Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
27.07.2009 at 18:47 #652226
Sæll Óli,
ég var að gera smá breytingu (php kóði) þannig að tómar möppur ættu ekki að birtast í Flakka/Nýjast/Vinsælt. Ef mappa inniheldur bara tóma möppu birtist hún samt, enda ekki tóm
Ég er að notast við Gallery2 API-ið og modda eitt plugin smávegis Þetta er allavega í áttina.
Ég reikna með að við verðum duglegri að eyða út auglýsingamyndum enda skýrt í skilmálunum (hmmm best að koma þeim fyrir eh staðar
að myndaalbúmið sé ekki fyrir auglýsingamyndir. Sérstaklega þar sem mjög auðvelt er að setja myndir í auglýsingar. Hins vegar stendur ekki til að fara í gegnum safnið og henda út gömlum, gæti þó breyst.
-haffi
27.07.2009 at 11:05 #652222Sæll,
Upload applettið er bara Java applet held ég, þ.a. ef þú ert með java í lagi í FF þá ætti það að virka.
Láttu vita hvernig gengur.
-haffi
26.07.2009 at 15:58 #652218Aths hlekkurinn var bara hugsaður sem flýtileið, færri klikk
En þetta er góð ábending, maður þarf að vera loggaður inn til að sjá athugasemdir og þá virkar linkurinn ekki, tek hann aftur út í bili.
-haffi
26.07.2009 at 15:06 #652214Bætti við hlekk "Aths" hjá Flakka/Nýjast/Vinsælt sem ætti að sýna nýjustu athugasemdir.
-haffi
25.07.2009 at 23:07 #652210Nú er hægt að upload-a beint úr Picasa 3. Vistið eftirfarandi skrá:
https://old.f4x4.is/g2/modules/picasaweb … 4×4.is.pbz
í C:Program FilesGooglePicasa3buttons
Endurræsið Picasa og þá hefur bæst við hnappur neðst merktur Gallery2. Veljið myndirnar og smellið á hnappinn og eftirleikurinn ætti að skýra sig sjálfur.
-haffi
25.07.2009 at 14:02 #65220824.07.2009 at 12:52 #652204Góð ábending hjá Eika. Þetta er ein af snilldunum við Gallery, það er með Remote Interface sem mörg forrit styðja.
Erlingur, ég var að breyta vefnum þannig að hægri dálkurinn birtist ekki ef myndasafnið er opið, sjáum hvernig þetta kemur út.
Varðandi auglýsinguna þá er það auðvitað stjórnar að ákveða, en þetta er aðal styrktaraðilli klúbbsins og eðlilegt að flagga því.
-haffi
24.07.2009 at 10:38 #652198Sæll Óli, þetta var illa orðað hjá mér, ég kveikti s.s. ekki á commenta möguleikanum fyrr en í gærkvöldi.
SBA: Þetta session timeout tengist líklega því að við erum að stilla hitt og þetta á servernum, tekur smá tíma að fínpússa þetta.
-haffi
23.07.2009 at 22:41 #652192Sæll Óli, ég tel mig búinn að kveikja á comment fídusnum, þ.a. það ætti að vera hægt að commenta neðan við hverja mynd. Athugaðu að vera innskráður til að fá formið, kemur vonandi í veg fyrir spam.
Varðandi myndastærðir þá ætla ég að koma með ákveðnar tillögur. Persónulega finnst mér tilgangslítið að upload-a 3MB skrá til þess eins að hún sé minnkuð strax í 200kB. Ef menn nota upload appletið þá resize-ar það áður en það sendir yfir vírinn og og er því fljótlegra. Auk þess tekur það resize álagið af vefþjóninum. En það er minnsta mál að hækka limitið í php.ini.
Reyndar finnst mér þægilegast að nota picasa til að velja og exporta í réttri stærð (1280px) þær myndir sem ég vil senda. Vel svo allar myndirnar í export möppunni með upload appletinu og hvissbammbúmm.
Eins og menn hafa væntanlega tekið eftir er vefurinn afar hægur í kvöld. Tengist augljóslega myndasafninu, erum að vinna í þessu.
-haffi
23.07.2009 at 11:05 #652130Þú gætir mögulega notað Garmin nRoute og Mapsource ef þú notar GPSGate á milli. Ég hef ekki prófað þetta en mér sýnist að GPSGate geti þóst vera garmin tæki, þ.e.
[magellan] <- nmea gegnum serial port -> [gpsgate] <- garmin protocol gegnum virtual port -> [nRoute]
Tékkaðu á þessu:
http://franson.com/GPSgate/guide.asp?se … form=winxp
Best væri að fá einhvern sem þú þekkir og á nRoute til að prófa með tækinu þínu og GPSGate (er með 14 daga prufutíma).
-haffi
23.07.2009 at 08:45 #652178Strákar,
Myndasafnið er núna með ca. 95% af virkninni sem gamla var með. Það myndi ég ekki kalla klúður.
Þetta er opið kerfi sem styður aragrúa af viðbótareiningum og er auðvelt að skipta út tungumáli. Reyndar er ekki til íslensk þýðing ennþá en það er aldrei að vita hvað gerist á síðkvöldi í sumarfríinu. Einnig er til viðbót sem gerir nánast það sem addikr er að biðja um, þyrfti að eiga aðeins við kóðann (viðbótin listar alla notendur kerfisins en ekki bara þá sem eiga söfn).
En ég var annars aðallega að falast eftir villum.
Einn fékk villu á [b:7xcdczc1]Makka [/b:7xcdczc1]með [b:7xcdczc1]Firefox[/b:7xcdczc1]. Þegar hann ætlaði að nota Upload Applet fékk hann þessa villu:
[b:7xcdczc1]Error: Server contacted but Gallery not found at this url [/b:7xcdczc1]
Eru fleiri að fá þetta?
-haffi
23.07.2009 at 01:40 #65217223.07.2009 at 01:21 #205378Myndasafnið er komið í loftið. Fyrstu leiðbeiningar má sjá hér:
https://old.f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=235&g2_itemId=249570
Best er að skoða þetta safn með slideshow-inu, þ.e. smella á linkinn að ofan, fara í album-actions (neðarlega) og velja slideshow og fullscreen.
Böggar munu koma í ljós og við reynum bara að taka á þeim.
Ábending: Sjálfgefin stærð á nýjum myndum verður 1280 pixlar.
Gamlir tenglar á söfn og myndir virka, dæmi:
https://old.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=oldsite/2805
https://old.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=oldsite/2805/34543
-haffi
18.07.2009 at 01:50 #651742Er minna bil milli lega að framan í 98+ bílum vs. eldri?
-haffi
07.07.2009 at 17:13 #651252Jamm Þór var það og þeir áttu þetta til í varahlutaversluninni sem er i kjallaranum á bak við húsið, ca. 280kall. Fínt verð.
-haffi
07.07.2009 at 13:42 #20509623.06.2009 at 00:16 #649236Þetta verður keyrt inn í vikunni. Hér eru nokkur sönnunargögn um að meira en ekki neitt sé að gerast í þessu.
-haffi
[attachment=2:byxj65cj]MyAlbums.jpg[/attachment:byxj65cj]
[attachment=1:byxj65cj]SlideShow.jpg[/attachment:byxj65cj]
[attachment=0:byxj65cj]ItsAlive.jpg[/attachment:byxj65cj]
18.06.2009 at 23:38 #649214Nefndarnöfnin ættu núna að sjást óháð því hvort maður sé loggaður inn eða ekki.
-haffi
18.06.2009 at 23:22 #649212Hmmm, maður þarf að vera innskráður til að sjá nefndarnöfnin…
hakkihakki
-haffi
18.06.2009 at 23:15 #649210Nefndirnar komnar inn, byggt á listanum í fréttabréfinu. Ef valið er Klúbburinn/Deildir/Nefndir í valmynd efst, eða eitthvað þar undir þá birtist kassi hægra megin á síðunni sem meðal annars inniheldur hlekk á nefndarlista. Lítið mál að bæta símanúmerunum við ef það er æskilegt.
Frekar auðvelt er að viðhalda listanum héðan í frá, þannig að nú geta menn sagt sig úr nefndum með skömmum fyrirvara
Deildarlisti á leiðinni.
-haffi
-
AuthorReplies