Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.04.2002 at 08:47 #460248
Sæll Jón.
Jú víst sef ég helling. Sumir segja að ég sé alltaf hálf sofandi… =o)
Þú ert nú sjálfur í öflugri kanti, enda góður og gegn Seltirningur!
Bestu kveðjur,
BÞV
05.04.2002 at 01:01 #191429Sælir félagar.
Hvernig stendur á því að það er bara ein saga kominn á vefinn (undir „Færðin á hálendinu“) eftir heila páskahelgi???
Ferðalangar! Endilega smellið smá fréttum úr ferðunum á netið fyrir okkur hina sem aldrei þorum neitt… Hvernig er það með Hlyn, Begga og co og marga fleiri sem ég veit að fóru alvöru túra um páskana, eruð þið svona eftir ykkur? 😉
Ferðakveðja,
BÞV
03.04.2002 at 12:33 #460140Sæll Snake.
Hvernig var það aftur? Gafstu ekki upp á Ford útgerðinni???
Það kom öllum í opna skjöldu eftir allar pælingarnar og fullyrðingarnar um að ÞETTA VÆRI SKO ÞAÐ EINA SEM VIRKAÐI!(breiddarumræðan o.fl. skemmtilegt…)
Ég hélt að menn seldu ekki frá sér svona mola… ;-o)
En af hverju ANTI 4×4 maður?
Ferðakveðja,
BÞV
E.s. Ég skrifa ekki á spjallið sem formaður, heldur bara sem einstaklingur. Skoðanir mínar hér eiga því ekki endilega samleið með eigendum stöðvarinnar…. eins og sagt er í virðulegum fjölmiðlum…
03.04.2002 at 01:06 #460134Sæll Stebbi.
Þetta kemur ekki á óvart. Ég hef líka lent í þessu helvíti… vera langt á undan einhverjum ameríkuköllum eða Patólmönnum sem eru með miklu betri búnað en ég (stærri hjól, læsingar, milligíra, yfir- og undirgíra, sjálf- og hálfskiptingar hásingar og hásinar… ) Það er bara svo erfitt fyrir okkur "klósettmennina" að halda aftur af okkur… enda frárennslið svo gott!!!
Hó Hó.
Ferðakveðja á lakið.
BÞV
03.04.2002 at 00:58 #460208Ma ma ma, maður er bara streinhættur að nenna að vaka fram eftir til að móttaka viskuna frá spjöllurum…. Af hverju koma ekki fleiri ferðasögur eftir heila páskahelgi???
Sæll annars abv. Í minni sveit voru svona máttlausir olíubrennarar oft kallaðir "moðsuður" (fyrir þá sem ekki vita, þá er moð óétið og ónýtt hey (stundum blandað skít)sem tekið er frá skepnunum, þ.e. úr görðum eða af fóðurgangi og gjarnan brennt – brennur illa, en logar lengi í því, stundum í marga daga eða vikur).
Annars tek ég undir með þér; það er vel hægt að ferðast á þessum 2,4L Toyotum án túrbínu, en mikið djöfull átti maður samt heiminn þegar konan samþykkti að splæsa í hárblásara á hana líka…!
Væntanlega hafa allir heyrt söguna af forstjóranum sem hafði hlustað lengi á BENNA í B.B. lýsa því hve milligírar væru flottar græjur og ótrúlegt hve hægt bílarnir kæmust með þessum búnaði. Hann sagði einfaldlega eftir langa umhugsun í eigin skilningsleysi: "Af hverju leggja menn ekki bara svolítið seinna af stað…???"
Farinn að sofa. Ferðakveðja í draumalandið.
BÞV
02.04.2002 at 16:28 #460202Hæ öll.
Hlynur, hvernig væri nú að segja okkur Toy fólkinu sem var "trakkfast á tjörunni" ferðasöguna í "Færðinni á hálendinu"? Hafirðu farið alvöru túr, þá hlýturðu að hafa haft með þér "dráttarvél" þ.e. TOYOTU…
Sæll Siggi og takk fyrir síðast! Hurðu, okkur Toy mönnum finnst nú ekkert mikið til fitness keppna komið. Þetta er eins og annað sem upp er runnið í Ammeríkunni, ekkert sérstakt… Við eigum erfitt með að ná upp sömu líkamlegu hreysti og t.d. Íshúsfólk og Patrolkallar sem eru stöðugt úti að toga og ýta…
Hæ Soffía. Það er eins með ykkur Begga og Sigga, þið einfaldlega "villtust af leið". En æðrist ekki, þið munuð finna veginn á ný… þegar þið farið aftur á Toy…
Ferðakveðja,
BÞV
02.04.2002 at 10:00 #460192Sæl Soffía.
Heyrðu, þeir eru alveg loppnir Patrol mennirnir – ég er alveg bit. Maður hélt að það kæmu nú einhver viðbrögð frá þeim sjálfum þegar maður smellir svona svívirðu í loftið, en þeir eru alveg dauðir karla greyin, það heyrist ekkert frá þeim. Eru þeir nú búnir að gera ykkur "íshúsfókið" að málsvara sínum???
Svona tegundarstælar geta verið ótrúlega skemmtilegir (í góðu að sjálfsögðu), en félagar í vesturlandsdeildinni eru stöðugt með tegundaáróður. Þeir voru svo höfðinglegir að bjóða mér í mat á Skógum sl. föstudag, en ég var lítið spenntur í fyrstu. Eftir að hafa hringt í mig nokkrum sinnum og látið ýmsar athugasemdir um Toyið mitt fjúka (svo sem hvort ég treysti mér ekki einbíla yfir Hellisheiðina…, allt væri óhætt þar sem þeir vissu af patrol sem kæmi síðar og hann væri búinn að lofa að aðstoða mig… og fleira í þessum dúr), hreinlega varð ég að drattast af stað til að bjarga sjálfsímyndinni (og sé alls ekki eftir því, enda hörkusteik í boði).
Svona karp er því til margra hluta nytsamlegt, sé því rétt beitt…
Ferðakveðja,
BÞV
01.04.2002 at 09:32 #460182Sæll Bjarmi.
Blessaður vertu ekki að stressa þig á þessu. Hentu bara hraðamælinum úr og settu dagatal í staðinn. Þannig er þetta í Patrol og eigendur þeirra eru hæstánægðir 😉
Ferðakveðja,
BÞV
01.04.2002 at 09:30 #459948Ágæt ábending.
Ég held að félagsgjöldin hafi verið óbreytt í 4 eða 5 ár, kr. 3.500.
Nú styttist í aðlafund og mér þykir ekki ólíklegt að menn leggi til hækkun félagsgjalda. Hvað finnst mönnum hæfilegt í því efni???
Ferðakveðja,
BÞV
29.03.2002 at 12:34 #460068Sælir félagar.
Þetta er sannarlega eldfimt efni…
Hér eiga ekki við sleggjudómar né einfaldar skýringar. Málið er einfaldlega mjög flókið og væri hægt að hafa um það langt mál… svo langt að enginn nennti að lesa það.
Í mínum huga verða menn að ræða þetta út frá hreinu hagsmunamati. Þá standa menn einfaldlega frammi fyrir spurningunni: Er réttlætanlegt að fórna þessum náttúrugæðum fyrir þá hagsmuni sem í staðinn koma??? Ég verð að játa að ég hef nokkurn skilning á sjónarmiðum beggja aðila. Mér finnst að virkjunarsinnum hafi á þessari stundu ekki tekist að setja fram sannfærandi rök fyrir því að það sé réttlætanlegt að fórna þessum náttúrugæðum. Af hverju eru menn að pukrast með orkuverðið? Af hverju hefur ekki verið hægt að blása út af borðinu umræðu margra mætra manna sem hafa fært fyrir því rök að verkefnið sé einfaldelga ekki arðbært? Einnig finst mér rétt sem eik segir, af hverju þarf að gera þetta á áhættu fólksins í landinu ef verkefnið er svona öruggt og skynsamlegt (bæði með ríkisábyrgðum og framlögum lífeyrissjóðanna)???
Á hinn bóginn verðum við að átta okkur á því að eðlileg framþróum verður ekki stöðvuð, enda er það hvorki skynsamlegt né æskilegt (ekki frekar en það var skynsamlegt að berjast gegn sjálfvirka símanum eða litasjónvarpinu…). Til þess að hámarka lífsgæði fólksins í landinu, þarf stundum að fórna einu til að fá annað. Við skulum ekki gleyma því að nú þegar hefur stórum svæðum á hálendinu verði sökkt til þess að hægt sé að framleiða þá raforku sem við nýtum nú þegar. Samfara þessu hafa fylgt ýmsar jákvæðar samgöngubætur o.fl. o.fl.
Væru menn til í að bakka þessu öllu til baka, hætta að nota rafmagn og skríða aftur inn á moldargólfin í torfbæjunum? Ég held ekki, spurningin er bara sú hvar á að setja mörkin? Ég skil vel vonbrigði austfirðinga sem sjá ekki framtíð í öðru en álbræðslu, vegna þeirrar stöðu sem nú er uppi. Það hlýtur að vera erfitt að sætta sig við málflutning öfgamanna í náttúruvernd (sem eru að stórum hluta héðan af suðvesturhorninu), rífa sig oní rassgat vegna þessara mála fyrir austan en grjóthalda svon kjafti þegar risaálverum er komið fyrir í túnfætinum hjá þeim sjálfum…
Gætum okkar að tapa okkur ekki alveg í þessari umræðu, það eru gríðarlega margir vinklar á þessu og mörg ólík sjónarmið sem þarf að sætta. Hver sem endanleg ákvörðun verður, þarf að vanda mjög til hennar, sérstaklega ef menn ákveða að fara í virkjun. Þá verður ekki aftur snúið.
Ferðakveðja,
BÞV
27.03.2002 at 00:15 #460056Sælir félagar.
Ég vek athygli á því sem Halli úr björgunarsveit 4×4 skrifar á "færðina á hálendinu". Nú er ann að snjóa, en það er ekki endilega gott að fá snjó oná krapa og vatnselg…
Verið því viðbúnir pínu "krapaæfingum" um páskana!
Ekkert að því ef rétti búnaðurinn er með og tvær dósir af þolinmæði!
Góða ferð í páskatúrinn og ekki gleyma að taka upp vinningsmyndband í túrnum…
Ferðakveðja,
BÞV
27.03.2002 at 00:03 #459858Jæja, allt bögg skilar árangri um síðir (eins og kerlingin sagði…)
Í dag sendi einn af forsprökkum Grímsfjallstúrsins mér þessa líka fínu grein sem birtast mun í næsta SETRI. Það er jafnvel von á að hún birtist í styttri útgáfu undir "færðin á hálendinu" hér á síðunni innan tíðar. Þetta er allt að koma !!!
Ferðakveðja,
BÞV
26.03.2002 at 23:47 #460048Sælir félagar og takk fyrir góð viðbrögð.
Um leið og ég vil þakka þeim sem lýst hafa skoðun sinni á frammistöðu undirritaðs í spjallþættinum í morgun, bæði hér á spjallinu og í fjölmörgum símtölum í dag (menn hafa jafnvel talað um að notalegt sé að vakna upp við rödd mina…(",), langar mig að vekja athygli á fróðlegum pistli á http://www.leoemm.com, undir liðnum "umræðuhornið" og kallast hann "hve öruggir eru bílar".
Þarna veltir Leó upp ýmsum forvitnilegum staðreyndum um öryggismál bifreiða í nútíð og fortíð og sumar þeirra gætu átt þátt í að skýra "strúktúrinn" í alvarlegum slysum á Íslandi í dag.
Gætum þess að halda allri þessari umræðu á málefnalegum nótum og auðvitað þurfum við jeppafólk að stuðla að auknu öryggi í umferðinni eins og allir aðrir.
Með ferðakveðju,
BÞV
26.03.2002 at 23:37 #459942Jæja félagar.
Ég játa að mér finnst þessi umræða um að erfitt sé að koma af sér greiðslum fyrir "þá sem vilja greiða" fremur hallærisleg. Vissulega væru gíróseðlar og betrekktir veggir í skálum með upplýsingum um reikningsnúmer klúbbsins kannski til þess fallnir að menn greiddu frekar gistigjöldin. Ég vek þó athygli á því sem Kjartan segir hér að framan. Á heimasíðunni eru uplýsingar um símanúmer og netföng stjórnarmanna og skálanefndarmanna. Ég vil því meina að þetta eigi ekki að vera flókið ef menn VILJA raunverulega borga. Auk þess er Nikulás á skrifstofunni frá 9-17 alla virka daga og tekur glaður við fé… þó ekki sauðfé… nema til slátrunar…
Ég vil jafnframt hvetja "stg" til að nota nú tækifærið til að koma af sér skálagjöldunum úr Árbúðum til Nikka. Ef greiðsluviljinn er til staðar, þá er auðvelt að leysa málið.
Að lokum má nefna það v. skrifa jons hér að framan, ef menn ætla sér að borga í upphafi ferðar, þá hafa þeir með sér pening eða ávísun (sem ég tel reyndar heppilegast ef menn skilja greiðsluna eftir) þegar lagt er af stað. Hvernig í ósköpunum stendur á því að þetta smáatriði er það eina sem menn vilja spara við sig með hliðsjón af öllum hinum kostnaðinum sbr. grein gressa hér að framan???
Hugarfarsbreyting er það sem þarf. Spurningin er bara hvað þarf til að knýja hana fram!
Ferðakveðja,
BÞV
26.03.2002 at 00:07 #460034Sælir félagar og takk fyrir þessi jákvæðu viðbrögð.
Er farinn á lakið til að sofa nú ekki yfir mig í morgunnþáttinn…
Gaman væri svo að fá viðbrögð frá þeim sem hafa tök á að fylgjast með umræðunni.
Ferðakveðja,
BÞV
25.03.2002 at 19:08 #191412Sælir félagar.
Í fyrramálið (uppúr kl. 07.30) verður spjall í morgunþætti RÚV, þar sem undirritaður og Ágúst Mogensen frá rannsóknarnefnd umferðarslysa hafa verið boðaðir til að taka þátt.
Umræðuefnið er hlutur jeppa í banaslysum í umferðinni. Það á ekki að þurfa að koma okkur á óvart að umræða um þetta mál sé hafin á nýjum vetvangi í kjölfar frétta af jeppum í þessu sambandi undanfarið.
Í stuttu máli mun ég koma mínum skoðunum og sjónarmiðum á framfæri á eins málefnalegan hátt og kostur er. Mér finnst í sjálfu sér eðlilegt að hlufall jeppa í alvarlegum umferðarslysum sé hátt í ljósi eftirfarandi staðreynda:
1) Jeppum hefur fjölgað gífurlega á síðustu árum og ef ég man rétt, þá var t.d. LC 90 mest seldi bíllinn á Íslandi árið 1999.
2) Jeppar eru almennt mikið eknir pr. ár, mun meira en meðalfólksbíl, þannig að áhættan er auðvitað meiri þess vegna. Það er ekkert fréttaefni þó dieseljeppi sé ekinn 30-50 þ. km. á ári, meðan meðalfólksbíll er ekinn 15-20 þ. km.
3) Fleiri og fleiri velja jeppa til að ferðast á úti á landi, þar sem þeir eru öruggari og þægilegri. Þeir sem þurfa mikið að vera á ferðinni, oft vegna erfiðra aðstæðna velja gjarnan jeppa.
4) Samfara því að vera öruggari fyrir þá sem eru innanborðs, er því miður verra fyrir þá sem eru á fólksbílum (sérstaklega þeim allra minnstu) að lenda í árekstri við jeppa.
Mér er ekki kunnugt um að nein könnun hafi farið fram á hlut breyttra jeppa sérstaklega í umferðarslysum og tel því að fullyrðingar um að þeir séu hættulegri í umferðinni byggist á fordómum. Eins og fram hefur komið hér á spjallinu má benda á ýmsa þætti varðandi aksturseiginleika og stöðugleika breyttra jeppa sem beinlínis auka aksturshæfni þeirra (hefur þó aldrei verið tekið út á heildstæðum grunni)
Gaman væri að fá komment á þessar grófu hugmyndir mínar, sérstaklega ef menn bregðast skjótt við og tjá sig, endilega ef þið lumið á góðum punktum, komið þeim þá á framfæri helst í kvöld, þannig að þei geti þá ratað í útvarp allra landsmanna í morgunsárið.
Ferðakveðja,
BÞV
25.03.2002 at 18:11 #459852Hæ Soffía.
Æi já…
Þetta er mikið fjör og misskemmtilegt…
Feeeeerðakveðja,
BÞV
25.03.2002 at 11:40 #459846Sæll eik
Þetta er alveg rétt hjá þér. Það er lítið mál að taka út tilkynningar. Reyndar velti ég þessu fyrir mér eftir að ljóst varð að ferðin yrði ekki farin seint sl. fimmtudagskvöld. Ég ákvað hins vegar að taka þetta ekki út, þar sem mér finnst að tilkynningarnar virki pínu eins og gamall Moggi, eftir að viðburðirnir eru liðnir hjá. Menn blaða stundum í honum, jafnvel þó þeir séu ekki að leita eftir því sem er framundan í félagsstarfinu.
Kannski erum við ekki sammála um þetta (frekar en sumt annað), en þetta var allavega það sem mér fannst.
Ferðakveðja,
BÞV
25.03.2002 at 11:24 #459898Ég er búinn að skoða málið þitt. Jónas, formaður ykkar í austurlandsdeild er búinn að fá seðlana fyrir löngu síðan. Deildirnar sjá um að rukka sjálfar inn félagsgjöldin og útdeila skírteinunum.
Heyrðu í Jónasi snöggvast og ég veit að þú verður farinn að brosa aftur fyrir kvöldið!
Ferðakveðja,
BÞV
25.03.2002 at 10:57 #459922Sælir Hjörtur og JAKINN…
Það verður að játast að mig grunar að þeir sem t.d. gista í Setrinu yfir nótt, keyra ljósavél, kynda með olíu, brenna gasi og nýta alla þá fínu aðstöðu sem þar er að finna, hljóti að gera sér fulla grein fyrir því að þetta kostar fullt af peningum. Einhverra hluta vegna finna menn sig samt í því að laumast á brott án þess að greiða skálagjöldin.
Þetta er í raun alveg furðulegt, bæði vegna þess að gjöldin eru hlægilega lág (kannski of lág til að menn nenni að standa í að greiða þau) og svo er þetta hlægileg upphæð m.t.t. þeirra peninga sem menn verja í að gera bílinn sinn kláran, sjálfa sig, eldsneyi, mat og drykk.
Jú, auðvitað er það að upplýsa fyrsta skrefið og m.a. þess vegna fannst mér rétt að ræða þetta á spjallinu.
Mig grunar að eftir á að hyggja hafi það verið mistök að bjóða uppá fría gistingu í Setrinu um árið, það virðist a.m.k. ekki ætla að ganga vel að koma þeim á aftur.
Ferðakveðja,
BÞV
Es. Er JAKINN að þiðna í blíðunni…
-
AuthorReplies