Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
03.10.2005 at 10:01 #528380
Líka hægt að nota tækið sem millilendingu, þá þarf engan konverter.
-haffi
02.10.2005 at 19:25 #528296Segðu nú frá, það er tilgangurinn með þessu spjalli m.a.
-haffi
30.09.2005 at 10:55 #196359http://www.rs.is/sidur/vara.php?vara_id=143
„Sends, receives, and displays positioning data with DSC-equipped VHF radios „
Hvernig notar maður gps með vhf?
-haffi
28.09.2005 at 22:43 #528228Eina lausnin er að gera eins og margir "opinberir" vefir gera (heimabankar, orkuveitan, lífeyrisjóðir). Þú sækir um með kennitölu og færð bréf (pappír) í pósti með notandanafni og lykilorði sent á heimil þeirrar kennitölu skv. þjóðskrá.
-haffi
27.09.2005 at 16:18 #196339Það er kominn tími á nýjan link, til að hafa við hlið ‘Tenglar’ og ‘Afslættir’.
Þessi linkur ætti að heita ‘Hjálp’ og fjalla meðal annars hvernig á að setja inn myndir og annað tengt þeim.
-haffi
27.09.2005 at 09:52 #196334Ég komst að því að ARB læsing í patrol framhásingu er sama læsing og er notuð að aftan í Pathfinder V6. Hún heitir RD09.
-haffi
26.09.2005 at 10:46 #196322Stutt spurning:
Hvað þarf maður að gera til að geta verið með útskiptanlegar fóðringar á þverstífunum í Patrol? Hef heyrt að menn setji landcruiser fóðringar í staðinn, en hvað þarft til? Ný augu? Er sama boltaþvermál?
-haffi
24.09.2005 at 00:12 #527528Þú talar um þar til gerða vél.
Ég hef séð í verkfæralagernum einhvers konar snúnings-púða-eitthvað. Veit ekki hvað þær snúast hratt.
Eru þessar vélar ætlaðar í þetta?
Hvað er annars hjámiðjutæki?
-haffi
23.09.2005 at 23:38 #196308Þýsk mynd á rúv, sem gerist á Íslandi. Og hver er í aðalhlutverk?
NISSAN PATROL
-haffi
23.09.2005 at 23:28 #527522Einhver hvíslaði því að mér að maður eigi að nota vatn með massanum, hvernig geriri maður það?
Og fleiri spurningar. Nú er þetta patrol sem um ræðir og á toppnum er svona mynstur eða rendur eftir endilöngu þakinu, væntanlega til að styrkja það. Er þorandi að fara með verkfæri á þær brúnir? Ég er ekki að tala um rennurnar á hliðunum heldur á þakinu sjálfu.
-haffi
23.09.2005 at 16:30 #527508Ok, en nú þarf ég að velja, því það er nú þegar gat aftarlega á toppnum og þar verður annað hvort VHFið eða NMT. Hvort þeirra þarf meira á betri endurspeglun að halda.
-haffi
23.09.2005 at 16:20 #526552[url=http://www.allprooffroad.com/index.php?option=content&task=view&id=19:2aniojov]spacers (linkur)[/url:2aniojov]
23.09.2005 at 14:20 #196303Toppurinn á jeppanum er orðinn soldið aflitaður. Hvernig er best að fríska upp á hann? Get ég „massað“ hann? Hvernig gerir maður það?
-haffi
23.09.2005 at 11:33 #196301Nú er meiningin að bæta við loftnetum og langar mig til að fá smá ráð. Er núna með NMT aftarlega á toppnum og ætla að bæta við svona 3-in-one fæti eins og RSH og fleiri selja fyrir VHF og GPS. Spurningarnar eru því:
Hvort á ég að hafa VHF á miðjum toppnum eða NMT? Skiptir nokkru máli hvar GPS loftnetið er, svo lengi sem það er ekki hulið? (stendur ekki til að fá sér tengdamömmubox)
Pælingin er því núna:
VHF/GPS á miðju þaki og NMT áfram aftarlega.
Er þetta kannski bara fínt?
-haffi
21.09.2005 at 18:18 #527330Berðu þau bara saman sjálfur [url=http://www.garmin.com/marine/compare.jsp:1sorvlv3]hér[/url:1sorvlv3]
-haffi
18.09.2005 at 23:17 #527112Hvað er hann á stórum dekkjum?
-haffi
15.09.2005 at 23:01 #196261Jæja, hvernig er reynslan orðin með þessi dekk. Er þorandi að hafa þetta á 14″ breiðum felgum? Hvað eru þau margra strigalaga? Henta þau sem vetrardekk og mikilla úrhleypinga?
-haffi
15.09.2005 at 12:02 #526788Ætli rafmagnsrúðurnar séu glussadrifnar? Glussarúður?
-haffi
14.09.2005 at 21:35 #526672Mér finnst að maður eigi bara að geta breytt spjallfærslu innan ákveðins tíma, kannski 1klst. Annars getur maður bara farið yfir allt sem maður hefur sagt og tekið út það sem að hefur kannski komið í ljós að er vitleysa.
-haffi
13.09.2005 at 09:30 #526572(las hana ekki alveg alla) en ég skildi hana þannig að, höfundurinn vilji meina að vegna þess að svo mikið af þessum lægri hlutföllum eru sett í af misjafnlega færum aðilum eru þeirra vinnubrögð búin að koma óorði á þessi lægri hlutföll.
Betri samanburður væri að mínu mati hlutfall sem er álíka algengt frá verksmiðju og í eftir-á-ísetningu, kannski 4.56 og skoða svo bilanatíðni. Ef hún er meiri hjá þeim sem létu lækka eftirá þá er eitthvað til í þessu hjá greinarhöfundi.
Ekki það að ég sé að segja að 5.71 sé jafnsterkt og 4.10
-haffi
-
AuthorReplies