Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
07.05.2005 at 15:10 #19591606.05.2005 at 15:46 #521722
Maddi (held ég) sagði: "en t.d 1:50.000 kortin eru í WGS84"
ég er að skoða eitt þessara korta og þar stendur "Horizontal Datum / Hnattstöðuákvörðun : Hjorsey 1955"
-haffi
06.05.2005 at 13:04 #522284Er þetta kannski bara spuning um að lesa handbókina? ég fékk hana með.
-haffi
06.05.2005 at 13:04 #522282Sælli Benni, hvernig breytir maður honum?
-haffi
06.05.2005 at 10:36 #195914Ég varð mér úti um Motorola Associate 2000 NMT síma. Hefur einhver hugmynd um hvað hann er í vöttum í sendistyrk?
-haffi
20.04.2005 at 15:14 #521190Hosurnar hvorki til hjá AB eða Kistufelli. Þessar sem eru í bílnum eru ekkert orðnar morknar og líta allt í lagi út, þ.a. ég nota þær bara áfram. Nenni ekki að henda formúgu í IH, allavega ekki í bili…
-haffi
20.04.2005 at 10:05 #521482Gengur alls ekki saman, ekki nema þú sért með mismunadi dekk framan og aftan
-haffi
20.04.2005 at 01:39 #52147820.04.2005 at 01:37 #521476Hvernig er með samband milli boosts og olíuverks. Í 2.8TD rellunni tekur olíuverkið mið af bústinu held ég, allavega liggur slanga þarna á milli. Er svoleiðis inni í túrbínupakkanum, þarf að breyta/bæta olíuverki eða skiptir þetta kannski engu máli?
-haffi
ps. ég er með 4.625 köggla í mínum bíl, mætti jafnvel athuga með skipti?
20.04.2005 at 00:30 #521472Sæll, þú kannski deilir með okkur hvaðan mótorinn kom (kostnaður við flutning ofl.) og hvernig gekk að skipta um?
Annars bara til hamingju.
-haffi (öfundsjúkur)
19.04.2005 at 21:23 #521322Það var ágætis grein í mogganum í dag. Þar kom fram að ef bornir eru saman 2 bílar bensín og dísill, en að öðru leiti eins, þá er eldsneytiskostnaður yfir árið (m.v. jafn mikinn akstur) minni fyrir díselbílinn, þrátt fyrir að dísillítrinn verði dýrari. En síðast í greininni er svo bent á að þessi hagnaður nýtist ekki sem skyldi því dísilbílinn er dýrari í innkaupum.
Mér sýnist að það taki 5-10 ár fyrir "sparnaðinn" að borga verðmismuninn (m.v. nýjan bíl).
Eftir það er þetta tóm hamingja
-haffi
19.04.2005 at 20:53 #521188Jæja, þá er maður búinn að versla sitthvað, 3ja raða kassa (stjörnublikk), dælu (stilling) og vatnslás (bílanaust). Þetta fer í á næstu dögum.
Úr því maður er byrjaður þá ætlaði ég að endurnýja hosurnar líka en þær eru ekki til formaðar eins og orginal í Bílanaust og í umboðinu kostar settið (4 bútar) litlar 18900kr takk fyrir.
Hvar getur maður verslað hosurnar? Verð að viðurkenna að ég á eftir að kíkja í Kistufell og líka þessa AB varahluti, geri það á morgun.
-haffi
17.04.2005 at 22:44 #521184Ég var ekki búinn að athuga hvað ný dæla kostar, sá nefnilega fyrir mér allavega 20-30þ fyrir hana eina og sér. Ekki spurning að ég skipti um dæluna líka úr því hún er svona ódýr.
takk fyrir það,
-haffi
17.04.2005 at 21:26 #521180Jæja þá er maður búinn að opna ormadósina. Langaði að sýna nokkrar myndir og fá kannski álit hjá mönnum. Endilega tjá sig!
Varðandi vatnsdæluna þá sýnist mér bara leka á samskeytum dælu og dæluhúss. Ekki út með öxlinum eins og ég átti vona á, þetta sést ágætlega á síðust tveimur myndunum (sjá link neðst). Ég á eftir að skoða dæluna betur en er að hugsa um að bíða með að kaupa nýja því þetta gæti bara verið spurning um nýja pakkdós.
En svo er annað sem kom út úr þessu. Mér sýnist á öllu að það borgi sig að skipta um vatnskassann úr því maður er með þetta í tætlum. Rifflurnar (eða hvað þessar þynnur heita) molna bara eins og sandur ef maður ýtir á þær. Er þetta ekki bara ónýtt? (sjá myndir)
Hvar á maður að kaupa 3ja raða kassa? Grettir?
Allavega, hérna eru myndirnar:
[url=http://www.simnet.is/haffster/Vatnsdaelan/index.html:34ldynpl]Myndir[/url:34ldynpl]
-haffi
ps. takk fyrir upplýsingarnar!
15.04.2005 at 10:45 #520930Það er frekar langsótt að túlka innleggið þitt sem hrós fyrir hraða en gott og vel.
-haffi
15.04.2005 at 10:16 #195839Mér sýnist vera farinn að leka kælivökvi við vatnsdælu á Pattanum. Stendur til að skoða þetta í kvöld. Eru menn með einhver ráð eða fróðleik fyrirfram?
takk,
-haffi
15.04.2005 at 10:14 #520926Ég held að met hafi verið slegið, aldrei áður hefur verið röflað yfir jafn smámunalegum hlut.
-haffi
14.04.2005 at 14:11 #521146Ætti maður ekki að setja þetta fyrir framan bínu og svo bara kíkja á þetta 2svar á ári. En ég testa fyrst segula á nemann.
-haffi
14.04.2005 at 09:45 #521138Sæll Jónas, ég keypti svona mæli af þér en hef ekki komið honum í ennþá. Mig langar að spyrja þig hvort þú vitir hvort eftirfarandi eigi við um mælana sem þú ert að selja (tekið af Banks síðunni, varðandi hættuna að hafa skynjarann fyrir túrbínu):
"Today’s quality pyrometers feature thermocouples that are sheathed in stainless steel to prevent just such an occurrence."
takk,
-haffi
11.04.2005 at 11:56 #520888Hver var eyðslan?
-haffi
-
AuthorReplies