FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Björn Þorri Viktorsson

Björn Þorri Viktorsson

Profile picture of Björn Þorri Viktorsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 621 through 640 (of 730 total)
← 1 … 31 32 33 … 37 →
  • Author
    Replies
  • 25.03.2002 at 10:25 #459896
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll snake.

    Greiddirðu félagsgjaldið eftir greiðsluseðlinum eða millifærðirðu beint án vísunar í greiðsluseðilinn?

    Mér leikur forvitni á að vita af hverju í ósköpunum þetta getur misfarist svona. En Nikulás bíður eftir að fá staðfestinguna á greiðslunni og félagsskírteinið er klárt um leið og hún liggur fyrir.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    24.03.2002 at 22:25 #459842
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Jæja Grímsfjallsfarar! Á að draga okkur á ferðasögunni fram á haust. Hvurslags eiginlega slen og doði er þetta…? Í sveitinni var kallað á dýralækninn ef kusurnar voru með slen og doða… Þarf nokkuð að ná í svoleiðis mann fyrir ykkur????????

    Ferða-kveðja, ferða-sveðja, ferða-leðja, ferða-keðja, ferða-smeðja, ferða-eðja, ferða-breðja og feðrakveðja.

    BÞV

    (Jæja, nú er ég farinn á Yrkið… virkið, birkið…)





    24.03.2002 at 22:14 #459918
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Hæ hó.

    Það hringdi í mig maður og benti mér á að það er víst lítið mál að koma fyrir eftirlitsmyndavél sem tengd er við hreyfiskynjara. Ótrúleg er tæknin og þetta ku ekki vera sérlega dýrt (nokkur skálagjöld þó).

    Ég verð þó að játa að við fyrstu tilhugsun hugnast mér illa tilhugsunin um það að einhver sé að fylgjast með mér í skála í reginóbyggðum… Rómansinn er allur fyrir bí, rétt eins og þú værir á Lækjartorgi. En… þetta er semsagt hægt.

    Dettur mönnum ekkert í hug sem breytt gæti hugarfarinu í eitt skipti fyrir öll? Það myndi ég helst af öllu vilja sjá gerast.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    23.03.2002 at 11:10 #459914
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Jón.

    Þú hefur ekki þetta innræti sem nískupúkarnir hafa. Þeir gæta sín á því að skrifa ekki í gestabækurnar, til þess að ekki sé hægt að benda á þá síðar og rukka þá. Þannig er beint samehengi milli skrifa í gestabækur og þess hvernig skálagjöldin innheimtast.

    Auðvitað væri það algert neyðarbrauð að læsa skálunum alveg, enda hafa menn þá opna til þess að þeyr geti verið öruggt skjól þeim sem lenda t.d. óvænt í háska. Það byggir um leið á því trausti að menn greiði af sjálfsdóðum skálagjöldin ef þeir nýta aðstöðuna.

    Þetta með gíroseðlana er hugmynd sem hefur komið upp, enda hafa sum ferðafélög innan FÍ notað þessa aðferð með ágætum árangri.

    Fleiri tillögur og ábendingar!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    23.03.2002 at 00:40 #191408
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Eins og áður hefur komið fram á spjallinu, þá innheimtast skálagjöld í skálunum okkar mjög illa. Meira að segja finna menn sig í því að laumast burt úr Setrinu (flottasta fjallaskála landsins) án þess að skrifa í gestabók, að því er virðist bara til að sleppa við þennan 500 kall sem gistingin kostar pr. félagsmann. Mjög fáir greiða skálagjöld í Árbúðum, þótt tugir kílóa af gasi hverfi þar á hverjum vetri… Vegna þessa er smá spurning sem brennur á okkur í stjórninni. Hvað eigum við að gera til að fá þessi mál í lag???

    Eigum við að innkalla alla lykla sem við höfum úthlutað af skálunum og skipta alfarið um skrár? Eigum við að læsa skálunum alveg – líka fremra húsinu í Setrinu? Eigum við að hækka skálagjöldin og koma upp skálavörslu um helgar yfir allar helstu ferðahelgar ársins (hugsanlega að hagsmunatengja skálavörðinn/verðina)?

    Því skyldum við halda okkur við núverandi ástand og selja gistinguna á 500 kall meðan aðrir eru að rukka 1000-1500, ef menn finna sig í því að snuða klúbbinn um gjaldið? Allt sem menn nota í Setrinu, Árbúðum og öðrum skálum kostar peninga. Það kostar pening að keyra ljósavél, kynda með olíu og gasi, viðhalda salernisaðstöðu o.s.frv. o.s.frv.

    Gaman væri að heyra hvað mönnum dettur í hug. það er ekki úr vegi að upplýsa það í lokin að klúbburinn borgaði 700.000 í rekstur Setursins á síðasta ári, þrátt fyrir að öll vinna sé gefin í óeigingjörnu starfi skálanefndar. Við greiðum ca. 70.000 í pr. vetur í Árbúðum. Auk þessa styrkir félagið deildirnar sem sjálfar borga stóra peninga í rekstur sinna skála. Hvað er til bragðs að taka?

    Athugasemdir óskast.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    23.03.2002 at 00:18 #459890
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll aftur Snake.

    Þú verður að fyrirgefa mér að ég skuli ekki muna þetta nákvæmlega, en hvernig borgaðir þú félagsgjaldið? Fékkstu aldrei gíróseðilinn? Aftur; endilega faxaðu kvittunina og þá er hægt að redda þessu pronto.

    Vonandi finnst botn í þessa vitleysu með nýju félagatali.

    Ferðakveðja…

    BÞV





    22.03.2002 at 23:32 #459840
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Hæ hó.

    Ég get staðfest það að þetta voru hugumprúðar yngismeyjar sem dvöldu á fjallinu þessa helgi (a.m.k. þær sem við sáum í gufutúrnum). En hvernig er það Soffía, er enginn til í að tjá sig í heild um túrinn. Nú hafa menn haft 5 heila sólarhringa til að samstilla sögurnar…

    Hafi einhver haft stöðu upplýsingafulltrúa í ferðinni, þá er sá hinn sami ekki að standa sig í stykkinu… (:-)

    Grímsfjallstúrinn þessa helgina var flautaður af í gærkveldi. Einhverjir "gerðu víst í deigið" vegna veðurspárinnar, þannig að það var víst orðinn þunnur þrettándinn sem eftir var og til í að fara.

    Ferðaleðja…

    BÞV





    22.03.2002 at 23:16 #459888
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Æ,æ,æ…

    af hverju er heimurinn svona vondur við suma menn??? Siggi Frikk. Ég man ekki betur en að við værum í meil- og símasambandi vegna þess að þú fékkst ekki félagsskírteinið þitt fyrir mörgum vikum eða mánuðum. Þá varstu líka alveg í spreng að tapa miklum peningum af því að þú fékkst ekki afslátt og sendir mér meil með stórum upphrópunum og hástöfum eins og þín var von og vísa. Þá benti ég þér á að leysa málið strax með því að fara til Nikka og sækja skírteinið. Ég sendi Nikka líka afrit af okkar samskiptum þá til að allt gæti verið klárt þegar þú kæmir.

    Það kemur mér því spánskt fyrir sjónir að rekast á þennan pistil þinn hér nú, löngu síðar. Fórstu aldrei til að klára þetta mál? Auðvitað kemurðu svo bara í hádeginu þegar þú ert í mat og "átt helling eftir ógert…" Varla hefurðu þá gefið þessu langan séns eða hvað? Vonandi verður Nikulás aldrei í símanum hér eftir þegar menn koma til að hitta hann, hvorki að sinna einkasímtölum né félagsins…

    Eins og ég sagði við jong, það er djöfullegt þegar hlutirnir gerast ekki eins og maður vill. Því miður er heimurinn ekki eins góður og við hefðum óskað. "Skítur gerist" eins og þeir segja í Ameríkunni. Nánast allir sem orðið hafa fyrir óþægindum vegna þessa (þeir eru sem betur fer ekki mjög margir) leysa málið fljótt og vel (jafnvel bara með einu símtali og boða komu sína) en aðrir skrifa pistla og fárast sem mest og oftast vegna þess hve heimurinn sé erfiður og ganga ekki í að leysa málin. Því miður sýnist mér að þú sért í síðari flokknum.

    Ég lýsi djúpum harmi stjórnar vegna þeirra óþæginda sem þetta rugl hefur valdið þér.

    Meigi heimurinn bestna…

    BÞV

    Es. Þú getur faxað kvittunina til Nikka og hann sendir þér í framhaldinu félagsskírteinið, þá þarftu ekki einu sinni að fara í Mörkina sjálfur…





    22.03.2002 at 15:49 #459882
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll jong.

    Það er auðvitað djöfullegt þegar allt gengur ekki eins og við ráðgerum í upphafi. En við jeppamenn leggjumst ekki bara í talstöðina og börmum okkur VIÐ REDDUM MÁLUNUM! Gerðu nú eitt kallinn minn. Hringdu í Nikulás í síma 568-4444, millifærðu félagsgjaldið eftir hans leiðsögn og hann póstar þér nýtt félagatal strax og þú hefur lagt inn. EKKERT MÁL!

    Því miður eru nokkur dæmi um þetta að félagar hafa ekki fengið gíróseðla í hendur. Oft er hægt að finna skýringar (menn fluttir, misferst í pósti o.fl. o.fl.). Það sem stendur uppá okkur er það, að því miður virðist einhver galli í félagatalinu okkar (gömul exel skrá) og hefur það m.a. birst í því að þó nokkrir félagar sem búnir eru að borga, hafa ekki fengið SETRIÐ í tvö síðustu skipti. Verið er að hanna nýtt félagatal og vonandi fáum við það fullskapað í næsta mánuði.

    Þangað til, endilega hringið beint í Nikka ef þið teljið að einhver vandamál séu á skráningum og útsendum gögnum, til þess er jú starfsmaðurinn frá 9-17 alla virka daga.

    Ferðakveðja,

    BÞV

    Með ferðakveðju,

    BÞV





    21.03.2002 at 19:21 #459798
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Gressi.

    Ég er þér sammála. Alveg óþarfi að lenda í að vera með skítkast og persónulegar árásir. Mér finnst þó alveg nauðsynlegt að menn skiptist á skoðunum og enn skemmtilegra ef menn eru ekki alltaf sammála um allt. Höldum umræðunni þó á málefnalegum nótum og okkur mun vel farnast…

    Annars held ég að menn hafi lítið kommenterað á þennan bíl af þeirri einföldu ástæðu að hann hefur lítið sést ennþá og því sennilega fáir sem þekkja hann. Að sjálfsögðu bara enn ein tegundin í flóruna – hið besta mál. Vonandi reynist hann vel.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    21.03.2002 at 19:16 #459830
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Jæja Jón.

    Það tók 4 sólarhringa til að fá menn úr Seturs- og Hveravallaferðum til að tjá sig. Ég var farinn að halda að eitthvað hefði komið fyrir… Menn sem verða fyrir sjokki missa stundum málið tímabundið (vonandi kemur það aldrei fyrir okkur ;o)

    Þökk sé þér fyrir hvatninguna, þá hafðist þetta fyrir rest!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    20.03.2002 at 15:23 #459826
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Hæ hó… 100. pistillinn í höfn !

    Það er vel við hæfi Jón að þú fái þann hundraðasta…

    Já, hm… til að fyrirbyggja allan misskilning þá á ég við "framhásingu" þegar ég tala um "rör að framan". Ég er nú svoddan KFUM drengur að ég hafði ekki haft hugmyndaflug til að túlka það á annan hátt 😉

    Reyndar kynntist ég þessu vandamáli líka á Hi Luxinum sem ég átti áður (hann var á rörum að framan og aftan), að við ákveðið mikla úrhleypingu í þungu færi hætti hann að drífa. Lækkunin sem verður við aukna úrhleypingu veldur því að bíllinn sígur niður í snjóinn og fyrirstaðan stoppar allt (þú nærð ekki nægu floti lengur með því að hleypa úr svona neðarlega).

    Jú, auðvitað drífur maður helling á "36 á svona Barbíkrúser. Örugglega meira en margir þyngri á "38 og "44 hjólum. Reyndar ferðaðist ég um allar tryssur í denn á Extra Cab á "35 hjólum. Faðir minn ók Langjökul þvers og kruss á 91 Patrol á "33 hjólum!! Allt fer þetta þó eftir færinu og lagni viðkomandi bílstjóra.

    Ég er sammála þeim sem skrifaði á spjallið um daginn, að í lengri ferðum eiga menn að setja saman hópana þannig að menn séu sem mest á bílum með samsvarandi drifgetu. Þannig gengur best að ferðast, þ.e. að annað hvort séu allir að geta það sama, nú eða stopp – og þá er bara að fara aðra leið… Hitt verður aldrei gaman til lengdar, að þurfa að láta draga sig heilu helgarnar né það að þurfa endalaust að vera að draga aðra.

    Svoleiðis túra fer maður helst bara dagstúra 😉

    Með ferðakveðju,

    BÞV





    20.03.2002 at 09:58 #459822
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Jón.

    Vorum reyndar alltaf á 2-4 pundum…

    Skrítið, mér finnst ég steinhætta að drífa ef ég fer niður fyrir 2,5 pund. Þá lækkar bíllinn svo mikið að vömbin er bara komin á kaf í snjóinn og tóm fyrirstaða. Þetta er auðvitað viðkvæmara mál hjá okkur sem erum ekki á "röri" að framan.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    20.03.2002 at 09:26 #459778
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Rebbi.

    Mér finnst þú draga mjög úr trúverðugleika pistils þíns með því að gefa ekki upp nafnið þitt. Hvað er svona viðkvæmt í þessu máli? Á ekki öll málefnaleg umræða rétt á sér?

    Ef þú ferð með rétt mál, þá þurfa þær upplýsingar sannarlega að komast til félagsmanna. Hins vegar er þetta atvinnurógur af verstu gerð ef orð þín eiga ekki við rök að styðjast.

    Kv. BÞV





    19.03.2002 at 21:32 #459818
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Jón.

    Heyrðu, ég tók bara engar myndir sjálfur, en félagar mínir tóku slatta af myndum, bæði ljós- og hreyfimyndir. Þeir kannski smella einhverju inn, þegar bráir af þeim mesta fýlan…

    Fýluferðin… Reyndar var þetta alls ekki skipulögð ferð á vegum klúbbsins (þó við séum reyndar allir félagar þar), heldur tókum við okkur bara saman á 5 bílum og fórum á eigin túr, eftir að ljóst varð að við kæmumst ekki með í skipulögðu ferðina á Grímsfjall. Alveg gríðarlega vel heppnaður túr þegar upp var staðið, talsvert bras fyrsta daginn, smávægilegar bilanir og gríðarlega þungt færi. Allt tókst þó að leysa þannig að hægt var að halda áfram á öllum bílunum. Frábært veður, útsýni og þungt færi á Breiðbaknum á 2. degi. Ótrúlega skemmtilegt færi og enn betra veður á jöklinum og heimleiðinni á sunnudeginum, 3. degi.

    Tóm hamingja, nógur snjór og ekkert annað en að drífa sig af stað!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    19.03.2002 at 18:00 #459814
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Ég fattaði ekki að Snake væri búinn að opna þessa umræðu. Gott og vel, það eru þá fleiri en ég sem hefðu gaman af að heyra eitthvað…

    BÞV





    19.03.2002 at 17:58 #191399
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Hvernig er það, eru engar ferðasögur frá Hveravallamönnum og Setursmönnum???

    Maður getur nú alveg skilið að menn séu eftir sig fyrsta daginn eftir að túr er lokið, en kommon, nú er þriðjudagur að enda og enn engar sögur… Var ekkert gaman???

    Reyndar voru Setursfarar ótrúlega snöggir að fá birta litla ferðamynd í DV… :o) Árbúðaferðin og Fýluferðin eru búnar að melda sig undir „Færðin á miðhálendinu“, endilega leyfið okkur hinum að frétta af gangi mála.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    12.03.2002 at 23:51 #459552
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar. Rakst á þessa frétt á netinu

    Vísir, Mán. 11. mars 21:18

    Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra, upplýsti á Alþingi í gær að stefnt væri að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Þetta kom fram í svari við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylkingarinnar.

    Honum þótti vanta á að afstaða ríkisstjórnarinnar til málsins kæmi skýrar fram. Siv sagði að stofnun þjóðgarðsins væri fyrsta skrefið, síðan væri hægt að huga að stækkun hans. Hún sagðist vonast til að fljótlega verði hægt að setja nefnd til að athuga fyrirhugaða þjóðgarðsstofnun, en eftir ætti að ákveða hvernig sú nefnd yrði skipuð. Hún sagði virkjanaframkvæmdir á hálendinu ekki raska áætlunum um þjóðgarð. "Nú er það þannig að þjóðagarðar hjá okkur flokkast undir flokkun 2 hjá Alþjóðanáttúruverndarsamtökunum. Ef af virkjun verður er hægt að stofna þjóðgarð á svæðinu, þá yrði blönduð flokkun á svæðinu, þ.e.a.s. flokkun 2 en virkjunin í minni flokki," sagði hún og bætti við að alla möguleika þyrfti að skoða vandlega.

    BÞV





    12.03.2002 at 20:41 #459664
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Hlynur.

    Þetta eru í einu orði sagt glæsilegar myndir, sérstaklega sú af Vatnajökli. Meira svona félagar, ef þið rekist á eitthvað áhugavert á netinu…

    Ferðakveðja,

    BÞV





    11.03.2002 at 22:29 #459548
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Gott hjá henni. Vonandi breytir hún ekki þeirri afstöðu sinni til vélknúinna farartækja. Ég ráðlegg engum (sem vill virða lög og reglur) að leggja akandi á jökulinn, án leyfis þjóðgarðsvarðar. Það væri gott að fá "almennt akstursleyfi" fyrir jeppamenn á jöklinum, þá er óhætt að fara. Annars eiga menn yfir höfði sér sektir eða fangelsi…

    Símtöl við embættismenn eru ekki réttarheimildir (jafnvel þótt þeir séu þjóðgarðsverðir). Hins vegar væri almenn auglýsing frá þjóðgarðsverði um að akstur á jöklinum sé heimill fullnægjandi til að öllum sé óhætt að aka þar. Kannski væri rétt að þrýsta á um slíka auglýsingu þannig að allir þurfi ekki að vera að sækja bréflega um heimild til að aka á jökulinn???

    Ég hringdi sjálfur í Náttúruvernd sl. sumar (eftir að reglugerðin tók gildi) og sagðist ætla að aka á jökulinn. Mér var bent á að senda umsókn á faxi og gefa upp númer á bílunum sem yrðu í hópnum… ÖMURLEG FRAMTÍÐARSÝN EF ÞETTA YRÐI GERT AÐ MEGINREGLU VARÐANDI AKSTUR Á AÐRA JÖKLA.

    Ég er ekkert sérstaklega svartsýnn að eðlisfari, en eins og Soffía benti á, þá hefur því verið lýst yfir að reglurnar um Snæfellsjökul verði nýttar sem fyrirmynd þegar kemur að stofnun annarra "jöklaþjóðgarða". ÞAÐ MÁ EKKI VERÐA!!!

    Ferðakveðja,

    BÞV





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 621 through 640 (of 730 total)
← 1 … 31 32 33 … 37 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.