Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
30.04.2007 at 22:01 #589666
Eru ekki til keflablásara kit á þessar vélar?
-haffi
29.04.2007 at 23:08 #589702Hvur fjandinn eru breiddarljós? Aðalljós?
-haffi (fattlausi)
27.04.2007 at 18:44 #589514Ég var að spá þessu og það sem mér datt í hug var að nota ægisgir milli patrolmillikassans og toyota girkassans. Hefur ægisgír ekki annars verið settur í LC80? Allavega hefur hann verið settur i patrol. En það kostar náttlega…
-haffi
26.04.2007 at 20:09 #589470Þetta er eins og "pimpaður" hestvagn. Vantar bara playstation og bassakeilur. Húmor líka að nota portal hásingar, það skiptir öllu.
-haffi
26.04.2007 at 09:19 #589384Í nótt var framkvæmd keyrsla og voru smámyndir/thumbnails búin til á allt myndasafnið og í betri gæðum en verið hefur hingað til. Til fróðleiks þá telur safnið um 30 þúsund myndir.
-haffi
26.04.2007 at 09:14 #589452Ég myndi byrja að athuga hvort allar hosur og slöngur séu þéttar. Það kom gat á litlu slönguna yfir í olíuverkið hjá mér við að nuddast utan í eitthvað.
-haffi
25.04.2007 at 21:24 #589378Fyndnast af öllu er að einn minnsti flokkur landsins skuli stjórna einu stærsta fyrirtæki landsins….
-haffi
25.04.2007 at 00:32 #589382Komið. Myndir settar inn eftir breytingu verða ekki eins grófar við minnkunina.
-haffi (vefnefnd)
25.04.2007 at 00:22 #200191Varúð smá uppfærsla á vefnum, tekur nokkrar mínútur.
-haffi
23.04.2007 at 12:48 #589118Ættir að geta notað plastskinnur sem fást tam. í byko breiddinni.
-haffi
20.04.2007 at 17:59 #588890Eins og þetta er núna þá hafa menn klukkutíma til að leiðrétta. Ef það dugir ekki þá geta menn bara sett inn nýtt svar með leiðréttingum.
-haffi
19.04.2007 at 23:13 #588846Ef þú sérð engan leka við vatnsdælu eða neinstaðar á vél þá er líklegasta að þetta sé að fara út með pústinu, sem bendir til heddpakkningar eða heddið sjálft. Eitthvert fer vatnið.
-haffi
17.04.2007 at 10:34 #588628Er þessi patti ekki málið í krapa nútímans? Hafa bara vélina og drifbúnað niðri líka og laaaangt snorkel. Nóg tankapláss. Gæti bara verið á orginal pizzuskerunum líka.
-haffi
15.04.2007 at 21:00 #587636Er það bara ég eða var akstursleiðin í þessu innslagi ekki alger þvæla? Mér fannst hann ýmist vera austan megin, vestan megin, meðfram þjóðveginum…
-haffi
04.04.2007 at 17:42 #587236Hér sérðu membruna. Hún tengist armi sem opnar ventilinn (inni í pústkuðungnum) þegar ákveðnu bústi er náð. Bústið skynjar membran með því að vera tengd við blásturs/compressor kuðunginn. Það virðist ýmist hvort framleiðendur setja T á slönguna (til að fá bústskynjun á olíuverk) eða að það séu hreinlega tveir nipplar á kuðungnum. Annars mæli ég með að þú lesir um túrbínur á http://www.howstuffworks.com og http://www.wikipedia.org.
-haffi
[img:e4en6am3]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/3943/26409.jpg[/img:e4en6am3]
04.04.2007 at 17:12 #587232Ef þú tengir boost membruna á olíuverkinu eftir intercooler þá þarftu bara að tengja wastegate membruna á bínunni beint við nippilinn á blásturskuðungnum.
-haffi
04.04.2007 at 14:43 #587244[i:ueh5176f]"Years of the calipers are 79-85 Monte Carlo or Cadilac Eldorado, front or rear depending on if you need the e-brake or not."[/i:ueh5176f]
Sjá rétt fyrir neðan miðju [b:ueh5176f][u:ueh5176f][url=http://www.sky-manufacturing.com/suspension2.htm:ueh5176f]hér[/url:ueh5176f][/u:ueh5176f][/b:ueh5176f].
og meira [b:ueh5176f][u:ueh5176f][url=http://www.mindspring.com/~jayk3/toyota/discs.htm:ueh5176f]hér[/url:ueh5176f][/u:ueh5176f][/b:ueh5176f].
-haffi
04.04.2007 at 14:36 #587242Hvernig er þetta að aftan í 90 cruiser? væri etv. hægt að nota það?
-haffi (bara að spöglera, á "föstudegi")
03.04.2007 at 21:20 #586982Af því að Toyoturnar eru léttar og nettar og Lettarnir eru þungir og… ja… klunnalegir.
-haffi
03.04.2007 at 00:25 #200056Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á vefsíðunni.
Forsíða:
- Handahófsmynd birtir ekki lengur bara fyrstu mynd úr safni og birtir ekki lengur myndir sem búið er að fjarlægja/fela
- Könnunin færð á hægri hluta síðunnar
- Bætt við auglýsingaplássi í miðju síðunnar
Myndaalbúm:
- „Nýjustu myndir“ birtir ekki lengur faldar myndir eða albúm
- Allar smámyndir nú 100px, Handahófsmynd 150px
- Flettistýringar komnar upp á fastan stað, eru einnig fyrir neðan mynd eins og áður en þó fyrir ofan myndatexta til að halda á sama stað óháð myndatexta
- Albúmtexti nú bara á yfirlitssíðu albúms, ekki með hverri mynd.
- Lítilsháttar breytingar ætlaðar til að bæta performance (kemur í ljós hvort þær hafi áhrif) og fleiri á leiðinni.
Vinsamlegast látið vefnefnd vita af hvers kyns vandamálum tengdum þessari uppfærslu.
-haffi
-
AuthorReplies