Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.04.2002 at 09:19 #460638
Iss, maður er lögngu hættur að tapa svefni yfir þessu. Þetta er búið að standa til í mörg ár, en klúðrast alltaf. Maður hræðist ekki gamla drauga…
Ferðakveðja,
BÞV
26.04.2002 at 09:17 #458786Það væri sannarlega gaman að sjá nýjan "38 pajero. Skrítið að enginn skuli hafa þorað…
Já, er ekki Aron rétti maðurinn til að ríða á vaðið? Það þarf alvöru menn til að byrja á svona dæmi.
Já gleðilegt sumar, þú varst ekki heima í gær þegar ég ætlaði að mæta í kaffi. Iss, fékk bara skúffuköku hjá Grétari og Guffu í staðinn…
BÞV
26.04.2002 at 09:12 #460652Sæll Cruiser.
Það er búið að prófa þetta. Útkoman var HROLLUR…
Með sumarkveðju,
BÞV
25.04.2002 at 11:14 #458782Sæll Gressi.
Mér yfirsást Ps-ið til mín og svaraði því ekki strax.
Í fyrsta lagi vil ég segja að ég er mjög glaður fyrir þína hönd vegna þess hvað þú ert ánægður með bílinn þinn. Það er alveg rétt hjá þér að tegund skiptir engu máli svo lengi sem maður er að fá það sem maður vill og er ánægður sjálfur. Það er hins vegar mjög mismunandi hvað þarf mikið til að menn verði ánægðir (mismunandi kröfur).
Í öðru lagi vil ég benda þér á að framar á þessum þræði var umræða á milli okkar Jóa um samanburð á breytingum á LC 90 og Pajero, m.a. verðsamanburð. Þar var verið að bera saman ólíka hluti, þótt báðir bílarnir ættu að vera "38 breyttir. Það eru alls ekki sömu hlutir í "grunnverði" á "38 breytingu á LC 90 og Pajero og því alls ekki raunhæft að bera það saman án þess að gerð sé grein fyrir því í hverju munurinn felst (t.d. hlutföll og hásingafærsla).
Í þriðja lagi ertu sjálfur á sömu villigötum þegar þú talar um hásingafærslu á LC 90. Þar er aftur verið að bera saman epli og appelsínur. Þú getur alveg breytt LC 90 á "38 án þess að færa afturhásinguna, rétt eins og þú gerðir sjálfur þegar þú breyttir þínum bíl. Þá ertu einfaldlega bara ekki með eins góða breytingu! Það er óvart ástæða fyrir því að menn færa þessar hásingar aftur (alls ekki bundið við eina tegund). Menn eru að stórbæta fjöðrunareiginleika bílanna með þessu, þeir hætta að steypa stömpum og fara í staðinn að "jafnfjaðra" þannig að þægindi og yfirferð á ósléttu undirlagi aukast að mun (það er m.a. þessvegna sem við á LC 90 stingum alla aðra af þegar við erum á ósléttu 😉 Hins vegar væri breyting á LC 90 miklu ódýrari ef hásingafærslunni væri sleppt eða bara fært um 4 cm eins og á Pajero, en þá ertu einfaldlega ekki með jafn skemmtilegan bíl.
Í fjórða lagi er gaman að rifja upp umræðu sem alltaf fer í gang þegar koma nýjar tegundir sem ekki fást drifhlutföll í: Menn halda því fram að "þetta sé ekkert mál, það virðist bara ekki þurfa hlutföll í þennan bíl…", Svona var þetta með Patrol á sínum tíma, Isuzu og fleiri bíla. Menn héldu því kinnroðalaust fram að þetta væri bara hreinasti óþarfi meðan þetta fékkst ekki. Menn ruku samt allir til þegar hlutföllin komu og keyptu þau, enda breytingunni á bílnum auðvitað ekki lokið fyrr en búið að að drifa bílinn rétt. Menn steikja kúplingar og drífa bara alls ekki það sama í þungu færi hlutfallalausir. Fyrir suma skiptir það engu máli, þeir ferðast bara við toppaðstæður þegar hægt væri að fara um allt á Subaru. En eins og þú sagðir sjálfur, það sem máli skiptir er að eigandinn sé sjálfur sáttur og ánægður með sinn bíl, burtséð frá því hvað hann heitir eða hvernig honum var breytt. Um það erum við algerlega sammála.
Gleðilegt sumar.
BÞV
25.04.2002 at 01:39 #460634Sæll Palli.
Hvurslags er þetta. Maður kíkir aðeins á netið fyrir svefninn, en hvað…??? Er ekki nema allt fullt af væli í ykkur bensínköllum, sem þó hafa reynt að sýna bensínkostnaðinum skilning hingað til…
BÞV
25.04.2002 at 01:31 #458780Sæll félagi Páll.
Nú ertu aldeilis búinn að hneppa niður um þig… Er ekki séns að selja svona pæjurær án þess að moka í þær endalausu hrósi á netinu???
Hvernig er það annars, er ekki Aron og félagar í Jeppaþjónustunni komnir á fullt í að breyta svona MMC bílum. Eru þeir virkilega ekki búnir að setja svona fat á alvöru hjól???
Ferðakveðja,
BÞV
24.04.2002 at 00:42 #460402Sælir.
Það þarf enga nefnd. Menn einfaldlega rotta sig saman á netinu eins og verið er að gera. Reyndar er ég algerlega ósammála einhverjum sem hélt því fram að það væri svo lítil starfsemi hjá klúbbnum yfir sumarið. Þá er fjöldi ferða og allskyns uppákoma, en merkilegt nokk, ótrúlega illa sótt sumt af því sem þá er boðið uppá. Í því sambandi nefni ég vinnuferðir skálanefndar, sumarhátíðina, fjölskylduhátíðina og stiku- og baggaferðir sem reyndar eru farnar er líða fer að hausti.
Ef mönnum langar í túr, þá bara búa þeir til túr. Jón Snæland er nefndin og ég hengi mig bara í rassgatið á honum, en áskil mér þó rétt til að hætta í túrnum ef sérleiðirnar verða of langar eða tímavarslan fer út um þúfur;-) Það sama á við ef börnin fíla ekki túrinn eða túrinn börnin, þá bara einfaldlega hættir maður og býður þeim í annan túr.
Ferðakveðja,
BÞV
23.04.2002 at 20:54 #460394Sæll ofsi.
Þessi ferðatilhögun fær mann til að byrja að iða ósjálfrátt í sætinu. Þetta er greinilega sett upp eins og gott rally, fullt af sérleiðum og alvöru skipulag. Ég tel víst að rallybræður Páll og Jóhannes fái fiðring þegar þeir lesa þetta…
Hvenær eigum við að leggja af stað?
Ferðakveðja,
BÞV
22.04.2002 at 23:56 #458770Sæll.
Gaman að heyra að fleiri eru að leggja í að breyta pajeró. Þetta eru bílar á fínu verði á eftirmarkaði og menn eru að fá flotta fjöðrun í þessum bílum sem ég held að hafi ekki verið að bila.
Skiptirðu um hlutföll, eða er skiptingin þín að taka sjokkið v. stækkunar á hjólum?
Ferðakveðja,
BÞV
22.04.2002 at 23:47 #460588Sæll ofsi.
Já ég tók eftir þessu með Jón Ebba, honum varð svo mikið um að hann tvísendi pistilinn (þetta er eins og með stamið, þegar menn verða óðamála þá byrja þeir að stama…)
Jæja, svo þú vilt fara í skítkast í sandkassanum… Hmm… Jú það er rétt, við skíttöpuðum 101 Rallinu, jafnvel þótt við finndum allar sérleiðirnar;) Ég hef nebblega heyrt af snillingum sem villtust í ralli og töpuðu þessvegna, en því miður þá höfum við ekki svo fína afsökun… Við einfaldlega bárum alltof mikla virðingu fyrir helvítis hrauninu… já og bíldruslunum. Maður þorir ekki annað en að fara varlega svo maður brjóti nú hvergi nibbu úr hinu náttúrulega skapaða hrauni, annað væru landspjöll…
Svo vorum við auðvitað á allt of litlum hjólum og með kraftlausar moðsuður í húddinu, auk þess sem kóararnir nenntu ekki að labba neitt á undan. Veðrið var líka að stríða okkur og rúðuþurrkurnar fuku af… Það var sumsé flest á móti okkur og eiginlega algert þrekvirki að komast aftur til byggða yfirleitt…….LANGFLOTTASTIR!!!
Ferðakveðja,
BÞV
Ps. Ég hef heyrt að Palli Hall ætli að gera þessari helvítis hörmung skil í næsta Setri og ef ég þekki hann rétt, örugglega á minn kostnað…
Annars er merkilegt hvað þeir "pæjuró" bræður eru lítið á spjallinu. Stundum er best að þegja bara……
22.04.2002 at 21:14 #460582Jæja, þá tókst víst Jóni Snæland að særa stolt Jóns Ebba, Jóni Snæbjörns til mikillar gleði…
Jón Ebbi er víst einn af færari súkkuökumönnum þessa lands, og hefur að sögn sérstakt lag á að koma hjarta samferðamanna sinni á góðan stað neðst í vinstri buxnaskálminni… Ekki mundi nú saka strákar að segja okkur fleiri sögur úr þessari fræknu ferð. T.d. af hverju HveravallaVilli stakk alla hina af… 😉
Þið eruð snillingar!
Ferðakveðja,
BÞV
22.04.2002 at 20:38 #460606Sæll Jóas.
Félagatalið kom síðast út nú í haust sem leið. Flestir eru búnir að nálgast það á félagsfundum eða á opnum húsum í allan vetur. Enn er hægt að nálgast það á skrifstofunni hjá Nikka í Mörkinni 6 á skrifstofutíma.
Með ferðakveðju,
BÞV
18.04.2002 at 01:34 #460508Datt í hug að senda þetta inn. Rakst á þetta á Mbl.is núna áðan. Vissi reyndar ekki fyrr en nú að ráðherrar settu lögin, hélt alltaf að Alþingi væri í því… Maður er alltaf að læra e-ð nýtt 😉
Ferðakveðja, BÞV
mbl.is Forsíða innlent
Innlent | 17.4.2002 | 15:44
Lögreglan á Ísafirði fylgist með ferð jeppafólks á Hornströndum
Önundur Jónsson, yfirlögreglustjóri á Ísafirði, segir að það komi ekki til greina að jeppafólkið, sem ætlaði að aka um Hornstrandir og ofan í Hornvík, fái til þess leyfi. "Það er algjörlega bannað að aka þarna um á vélknúnum ökutækjum og það á jafnt við um sumar og vetur," sagði hann.
Eins og sagt var frá fyrr í dag hér á Fréttavef Morgunblaðsins lögðu fimm sérútbúnir fjallajeppar af stað frá Reykjavík í gær í fimm daga ferð þar sem þeir ætluðu að aka frá Hornvík á Ströndum yfir hálendið til Hafnar í Hornafirði. Leiðangursmenn gistu í tjöldum á Drangajökli í nótt og ætluðu sér að fara niður í Hornvík í dag.
Önundur sagði að umferð vélknúinna ökutækja, þar með talið fjallajeppa, er stranglega bönnuð í friðlandinu á Hornströndum. ?Þetta eru lög sem sett voru af Ragnhildi Helgadóttur, þáverandi menntamálaráðherra, í ágúst árið 1985. Þau lög eru enn í fullu gildi. Friðlandið er fyrir norðan Hrafnsfjörð og Furufjörð. Það er lína dregin yfir Skorarheiðina úr botni fjarðanna og þar fyrir norðan er friðland. Þeir fara ekki á jeppunum norður fyrir þá línu. Ef þeir gera það eru þeir að brjóta lög og við munum fylgjast grannt með því," sagði Önundur.
Hann sagði að jeppamennirnir hefðu haft samband við Náttúrvernd í gær til að fá leyfi til að fara í Hornvík en fengu þau svör að engin undanþága yrði gefin frá lögunum sem giltu frá 1985.
13.04.2002 at 23:11 #460414Sælir félagar.
Margrét hjá Skeljungi var búin að láta okkur vita af þessu rétt áður en auglýsingin birtist. Mér láðist hins vegar að geta þess á síðasta félagsfundi. Hægt er að safna punktum út þennan mánuð og næsta (út maí) og versla fyrir punktana út þetta ár.
Það verður fundin önnur leið til að skrá kaup félagsmanna okkar á eldsneyti hjá Skeljungi, þannig að klúbburinn fái sína hlutdeild. Á síðasta fundi okkar kom fram að til stendur að gera mælingu á notkuninni um næstu mánaðarmót, en Margrét taldi að talsverð notkun væri í gangi, án þess að endanleg mæling hefði átt sér stað.
TÖNKUM ÖLL HJÁ SHELL OG STYRKJUM KLÚBBINN OKKAR!!
Ferðakveðja,
BÞV
09.04.2002 at 23:49 #460316Sælir félagar.
Ég leyfi mér nú að efast um að hægt sé að losna við rásgirni úr bíl með því að breikka felgurnar, en maður heyrir alltaf eitthvað nýtt.
Ég prófaði einu sinni að vera með "35 á "13 breiðum felgum og það gafst illa. Bíllinn sem var "38 breyttur leit að vísu þokkalega út, þar sem hjóln fylltu betur út í kantana og það var ekkert að því að keyra hann, en því miður komu rifur á tvö dekk upp við felguna. Þau virðast ekki þola þetta vel. Auk þess er eðlilegast að trúa söluaðilanum, hann á að vita þetta.
Ferðakveðja,
BÞV
08.04.2002 at 18:20 #460304Sæl SÞ.
Bílarnir voru 22. Það höfðu 24 áhafnir skráð sig í ferðina er tvær þurftu að hætta við vegna veikinda. Annars hefði mér fundist að þú hefðir sjálf átt að vera með í för… ",
Til gamans vil ég benda þér á tilkynningarnar sem settar voru á vefinn frá hádegi á laugardegi til miðnættis á sunnudegi (alls 10 pistlar), en þar var sagt frá því hvernig gekk í túrnum. Þú smellir á "meira" á einhverri tilkynningu á aðalsíðunni og svo "sýna allar tilkynningar" á síðunni sem þá opnast.
Með ferðakveðju,
BÞV
08.04.2002 at 14:03 #460300Sæl Soffía og þið hinar líka.
Bestu hamingjuóskir með frábæran árangur um helgina. Ég (og fleiri) áttum alls ekki von á því að þið mynduð klára þetta verkefni eins og færðin var.
Sjáumst á fundinum í kvöld.
Ferðakveðja,
BÞV
06.04.2002 at 21:51 #460286Sæll Beggi.
Þú situr heima og nagar neglurnar sé ég. Alveg ómögulegur eins og aðrir makar sem eru búnar að missa kellurnar til fjalla. Ég var að heyra það áðan að Soffía væri búin að panta "44 breytingu á Isuzu. Lét hún þig vita?
Annars er frábært hvað þetta gengur vel hjá þeim og eins hvað þátttakan í ferðinni er góð. Það þarf endilega að viðhalda þessari kvennaferð í framtíðinni.
Ferðakveðja,
BÞV
06.04.2002 at 01:02 #460254fyrir móralskan stuðning.
Bara svo það sé á hreinu, þá held ég að Toy eigendur þurfi minna að sofa en aðrir. Þeir eru áhyggjulausari er aðrir jeppaeigendur almennt, það gæti verið skýring… ;-o)
Annars eru þetta tómar tilviljanir að ég næ að svara ykkur Jóni svona fljótt, ég er ekki á netinu allan sólarhringinn þótt ég feginn vildi…
Annars kíkti ég á mínum fjallabíl á flott bjórkvöld hjá Aukaraf í kvöld og þar var m.a. félagi Jón í fínu formi ásamt fjölda annarra félagsmanna. Fín stemmning og flottar móttökur hjá þeim Aukarafsmönnum.
Varðandi fjölmiðlana, þá held ég að málpípa okkar þurfi að ná betur þar í gegn en verið hefur, enda hefur umræðan um það að jeppar séu "hættulegir í umferðinni" verið nánast einhliða og án okkar aðkomu of lengi.
Ferðakveðja,
BÞV
05.04.2002 at 08:51 #460238Sælir félagar.
Ég veit að Herjólfur og co voru búnir að setja saman sögu. Hann sendi mér afrit af henni um leið og hann sendi virðulegum ritstjóra vorum hana.
Hvernig er það Lúffi, ertu ekki bara til í að smella henni á netið fyrst hún kom ekki í Setrinu? Þetta var fín ferðasaga og þarf endilega að komast í loftið þó seint sé.
Ferðakveðja,
BÞV
-
AuthorReplies