Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
15.07.2004 at 13:50 #504762
Eflaust verður þetta fallegur bíll, en hefði ekki verið einfaldara og ódýrara að flytja inn LC 105? (105 er að mér skilst 100 bíll nema með hásingu að framan)
-haffi
15.07.2004 at 02:09 #504296Eða öllu heldur CJ-8 heitir þessi bíll og jú hann stóð í Svínafelli um tíma og svo Klaustri, en skilaði sér loks til byggða í kvöld. Þarfnast núna smá TLC(*).
-haffi
(*) Nei ekki Toyota Land Cruiser, heldur Tender Love and Care.
14.07.2004 at 13:21 #504292Sett inn myndir úr dagsferð þarna inneftir. Tók eftir því að í LMI kortunum heitir staðurinn NúpsstaðaRskógar á 1:100þ kortinu en Núpstaðaskógar á 1:250þ kortinu. Á heimasíðunni sem Skúli benti á stendur NúpstaðaskógUr. Gildir einu, en skondið samt.
Þetta er mjög fallegur staður, slatti af flugum, smá klifur til að sjá hylinn sem best en stutt og skemmtileg ganga.
-haffi
29.06.2004 at 11:22 #50425229.06.2004 at 11:20 #504250Þá held ég að maður sleppi Núpsstaðaskógum, takk fyrir þetta. En þetta Þakgil, er að leita að þessu á korti, stemmir að ég fari þá veg 214 rétt austan Víkur?
-haffi
28.06.2004 at 20:38 #194497Hefur einhver farið inn í Núpstaðaskóga nýlega? Er að fara austur og var að hugsa að renna þarna inneftir í leiðinni. Verðum 2 á einum bíl 38″. Ætlum ekkert í neina vitleysu og því væri ágætt að frétta af þessu ef einhver hefur farið nýlega.
Vegahandbókin segir að vegna óvissu um leiðir og vatnsföll sé best að hafa kunnáttumenn í för. Er þetta eitthvað verra en að fara alveg innst inn með Markarfljótinu/Krossá? Spyr sá sem ekki veit.
Vitiði um einhverja aðra skemmtilega staði á leiðinni sem er tiltölulega stutt að fara af þjóðveginum? (fer mögulega alla leið á Egilstaði).
Vega
27.06.2004 at 20:43 #504192Enginn með reynslu af þessu?
-haffi
25.06.2004 at 13:24 #194490Hefur einhver reynslu af OME fóðringunum sem leiðrétta spindilhalla? Benni er með þetta til sölu en ég vildi fyrst kanna hvort einhver þekki til þeirra m.t.t. endingar m.a. ?
-haffi
21.06.2004 at 22:06 #504048Er öryggi fyrir hvort ljós um sig? Gæti verið utleiðsla í ljósinu + of stórt öryggi.
-haffi
20.06.2004 at 00:11 #504020Sjáiði hvað afturfjaðrirnar eru hátt yfir hásingunni. Framfjaðrirnar eru örugglega eins og U í laginu.
Kaninn má eiga það að hann kann að búa til þykkt stál, en í jeppabreytingum, með sín fjaðrabúnt, ojojojojojoj
-haffi
19.06.2004 at 23:48 #194473Baráttan um auglýsingaplássið á aðalsíðu f4x4.is er greinilega hörð.
Ég er með tillögu fyrir þá sem eru að auglýsa marga hluti, nefnilega þá að gera það í einni auglýsingu. T.d. í dag hefur einn aðili tvisvar sent inn 3 auglýsingar á einum degi. Væntanlega er hann að detta út af aðalsíðunni út af augl. annara, en um leið ýtir hann 3 út. Í hans tilfelli hefði titillinn getað verið „4Runner,VHF,NMT“, og þá hefði verið pláss fyrir 2 aðrar auglýsingar á aðalsíðunni.
Vona að menn taki jákvætt í þessa tillögu.
-haffi
18.06.2004 at 15:40 #503978Hjá mér er vakúmdælan aftan á alternatornum. Þaðan eru slöngur í 2 "vakúm tanka", annar þeirra ætti að tengjast kúplingu með eh hætti. En ef bremsurnar eru í fínu lagi, þá er það væntanlega ekki dælan sem er farin.
-haffi
17.06.2004 at 03:26 #503938Vonandi verður þetta haft innanlands, það er ekkert jafn leiðinlegt og að geta ekki skoða íslenska síðu bara af því að einhver togari var úti að taka…..
-haffi
15.06.2004 at 13:46 #503914Alltaf ef maður er staddur á höfuðborgarsvæðinu fylli ég hjá AÓ. (og er snöggur að!)
-haffi
15.06.2004 at 11:37 #503860Er ekki kælilögn að túrbínu, gæti þetta tapast þar?
-haffi
ps. olíuþr. hjá mér fylgir snúningi, en er þó alltaf á milli 1/4 og 1/2 ef að það skilst.
14.06.2004 at 10:40 #503836Maður er fróðari eftir þetta. Ég hef þig bak við eyrað Gísli Þór, takk.
-haffi
14.06.2004 at 00:07 #503842[url=http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/key2/forsida]
Hér[/url]
13.06.2004 at 13:51 #194457Ég er með Patrol, sem syngur aðeins í 1. og 2. gír. Bíllinn er ekinn 241þ, keypti hann í janúar og er búinn að keyra um 8þkm á honum. Söngurinn er búinn að vera eins síðan ég keypti hann, þ.a. ég hef ekki miklar áhyggjur eins og er.
Mig langar að spyrja menn, þ.s. ég veit að þetta er ekki svo óalgengt vandamál, hvað kostar að láta taka upp svona kassa?
Ég myndi mögulega treysta mér í þetta sjálfur, en veit þó ekki hvert ég myndi leita með varahluti í þetta, eru seld kit fyrir svona kassa? Hvar þá? Og hvað kostar það?
-haffi
30.05.2004 at 12:05 #503413Viltu þá koma á lituðu bensíni líka fyrir þá jeppamenn sem eiga ekki dísil jeppa? Mér finnst tvennt ósanngjarnt í núverandi(verðandi gamla) kerfi.
1. Þeir sem keyra umfram ákv. km fá afslátt á skattlagningu. Ég efast um að akstur í snjó og víðar þar sem menn eru ekki að slíta vegakerfinu sé það stór hluti akstursins að það réttlæti afsláttinn, allavega hjá miklum meirihluta jeppaeiganda.
2. Þessi afsláttur býðst bara dísilbílum.
Hvort alþingi sé að gera þessar breytingar til að jafna "óréttlætið" eða til að auka tekjurnar er svo annað mál. Efast reyndar um að margir þingmenn átti sig á því heldur…
-haffi
28.05.2004 at 12:21 #503051Kannski að skvetta smá militec líka í olíuna?
-haffi
-
AuthorReplies