You are here: Home / Haraldur Daddi Bjarnason
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Takk fyrir þetta strákar, afsakið sein svör en ég hef, sem betur fer kannski, verið á kafi í vinnu og ekki gefið mér tíma í svona skemmtilegheit
ég hringi í ykkur báða í vikunni, ég held að þessi hlutföll dugi mér alveg meðan ég fer ekki í stærra en ca 38.
Hann er ekkert skelfilega hágíraður eins og er, en veit ekki hvað er í honum en held það sé orginal.
takk takk
Daddi
899 0410
Góðan daginn,
ég er að þrjóskast við að halda gangandi háþekju Patrol, me 4,2 bensín mótorinn. Snilldarmótor reyndar.
En, hurðirnar eru frekar þreyttar, sérstaklega hægri framhurð. Veit einhver um gamlan í varahluti?
Eins held ég að það væri gott að skipta út gormunum en þetta er 38 breyttur bíll.
Hlutföll væru vel þegin líka :)) og hitt og þetta reyndar. Miðstöðvar stillimótstaðan.
Tími ekki að henda honum svona á þessum síðustu og verstu, gott að eiga eitthvað skuldlaust…..
takk fyrir
Daddi Bjarna
899 0410
Takk fyrir allir,
þetta mun ganga hjá mér með þessum upplýsingum frá ykkur, og ef Jói sem sendi mér SMS í gær sér þetta, má hann gjarnan senda mér aftur…. síminn minn tók nefnilega upp á því að hrynja í morgun
takk
Daddi
Góðan daginn,
ég er að þrjóskast við að halda þessum snilldar bíl gangandi, nú er kúplingin farin og kostar víst rétt tæp 100.000,- hjá IH. Fæ reyndar afslátt þar, en,,,, vita menn um aðrar lausnir, notaðar eða kúplingar úr öðrum Patrolum sem kannski passa. Þessi er víst frekar spes þar sem þetta er bensín mótor.
takk fyrir
Daddi Bjarna
899 0410