Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
09.09.2008 at 11:15 #628834
Framkvæmdin sem aullýst var hét "uppbygging á vegslóða".
Þessi framkvomd sem við sjáum á myndunum er nýr vegur og fylgir framkvæmdin ekki áliti umhverfisstofnunar:
– Umsögn UST: "Umhverfisstofnun telur að leggja eigi áherslu á að námuvegurinn verði ekki efnismeiri en nauðsyn krefur. Hann ætti helst ekki að vera breiðari en 5 metrar og ekki ætti að bera meira í veginn en burður og greiðfærni krefjast, þó mætti breikka veginn þar sem rétta þarf úr kröppustu beygjum. SVAR: Eins og kemur fram í kafla 10.2.3 í frummatsskýrslu er ráðgert er að nota s.k. búkollur til efnisflutninga. Heildarbreidd slíkra tækja er um 5 m. Til að tryggja umferðaröryggi við efnisflutningana þarf vegurinn að vera nokkru breiðari og er talið að til þess þurfi hann að vera allt að 7 m breiður. Auk þess þarf útskot með reglulegu millibili svo flutningatæki geti mæst. Þess verður þó gætt að bera ekki meira í veginn en burður og greiðfærni krefjast."
– Í kafla 16 er fjallað stuttlega um hvernig vegslóði mun hafa óafturkræf áhrif á landslag en ekki eytt miklum orðum í það frekar. Niðurlagið er að um endurbætur á vegi sé að ræða þar sem núverandi slóða verði fylgt að mestu."
Framkvomdaleifi sveitarfélaga verður að fylgja umsögn UST.
Semsagt það er ekki farið að leikreglum og því bregst fólk svona við.
kveðja Dagur umhverfisnefnd
08.09.2008 at 21:29 #628820Umhverfisnefnd var stofnuð í klúbbnum til að beina sjónum fólks á umhverfisvernd, að vera til fyrirmyndar í umgegni við náttúruna og að standa vörð um ferðafrelsið.
Ferðafrelsið er ekki sjálfgefið og eru margir sem vildu loka hálendinu fyrir jéppum eins og okkar.
Ef ekki hefði verið lögð áhersla á umhverfisvernd þá tel ég ólíklegt að við hefðum það ferðafrelsi sem við höfum í dag.
Því þeir sem ganga ílla um og taka ekki til eftir sig, eru ekki lengi að koma sér út úr húsi.
Ef félagsmenn vilja breyta þessari áherslu klúbbsins þá geta þeir mætt á fundi og talað fyrir því.
Sumum finns það hlægilegt hvernig umhverfisnefndin er að beina sjónum fólks að umhverfisskemdum eftir framkvæmdir opimberra aðila, en það eru oftast opinberir aðilar sem benda á hjólfarið í sandinum og hverjum er þá kennt um?
Það hefur verið tilhneiging hjá nokkrum aðilum að beina sjónum almennings á þessa "umhverfissóða" jéppamenn, til að beina athyglinni frá þeim sjálfum
Ég bið félagsmenn að hugsa aðeins lengra áður en skrifa hér á vefinn.
kveðja Dagur umhverfisnefnd
08.09.2008 at 21:02 #628610Trausti +1 í kamper
07.09.2008 at 18:54 #629066Hér er smá listi sem lýsir framtíðarsýn LV
Hægt er að ná í þetta skjal [url=http://www.landsnet.is/Uploads/document/Sk%C3%BDrslur/Vidaukar/Vidauki_C.pdf:12q8gigl][b:12q8gigl]hér[/b:12q8gigl][/url:12q8gigl]
3.2 Virkjanir
Vegna álvers á Norðurlandi:
2011:
Krafla I. 40 MW
Krafla II 2*40 MW
Bjarnarflag 2*40 MW
Þeistareykir 2*40 MW
2013:
Búðarháls 100 MW
Gjástykki 2*40 MW
Hrafnabjörg 90 MW
Skatastaðir 180 MW
Vegna stækkunar ALCAN:
2015:
Urriðafoss 115 MW
Hvammur 70 MW
Krafla II 80 MW
Skaftárveita
2017:
Skaftá 140 MW
Holt 40 MW
Bjallar 70 MW
Hágöngur 40 MWNúverandi umhverfisráðherra vill ekki fleiri [url=http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4398041/0:12q8gigl][b:12q8gigl]lón.[/b:12q8gigl][/url:12q8gigl]
Hér eru enn fleiri [url=http://www.lv.is/files/2003_11_19_skaftarhr_virkjanarannsoknir.pdf:12q8gigl][b:12q8gigl]virkjanamöguleikar[/b:12q8gigl][/url:12q8gigl] að fjallabaki, í Skaptá, Hólmsá, Hverfisfljóti ofl.
07.09.2008 at 17:35 #628452Komnar eru myndir úr ferðinni og er þær að finna í [url=http://f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/6251:1p5cv30q][b:1p5cv30q]myndasafni[/b:1p5cv30q][/url:1p5cv30q] mínu.
Komu 4 bílar úr Reykjavík og 2 úr suðurlandsdeild.
Hreinn frá Hekluskógum stýrði vinnunni og stjórnaði dráttarvél sem bæði hlóð á kerrur og vagn sem vélin dró.
Eftir notarlegan ketilkaffitíma skiptist liðið í að tína fræ og keyra heyrúllur.
Um 90 rúllur fóru á sandinn og tínd óteljadi fræ.
Þakka ég öllum fyrir skemtilega Baggaferð.kveðja Dagur umhverfisnefnd.
07.09.2008 at 15:15 #628800Farin hefur verið vettvangskönnun og eru myndir úr henni hér að neðan:
Mynd 1: [img:2klu0e5o]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/6250/52683.jpg[/img:2klu0e5o]
Mynd 2: [img:2klu0e5o]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/6250/52684.jpg[/img:2klu0e5o]
Mynd 4: [img:2klu0e5o]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/6250/52686.jpg[/img:2klu0e5o]
Mynd 5: [img:2klu0e5o]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/6250/52687.jpg[/img:2klu0e5o]
Mynd 6: [img:2klu0e5o]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/6250/52688.jpg[/img:2klu0e5o]
Mynd 7: [img:2klu0e5o]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/6250/52689.jpg[/img:2klu0e5o]
Mynd 8: [img:2klu0e5o]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/6250/52690.jpg[/img:2klu0e5o]Einnig var fjallað um þetta í [url=http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4398041/2:2klu0e5o][b:2klu0e5o]Fréttum sjónvarps[/b:2klu0e5o][/url:2klu0e5o]
Þetta er viðkvæmt svæði svo að stórframkvæmdum þarf að fara með gát.
kveðja Dagur umhverfisnefnd
05.09.2008 at 22:36 #628450Þá eru um 17 skráðir í ferðina sem hefst eins og ís segir kl 0830 frá Select á höfða Vesturlandsvegi.
Við fáum hið besta veður og verður þetta áreiðanlega mjög skemmtilegt.
Skrítið fannst mér þó að kraftakallarnir á ofurtrukkunum sjá ekki tækifæri á að spreyta sig við rúllurnar á sandinum.
Sjáumst í fyrramálið.
kveðja Dagur
05.09.2008 at 00:24 #628780Ég las í fljótheitum þetta umhverfismat.
Fyrst má nefna
[url=http://www.skipulag.is/focal/webguard.nsf/5ed2a07393fec5fa002569b300397c5a/761393cae8ff6c680025736a003bd288/$FILE/Grodur_fuglar_NI.pdf:36ayva15][b:36ayva15]Bakkafjöruvegur [/b:36ayva15][/url:36ayva15]
Gróðurfar og fuglalífGuðmundur Guðjónsson, Kristbjörn Egilsson og
Kristinn Haukur Skarphéðinsson
Unnið fyrir Vegagerðina
NÍ-07009 Reykjavík, desember 2007Vegagerðin biður um þessar athuganir:
"Gróður. Vegagerðin óskaði eftir að skoðaðar yrðu með tilliti til gróðurfars og fuglalífs fjórar hugsanlegar leiðir milli Bakkafjöruhafnar og Hringvegar 1.
Auk rannsókna á fyrrnefndum veglínum óskaði Vegagerðin einnig eftir úttekt á gróðri og fuglalífi við fyrirhugaða efnisnámu á Kattarhrygg á Seljalandsheiði."
Einnig er sérstaklega tekið fram að Vegagerðin óskaði ekki eftir þessu:
"Ekki var óskað eftir náttúrufarsúttekt vegna framkvæmda við fyrirhugaðan veg nr. 249 að námunni við Kattarhrygg á Seljalandsheiði."
Svo má nefna þessa skýrslu:
[url=http://www.skipulag.is/focal/webguard.nsf/5ed2a07393fec5fa002569b300397c5a/761393cae8ff6c680025736a003bd288/$FILE/Fornleifar%20Hamragar%C3%B0ar.pdf:36ayva15][b:36ayva15]Fornleifaskráning[/b:36ayva15][/url:36ayva15]
Vegna mats á umhverfisáhrifum vegna vegabóta á slóða upp að námu á HamragarðaheiðiGuðlaug Vilborgardóttir og Margrét Hrönn Hallmundardóttir
Novemver 2007Í þessari skýrslu eru teknar saman þær fornleifar sem liggja við gömlu slóðina, en ekki við þennan nýja veg sem liggu stundum 100M frá gömlu slóðinni.
Þetta umhverfismat tekur ekki á þessum nýja vegi, en þessi nýji vegur er meiriháttar framkvæmd í tiltölulega ósnortnu umhverfi og þarf því sérstakt umhverfismat.
Ekki fann ég fleiri matskýrslur sem fjölluðu um vegin upp á Seljalandsheiði, Hamragarðaheiði, eða grjótnámið þar.
Þetta eru því ólöglegar framkvæmdir. framkvæmdar á fölskum forsemdum "vegna vegabóta á slóða" og ber því að stöðva þessar framkvæmdir.
kveðja Dagur umhverfisnefnd.
04.09.2008 at 21:22 #628776Seljarladsfoss og umhverfi hanns er einn fegurstistaður á landinu og skiptir engu á hvaða tíma maður kemur að fossinum, alltaf er fólk aðskoða fossinn og umhverfi hanns.
Bakkahöfn verður byggð á sandi og þar mjög mikið stórgrýti til að byggja höfnina og mun það stórgrýti sökkva í sandinn, enda 2-300 metrar niður á fast berg.
Ég veit ekki hvað mörg hundruð þúsundtonn þarf í höfnina, en verktakinn ætlar að nota risatrukka (Búkollur) sem eru 3-4 metrar á breidd og þarf því vegur fyrir slík tæki að vera minnst 10m breiður til að hægt verði að mætast á slíkum trukkum.
Þetta er klárlega meirháttar framkvæmd sem þarf að fara í umhverfismat.
Að stórskaða umhverfi Seljarlandsfoss er alls ekki ásættanlegt.
Bregðast þarf hratt við og koma í veg fyrir varanlegan skaða.kveðja Dagur
02.09.2008 at 10:36 #628598Flott skráning.
Þá eru 27 skráðir og þá 5 svefnpláss auð á Kveravöllum og 3 í Álftarkróki.
Þeir sem eru með ung börn sem sofa hjá foreldrum og þurfa ekki sér koju, meiga nefna það.
Ef margir skrá sig fljótlega þá getur verið möguleiki á að útvega fleiri svefnpláss.
kveðja Dagur
31.08.2008 at 22:11 #628582Umhverfisnefdin
Dagur Bragason 1+1
Guðmundur Bragason 1+2
31.08.2008 at 22:09 #202855Árleg stikuferð umhverfisnefndar verður að þessu sinni farin á Stórasand, norðan Langjökuls, helgina 12.-14. september.
Farið verður á föstudegi 12/9 og gist á Hveravöllum og er búið að panta gamla skálann og tekur hann um 32 í kojur.
Að morgni laugardags er keyrt rétt norður fyrir Hveravelli og Stórisandur stikaður frá kjalvegi og villuslóðum lokað undir leiðsögn Snorra á Augastöðum.
Húnvetningar verða líklegast í Álkuskála og ætlum við að hittast á Sandinum.
Eftir Stikun verður boðið upp á grill í Álftakrók á Arnarfellsheiði og síðan gist þar, en skálinn tekur um 30 í kojur.
Sunnudagur haldið áfram að stika og loka villuslóðum eins lengi og stikur endast og mannskapur treystir sér til.
Ef skráning gengur vel þá er möguleiki að auka gistipláss á Hveravöllum og einnig er möguleiki á gistingu í Álkuskála Húnvetninga.
Ekki er ráðlegt að taka með tjaldvagna um Stórasand, enda eru sandkornin þar í stærra lagi.
Sandurinn er fær flestum vel útbúnum jéppum, en nokkuð stórgrýttur og þarf því að fara um hann með lægni.
Skráning er hér á vefnum.
Dagur Bragason
Formaður umhverfisnefndar
28.08.2008 at 17:37 #628424Skrá mig hér.
1 fullorðin + 2 unglingar + kerrakveðja Dagur
28.08.2008 at 17:34 #202840Vinnudagur Umhverfisnefndar – Baggar og Birki
Laugardaginn 6. september erum við að fara í vinnudag upp í Þjórsárdal.
Hekluskógar, í Þjórsárdal, báðu okkur um að koma og keyra rúlluböggum og tína birkifræ.
Starfið felst í því að keyra rúllubagga, um ógróna sanda, sem verða settir á og teknir af kerrum með vél, síðan eru þeir settir í dreifara og hann úðar heyinu út um allt. Okkur vantar sem sagt bíla með kerrur. Sláttur er að hefjast og eru þetta því nýjar heirúllur, en hver vegur um 4-500 kg. Samtímis verður farið í birkifrætínslu og mun hann Hreinn frá Skógræktinni leiðbeina hvernig á að standa að.
Fólk getur því valið hvort það fer í frætínslu og eða keyra rúllur um sandana.
Frætínendur þurfa að hafa hanska, og einhverja tösku, eða poka sem þeir hafa um hálsinn svo báðar hendur séu fríar.Þetta er eina tækifærið til að stunda löglegan utanvegaakstur, en einnig kjörið tækifæri fyrir ungliðanefnd og aðra nýja félaga til að læra af okkur þessum gömlu og kynnast starfinu.
Í lok vinnudags munu Hekluskógar bjóða okkur eitthvað góðgæti.
Lagt verður af stað frá Select á Vesturlandsveginum kl 08.30 (hálf níu) stundvíslega, á laugardagsmorgun.
Skráning verður á vefnum og þarf að tiltaka hvort kerra sé meðferðis, fjölda þátttakenda, einnig hvort menn hafi hug á Setursvinnu
Síðan fyrir orkubolta og áhugasama er stefnan tekin upp í Setur í vinnuferð skálanefndar, en Þjórsárdalurinn er í leiðinni í Setur, þar sem þeim veitir ekki af allri þeirri hjálp sem þeir geta fengið, því áætlað er að setja niður sökkla fyrir nýju viðbygginguna þessa helgi, ásamt mörgu öðru.
Kv. Umhvefisnefnd.
17.08.2008 at 23:01 #627206Til hamingju Lella að vera farin að hugsa um umhverfismál, enda veitir ekki af, því verkefnin eru óþrjótandi.
Seinast Þegar ég fór að sumri í Setrið, var það í stikuferð og lagfærðum við stikur á leiðinni frá Kerlinafjöllum að Setri og síðan stikuðum við austur yfir Sóleyjahöfðavað og að sprengisandsleið.
Kári hefur bent á að laga þurfi stikur á leiðum að Setrinu og fékk hann nokkrar, sem liggja víst enn á hlaðinu heima hjá honum.
Förin út um alt er slæmt mál og ert þú fyrst að hafa orð á þessu. Stikur þurfa að vera í lagi svo að skálanefndin og aðrir rati rétta leið að skálanum.
Þú segir rusl út um allt og ekki er það gott mál og þarf að auglýsa eftir mannskap í vinnuferðir í Setrið, því verkefnin eru endalaus.
Utanvegaakstur er alls ekki líðandi og hvet ég alla félagsmenn að hindra slíkt.
kveðja Dagur umhverfisnefnd
17.08.2008 at 09:55 #627302Flottur dótastðull Óskar.
En bæta má þó inn nauðsynlegum aukahlutum eins og sólgleraugnastatíf, kaffikönnuhaldara, sjálfvirkri kaffivél, nuddstólar, sprinkler þvottakerfi fyrir dekkin, en mér skildist að fjalli hafi komið sér upp slíkum búnaði, enda þurfti hann ekki að yfirefa bílstjórasætið í ferðum.
mhn nefnir 200bara loftdælu og er slík dæla nauðsynleg til að fylla á loftkúta kafara og einnig getur hún fyllt á ræsiloftkúta stórra skipavéla, ef einhver væri með slíkt í húddinu.
kveðja Dagur
15.08.2008 at 11:57 #627264Sælir jeppakallar og jéppakonur.
Er ekki kominn tími á staðlað form á dótastuðli til að gefa jéppum einkunn svo hægt verði að bera þá saman.
Td. væri hægt að gefa ákveðin fjölda punkta fyrir sólgleraugna statíf.
Talstöð.
Kælibox.
fjölda aukatanka.
Spil.
Fjölda cd diska í magasíni.
ofl ofl.Nú er bara að einhver taki þetta verðuga verkefni að sér og ekki er verra en að viðkomandi hafi reynslu í að gefa einkunnir.
kveðja Dagur
13.08.2008 at 12:36 #627236er að jeppin hafi farið á fjöll, annað er aukaatriði.
kveðja Dagur
05.08.2008 at 23:47 #626636Þetta er ekki svaravert.
Að hanga í Nefndun!!
Ert það þú.
Ef þessi klúbbur á að leisast upp î einhverskonar vitleisingja klúbb, þá megið þið eiga hann.
Ef ekki er hogt að roða staðreindir og komast að niðurstöðu, þá til hvers að "hanga" í nefnd.
05.08.2008 at 21:46 #626630Það sem ekki er að finna í fundargerð fyrrverandi stjórnar F4x4 er það sem Halldóra er að lýsa hér að ofan að hún hafi samviskusamlega skráð.
Þorgeir þú ottir að skoða fundargerðirnar betur.
kveðja Dagur
-
AuthorReplies