 60 MHz)
    23 feet(1.0 to 60 MHz), en SG-303 er 9 feta vippa, eða er þetta miðað við beina stöng en ekki helical undið loftnet.
    Henrý TF3HRY er ekki að mæla með sérstaklega með þessum tjúner.
    kanski er munur á loftnetinu hjá þér og honum?
    Kveðja Dagur TF3DB





    11.12.2007 at 20:05 #605028
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Þau tæki sem ég þekki hjá Amatörum í F4x4 eru helst YEASU og ICOM stöðvar.
    ICOM 7000
    ICOM 706MK2G
    YEASU ft 857D
    Þessar stöðvar eru fyrir HF, VHF og UHF all modes 100/50 W
    Einnig eru eldri stöðvar eins og Kenwood TS-50 sem er HF stöð.

    Helstu framleiðendur á Amateur bílstöðvum eru ICOM, YEASU og KENWOOD

    Kveðja Dagur TF3DB





    01.12.2007 at 19:35 #605230
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Vírinn sem ég nota við rafgeimasuðu er rústfrír vír með lága kveikjuspennu 2.5 eða 1,5 mm.
    Rútíl vírar eru einnig með lága kveikjuspennu, en mun veikari suða fæst með þeim miðað við rústfrían vír.
    Lágmark er að nota 2 raðtengda rafgeima en með 3 geimum er yfirdrifin spenna og hægt er að stilla spennuna með því að lengja í köplum.
    Basískir vírar gefa sterka suðu, en erfitt að nota þá því þeir þurfa um 70V til að kveikja.

    kveðja Dagur





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 301 through 320 (of 583 total)
← 1 … 15 16 17 … 30 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.