Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
16.02.2007 at 10:29 #580650
Sælir.
Ég á við nákvæmlega sama vandamál að stríða.
Búinn að prófa allt, Skola út, vatnslás, nægt vatn, loki í fínu lagi, opnast og lokast eðlilega, búinn að færa hann meira að segja niður, tappa af lofti (var reyndar aðeins skárri eftir það)
Miðstöðin afturí er það eina sem heldur lífi á fólki í bílnum,
En alltaf kemur ilvolgt úr mistöðinni frammí sérstaklega til hliðana (á hliðarrúðunar) hvergi annarstaðar.
Eina sem Toyota segir er að skipta um element og það kostar heila hendi og mikið mál að skipta því út :SEn það væri gaman ef eitthver á gullkorn til þess laga þetta þá væri ég (og konan sérstaklega) afskaplega ánægður
mbk
Dagbjartur
31.01.2007 at 18:26 #578278Sælir
bara svona til upplýsinga þá fór ég með gang af stálfelgum 12" breiðum og lét Vírnet i Borgarnesi Galvanisera þær, þær voru reyndar málaðar, en ekki mikið ryðgaðar. Þar sögðu menn að það væri bara pjatt að sandblása, enda verða þær mjög hamraðar fyrir vikið.
Þeir brendu bara lakkið/málinguna af þeim, og svo ó sýruþvott.
þær komu mjög fínt út frá þeim, (svosem ekkert fallegar, en koma ekki til með að ryðga neitt í bráð.)
Kostaði ekki mikið, minnir að ég hafi borgað rétt rúmar 7þ kr fyrir verkið. nokkuð sáttur bara.
mbk
Dagbjartur
29.01.2007 at 22:22 #577946Takk fyrir þetta
ég prófa þetta, var reyndar búinn að smella heitu vatni með smá krafti, en ekki miklum í gegnum hvalbakin.
Eitthver var búinn að nefna matarsóta? eru eitthverjar líkur á því að skemma eitthvað með matarsóta?
mbk
Dagbjartur
29.01.2007 at 21:44 #199530Góða kveldið
Ég er með hvimleitt vandamál í LC90
Málið er að mistöðin framí hitnar sama og ekkert.
Bíllin er talsvert upphækkaður á Boddy c.a. 9cm.Grunaði fyrst að það væri loft inni á kerfinu, sem og var, en við að tappa því af þá hitnaði aðeins meira en ekki nógu mikið.
Bíllinn hitnar mjög vel (miðstöð afturí virkar mjög vel) Búið að skipta um vatnslás.
Einhverjar hugmyndir? ég veit að menn hafa verið að skipta um Hitaelement en það kostar helling og er talsvert mál að komast í, er eitthver auðveldari leið? gæti elementið verið stíflað? er hægt að hreinsa það? spyr sá sem ekkert veit
Mbk
Dagbjartur
11.01.2007 at 14:20 #575006Sælir
Stilling er með nákæmlega eins kastara og þessa Britax kastara frá Bílasmiðnum (var ekki búinn að sjá þessa hjá Bílasmiðnum fyrr en eftir að ég keypti þessa)
Keypti mér svoleiðis, og þeir koma mjög vel út, fantafín birta afþeim, líta nokkuð gæðalega út bara.
Keypti líka hjá þeim vinnuljós (eru reyndar kastarar en ofsalega litlir) sem ég setti á toppbogana mjög lítil og nett (skemmir ekki fyrir að þau voru ódýr, c.a. 5700 parið minnir mig)
mbk
Dagbjartur
03.01.2007 at 08:46 #573222Sælir.
Skjárinn er 10,4" og er mjög fín stærð.
Hann getur sýnt 1024×768 en er 800×600 "native" Mér fannst hann vera bestur í 800×600 þá sér maður vel á t.d. Garmin kortið góða
Hann kostaði eitthvað í kringum 30 hingað kominn, man ekki nákvæmlega. það er hægt að reikna þetta þannig,
Ebay verð + flutningur* Dollari * 1,1 * 1,245 = nokkuð nærri lagi verð
Það er 10% Vörugjald af svona skjámath. flutningur er oft dýrari en kemur fram í uppboði, ég hef haft það fyrir venju þegar ég býð í eitthvað á ebay að spyrja fyrst um sendingarkostnað til Íslands
Tablet vélin sem ég er með er með c.a. 12" skjá, (það er feikinóg) Ég er með tengt við hana lyklaborð þar sem mér hefur reynst lílla að nota OnScreen Keyboard þegar maður er að jeppast eitthvað.
mbk
Dagbjartur
02.01.2007 at 22:24 #573214Sælir
Ég keypti svona fyrir skömmu síðan á [url=http://cgi.ebay.com/10-4-TFT-LCD-Touch-Screen-Monitor-for-Car-PC-POS-A5_W0QQitemZ280064170393QQihZ018QQcategoryZ48609QQssPageNameZWDVWQQrdZ1QQcmdZViewItem:1a5rgjic][b:1a5rgjic]Ebay[/b:1a5rgjic][/url:1a5rgjic]
kom bara nokkuð vel út,
Ég myndi segja að hann mætti ekki vera minni og lámark 800×600 í upplausn.Reyndar er ég sjálfur með Tablet [img:1a5rgjic]http://images-eu.amazon.com/images/P/B000A3GS5I.03.PT02.LZZZZZZZ.jpg[/img:1a5rgjic]
og kemur hún ekkert smá flott út.
Ég þarf að skella inn mynd af henni í bílnum á albúmkv
Dagbjartur
30.12.2006 at 18:25 #573052Detta nú mér allar dauðar lýs.
er þetta nýársheitið?
kv
Dabbi
-
AuthorReplies