Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.09.2002 at 23:16 #463158
Sælir félagar.
Ég verð að játa að mér finnst hluti þessa þráðar nokkuð "hranalegur", a.m.k. snauður af tillitssemi við þá félaga okkar sem þarna áttu í hlut. Auðvitað vitum við "sem aldrei förum af malbikinu" best hvernig menn eiga að haga sér í fjallaferðum… eða haga sér ekki!
Staðreyndin er auðvitað sú, að allri ferðamennsku fylgir áhætta. Sama hvort menn aka, ganga, ríða, eða skríða. Menn gera mistök! OG munu gera þau aftur! það er eitt af því sem fylgir mannlegu eðli og tilveru. Veit einhver um mann sem aldrei hefur gert mistök???
Gætum okkar á fordómum og fíflagangi, þarna var dauðans alvara á ferðum, en sem betur fer fór allt vel hvað fólk varðar.
Helmuth Kohl: "Ég hef gert mistök… og ég mun AFTUR gera mistök…"
Það er nánast sama hve varlega er farið, íslensk náttúra í allri sinni tign og dýrð mun áfram leggja þrautir sínar og gildrur fyrir ferðamenn hér eftir sem hingað til. Þeir sem fara lítið eða jafnvel ekki neitt, þekkja lítið til mikilfengleika náttúrunnar í þessu tilliti og telja eflaust best að "fara ekki neitt". Þeir sem komast upp á lagið læra hins vegar að meta aðstæður og flestum vegnar vel, þó með mismiklum fórnum eins og dæmin sanna og þar er undirritaður engin undantekning.
Með ferðakveðju,
BÞV
18.09.2002 at 22:45 #463174Sælir félagar.
Ég verð nú að játa að ég hef ekki komist í að prófa endurvarpann víða á höfuðborgarsvæðinu, þó get ég sagt ykkur að hann næst með sjávarsíðunni á Sæbrautinni vestan frá Reykjavíkurhöfn og austur að Kringlumýrarbraut (orðið slitrótt þar). Þá finnst mér líklegt að hann náist einnig ofarlega í miðbænum, t.d. á Skólavörðuholti, (við Hallgrímskirkju) en það á ég eftir að prófa. Þetta er með ólíkindum flott að vera kominn í samband við þau svæði sem Eiríkur lýsir (sennilega líka efstu hluta Drangajökuls!) beint (um endurvarpa) héðan af vestur-höfuðborgarsvæðinu.
Til hamingju með það góðir félagar og nú enn ríkari ástæða til að fjárfesta í VHF stöð!
Þökkum Skagamönnum "Strútsframtakið" og Edda fyrir óbilandi áhuga á uppbyggingu þessa kerfis!
Ferðakveðja,
BÞV
13.09.2002 at 08:27 #463002Ágætur skáli er einnig í Grágæsadal (er í einkaeign).
Kv. BÞV
03.09.2002 at 17:32 #462926Sælir félagar.
Það er rétt að bæta því við í umræðuna, að margir hafa velt upp þeirri hugmynd, hvort ekki sér rétt að reyna að koma upp skálum í stíl við "venjulega sumarbústaði", þ.e. skála sem geta hýst 15-25 manns hið mesta. Hugmyndin er sú að slíkir skálar gætu í einhverjum tilfellum verið leigðir út í heilu lagi eins og sumarbústaðir. Þannig gætu t.d. litlir hópar tryggt sér "prívat" gistingu á fjöllum.
Þetta með deiliskipulagið og féttir af hugsanlegum möguleikum á að fá að koma upp skála í Landmannalaugum og Landmannahelli er auðvitað skýringin á að þar er sótt um eins og Kjartan bendir á. Þá má einnig velta upp þeirri hugmynd sem sumir hafa haft, að einmitt með því að reisa skála á þessum stöðum, væri hugsanlega hægt að framleigja þá til annarsvegar Hellismanna og hinsvegar til FÍ yfir sumartímann, enda ku vera hörgull á gistiplássi á báðum þessum stöðum yfir hásumarið.
Þá skal þess einnig getið að fyrir u.þ.b. tveimur árum sótti F4x4 um heimild til að byggja skála við Hágöngur. Því var hafnað af sveitarfélögunum sem við er að eiga, en jafnframt boðinn fram skálinn í Versölum (á leigu eða í fóstur yfir veturinn). Það var ekki stemming fyrir því þá í félaginu (var hafnað á almennum félagsfundi með miklum meirihluta) og töldu menn það hús allt of stórt og seinkynt til að það væri heppilegt til vetrarnota.
Með ferðakveðju,
Björn Þorri
19.08.2002 at 22:41 #460102Sælir félagar.
Gaman að vera kominn aftur heim úr sumarfríinu, en það notaði ég m.a. til að skoða þessi náttúruverðmæti fyrir austan sem þeir ætla að sökkva.
Ég verð nú að játa það að ég hef verið mjög tvístígandi til þessa, hvort maður á að vera meðfylgjandi eða á móti, einfaldlega af því að maður hefur ekki kynnt sér svæðið sem um er að ræða. Nú liggur hins vegar mitt álit fyrir. Þetta svæði er að mínu viti ekki merkilegra en önnur sem tekin hafa verið undir uppistöðulón fyrir virkjanir á hálendi Íslands. Dimmugljúfur (Hafrahvammagljúfur) verða eftir fyrir neðan stíflumannvirkin og því hægt að njóta þeirra áfram.
Allir þeir austfirðingar sem ég hitti og ræddi málið við segja þetta lífsspursmál fyrir byggðina og einnig telja þeir að hvimleitt sand- og leirfok af þessu svæði bæði niðri á Héraði og eins niðri á fjörðum heyri í kjölfarið sögunni til (þetta ku vera gamall stöðuvatnsbotn sem endalaust fýkur úr).
Ég tel því að við getum hætt þessari hysteríu um "óbætanleg náttúruverðmæti", þetta er einfaldlega ekki merkilegra en önnur svæði á hálendinu.
Þetta breytir hins vegar ekki þeirri skoðun minni að Landsvirkjun á auðvitað að sjá sóma sinn í því að upplýsa undanbragðalaust um orkuverðið, það er algerlega óskiljanlegt að í svona máli skuli það vera leyndarmál.
Með ferðakveðju,
Björn Þorri.
02.07.2002 at 19:51 #462020Sælir.
Það vantar ekki fullyrðingagleði ykkar snillinga. Enn og aftur eru menn sem þekkja ekki þennan fína framhjólabúnað á LC 90 með upphrópanir og fullyrðingar. Ég vil mynna á allan þann fjölda þessara bíla sem eru á "38 hjólum, margir mikið notaðir og hafa reynst bara ljómandi vel. Auðvitað geta þessir bílar bilað eins og aðrir, en staðreyndin er sú að þeir gera það í minna mæli en margar aðrar tegundir og framhjóla- og framdrifsbúnaðurinn er alls ekki eins lélegur og úrtölumenn hafa haldið fram.
Vissulega eru menn með sterkari búnað með heilli hásingu, en þá fórna menn líka nokkru af aðalsmerki þessara bíla, þ.e. frábærri fjöðrun og aksturseiginleikum. Ég vil mynna ykkur úrtölumenn á að það eru til "44 breyttir 4runner bílar með original framhólabúnaði og hafa bara gert sig mjög vel.
Ég skil vel að Patrol og Musso menn reyni að tala Barbí eigendur ofan af því að skella sér á "44, því þar með yrði getuleysi þeirra fyrrnefndu endanlega opinberað !!!
Ferðakveðja,
BÞV
01.07.2002 at 10:18 #191574Sælir félagar.
Mig langar að vita hvernig Jónsmessuferðin í Þórsmörk tókst. Ég finn engar fréttir af henni á síðunni. Skrítið, þar sem þetta hefur verið langfjölmennasta landgræðsluferðin á vegum klúbbsins á síðustu árum og lukkast frábærlega. Var ferðin ekki örugglega farin í ár?
Ferðakveðja,
BÞV
01.07.2002 at 10:02 #462014Sælir drengir.
Hvurslags úrtölukjaftæði er þetta. Þessir bílar eru fyrir löngu búnir að sýna það og sanna að þeir eru að svínvirka, þrátt fyrir að margir spekúlantar hafi spáð því í upphafi að ekki væri hægt að komast suður í Hafnarfjörð á þessu "ónýta framdrifi". Reynslan hefur hins vegar orðið sú að þessi ágætu drif eru bara að endast og endast ef menn bara eru meðvitaðir um uppbyggingu þeirra (þetta eru rewerse drif og því mjög veik afturábak).
Ég veit um einn bíl sem er fullúrklipptur fyrir "44 hjól, en ekki hafa enn verið hannaðir á hann kantar. Þetta yrði alger bomba!
Ferðakveðja,
BÞV
25.06.2002 at 00:12 #461906Sæll Sæmi.
Ég mæli með að þú splæsir í eitt símtal í umboðið. Þeir hljóta að kveikja á því hvað er að stríða þér. Það hlýtur að vera eitthvað nauðaómerkilegt.
Ferðakveðja,
BÞV
25.06.2002 at 00:07 #461916Sælir.
Laugarfell er náttúrlega næsti þekkti staðurinn á eftir Landmannalaugum og Hveravöllum. Svo eru fín böð í Hveragili í Kverkfjöllum (smá labb), í ánni sem kemur undan skriðjöklinum rétt innan við Sigurðarskála og einnig í Laugavalladal (hef ekki komið þar). Svo er hægt að baða sig inn við Nautöldu og einnig skilst mér að það sé fín laug einhversstaðar á Hellisheiðinni.
Það birtist ágæt upptalning á heitum náttúrulegum laugum í laugardags DV fyrir ca. tveimur vikum.
Vona að þér takist að bleyta í þeim sem víðast.
Ferðakveðja,
BÞV
20.06.2002 at 21:02 #461488Sælir drengir.
Er ekki bara málið að fá sér Toy kram og boddý ofaná þessa hásingu og sleppa þessu Pæju dóti?
Ferðakveðja,
BÞV
17.06.2002 at 12:13 #458462Heill og sæll ofsi og gleðilega þjóðhátíð!
Ég skil ekki af hverju þessi þráður þinn hefur farið fram hjá mér, en ég rakst á þetta núna fyrst.
Er ekki rétt að bjóða okkur að kíkja á eitthvað af þessu á opnu húsi í Mörkinni, nú eða að bjóða stjórninni að sýna þetta á félagsfundum?
Hvenær eigum við að klára leiðarlýsingarnar?
Með bestu kveðju,
BÞV
11.06.2002 at 14:50 #461454Sælir bensínfélagar.
Því miður skiptir engu máli hvernig einhverjir fræðingar og sölumenn hafa teiknað upp hinar og þessar kúrfur yfir tog bensínvéla, þeir hafa gleymt að sýna vélunum þessar teikningar, því þær eru ekki að vinna í samræmi við þessar blessuðu kúrfur. Nei drengir, það er hægt að setja ýmislegt á prent sem ekki stenst í raunveruleikanum.
Með dieselkveðju,
BÞV
11.06.2002 at 14:04 #461446Sælir bensínfélagar.
Því miður skiptir engu máli hvernig einhverjir fræðingar og sölumenn hafa teiknað upp hinar og þessar kúrfur yfir tog bensínvéla, þeir hafa gleymt að sýna vélunum þessar teikningar, því þær eru ekki að vinna í samræmi við þessar blessuðu kúrfur. Nei drengir, það er hægt að setja ýmislegt á prent sem ekki stenst í raunveruleikanum.
Með dieselkveðju,
BÞV
11.06.2002 at 00:46 #461438Sæll fastur.
Þetta eru stórtíðindi hjá þér, þetta með að bensínvél togi á lágsnúningi. Í gegnum árin hefur það verið það sem félagar mínir á bensínbílum hafa verið í stórkostlegum vandræðum með, þ.e. að halda þessu drasli í gangi á lágsnúningi í þungu færi og hjakki.
Þetta djö.. drasl er endalaust að drepa á sér ef þetta dettur niður fyrir 1000 RPM. Í einum túr þar sem við hrepptum þungt færi fór félagi minn á 8 gata klósetti með þrjá startara !!! Hann er á diesel í dag…
Nei, ef þú vilt tog á lágsnúningi og áhyggjulaust hjakk í þungu færi, þá er málið diesel. Helst hæfilega slaglöng elska sem nuddar og nuddar á 500 RPM án nokkurra mannlegra afskipta.
Ferðakveðja,
BÞV
09.06.2002 at 22:18 #461700Sælir félagar.
Ég sá nýja REXTONINN fyrir utan hjá Bílabúð Benna. Þó ég stoppaði nú ekki til að skoða hann nánar, þá er greinilegt að þetta er mjög fallegur bíll, a.m.k. við fyrstu sýn.
Skil vel Snake að þig langi í hann!
Ferðakveðja,
BÞV
02.06.2002 at 20:30 #461652Iss. Ég var búinn að svara þegar þú sendir þennan póst inn. Það er vegna þess að ég ýtti á "svara" takkann á póstinum frá Snake sem minn póstur rataði þar fyrir neðan.
Ferða…
BÞV
02.06.2002 at 20:26 #461650Sæll Snake.
Þetta fannst mér skrítinn póstur. Þú ert að vekja athygli okkar skrælingjanna á einhverri nýjung sem þú telur aldeilis frábæra eftir að hafa farið á forsýningu sjálfur. Er það leyndó sem sýnt var þangað til fram yfir frumsýningu?
Ég vona bara að þessi tækniundur séu ekki einhver austurlanda samsuða sem búin er til eftir áratuga gömlum teikningum frá vesturlöndum sem gefnar hafa verið sem þróunarhjálp… Einhvern veginn minnkar það spennu mína að heyra af "nýjungum" sem byggja á eldgamalli framleiðslu.
Annars geturðu verið alveg rólegur með það að ég mun ekki fullyrða neitt um það sem ég þekki ekki og ekki hefur verið prófað. Þótt sumir aðrir fullyrði eitt og annað án þess að hafa prófað hlutina, þá hefur 15W peran mín enn dugað til að forða mér frá þeirri "ormagryfju".
Annars gleðst mitt barnslega hjarta mest yfir því að niðurstaðan úr þessu öllu er að við erum þá bæði ég og þú hæstánægðir með það sem við höfum, því þá er tilganginum náð.
Ferðakveðja,
BÞV
02.06.2002 at 17:08 #461644Blessaður Snake.
Ég ætlaði nú ekki að særa þig, en svona bara horfir þetta við mér. Það er aðvitað alveg rétt hjá þér að peran mín er takmörkuð og játa ég strax veikleika minn í þeim efnum.
Mér er líka létt að heyra að þú ert enn ánægður með Mussoinn, þótt þú sért farinn að spá í að fá þér annan bíl. það er alveg rétt að ég er ánægður með Toyotuna mína, þó ég sé nú svosem ekki að starta nýjum spjallþráðum til að koma þeirri aðdáun út á öldum ljósvakans. Það hefur þó komið fram svona með örðu hér á spjallinu. Þessi ánægja mín með Toy er þó ekki ný af nálinni, enda hefur ekkert annað náð að heilla mig frá þeirri tegund sl. 10 ár, þannig að hrifning mín hefur ekki verið mjög "tímabundin" eins og hjá sumum. Á þessum 10 árum hef ég átt 5 Toyota jeppa sem allir hafa reynst frábærlega.
ÞETTA SEGI ÉG EKKI AF ÞVÍ AÐ ÉG Á TOY, HELDUR Á ÉG TOY AF ÞVÍ AÐ ÞETTA ER SVONA!!! (Sjáðu nú hvað mér liggur mikið niðri fyrir, farinn að festa Caps Lock takkann eins og sumir… ;-).
Annars er ég alls ekki að setja út á þig, heldur bara að velta upp staðreyndum af spjallinu… svo var ég farinn að sakna þess að heyra ekkert í þér ",
Ferðakveðja,
BÞV
Hvað er annars þetta REXTON??
02.06.2002 at 11:46 #461638Sæll Snake.
Nú þekki ég ekki til þessa undratækis sem þú ert að lýsa, en það verður að játast að það dregur mjög úr slagkraftinum hjá þér að þú ert alltaf að skipta um skoðun á því hvað það er sem heillar þig mest. Þetta mynnir helst á barn í sælgætisverslun sem bendir stöðugt á næstu sælgætiskrukku og getur ekki valið…
Ef ég man rétt, þá er ekki langt síðan að þú hélst úti miklu spjalli um það hve frábær og mikill yfirburða bíll Bronkó II væri. Maður klökknaði bara í fyrstu af hrifningu þinni… en allt í einu var þessi Bronkó týndur og seldur vegna þvílíkrar aðdáunar á Musso. Við fengum að heyra miklar lýsingar á ágæti þess bíls, þótt þú hefðir reyndar þá ekki ennþá prófað hann. Núna ertu líklega búinn að prófa hann og viti menn… aðdáunin horfin og fokin út í veður og vind fyrir nýrri REXTON aðdáun………
Ég bara fylgist spenntur með því hvað það verður næst.
Vona annars að þú finnir leið til að eignast svona bíl og vona líka að aðdáunin verði enn til staðar þegar þú verður búinn að breyta honum og prófa hann! 😉
Ferðakveðja,
BÞV
-
AuthorReplies