Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.05.2008 at 22:41 #202448
Nú hefur umhverfisráðherra svarað fyrirspurn Sivjar um Ferlun ferlun á miðhálendinu :
135. löggjafarþing 2007-2008.
Þskj. 1016 – 472. mál.Svar
umhverfisráðherra við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur um vegi og slóða á miðhálendi Íslands.
1. Er rétt að kortlagningu vega og slóða miðhálendisins sé lokið, eins og fram kemur í nýlegu svari ráðherra í þingskjali 653? Ef svo er ekki, hvenær er áætlað að þeirri vinnu ljúki?
Mælingum Landmælinga Íslands á vegum og slóðum miðhálendisins er ekki að fullu lokið en víða eru þær langt komnar, einkum á suður- og suðvesturhluta landsins. Búið er að mæla um 26.400 kílómetra á landsvísu en enn er ólokið mælingum á Austurlandi, Vestfjörðum og Snæfellsnesi. Gert er ráð fyrir því að mælingum í samvinnu Landmælinga Íslands og Ferðaklúbbsins 4×4 ljúki að stórum hluta sumarið 2009. Að mati ráðuneytisins og Umhverfisstofnunar liggja nægilegar upplýsingar fyrir í ákveðnum sveitarfélögum á Suðurlandi til þess að hefja næsta áfanga vinnunnar. Hann felst í því að ákvarða hvar þurfi að loka slóðum eða takmarka umferð um þá vegna náttúruverndarsjónarmiða. Þessari vinnu hefur þegar verið ýtt úr vör með stofnun starfshóps sem fengið hefur það verkefni að gera tillögur um hvaða vegir og slóðar á miðhálendi Íslands utan vegakerfis Vegagerðarinnar skulu lokaðir til frambúðar eða tímabundið og hvaða slóðar/vegir skulu vera opnir. Taka þarf mið af því hvaða slóðar skulu teljast til vega með hliðsjón af ákvæðum í náttúruverndarlögum um bann við akstri utan vega og í samráði við sveitarfélög landsins. Enn fremur er hópnum ætlað að koma með tillögur um hvernig best verði staðið að framkvæmd tillagnanna. Fyrsta verkefni starfshópsins verður að fara yfir vegi og slóða í uppsveitum og afréttum á Suðurlandi.2. Er áætlað að hafa samráð við ferða- og útivistarhópa og -samtök, svo sem Ferðafélag Íslands, Útivist, Ferðaklúbbinn 4×4, mótorhjólasamtök og samtök hestamanna, áður en lagðar verða fram tillögur um hvaða vegum og slóðum á hálendinu skuli halda opnum? Ef svo er, með hvaða hætti yrði slíkt samráð og hvenær hæfist það?
Ráðuneytið leggur áherslu á að starfshópurinn hafi gott samráð við sem flesta áhugamenn og hagsmunasamtök við þessa vinnu og almennt við það verkefni að sporna gegn utanvegaakstri og tryggja aðgengi almennings að útivist án þess að náttúran bíði skaða af. Með það að leiðarljósi verður rætt við ferða- og útivistarhópa og samtök þeirra sem aka um landið á bílum eða vélhjólum, umhverfisverndarsamtök, landverði, landeigendur og hestamenn, svo að nokkrir aðilar séu nefndir, áður en umferð um vegi verður takmörkuð eða vegum lokað.3. Hvenær er áætlað að taka ákvörðun um hvaða slóðum og vegum á miðhálendinu eigi almennt að halda opnum fyrir ferða- og útivistarhópa og -samtök?
Á þessu stigi vinnunnar er ekki unnt að gefa út ákveðna dagsetningu um hvenær verkinu við flokkun og merkingu slóða og ákvörðun um framtíðarnýtingu einstakra vega og slóða lýkur. Vinnuferlið er langt og tímafrekt og til þess þarf að vanda vel. Verkið verður unnið í áföngum þannig að ákvörðun um lokun er hægt að taka þegar fjallað hefur verið um ákveðið svæði.
Vinna starfshópsins við að flokka slóða og taka afstöðu til umferðar um þá er mikilvægur þáttur í baráttu við utanvegaakstri, en ekki sá eini. Þar er fræðsla e.t.v. sá mikilvægasti. Langflestir þeirra sem ferðast um óbyggðir Íslands vilja ekki valda skaða á náttúrunni og þurfa því að þekkja reglur, sérstaklega þá grundvallarreglu að akstur utan vega er bannaður. Einnig þarf að tryggja góða landvörslu og eftirlit, stikun slóða sem aka má um og að settar verði upp skýrar merkingar í landinu til að taka af allan vafa fyrir ferðafólk. Vinnan við kortlagningu slóðanna og ákvörðun um framtíðarnýtingu þeirra er hugsuð til þess að draga úr óvissu um hvar akstur er leyfilegur og hvar ekki, sem kemur bæði ferðamönnum og þeim sem stunda eftirlit til góða. Áhugi ferðamanna, jafnt innlendra sem erlendra, á ferðum um óbyggðir Íslands fer vaxandi, sem kallar á skýrar leiðbeiningar um leyfilega umferð á hverjum stað. Umhverfisráðuneytið vill vinna að því máli með sjónarmið náttúruverndar að leiðarljósi, í samvinnu við útivistar- og náttúruverndarsamtök og aðra hagsmunaaðila.
11.05.2008 at 01:02 #622424Góður!! Benni.
Já málefnaleg umræða hér á vefnum er algjörlega útilokuð.
Þessi fundargerð eins og hún er, er ekki til byrtingar og játa ég mig sekan um að hafa uppljóstrað örlítið um hvað var ekki í henni.
Líklegast er best að loka þessum vef utan nokkurra Jaris auglýsinga.
DylgjuDúkkan hefur nefnt orðið Dylgjur umþaðbil 67 sinnum nýlega og er nafnið við hæfi.
Þannig að í staðin fyrir innanfélagsmál er hægt að hafa Dylgjur og Slúður.
Auglýsingar gætu verið Jarisar og rest í sama dúr.
Þetta er að verða vonlausasti vefur landsins.
kveðja Dagur
10.05.2008 at 23:20 #622412Sveinbjörn hefur nú þegar fengið upplýsingar um fjölmargar rangfærslur í þessari umtöluðu fundargerð og ætla ég ekki að upplýsa á vefnum um innihald fundargerðarinnar frekar en orðið er.
Þetta eru engar dylgjur.
kveðja Dagur
10.05.2008 at 22:19 #622408Ég skal gefa Sveinbirni formanni skýrslu um rangfærslur á fundargerðinni, ef hann æskir þess.
Þeir sem voru á fundinum og hafa séð þessa fundargerð ættu að sjá þetta.
Ég mun ekki karpa um þetta hér á vefnum.
kveðja Dagur
10.05.2008 at 18:43 #622402Ekki var sagt frá Því í fundargerðinni þegar Eyþór skilaði Tetra stöðinni og sagði af sér varamanns embætti.
Ekki var heldur sagt frá því í fundargerðinni að Óskar hefði skilað Tertastöð sem hafði verið í umsjá Ofsa, heldur var sagt að Ofsinn sitji á eigum klúbbsins, Tetrastöðinni.
Svona má lengi telja, enda fundargerðin full af rangfærslum og ekki sagt frá, eða rétt farið með staðreyndir.
Fundargerðin hefur heldur ekki verið samþykkt og réttara er að leiðrétta hana, en að næsti aðalfundur hafni fundargerðinni og hendi henni í heilu lagi í ruslið.
Kveðja Dagur
08.05.2008 at 00:33 #622344Ég tek þetta ekki persónulega til mín, þó að þú Barbara villt persónugera þetta.
Ég get hinsvegar svarað þessu:
Lagatillagan um áróðursnefnd var gölluð.
Þar átti stjórn að skipa 1 og umhverfis og tækninefnd áttu að tilnefna 1 úr hvorri nefnd.
Ekki var getið hver átti að skipa þessa tilnefndu.
Þessir aðilar úr umhverfis og tækninefndum áttu að vera tengiliðir við stjórn.
En nú þegar eiga formenn nefnda að vera tengiliðir við stjórn.
Af hverju má ekki tilnefna aðra en úr þessum nefndum?
Átti þá að sniðganga formenn nefndanna?
Þegar á botnin er hvolt þá eru þessi lög algerlega óþörf því stjórn hefur heimild til að stofna nýjar nefndir um ákveðin mál, og geta rætt við umhverfis, tækni og aðra nefndarmenn hverjir gætu verið heppilegir í t.d. upplýsinganefnd.
Semsagt þetta var engan vegin hugsað til enda, en betur skal vanda til laga klúbbsins en þetta.
kveðja Dagur
07.05.2008 at 23:42 #622334Ég verð nú að leiðrétta Halldór.
Ábendingar sem komu fram á landsfundinum kölluðu á lagabreytingar og voru sumar ábendingarnar þess eðlis að ekki var mögulegt að framkvæma þær án breytinga á lögum.
Agnes segir að lagabreytingartillögurnar komi frá landsfundinum, en auðvitað kemur fundurinn ekki með fullunnar lagabreytingartillögur og er það yfirleitt stjórnað að útfæra þær.
Vonandi skýrist þetta betur þegar við fáum að sjá fundargerð landsfundar.
kveðja Dagur
07.05.2008 at 23:09 #622330Takk fyrir greið svör Magnús.
Hingað til hefur þetta verið óútskýrt, gott að fá hlutina á hreint.kveðja Dagur
07.05.2008 at 18:59 #622322í haust var í sjálfu sér ágætur og kom þar margt fram.
Ég fyrir mína parta hef ekki séð samantekt eftir þennan fund, eða fundargerð.
Tillögur að lagabreytingum voru vissulega ræddar, en fundurinn var ekki í þeirri stöðu að útfæra þær nákvæmlega og hefði þurft að leggjast rækilega yfir tillögur áður en þær eru bornar upp á aðalfundi.
Mér sýndist á tillögunum í fundarboði á aðalfund að þessi vinna hefði ekki verið unnin og voru að mínu mati gallar á þeim öllum.
Aðalfundur á ekki að vera til að semja lagagreinar upp á nýtt og var því frávísun á þeim öllum réttlætanleg útfrá því sjónarmiði, þó að efnislega hafi eitthvað af þessu gæti hafa verið til bóta.
Fleira var gert á þessum landsfundi, eins og að fundurinn samþykkti að talnalás verði komið á setrið og að skálanefnd ætti að hafa umsjón með því og skipta reglulega um tölur.
Þessi vilji landsfundar hefur verið algjörlega virtur að vettugi og hefur skálanefnd borið við einhverjum óútskýrðum tæknilegum örðuleikum, þó að þetta gefist vel annarstaðar.
Ég held þó að landsfundurinn hafi verið ágætur og þá sérstaklega að hrista saman fólk úr ólíkum deildum.
kveðja Dagur
06.05.2008 at 19:22 #622282Ég held að blessaður maðurin vera með skilninssljórri mönnum.
Hér talar hann um lýðræði, en virðist ekki gera sér grein fyrir því að ekkert er lýðræði án tjánigarfrelsis, sem hann tróð harkalega á, nýverið í andaslitrum síðustu stjórnar.
Lokun á spjalli er hugsuð sem neyðaraðgerð, en stefnan er á virka ritstýringu til heilla fyrir klúbbinn.
Tæknilegar útfærslur á slíku má ma. sjá hjá youtube, þar sem mögulegt er að merkja við óæskilega pósta og byrstast slíkir póstar ekki öðrum en skráðum notendum.
kveðja Dagur
04.05.2008 at 00:03 #621396Er hogt að vera málefnalegri eða skýrari.
Þetta er ekkert grín!
Þessi póstur stallsystra er sendur frá stjórnaraðgangi á netið, sem eingöngu Stjórn hefur aðgang að.
Eigum við að fórna klúbbnum vegna egó tveggja einstaklinga.
Ég held nú ekki.
Dagur umhverfisnefnd
03.05.2008 at 23:31 #621388Ekki get ég séð að þessi nýju framboð vera til heilla fyrir klúbbinn.
Að ritskoðunarstjórnin stefni á hallarbyltingu. Stjórnin sem hvað eftir annað hefur takmarkað ritfrelsi annara og neitað að gefa félagsmönnum svör vegna vanhugsaðra stjórnarhátta.
Ég lýsi yfir algjöru vantrausti á Barböru og Agnesi, enda er framkoma þeirra við félagsmenn með ólíkindum.
Þorgeir, Eyþór, Lella ogfl. eru fórnarlömb stallsystrana í mínum huga.
Dagur umhverfisnefnd
27.04.2008 at 14:39 #621612Í [url=http://dagskra.ruv.is/streaming/clip/?file=4353301:35w79xcr][b:35w79xcr]þessum þætti[/b:35w79xcr][/url:35w79xcr] ræðir Hjálmar við Ólaf Helga sýslumann.
Þeir eru sammála um að í árekstri lítils og stórs bíls fara farþega litlabílsins halloka. Helst eru það vörubílar en breyttir jéppar eru það sem alls ekki á að vera í almennri umferð.
Stórir pallbílar eru einnig nefndir til.
Talað er um fyrirmyndarlandið Svíaríki þar sem banaslys eru mun færri miðað við höfðatölu.
Ekki var sagt frá því að stórir pallbílar eru þar algengir og ekki sagt frá því að algengur hámarkshraði á þjóðvegum er mun hærri en hér.
Ekki var sagt frá því að hönnun vega í Svíaríki er einsleit þannig að fólk þarf ekki að læra á hvern veg fyrir sig.
Nefnd voru alvarleg slys vegna þreytu og talað um að þurfi að aðskilja akgreinar, en ekki nefnt að algengt er í Svíaríki að riffla miðju og kanta þjóðvega til að syfjaðir verði óþirmlega varir ef þeir aka úr akgrein, á vitlausan vegahelming, eða í kant.
Margt er nefnt, en lausnirnar altaf jafn fátæklegar.
24.04.2008 at 00:51 #621314Benni hefur nokkuð til sýns máls 0g einnig er Kalli Kafteinn orðheppinn.
Söguskýringar verða hinsvegar að bíða fram yfir aðalfund, vegna ritskoðunarstefnu stjórnar.
kveðja Dagur
19.04.2008 at 23:31 #620826Þar sem Tryggvi fyrrverandi stjórnarmaður F4x4, getur ekki tjáð sig á vef F4x4, vegna lokunar stjórnar og vefnefdar, hefur hann talað um nýlega atburði á egin [url=http://www.trigger.is/blog/archives/2008/04/19/22.47.15/:3qvxhf6u][b:3qvxhf6u]vef[/b:3qvxhf6u][/url:3qvxhf6u] .
Tryggvi krefst svara og rökustuðningi við þessari lokun.
Kveðja Dagur
19.04.2008 at 03:24 #620814Það að gagnrýna núverandi stjórn er af stjórnarmönnum, það sama og að vinna gegn hagsmunum klúbbsins.
Svo að ég vitna í orð Þorgeirs:
"Stefanía er að vinna gegn hagsmunum klúbbsins með því að ganga erinda Jóns Ofsa Snælands og Tryggvi er að því líka (og þar með er ég óvinur no. 1 hjá Jóni)"
Þetta viðhorf virðist vera eins hjá eftirhretunum af stjórn F4x4, sem kosin var fyrir ári.
Það að vinna að hagsmunamálum klúbbsins virðist ekki vera neitt atriði hjá þessari stjórn, enda virðast flestir sem vinna að slíkum málum, vera í "óvina" hóp stjórnar.
Það að vera ekki sammála stjórn virðist næg ástoða fyrir lokun á aðgangi á vefinn hjá stjórn og vefnefnd.
Ekki er stjórn að styðja við starf "óvina stjórnar" þó að flestir telji starfið mjög mikilvægt fyrir félagsmenn.
Ég get engan vegin séð að fólk með slíkan þankagang hafi eitthvað erindi í næstu stjórn F4x4.
kveðja Dagur
06.04.2008 at 23:25 #619602Áður en blessuð sleggjan var keypt af rottunum þá voru þónokkrir að reyna að leiðbeina skálanefnd varðandi ljósavél og kyndingarmöguleika.
Það eina sem skálanefnd svaraði var að fólk ætti ekki að skipta sér af málefnum nefndarinnar.
Nú er niðurstaðan komin, alltof stór vél sem eyðir helling og rafmagn notað til kyndingar,
Samanlagt gerir þetta lélegustu orkunýtingu sem hægt er að hugsa sér, allar aðra lausnir voru betri.
Þetta er orðinn hlutur og verður ekki breytt nema að hugsa allt dæmið upp á nýtt.
Ég ætlaði ekki að vera að nudda í þessu, en gat ekki orða bundist.
kveðja Dagur
05.04.2008 at 22:28 #619470Hjálmar Sveinsson opnar umræður um utanríkismál með umfjöllun um afslætti F4x4 á eldsneiti sem að hanns sögn bar höfuð og herðar yfir fund æðstu embættismanna NATO og þá einnig komu Pútíns Rússlandsforseta á fundinn.
Hér er hægt að [url=http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4353298:1af4nfdk][b:1af4nfdk]heyra[/b:1af4nfdk][/url:1af4nfdk] umræddan þátt.
Þar nefnir Hjálmar að venjulegt fólk borgi fullt verð fyrir eldsneiti til að olíufélögin geti veitt tröllajéppum afslátt af eldsneiti.
Þetta er "göfugur sosialismi" að þeir smáu fái að borga fyrir þá stóru, segir Hjálmar.
Þarna er fréttamaður að koma sínum einkaskoðunum á framfæri í þætti um utanríkismál.
Er þetta sami fréttamaðurinn sem fjallaði um skýrslu varðandi þátt jéppa í umferðaróhöppum, þar sem kom skýrt fram, að breyttir jéppar höfðu lægri slysatíðni en óbreyttir, en umfjöllun hans snéri því á hvolf?
Kveðja Dagur
05.04.2008 at 11:45 #619464FÍB hefur fengið ýmsa styrki sem merktir eru ákveðnum verkefnum eins og sá styrkur sem F4x4 hefur fengið vegna VHF kerfis.
Einnig fá félagar FÍB töluverða afslætti.
Hér eru nokkra tilvitnanir um styrki og afslætti til FÍB og félagsmanna:Það er FÍB sem er umsjónaraðili verkefnisins, sem er unnið með styrk frá Umferðarstofu fyrir hönd Samgönguráðuneytis ásamt því að nokkur fyrirtæki standa undir rekstrarkostnaði M.Benz bifreiðar sem notuð verður í verkefninu. Fyrirtækin eru: Bílaumboðið Askja, Lýsing, VÍS, Samskip og Goodyear. Vegagerðin verður FÍB innan handar með upplýsingagjöf og önnur þau atriði sem þörf er
[url=http://www.samgonguraduneyti.is/frettir/nr/806:27wwcz7g][b:27wwcz7g]Linkur[/b:27wwcz7g][/url:27wwcz7g]Fimmtudaginn 8. desember var hrint af stað verkefni undir merkjum EuroRAP, (European Road Assessment Programme) sem felst í því að meta vegi á Ísandi með tilliti til slysahættu og öryggis ökumanna. Af því tilefni afhentu styrktaraðilar verkefnisins FÍB sérútbúna bifreið að gerð Benz A-150 til afnota. Styrktaraðilar verkefnisins eru Lýsing, Askja, VÍS, Esso, Landflutningar-Samskip og Goodyear og munu þeir sjá til þess að afnot af bifreiðinni og allur rekstrarkostnaður af henni verði FÍB að kostnaðarlausu næstu 2 árin.
[url=http://www.vis.is/index.aspx?Groupid=128&tabid=143&NewsItemID=738&ModulesTabsId=181:27wwcz7g][b:27wwcz7g]Linkur[/b:27wwcz7g][/url:27wwcz7g]
[url=http://www.samgonguraduneyti.is/frettir/nr/1333:27wwcz7g][b:27wwcz7g]Linkur[/b:27wwcz7g][/url:27wwcz7g]Í dag, 2. júlí, skrifuðu fulltrúar Umferðarstofu og FÍB undir samning um áframhaldandi gæða- og öryggiskönnun íslenskra vega undir merkjum EuroRAP. Umferðarstofa styrkir verkefnið fyir hönd samgönguráðuneytisins en FÍB sér um framkvæmdina.
[url=http://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nr/1454:27wwcz7g][b:27wwcz7g]Linkur[/b:27wwcz7g][/url:27wwcz7g]
Sé maður aftur á móti félagi í FÍB er hægt að fá 10 krónur í afslátt af hverjum lítra af eldsneyti sem keyptur er hjá Skeljungi í sjálfsafgreiðslu, en 8 krónur ef maður kýs að láta þjónusta sig. Þetta eru þau bestu kjör sem eru í boði á markaðnum í dag þótt meðlimir FÍB borgi um 5000 krónur í félagagjald borga það sig fljótt upp með þessum afslætti auk þess sem þeir bjóða upp á ýmiskonar aðra afslætti tengda rekstri bíla.
[url=http://www.landpostur.is/news/eldsneytisverd_laegst_fyrir_fib_felaga./?cal_month=2:27wwcz7g][b:27wwcz7g]Linkur[/b:27wwcz7g][/url:27wwcz7g]
Afsláttarkjör FÍB [url=http://www.fib.is/prent.php?ID=34:27wwcz7g][b:27wwcz7g]Linkur[/b:27wwcz7g][/url:27wwcz7g]
félagsmenn FÍB
afslátt af flutningsgjöldum Landflutninga-
Samskipa.[url=http://www.samskip.is/media/frettir//FF_2_02.pdf:27wwcz7g][b:27wwcz7g]Linkur[/b:27wwcz7g][/url:27wwcz7g]
01.04.2008 at 23:17 #618894Ég veit ekki hvað á að segja, er þetta svo djúp hugsun að ég hreinlega næ þessu ekki?
Eða var maðurinn niður á tjörn með samlokuna sína og missti hana í endurnar?
Hugsanlega hefur hann verið að rifja upp bókmentir, kenndar við önd, sem hann hefur líklega lesið á dönsku í barnæsku, með brauð í annari og etthvað annað í hinni?
Eða fatta ég þetta ekki?
Kveðja Dagur
-
AuthorReplies