FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Björn Þorri Viktorsson

Björn Þorri Viktorsson

Profile picture of Björn Þorri Viktorsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 561 through 580 (of 730 total)
← 1 … 28 29 30 … 37 →
  • Author
    Replies
  • 02.06.2002 at 11:33 #461414
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Stebbi.

    Þér hefur ekki tekist að sannfæra mig varðandi þá sportbílaeigendur og GTI ökumenn sem þú segir að séu neikvæðir í garð jeppamanna og telji að það eigi að setja meiraprófsskyldu á breytta jeppa. Ég alhæfi ekkert um þetta fólk frekar en jeppamenn almennt, en sá hluti þess sem tjáir sig á endalausan neikvæðan hátt í garð jeppamanna (með alhæfingum) á unglingaspjallrásum er að ég held mikill minnihlutahópur. Ég stend einnig við það að málefnaflutningur þessa minnihlutahóps byggir að verulegu leiti á upphrópunum og neikvæðum ályktunum útí allt og alla (ekki bara jeppamenn). Ég mynni á umræðuna vegna jeppaferðar gaujajul á Kjöl sem varð hér á síðunni, en þar kom berlega í ljós fullyrðingagleði þessa fólks.

    ….En, ég er heldur ekki sammála þér með að skoðanir þessa fólks muni ekki breytast í bráð. Það er nú einu sinni svo að öll þroskumst við hægt og bítandi (vissulega með mismiklum árangri) og ég held að flestir sem komnir eru af fyrra gelgjuskeiði geti verið sammála um að hafa á því æviskeiði sínu sagt eða gert eitthvað sem þeir myndu ekki segja eða gera nú. Það er því heilmikil von fyrir þetta fólk og allar líkur á að það nái sér af þessum ranghugmyndum sínum.

    Nú… Þá er það hallæri þitt og þroskamerki… Ég álykta sem svo að þú sért allur að þroskast vegna þess hve mikla intressu síða Ferðaklúbbsins 4×4 nýtur hjá þér (þú ert þá varla að spjalla við bólugrafna GTI ökumenn með upphrópanir á meðan). Það er ótvírætt þroskamerki 😉

    Hallærið er það að reyna að telja sjálfum þér og öðrum trú um að þú njótir ekki ávaxtanna af starfi klúbbsins.

    Þú ert… internetnotandi og það meira að segja þokkalega öflugur og fylgist með spjalli og tekur þátt í umræðu á vetvangi félagsins. þar hefur þú aðgang að Setrinu og öðru útgefnu efni félagsins, svo og öllum öðrum upplýsingum sem þar hafa verið dregnar saman fyrir jeppafólk.

    Þú ert… jeppamaður og nýtur þar með ávaxtanna af tveggja áratuga starfsemi Ferðaklubbsins 4×4. Þar á ég bæði við þá vinnu sem farið hefur í að fá heimild til að breyta og aka breyttum jeppum, svo og heimild til að aka á snjó. Þetta kann mönnum að finnast sjálfsagt í dag, en það hefur kostað mikla vinnu, blóð, svita og tár að verja þennan rétt okkar.

    Annars ert þú að sjálfsögðu í fullum rétti að borga ekki félagsgjaldið og halda áfram að borða brauðið þótt þú takir ekki þátt í að sá fræjunum… Og ég hvet þig og aðra til að vera áfram virkir á spjallinu!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    31.05.2002 at 01:16 #461394
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Stebbi.

    Það er ljóst að jeppamenn þurfa að sjálfsögðu að huga að því að ávinna sér gott orðspor í umferðinni, enda erum við pínu áberandi á þessum stóru og breyttu bílum okkar.

    Hins vegar fer ég nú ekkert á taugum þó þessir unggæðingar á GT bílunum sem eru að tjá sig á neikvæðum nótum í garð okkar jeppamanna á Hugi.is og öðrum unglingaspjallrásum, enda sýnist mér að þar séu menn almennt ekki komnir af fyrra gelgjuskeiðinu, bókstaflega fúlir og reiðir út í allt og alla…

    Ég sé líka að þú ert sjálfur allur að þroskast, enda farinn að tjá þig upp á kraft á þessari fínu síðu okkar og er það vel. Hins vegar finnst mér þú hallærislegur að tíma ekki að borga félagsgjaldið til klúbbsins, þar sem þú ert að njóta ávaxtanna af starfi hans, bæði sem jeppamaður og internetnotandi (veit ekki hvort þú mætir á fundina og opnu húsin).

    Ferðakveðja,

    BÞV





    31.05.2002 at 01:08 #461374
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Hæ Palli.

    Ég á gamalt "35 hjól sem farið hefur "út um allar trissur".

    Heldurðu að þú getir notað það? ",

    Með trist kveðju 😉

    BÞV





    17.05.2002 at 18:11 #461174
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Blessaður eik.

    Ég man eftir að hafa einu sinni séð mann berja úr loftsíu á Barbí, en ég hef enga tölu á því hve oft ég hef keyrt fram á Ameríkukallana "ykkur hina" með brotið þetta og hitt, s.s. öxla hjöruliði, eða bara Amerískt járn sem neitar alfarið að fara í gang… Nú það er svo sem ekki óþekkt að USA drifin brotni, enda ku þau nú flest vera framleidd þar í landi…

    Tvö brotin drif þótti mér hreinir smámunir miðað við aðstæðurnar sem þessar vösku konur í kvennaferðinni kláruðu sig af, enda var nánast einungis um japanskt gæðajárn að ræða sem kláraði þann túr. Ef ég man rétt, þá neitaði Ameríkufatið að fara í framdrifið og var skilið eftir við fyrsta pitt.

    Hef aldrei heyrt um svoleiðis vandræði í Barbí…

    BÞV





    17.05.2002 at 09:12 #461168
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Hef ekið svona barbídós í fjóra vetur og hef aldrei opnað lofthreinsarann á fjöllum. Þetta er því ekki "algengt vandamál" á LC 90, a.m.k. kannast ég ekki við það.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    14.05.2002 at 23:24 #461040
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Gressi.

    Ég er klár á því að þú átt eftir að finna mikinn mun í þungu færi á lægri hlutföllum.

    Aðeins af því að við erum að bera saman "38 breytingu, þá er rétt að hafa í huga að 12,5 cm. hásingafærslan sem er standard inni í "38 breytingu á LC 90 gerir bílinn að því sem hann er hvað fjöðrun varðar. Þetta hef ég prófað sjálfur, en að mínu mati er "38 LC 90 á kringlóttum hjólum skemmtilegri í akstri en óbreyttur bíll og þar breytir fjöðrunin mestu. Ég hef ekki enn mætt ofjarli mínum í yfirferð í ósléttu færi, en þar koma yfirburðir fjöðrunarinnar best í ljós. "35 bíllinn þinn hefur væntanlega ekki verið með hásingafærslu, eða hvað?

    Nú þetta með hávaða í LC 90 kannast ég heldur ekki við. Ég er svo sem ekki með neina súperheyrn, en ég sleppi alveg heyrnahlífum og næ meira að segja stundum að halda uppi samræðum…

    Nei, ég hef ekki prófað Terracaninn (enda myndir þú væntanlega vita það, handhafi eina eintaksins 😉 Mig dauðlangar að upplifa þennan unað… En… hefur þú prófað "38 LC 90???

    Ferðakveðja,

    BÞV





    14.05.2002 at 14:48 #461030
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Gressi.

    Það má ekki misskilja skrif mín. Þú ert bara svo á innsoginu af ánægju að það er ekki annað en hægt að taka eftir því. Ég hef áður lýst því á spjallinu að mér finnst ekkert annað en gott mál að fá nýja bíla í flóruna og fagna því enn og aftur. Hins vegar skil ég ekki alveg hvað það er sem gerir þennan bíl svo frábæran, að maður fær það helst á tilfinninguna að þú hafir verið að finna upp hjólið.

    Ef drifhlutföllin í bílnum hafa enn ekki verið lækkuð, þá skil ég þessa ofurhamingju ennþá síður. Við erum oft búnir að fara í gegnum þá umræðu að lækkuð hlutföll séu hreinn óþarfi. Því héldu m.a. Isuzu og Patrol eigendur fram meðan ekki fengst hlutföll í þá bíla. Allir fengu sér samt hlutföll um leið og þau fóru að fást. Þarna komum við enn og aftur að því að fyrir þá sem gera ekki miklar kröfur til drifgetu er hugsanlega nóg að vera á hlutfallalausum bíl, sérstaklega ef menn hafa gaman af að skipta um kúplingar… Vilji maður hins vegar drífa í erfiðu og krefjandi færi, þá verður það ekki gert án þess að drifhlutföll séu lækkuð til samræmis við aukna dekkjastærð(með milligír eða hlutföllum).

    Þú talar um að Toyotu og Datsun menn hér fyrir sunnan séu ánægðir með bílana sína. Það er alveg rétt. Eini Terracan eigandinn hér fyrir sunnan er ekki ánægður með bílinn sinn, hann er YFIRÁNÆGÐUR… ",

    Aðeins í lokin af því að þú gafst upp boltann. Hvað er það sem þú færð meira í svona Huyndai en LC 90? Það væri gaman að heyra, af því að ég veit að þú áttir LC 90 áður og ókst honum til sigurs í torfærukeppni (þannig að þú ert nú ekki alveg óreyndur sem ökumaður).

    Vona annars að áfram gangi vel með bílinn þinn.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    13.05.2002 at 22:53 #461020
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Gressi.

    Það fer miklum sögum af því að bíllinn hjá þér drífi ekkert í snjó. Bæði hef ég heyrt frá mönnum sem hittu þig á Bláfellshálsi í vetur og eins mönnum sem hittu þig á leið í Skálpanes. Mér skilst að drekkhlaðnir túristabílar hafi keyrt í kringum þig pikkfastan… Meira að segja einn "38 bíll á "31 á einu hjóli……..

    Ég trúi þessu varla miðað við gullhamrana sem þú slærð þessum bíl út í eitt. Eru þetta ekki bara skröksögur frá þessum ljótu köllum á Toy og Pjatt?

    Hurrican kveðjur,

    BÞV





    10.05.2002 at 11:38 #461000
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll félagi Jón.

    Það hefur enginn náð að græta mig á þessu blessaða spjalli fyrr…

    þetta er hreinasta snilld! Gaman væri að fá fleiri sögur, ég veit þú átt þær til.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    07.05.2002 at 23:39 #460860
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Beggi.

    Ég hélt að allir hefðu vitað af þessum spindilboltum mínum sem losnuðu (2) þannig að hinir tveir slitnuðu, með þessum líka frábæru afleiðingum. Reyndar tóku þeir Toyota menn þetta alfarið á sig, þar sem ég var nýbúinn að koma með bílinn úr reglulegri skoðun hjá þeim, en þetta boltalos hafði yfirsést.

    Þetta var fín ábending Beggi, því rétt er að benda þeim sem eru að aka þessum elskulegu dúkkum á að fylgjast með þessu hjá sér, því ástæðan fyrir þessu er sú að á ákveðnu tímabili voru bílarnir afgreiddir frá verksmiðju með original 8:8 boltum, sem einfaldlega tognuðu í sumum tilvikum við herslu í mál og þá fór þetta að losna með tímanum. Ég veit um tvo aðra sem lent hafa í sama vandamálinu (reyndar missti bara annar hjólið undan).

    Mér skilst að verksmiðjan afgreiði þetta núna með sterkari boltum, þannig að vandamálið á að vera úr sögunni, en rétt að benda mönnum á að skoða þetta hver hjá sér og skipta þá út boltunum ef þeir eru með þessa lélegri gerð.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    07.05.2002 at 02:06 #460846
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Theodor.

    Ég hef engar áhyggjur af drifbúnaði Barbie, enda hef ég ekki enn brotið framdrif á þeim 90.000 km. sem ég er búinn að aka svona bílum og er þó ekki að láta pjattið koma niður á ferðahraðanum. Að vísu er ég einu afturdrifi fátækari eftir þennan akstur, en það er líka það eina, utan stýrishosa og bremsuborðar.

    Iss, þetta með "ónýtt framdrif" var eitthvað sem ekki var frá eigendum bílanna komið, en vissulega er nauðsynlegt að menn átti sig á því hvernig skynsamlegast er að umgangast þessar elskur…

    Þú ert á miklum "skysemisnótum" í skrifum þínum, enda er það margsannað mál að "38 drífur 85% af því sem "44 drífur, a.m.k. á þessum léttari bílum. Það eru hins vegar þessi 15% sem heilla ótrúlega mikið, jafnvel þótt viðhald aukist til mikilla muna með "44 dekkjum.

    Það kostar auðvitað sitt að vera flottastur…!!!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    06.05.2002 at 01:52 #460842
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Benedikt.

    Bjarki Waage á svona úrklipptan LC 90 2001 módel.

    Alls ekki setja þinn á "40 eða "42 dekk, þau eru fín í grjóti en virka ekkert í snjó. Kláraðu dæmið og smelltu dúkkunni í "réttu fötin" og farðu á "44.

    Ég er satt að segja rasandi bit að þetta skuli ekki hafa verið framkvæmt ennþá, en kannski verður þú bara sá sem klárar málið… Ef þú skyldir ráðast í þetta mál, er væntanlega aðalhausverkurinn að snikka til kantana þannig að þetta smelli undir.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    05.05.2002 at 12:32 #460824
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll.

    Í hvaða albúmi er þetta og hjá hvaða notanda?

    Kv. BÞV





    05.05.2002 at 00:17 #460800
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Jón.

    Þessi umræða hefur komið upp áður, þ.e. með að koma upp nýjum skála. Flestir eru á því að nýr skáli ætti alls ekki að vera of stór, heldur temmilega lítill (kannski í stíl við sumarbústað) og yrði jafnvel leigður út í heilu lagi (þ.e. að maður tæki hann allan prívat, fyrir sig og sína).

    Árið 1998 sóttum við um að fá að byggja skála við Hágöngur en því var hafnað. Okkur var í staðinn boðið að fóstra Versali, en engin stemmning var fyrir því. Nú er verið að kanna með að fá að byggja skála í Landmannalaugum eða Landmannahelli, en það er í frumathugun.

    Það er alveg rétt, það myndi örugglega þjappa félögum saman að takast á við svona verkefni, en þó er þessi umræða að fara af stað aftur, þar sem menn höfnuðu því að byggja fleiri skála þegar stefnumótunarvinnan var í gangi fyrir nokkum árum.

    Þetta með aðstöðu, bæði fundaaðstöðu og einnig aðstöðu til bílaviðgerða og -þvotta hefur komið til tals áður. Menn hafa alltaf strandað þessari hugmynd á því að þetta verður svo miklu dýrara en hægt verður að standa undir. Menn eru ekki til í að borga það sem þarf til að klúbburinn sé ekki að leggja til stórfé með svona úthaldi.

    Það sést enda á því sem þú nefnir réttilega varðandi skálagjöldin. Þau innheimtast illa, meira að segja finna menn sig í því að sleppa að greiða 500 kallinn, eða prútta um hann ef nokkrir eru saman í hóp. Ótrúlegt mál, en nú er skálanefndin að vinna í því að hækka skálagjöldin og koma skikki á innheimtu þeirra.

    Sjáumst hressir á aðalfundinum sem verður í sama sal og síðasti fundur á Loftleiðum (til hægri við aðalinnganginn)

    Ferðakveðja,

    BÞV





    05.05.2002 at 00:03 #460810
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Benedikt.

    Ég er með úthlaupibúnað í mínum bíl og hann virkar fínt. Maður hleypur bara út og hleypir úr…

    Iss, það getur ekki verið neitt flóknara að koma þessu fyrir í svona Barbí Krúser en hverju öðru sem er, en reyndar þekki ég ekki til þess að neinn sé með þetta í svoleiðis bíl. Reyndar er ég enn að bíða eftir að menn setji svona dúkku á "44 hjól. Ég veit um einn sem er fullúrklipptur fyrir "44 en hann hefur því miður ekki farið á stærri hjól en "38.

    Það væri að mínu viti algjör bomba að fá svona léttan og kraftmikinn bíl á alvöru hjól.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    04.05.2002 at 01:31 #191485
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Nú er aðalfundurinn nk. mánudag á Hótel Loftleiðum kl. 20.00. Ég vil hér með hvetja alla þá sem hafa hug á að bjóða fram krafta sína í þágu okkar ágæta félags til að mæta og gefa kost á sér, bæði í nefnda- og stjórnarstörf. Ferðaklúbburinn 4×4 er gríðarlega virkur og skemmtilegur félagsskapur sem samanstendur af allskonar fólki sem gaman er að vinna með.

    Í störfum mínum fyrir félagið hef ég kynnst fullt af stórskemmtilegu fólki og get hiklaust mælt með því að starfa í þágu félagsins.

    Mig langar til gamans að varpa því fram til félagsmanna hvort það er ekki eitthvað sem þeir vildu sjá rætt undir liðnum „önnur mál“ á fundinum. Endilega veltið upp hugmyndum í þessu efni, enda er allt annað á fundinum meira og minna niður njörfað skv. lögum félagsins.

    Ferðakveðja,

    BÞV

    E.s. Til gamans má geta þess að engar tillögur að lagabreytingum liggja fyrir og búið er að panta skúffuköku og gulrótarköku með kaffinu í hléinu „, …





    04.05.2002 at 01:20 #460768
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Þetta er greinilega hörkufínt mál sem hér er að fara í gang. Eins og svo margt annað, enn ein rósin í hnappagat vefstjóranna okkar.

    Ég renndi í gegnum þetta. "Mighty Mouse…" Snake! Þú hefur laumast með spottann í rassgatið á Barbie… Ég hef það fyrir satt, að þeir voru stopp í kaffi, þegar þú komst aftan að þeim og laumaðir spotta í hann. Enda er það ekki raunveruleikinn að Mús laumist í námunda við fasta Barbie… Slíkt er einfaldlega ekki mögulegt !

    Ferðakveðja,

    BÞV





    26.04.2002 at 23:49 #460678
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Þetta tvennt fer því miður afar sjaldan saman. Þetta verður að lokum spurning um það hvort skilyrðið er mikilvægara.

    Tékkaðu á Koni hjá Arctic Trucks og berðu saman verð á þeim og original dempurum. Koni eru demparar sem þú hendir ekki ef þeir bila, heldur gerir við þá.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    26.04.2002 at 23:35 #460662
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll eik.

    Geturðu stýrt þessu innan úr bíl og á ferð?

    BÞV





    26.04.2002 at 23:33 #460670
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Finnur.

    Mér sýnist þetta aðallega vera spurningin um það. A.m.k. ef þú ætlar ekki að draga kerruna á Golf…

    Þetta er örugglega allt vel fært breyttum bílum, enda frost á hálendinu nú frá 10-16 stig. Ef vegurinn er mjúkur, hleyptu þá bara úr niður í 5-6 pund, það munar mjög miklu.

    Góða ferð.

    BÞV





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 561 through 580 (of 730 total)
← 1 … 28 29 30 … 37 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.