Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.08.2009 at 22:01 #654668
Þetta telst ekki Y60 myndi ég halda, frekar 260. Eitthvað var um að síðustu árgerðir (90-92) þessara bíla (260) voru sumstaðar með RD28T þ.e. 2.8 vélina sem er hvað algengust í patrol Y60 hér á landi. Millikassi, fjöðrun og hásingar eiga lítið skylt, kannski gírkassi.
Veistu hvað vél er í þessum bíl sem þú ert að spá í?
Annars er mismunandi hvað var selt hvar. Y60 með 4.2D kom 1988 í ástralíu en eldraboddíið var selt með 2.8 í bretlandi allt til 1992.
-haffi
18.08.2009 at 21:18 #651870Óli, er loftnetskapallinn fyrir vhf stöðina "of langur", þ.e. slakki upprúllaður bak við stöðina/í mælaborðinu? Held að það sé ekki heppilegt.
Ef þú gúgglar "gps vhf interference" koma upp ýmsar tilgátur, en svosem ekkert concrete. T.d. ekki láta kapla tækjanna liggja saman.
Er ekki bara málið að láta fagmann eins og Sigga Harðar kíkja á þetta?
-haffi
ps. farðu varlega með vhf stöðina án loftnets, getur skemmst ef ovart er sent þannig.
18.08.2009 at 08:56 #652242Sæll Magnús, þetta hefur gerst einu sinni áður, þ.e. smámyndir eru svartar og stærri myndirnar eins og þær séu negatívar. Geturðu sent eina orginal mynd á vefnefnd? Einnig myndi hjálpa að vita hvaða myndaforrit þú ért með og hvaða upload aðferð þú notaðir.
-haffi
17.08.2009 at 15:59 #654244Annað, ef þú ert göngugarpur og spáin er góð mæli ég með að ganga á Kaldbak. Ef þú ert á jeppa geturðu stytt göngutímann verulega með því að keyra að skarðinu innst í Fossdal og hefja gönguna þar. Reyndar líka hægt að koma norðan megin frá, man ekki í augnablikinu hvað sá dalur heitir.
-haffi
17.08.2009 at 13:00 #654238Það var grein í helgarblaði Fréttablaðsins (15. ágúst) sem taldi einmitt upp nokkrar áhugaverðar laugar fyrir vestan.
-haffi
16.08.2009 at 15:46 #642892Væri líka fróðlegt að vita hvort þú sért með xp/vista/w7
-haffi
16.08.2009 at 15:19 #642890Gerist þetta þegar þú velur "Upload Applet" ? Ef svo er þá skaltu reyna að setja java runtime inn upp á nýtt.
-haffi
16.08.2009 at 13:02 #642886Sæll, hvað áttu við með að hann slái út?
-haffi (vefnefnd)
14.08.2009 at 08:27 #651862Prófaðu að slökkva á öllum "marine" fídusum í tækinu sem þú ert ekki að nota. Bara skot út í loftið.
-haffi
11.08.2009 at 18:29 #652238Sæll Haffi,
Það er hlekkur merktur Hjálp í myndasafninu sem vísar á myndasafn sem sýnir í skrefum hvernig á að bæta við myndum eða myndasöfnum. Þessar leiðbeiningar eru á íslensku.
Í myndaalbúmið [b:1jru0ok6]eiga ekki [/b:1jru0ok6]að fara auglýsingamyndir. Notast skal við attachment fídusin í auglýsingunni sjálfri.
Ég ætti að geta sett inn gömlu myndasöfnin þín aftur, sendu línu á vefnefnd (hjá) f4x4.is ef þú vilt að það sé gert.
-haffi
07.08.2009 at 21:02 #653532Núna er hægt að setja YouTube myndbönd inn á spjallið:
[youtube:154axrut]http://www.youtube.com/watch?v=LfsI42x4eRc[/youtube:154axrut]
-haffi
04.08.2009 at 10:12 #653012Ef þú tengir framhjá færðu of mikið bremsuafl að aftan. Ég prófaði einu sinni að gera þetta á 4Runner og í bleytu innanbæjar læsti hann að aftan ef hraustlega var hemlað.
Þrennt dettur mér í hug að geti valdið of litlu bremsuafli hjá þér:
– Þegar bíllinn var hækkaður hefur afstaða armsins etv. ekki verið leiðrétt til samræmi, þ.e. bremsukerfið "heldur" að bíllinn sé alltaf óhlaðinn.
– Ventillinn sé fastur, bara taka úr og rífa í sundur og liðka upp og hreinsa svo vel að innan áður en aftur tengt.
– Nú eða að það sé loft á kerfinu.
-haffi
03.08.2009 at 11:53 #652962Ég hugsa að þetta sé rétt túlkun hjá þér. Ég myndi samt byrja á því að hreinsa upp öll plögg og kanna hvort vírkápur séu lélegar áður en skipt er um.
Hér kemur önnur mynd sem sýnir hvernig einstaka vír tengist mælaborðs-unitinu sjálfu.
-haffi
03.08.2009 at 01:13 #652958Sæll, tékkaðu á þessu viðhengi (vistaðu skrána og skoðaðu hana í fullri stærð). Hraðamælirinn er með tengi nr. 19 og 25 sem mér sýnist tengjast vírum lituðum SB og GY. Ég er ekki 100% á hvað það þýðir en skýt á SB = svartur og GY = grár. Þetta fer áfram í plögg sem er ofarlega farþegamegin á gírkassanum (plögg 16E og 321E á myndinni) og endar svo á millikassanum. Ætti að vera auðvelt að rekja. Jafnvel auðveldast að fara öfuga leið, þ.e. frá millikassa.
-haffi
01.08.2009 at 13:42 #652802Ahugaðu að stöðvarnar sem þú ert að spá í, merktar H eru með helmingi hærri sendistyrk heldur en sú sem seld er hér, og ekki merkt H. Spurning hvort það sé brot á lögum/reglugerð og þal. gætu aðilar sem forrita stöðvarnar hugsanlega neitað þér um það. Bara pæing.
-haffi
29.07.2009 at 23:30 #652788Hvaða framleiðandi og týpa?
-haffi
29.07.2009 at 21:59 #652772Myndi athuga allar hosur milli túrbínu/intercooler/soggreinar. Held að þetta tölvustýrða dót minnki olíumagnið ef blásturinn á móti er ekki nægur. Líka möguleiki að waste-gate ventill pústmegin í túrbínu sé fastur opinn.
-haffi
28.07.2009 at 15:33 #652616Hægt er að leita í gömlu og nýju efni í spjalli og myndasafni nú þegar:
[url=http://www.f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=228&jfile=search.php:1sduebrm]Leit í Spjalli[/url:1sduebrm]
[url=http://www.f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=235&g2_view=search.SearchScan:1sduebrm]Leit í Myndasafni[/url:1sduebrm]
-haffi
28.07.2009 at 09:31 #652234Sæll Grímur, gott mál. Ég hvet þig samt til að nota 1280 sem viðmiðunarstærð í stað 640 þar sem 1280 er "standard" stærðin sem við höfum valið. Minni myndir koma illa út í slideshow-inu.
Annað, F-Spot (myndaforrit sem kemur með ubuntu) á að styðja export í G2. Ég prófa það í kvöld.
-haffi
27.07.2009 at 22:05 #652230Menn taka væntanlega eftir því að vefurinn er hægur á kvöldin. Held ég hafi einangrað þetta við myndakubbana á forsíðunni. Ef ég slekk á þeim er síðan mun sprækari. Á meðan ég er að finna út úr þessu er samt hægt að fara í myndaalbúmið og velja þar flakk eða nýjast.
-haffi
-
AuthorReplies