Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.07.2005 at 23:28 #524678
*ef* eitthvað fer í þessum bíl þá giska ég á það yrði þetta lága hlutfall
Annars til lukku með tryllitækið, ég held maður víki bara út í kant þegar maður fær þig í baksýnisspegilinn!
-haffi
ps. hvaða sjálfskipting? 5 þrepa?
04.07.2005 at 17:41 #524602Mótmælin þarf að vanda, að vera bara fyrir og með skæting hjálpar ekki málstaðnum. Það væri miklu meira vit í að fá einhvern tungulipran í Kastljósið eða Ísland í dag til að útskýra hversu absúrd staðan er eftir þessa lagaetningu (sem hafði þó göftugt markmið en hvarf í meðförum þingsins).
Annað sem þarf að skoða er verðmunurinn á nýjum bensínbíl vs. dísel. Ég sá þátt (Top Gear) þ.s. borinn var saman 2 eins VW bílar , annar dísel hinn bensín. Þar kom fram að dísilbíllinn var annaðhvort jafndýr eða aðeins ódýrari. Er það venjan erlendis? Af hverju er dísilbíllinn dýrari hér á landi??? Vörugjöld? Álagning umboða?
-haffi
02.07.2005 at 14:43 #524624Velja breyta myndasafni, þá færðu síðu sem býður upp á að breyta nafni og lýsingu safns. Taktu svo eftir að þar stendur "1 af 2", þannig að þú velur áfram hnappinn og þá færðu síðu sem býður upp á að bæta við safnið.
-haffi
01.07.2005 at 14:29 #524592Munar 1,2kr núna hjá AO. 107,7 vs. 108,9
-haffi
01.07.2005 at 01:26 #524510Var að hluta á viðtalið, bráðskemmtilegt. Ekki spurning að ég kaupi bókina, á lika þá fyrri.
-haffi
30.06.2005 at 13:54 #522966[url=http://servefir.ruv.is/dagskra/streaming/popup/ras2/?file=4230584/7:1fojl2uk]hér[/url:1fojl2uk]
eða
http://servefir.ruv.is/dagskra/streamin … =4230584/7
-haffi
30.06.2005 at 11:58 #524574Og ég sem er með bílinn bremsulausan á búkkum!
-haffi
28.06.2005 at 11:06 #524210Gætir prufað að skoða framnaf á Ford superduty bíl sem er með svona imba-4×4. Lokurnar í þeim eru vakúmstýrðar sem hlýtur að vera mjög svipuð lausn og það sem menn eru að gera fyrir úrhleypibúnað. Leiðinlegur aukafídus þegar vakúmið er notað er að þetta tekur sjálfkrafa inn á sig vatn og þarf helst að hreinsa þetta og smyrja 2svar á ári (þeir sem nota þetta bara innanbæjar þurfa því ekki að hafa miklar áhyggjur). Þetta er reynslan af 99 módeli af SD, kannski hefur þetta verið lagað.
-haffi
25.06.2005 at 01:17 #524236Það hlaut að vera að þetta væri eitthvað á vél notandans. Þetta er ekkert sem vefnefnd ætti strangt til tekið að breyta, en gæti gert það. Þetta forrit sem þú ert með er heimskt, að taka linkinn út bara af því hann er með /ads/ í slóðinni. Þetta er fáránlegt af hugbúnaðinum.
"Lausnin" fyrir vefnefndina væri að færa smáauglýsingarnar úr /ads/ yfir í t.d. /augl/.
Mér finnst að menn ættu að sjá sóma sinn í að biðja vefnefndina afsökunar á þessu. Þetta var ekkert kerfinu að kenna.
Og hananú.
-haffi
23.06.2005 at 16:06 #524206Hvernig er með þennan búnað, þegar hann er felldur inn i naf/öxul/whatever. Er hægt að fullpumpa dekk með þessu, 20-25pund eða hvað?
-haffi
23.06.2005 at 13:27 #524446Jamm ég veit að 2.12 telur upp hluti sem ekki er tryggt.
En þó stendur eftir að aukagreinin er effektíft utanvegakaskó.
-haffi
23.06.2005 at 13:22 #524442Svona er textinn, ég skil þetta þannig að þetta sé utanvegakaskó.
[b:3rzvom9u]2.12.[/b:3rzvom9u]
Þegar ökutækinu er ekið þar sem
akstur er óheimill vegna opinberra
fyrirmæla, svo og við akstur á ís, yfir
óbrúaðar ár eða læki, um fjörur,
forvaða eða aðrar vegleysur. Þó bætist
tjón sem verða kann þegar ökumaður
hefur neyðst til að fara út af akbraut,
t.d. vegna viðgerða á henni.[b:3rzvom9u]Sérákvæði um akstur utan vegar:[/b:3rzvom9u]
[i:3rzvom9u][b:3rzvom9u]Vátryggingin tekur þó til [/b:3rzvom9u][/i:3rzvom9u]aksturs
dráttarvéla, fjórhjóla eða snjósleða á
snjósköflum, um fjörur eða aðrar
vegleysur.
[i:3rzvom9u][b:3rzvom9u]Jafnframt tekur vátryggingin til [/b:3rzvom9u][/i:3rzvom9u]aksturs
sérútbúinna jeppa og/eða torfærubifreiða
sem aka annars staðar en á
vegum landsins, svo sem um tún eða
engi, á snjósköflum á ís, yfir óbrúaðar
ár eða læki, um fjörur, forvaða,
vegatroðninga og/eða aðrar vegleysur.
Undanskilin eru tjón sem verða við að
vatn flæðir inn í hið vátryggða
ökutæki.
23.06.2005 at 10:23 #524434Utanvegakaskóið er inni í kaskópakkanum mínum hjá sjóvá. Sjá viðauka við grein 2.12 í skilmálum:
[url=http://www.sjova.is/files/2005_3_9_Kask%F3trygging%20skilm%E1li%20040205.pdf:1jo90tt5]hér[/url:1jo90tt5]
NB: ég hef ekki borið skilmálana saman við það sem býðst hjá hinum.
-haffi
22.06.2005 at 21:05 #524416Er nýbúinn að flytja tryggingarnar, lét TM og sjóvá gera mér tilboð í allt. Sjóvá bauð betur. Talaði ekki við vís.
Þetta er 42+18, lögboðin + nýkaskó (hvað sem það nú er). Þetta er með stofnafslætti (vegna heidarpakkans), tjónleysisafslætti og "endurgreiðslu" sem ég fæ væntanlega að ári.
Er ekki með utanvegakaskó, spáði ekkert í það.
-haffi
21.06.2005 at 00:07 #524344M.v. að það er bara 61 búinn að kjósa þegar þetta er ritað þá er nú voða lítið að marka þetta, reyndar svona vefkannanir yfirhöfuð sbr. eurivision ofl.
-haffi
16.06.2005 at 00:08 #524040Vildi bara fylgja þessu eftir með viftuspaðakúplinguna, að hún er greinilega að skipta máli. Hún virðist reyndar vera alltaf vera að "taka" (ég heyri í henni núna en heyrði ekki áður) þ.a. hún er að snúast óþarflega mikið þegar hann er kaldur. Það er þó skárra en hitt, að hún sé ekki að taka þegar hún á að gera það (þegar vatnshitinn eykst).
-haffi
15.06.2005 at 09:56 #524138Sælir, er það sem kallað er galvanisering það sama og zink húðun?
-haffi
14.06.2005 at 23:13 #524132Hvað eru menn að taka fyrir að blása 4 felgur? Er þetta ekki gert bæði innan (bremsumegin) og utan á?
-haffi
13.06.2005 at 22:45 #524026Jæja, 107mm skv. skífumáli. Hlýtur ekki að vera búið að renna þetta? Jæja, ég verð bara að ná mér í dótafelgu (toy) og máta.
Þakka þér aftur fyrir, og úr því ég er að þá langar mig að spyrja þig hvar maður gæti fengið vituspaðakúplingu annarstaðar en í umboðinu? Hún kostar litlar 32þ krónur þar og ég var að skoða mína og hún virðist ekki vera serviceable, það er hún er algerlega lokuð. Mér tókst þó að liðka upp á gangverkið (gorminn og öxulinn) þ.a. nú heyri ég í henni, og svei mér þá ef ég sé ekki mun á hitamælinum.
-haffi
13.06.2005 at 20:06 #524022Þetta er akkúrrat það sem ég þurfti að vita. Kærar þakkir.
Þurfti að taka öxulin alveg úr, þeas að pressa leguna af og allt það?
Farinn út að mæla!
-haffi
-
AuthorReplies