Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
22.11.2008 at 13:05 #633146
Sælir
hér er mynd af náfrænda Lapplander og voru framleidd um 700 stikki af þessu hjá Volvo [img:2ryfbka5]http://www.volvoadventures.com/P2104.jpg[/img:2ryfbka5]
Gælunafnið á þessu var Sugga.
Hér er smá [url=http://www.youtube.com/watch?v=230DMLlMKD0:2ryfbka5][b:2ryfbka5]videó[/b:2ryfbka5][/url:2ryfbka5] af þessum trukk, en ég held að landinn nudi nota bílinn á annan hátt, eins og [url=http://www.youtube.com/watch?v=bdcaIUhXgmM:2ryfbka5][b:2ryfbka5]hér[/b:2ryfbka5][/url:2ryfbka5] .
Hér eru þeir á 38 í Svíaríki, á númerum þó að Ofsi segir það ekki leifilegt þar.
[img:2ryfbka5]http://www1.shellkonto.se/sugga/Bilder/main.jpg[/img:2ryfbka5]
16.11.2008 at 14:51 #203212Hér er viðtal við nokkra jéppakarla og vorn formann Sveinbjörn.
Einnig er þetta í Wall street Journalkveðja Dagur
16.11.2008 at 12:27 #632804Var að tala Við Arnþór aftursætisbílstjóra.
Samúel nokkur kom í Setur, einbíla, um kl 3 í nótt.
Þeir eru nú lagðir af stað heim um Klakksleiðina og voru við Kisu rétt áðan.
Ferðalagið gengur hægt, enda algjör snjóblinda.fréttaritari
08.11.2008 at 22:08 #632478Þótt veraldargengið sé valt
og úti sé andskoti kalt.
Með gengisfellingu
og góðri kellingu
þá bjargast yfirleitt allt.
kveðja Dagur
08.11.2008 at 11:34 #632404Þetta ætti að vera í opnum þráð og vil ég biðja Trausta um að setja sinn texta í opinn þráð.
Ég fordæmi svona skrílslæti enda eru þau ekki til sóma fyrir nokkurn og má F4x4 alls ekki vera kennt við slíkt.kveðja Dagur umhverfisnefnd
02.11.2008 at 12:54 #631996Þegar einfaldir hjöruliðir eru á báðum endum á drifskafti, þá þarf hallinn að vera sá sami á báðum hjöruliðum, sjá mynd. [img:1hhmhlj0]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/3929/53947.jpg[/img:1hhmhlj0]
Þegar notaður er tvöfaldur liður, sem virkar í raun eins og 2 einfaldir með sjálvirkri afstöðustillingu, þá þarf afstaða einfalda hjöriliðsins að vera beint á móti drifskaftinu.
[img:1hhmhlj0]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/3929/53946.jpg[/img:1hhmhlj0]
Ef þetta er ekki rétt þá verður snúningur pinnjóns ekki jafn allann hringinn eða snýst mishratt á hverjum snúningi og veldur þetta titringi og auknu álagi á drifbúnaðinn allan.
[img:1hhmhlj0]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/3929/53948.jpg[/img:1hhmhlj0]Hægt er að fá nánari upplýsingar um þetta [url=http://www.4x4wire.com/toyota/tech/driveline/:1hhmhlj0][b:1hhmhlj0]hér[/b:1hhmhlj0][/url:1hhmhlj0] og [url=http://www.jeepfan.com/tech/tech_driveangles.htm:1hhmhlj0][b:1hhmhlj0]hér[/b:1hhmhlj0][/url:1hhmhlj0]
Einnig er fróðlegt
[url=http://www2.dana.com/videos/dana_vid.html:1hhmhlj0][b:1hhmhlj0]videó[/b:1hhmhlj0][/url:1hhmhlj0] hér en þar er kent hvernig á að stilla þetta á drifskafti með 2-3 hjöruliðum.
kveðja Dagur
26.10.2008 at 14:02 #20311425.10.2008 at 14:06 #630128Nú eru Háva mál kveðin
Háva höllu í,
allþörf ýta sonum,
óþörf jötna sonum.
Heill sá er kvað!
Heill sá er kann!
Njóti sá er nam!
Heilir þeir er hlýddu!kveðja Dagur
18.10.2008 at 19:44 #630984Litlunefdarmenn eru komnir í bæinn eftir vel heppnaða ferð.
Benni for(d) maður kom í Setrið fyrir um 2 tímum síðan og er nú að aðstoða Breytishópinn í Setur, en sá hópur er búinn að stika Klakksleiðina með öxulbrotnum og biluðum bílum.
Hópurinn sem kom Kerlingafjallaleiðina er kominn í hús.
Als verða um 50 manns í Setrinu í kvöld.
fréttaritariPs. Að sögn fréttaritara er ekki hægt að stóla á fréttir hanns nema að að því leiti sem fréttalesandi vill trúa.
18.10.2008 at 14:21 #630982Það sem helst er að frétta af liunefnd að heill haugur af bílum lagði af stað í morgun frá Select og fóru þeir austur um Mosfellsheiði.
Talsverð hálka var þegar þeir lögðu á heiðina og missti ökumaður Súkku stjórn á bílnum og valt út af veginum.
Til allrar hamingju meiddist enginn.
Hópurinn fór um Þingvalli og uxahryggjaleið og þaðan á línuvegin norðan Skjalbreiðs og var kominn á kjalveg.
Nú stefnir hópurinn að Hagavatni enda eru þyrlur lagðar af stað úr Reykjavík.
Óskar Erlings kom á móti þeim og er búinn að máta árnar og segir þær í lagi.
Benni For(d) maður er á leið í Setur um Gljúfurleiti ásam Helga á 38". töluvarður snjór er í Gljúfurleitunum og jafnvel kúludráttur fyrir 49" fordinn.
Breytir, með Aron í fararbroddi, er með 30 manna hóp á 15 bílum á leið í Setur um Klakksleið, en ekki komnir í snjóinn enn.
Einhverjir bílar eru sagðir á leið í Setur um Kerlingafjallaleið og þá trúlega í töluverðum snjó.kveðja Fréttaritari.
Ps. Að sögn fréttaritara er ekki hægt að stóla á fréttir hanns nema að að því leiti sem fréttalesandi vill trúa.
16.10.2008 at 18:43 #629608Þetta gas sem myndast við rafgreininguna er vetni og súrefni og er blanda af þessu notað til að koma geimferjunni út í geiminn.
Magnið af þessu er örlítið og orkan í réttu hlutfalli við rafmagnið sem notað er til að rafgreina vatnið – einhver prósent í töp.
Hlutfallslega er meira af súrefni í blöndunni en í venjulegu lofti þar sem súrefnið er um 20% og er þetta því ekki sambærilegt og að setja própangas í loftinntakið.
Brunahraðinn á vetni + súrefni er margfaldur brunahraði dísel olíu og gæti þetta örlitla magn haft einhver áhrif?
Ef þetta verður til að hraða brunanum í dísel vél? þá eykst nýtingin á olíunni, en hámarksbrunaþrýstingur hækkar og því meira mekaníst álag á vélina.
Magnið af vetni er það lítið að með loftinu inn á vélina þá brennur það ekki án þess að bæta eldneyti við.
Hef ekki prófað þetta, en hugmyndin er ekki fráleit.Að sprauta vatni inn í brunahólfið lækkar afgashitann og einnig eymast vatnið og þenst út um 10.000 falt. Þetta getur aukið hámarksafl véla, en vandkvæðin við þetta og slit á vél gerir þetta ekki praktíst, en samt mögulegt að ná auknu afli í stuttan tíma út úr vél.
kveðja Dagur
28.09.2008 at 11:16 #629912Það að setja segulsvið umhverfis eldsneitisleiðslu er eitthvað sem hefur engin áhrif á eldsneitið, en það gæti haft sálræn áhrif á þann sem eiðir peniningum í þetta.
Aðrar aðferðir eins og mjög hár þrýstingur í spíssum og bætiefni eins og aceton sem minka yfirborðsspennuna, gera úðan fínni og betri bruna.
Háþróuð eldsneitiskerfi er ekki eitthvað sem við setjum á gamlar vélar og aceton er mjög vandfarið með.
Bensín og disel er ekki segulvirkt efni, en vatnsmólikúl eru póluð og á því byggja segulómunartæknin og af sömu ástoðu hitnar vatnið í örbylgjuofninum.
Það er hægt að prófa ýmis efni hvort þau verða fyrir áhrifum rafsegulgeislunar, með því að skella því í örbylgjuofnin og athuga hvort þau hitni.
Þetta er mikið notað af radíómönnum þegar efni í loftnet eru prófuð.
Als ekki setja bensín í opnu íláti í örbylgjuofnin, því bensíngufur eru mjög eldfimar og neistar geta kveikt í gufuni.
kveðja Dagur
25.09.2008 at 22:46 #629878Mátaði þann bláa við sporð Langjökuls um daginn, eina bíllengd og rann sá blá strax til baka þó svo að dekkin hafi öll snúst í hina áttina.
Ég gæti trúað að það yrði nokkurt rennerí á Hlyn ef hann er ekki keðjaður á leið niður Vatnajökul.
kveðja Dagur
21.09.2008 at 23:46 #629752Laufrandarvegurinn er í austanverðum Bárðardal og rétt sunnan við skála Eyjafjarðardeildar liggur [url=http://f4x4.is/new/files/photoalbums/3929/52963.jpg:29zm7cm8][b:29zm7cm8]leiðin[/b:29zm7cm8][/url:29zm7cm8] yfir krossá. [img:29zm7cm8]http://f4x4.is/new/files/photoalbums/3929/52963.jpg[/img:29zm7cm8]
Þetta er háleinilegt kort frá LMI gefið leinilega út 1992Kveðja Dagur
21.09.2008 at 22:34 #629632Minni á þennann [url=http://www2.hi.is/myndir/1014379?25277:1z0d0i1b][b:1z0d0i1b]fund[/b:1z0d0i1b][/url:1z0d0i1b] sem er öllum opin í hádeginu á miðvikudaginn.
Kveðja Dagur
15.09.2008 at 08:22 #628650Þakka Húnvetningum og öllum öðrum fyfir frábæra ferð.
Settar voru um 540 stikur á Stórasandi frá kjalvegi að vegamótum í Víðidal.
myndir seinna.
Kveðja Dagur umhverfisnefnd
12.09.2008 at 11:35 #628634Sæll Lella.
Ég var mjög ánægður þegar þú skráðir þig í þessa ferð enda er mjög gott ef orkubolti eins og þú takið þátt í umhverfismálunum með okkur.
Mér finnst þetta ótrúlegt skilningsleisi hjá vinnuveintenda þínum að sleppa þér ekki með í ferðina.
Þú verður ofarlega í huga okkar í ferðinni og þegar við berjum niður stikurnar.
Kær kveðja Dagur
11.09.2008 at 23:16 #628628Guðmundur Bragason kemur ekki -3
10.09.2008 at 21:33 #628860Ég vil þakka Agnari, Árna, Skúla, Róbert og fleirum málefnaleg skrif.
Þetta er orðin nokkur saga, þessi slóði upp Hamragarðaheiðina.
Þegar einhver ákvað að gamli slóðinn gæti nýst fyrir grjótflutninga af heiðinni, bara þyrfti smá vegabætur til að vörubílar gætu ekið slóðann. Stór bónus er því ekki þyrfti að fara með slíkt í umhverfismat, þótt slóðin er rétt hjá þekktum náttúruperlum.
UST fór yfir málið og sagði að vegurinn motti ekki vera breiðari en 5m og vera í sínu upprunalega vegstoði. Vegagerðin fékk þessu breytt hjá skipulagsstofnum og mátti þá vegurinn vera allt að 7m breiður með útskotum og rétta mátti úr kröppustu begjunum. Síðan hefur mikið varn runnið til sjáfar og er vegurinn "slóðinn" orðin 12-15m breiður og beinn, enda þarf hann ekki lengur að vera í vegstæði gamla slóðans. Enn heitir þetta nú samt "endurbotur á slóða".
Þetta er farið að minna töluvert á söguna góðu Naglasúpan.
En eins og með góðar sögur, endaði Naglasúpan vel og vona ég að þessi saga endi einnig vel þó ekki er endinn fyrirsjáanlegur enn.
Þetta ferli er ekki til eftirbreytni og vonandi sjá yfirmenn, þeirra stofnanna sem komu að þessu, að slíkur blekkingaleikur tekst bara einu sinni, eins og í Naglasúpunni.kveðja Dagur
formaður umhverfisnefndar F4x4
09.09.2008 at 13:24 #628844Sæll Róbert og takk fyrir innleggið.
Ég kannaði öll þessi skjöl hjá vegagerðinni sem þú bentir á og leitaði eftir 1 orði "seljalandfoss"
Niðurstaðan er svolítið merkilegt því leitarvélin í Acrobat fann ekki eitt tilvik þar sem orðið "Seljarlandsfoss" kemur fyrir.
Út frá þessu hafa engar athuganir eða rannsóknir verið gerðar um árhif framkvæmdanna á fossinn, eða að þær eru ekki teknar með í matið.
Einnig er athyglisvert þegar hæðarlínur eru skoðaðar þá er umræddur "slóði" Vegur að námum og námurnar sjálfar á vatnasvæði Seljalandsár og fer þá afrennsli, úr námum og vegna rasks við veginn, allt í Fossinn.
Allar fullyrðingar um áhrif framkvæmdana á fossinn verður því að taka með varúð.kveðja Dagur Formaður umhverfisnefndar F4x4
Ég vil taka það fram að orðið seljalandfoss kemur fyrir í myndum en ekki texta.
-
AuthorReplies