Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.01.2006 at 11:37 #539006
Ertu búinn að prófa að tala við þá í Bílabúð Benna? Reyndar er þessi bíll sennilega eldri en þeir hafa selt en þeir gætu vitað eitthvað um varahluti. Annars er nánast ekkert um þennan bíl á netinu. Gætir prófað að senda fyrirspurnir til Ssangyong umboðsaðila í UK eða annarsstaðar. Hér er t.d. umboð í ástralíu sem virðist vera með varahlutalager:
http://www.stewartwebster.com.au/Parts.asp
-haffi
ps. Ekki það að þú eigir að panta þaðan, en þeir gætu kannski sagt þér á hvaða bíl (og árgerð) þinn er byggður. 89 Family þarf ekki að vera 89 Trooper, frekar eldri Trooper. Svipað og Galloper er nánast alveg eins og eldri gerð af Pajero.
14.01.2006 at 02:29 #538856Keypti lokur í Fjallabílum/StálOgStansar og þar var mér sagt að nota ekki feiti, heldur smurolíu.
-haffi
13.01.2006 at 13:54 #538894Það er hollt að lesa eftirfarandi bleðil um geyma:
https://old.f4x4.is/bokasafn/Taekni/Rafgeymar.pdf
Þetta er ennþá aðgengilegt af gamla bókasafninu:
Annars verslaði ég geymi hjá Rafgeymasölunni í Hafnarfirði (sama húsi og Bílanau$t) fékk ca 100Ah geymi á tæplega 13þ með 4×4 afslætti.
-haffi
ps. mælieiningin heitir amperstundir (Ah)
12.01.2006 at 23:26 #5387561 bar = 14.503773801 pound/square inch [absolute]
http://www.onlineconversion.com/pressure.htm
-haffi
12.01.2006 at 11:50 #538468Mig minnir að hleðsluspenna út af alternator eigi að vera rúmlega 14V (jafnvel 14,7). Mældu hana og svo á geymum líka. Gerðu þessar mælingar með bílinn í gangi. Ef hún er miklu minni á geymum er trúlega eitthvað að tengingum milli alternators og geyma. Yfirfara geymasambönd og jarðsambönd.
Kannski er útleiðsla í aukarafkerfinu. Prófaðu að taka öll öryggi fyrir aukabúnað úr og vitt hvort hleðsla haldist betur. Getur svo sett inn eitt og eitt tæki (hafðu slökkt á þeim) og notað peru aðferðina til að sjá hvort eitthvert þeirra leiðir út.
Ef engin niðurstaða fæst út úr þessu er best að fara í Rafstillingu. Dugguvogi 23, 104 Reykjavík
Gangi þér vel.
-haffi
11.01.2006 at 15:30 #538486Mætti ég leggja til að menn breyttu skránni í PDF í stað .doc, þá geta fleiri lesið hana.
-haffi
10.01.2006 at 23:12 #538052Hérna er 4-dyra sidekick:
http://www.off-road.com/suzuki/sidekick/sidespec.htm
"Exterior Dimensions" neðarlega.
-haffi
09.01.2006 at 17:36 #538372Svo er líka hægt að gera þetta handvirkt.
Tjakka upp annað dekkið, setja í hlutlausan og setja smá merki á drifskaftið. Fá einhvern til að snúa dekkinu 20 hringi á meðan þú telur hringina sem skaptið fer. Ef það fer ca. 46 hringi ertu með 4.625:1, ef það fer ca 51 ertu með 5.13:1, ef það fer ca. 54 þá ertu með 5.42:1
Ef þú ert með læsingu geturðu sett hana á og tjakkað bæði afturhjólin upp og sloppið með 10 snúninga á dekki.
-haffi
07.01.2006 at 00:23 #538072Hér eru breytingum á Explorer gerð ágætis skil:
https://old.f4x4.is/new/photoalbum/?file=oldsite/386
-haffi
06.01.2006 at 22:36 #538094Farðu bara á hraðlestrarnámskeið. Annars er lítið annað að gera í þessu veðri….
-haffi
06.01.2006 at 14:12 #538092Á eftirfarandi síðu er linkur á svipaða grein og umræða:
[u:2dg6g87q][url=http://science.slashdot.org/article.pl?sid=06/01/05/0114254&tid=99&tid=14:2dg6g87q]hér[/url:2dg6g87q][/u:2dg6g87q]
-haffi
05.01.2006 at 17:00 #537994Ef þú ert búinn að útiloka hedd og heddpakkningu (hvorki olía né loftbólur í kælivatni) þá myndi ég þreifa á vatnskassanum. Taktu annað hvort plasthlífina sem umlykur kassann eða viftuspaðann af og skoðaðu kassann vel. Ef þynnurnar molna auðveldlega er engin kæling í þeim, settu nýjan kassa. Þú færð hann á góðu verði í Gretti og Stjörnublikk, þeir taka gamla upp í.
-haffi
05.01.2006 at 13:51 #537934Hvernig kemur Hiclone meiri hreyfingu á loftið?
Einhvern vegin efast ég að sú aukna "hreyfing" skili sér inn á öll brunahólf þegar loftrásin splittast upp í soggrein.
Ég endurtek það sem einhver nefndi, "mælingin" er ekki marktæk nema viðkomandi viti ekki að búið er að setja þetta í bílinn hjá honum.
-haffi (baaaaahumbug!)
03.01.2006 at 21:17 #537766Ég held að þessi síða fjalli um eldra módelið.
http://www.patrol4x4.com/forum/t120-mqm … bible.html
-haffi
02.01.2006 at 21:41 #19696427.12.2005 at 20:32 #537270Hér er eitthvað
http://www.binderbulletin.org/faq/5.htm#10
reyndar um Scout II en ekki Traveler. Annars myndi ég gúgla:"scout traveler wiring"
eða
"scout traveler diagram"-haffi
27.12.2005 at 19:39 #537266Held að þetta sé síðan:
http://www.autogauge.com.tw/
Ég get hvergi fundið hraðamæla þarna, en nánast allt annað.-haffi
26.12.2005 at 13:34 #537030Sæll, nú virðist kúlan vera fyrir miðju að aftan. Er kannski verið að skipta út vél og kössum?
Þetta verða vænir kanntar sem fara á hann
-haffi
19.12.2005 at 10:31 #536570Það eru ótal staðir að selja verkfærasett hér heima á fínum verðum. Tekur því að vera að panta þetta að utan?
-haffi
19.12.2005 at 09:40 #536244Persónulega myndi ég ekki fá mér svona kit heldur henda klofhásingunni og setja D44 undan eldri bronco. Ef ég væri að fá mér svona hák þeas.
Galli við þessa hásingu finnst mér vera að ef fjöðrun sígur þá halla dekkin sem hlýtur að misslíta þeim.
Ef ég væri að velja þá myndi ég frekar taka grandinn, hann er tilbúinn með heila hásingu að framan, gormum að aftan og er léttari.
-haffi
-
AuthorReplies