Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.11.2002 at 18:36 #461538
Hó.
Mar´er bara búinn að missa af öllu fjörinu í dag. Það er naumast það er hiti í mönnum!
Palli. Af því þú ert vinur minn, í öllum guðslifandibænum ekki setja gamalt bronkodót í Eirík. Bjarni G er besti drengur, en hann er bara með þennan ameríkuvírus sem er víst djöfullegt að losna við. Það er því ekkert mark á honum takandi í þessu máli, enda allt þræl ÝKT sem frá honum kemur…
Reyndar er ég einnig að skrifa þetta af eigingjörnum hvötum, þar sem ég ferðast talsvert með þér og nenni ekki að draga Eirík með bilað ameríkudót um fjöll og firnindi. Þótt ég sé ekki nískur á dráttinn, þá hægir þetta bara á ferðahraðanum og það veistu að er ekki gott.
Mér finnst einnig ótrúlegt, að menn fjölyrða endalaust um 7,5" drifhlutföll í Toy rörum, þótt engin slík rör séu til. Mér vitanlega er ekkert hásingahlutfall í þeim rörum minna en 8"… SEM ER GOTT! (rosa útrás að skrifa með Caps Lock takkann á…) 7,5" hlutföllin eru bara í framdrifum á klafabílum og Barbí.
Af því magnum var að tala um að lyfta Eiríki upp að aftan… þá tel ég að nú þegar sé nóg komið af hnélyftum á afturhlutanum á honum og ætti jafnvel að slaka gæjanum aðeins í átt til jarðar þeim megin.
EKKERT AMERÍKUKJAFTÆÐI, ÞVÍ ÞÁ HÆTTA MENN AÐ FERÐAST NEMA Í MUNNINUM OG SNÚA SÉR AÐ VIÐGERÐUM!!!
BÞV
13.11.2002 at 23:37 #461498Sæll Palli minn.
Nú er ég í stuði og ákveðinn í að svara pistli þínum. (Nú set é Caps Lock takkann á eins og Snake gerir:)
HÆTTU ÞESSUM PAJERÓPÆLINGUM OG FÁÐU ÞÉR ÞAÐ SEM ÞIG LANGAR MEST Í…. TOYOTU. EKKI LÁTA HÁSINGU DUGA, HELDUR FÁÐU ÞÉR HEILAN SVOLEIÐIS BÍL!
Nú er ég búinn að taka Caps Lock takkan af, en það kann ormurinn (Snake) ekki.
Annars verð ég að játa að það væri gaman að sjá Eirík á hásingu. Hann gerði það ekkert smá gott í Fýluferðinni, jafnvel þar sem barbí var ekki búin að gera slóðir… low gírinn… ojojoj! Helvítið svínvirkaði!
Nei annars, ekki selja Eirík…., hann er bíllinn þinn… meira að segja ég myndi sakna hans… (smá tár…) Finnum bara toy rör og skellum undir piltinn. Uppskriftin er hér að ofan, við þurfum ekki að fjölyrða það frekar. Á ég að taka til í skúrnum og vera klár um helgina???
Ferðakveðja,
BÞVps. Ef þú nefnir óreiðu í mínum skúr einu orði á netinu, þá tala ég aldrei við þig meir…
13.11.2002 at 23:20 #464174Sæll alphapin.
Það eru mjög misjöfn gæði á þeirri vinnu sem í boði er varðandi það að stilla inn ný drifhlutföll. Í þínum sporum leggði ég meira upp úr því að tryggja gæði vinnunnar en endilega hvort þú borgar þúsundkalli meira eða minna fyrir innstillinguna. Drifhlutföllin kosta fullt af peningum og þau eru fljótt ónýt ef þau eru ekki rétt stillt inn í drifköggulinn.
Bara af því að félagi eik þreytist seint á því að úttala sig um lélega endingu á 7,5" drifunum í barbí krúser, þá get ég upplýst það hér að Jeppaþjónustan ehf. á Smiðjuvegi(Aron Árnason) hefur stillt inn mín hlutföll og er ég enn með framdrifið óbrotið eftir 70 þúsund km. akstur á 38", þrátt fyrir að nota bílinn bara eins og mig langar og vera ekki endilega alltaf aftastur (í slóðinni eftir hina) í ferðum.
Sumir verða hins vegar svo óðamála þegar þennan drifbúnað ber á góma, að maður gæti haldið að það væri óábyrgt að fara einbíla til Hfanarfjarðar á þessu dóti. Ég held því fram að þarna skipti innstillingin á drifinu, svo og að sjálfsögðu meðferðin á bílnum mestu.
Til skamms tíma voru gæðin á innstillingu drifa mjög misjöfn og hreinlega voru til menn (eflaust með góð verð) sem voru að taka þetta að sér án þess að kunna það svo vel væri. Reyndar held ég að þetta sé þetta í betra horfi í dag, en þó heyrir maður af og til af málum sem eru aldeilis óviðunandi frá sjónarhóli okkar jeppamanna (neytenda) séð. Það hvín í drifum, þau hrynja eftir örfá þúsund km. o.s.frv. o.s.frv.
Gangi þér vel með að hægja á bílnum…
Ferðakveðja,
BÞV
11.11.2002 at 23:15 #464148Sæll Arnar.
Helvítis verkun hefur þetta verið á Toyinu þínu. Þetta er ekki hefðbundin viðhaldsþörf á þessum elskum. Reyndar eru það svo sem engin tíðindi þótt eitt drif segi upp vistinni á hundraþúsundkílómetra spotta, en ég er meira hissa á þessu með heddin. Það hlýtur að vera einhver skýring á því. Nærtækasta skýringin hlýtur einfaldlega að vera sú, að það var alls ekki Toyotu vél í bílnum þínum, heldur væntanlega einhver USA rokkur, enda stemmir þetta vel við þá viðhaldsþörf sem slíkar vélar þarfnast…
Ég kalla þig hugaðan að fara svo bara beint á patrol eftir þessa bitru reynslu. Hrynja vélarnar ekki í þeim jafnharðan og skipt hefur verið um þær, eða þá að stöðugt er verið að innkalla þessar dósir vegna framleiðslugalla?
A.m.k. eru það ekki endingarbestu heddin á markaðnum þessi Patrol hedd (veit einhver um 6 cyl bíl sem komst yfir hundraðþúsundkílómetra á einu heddi?
Gangi þér allt sem best.
Ferðakveðja,
BÞV
08.11.2002 at 17:18 #464096Iss. Lenti einu sinni í þessu og leysti það með gas og súr (brenndi bara draslið úr). En ef þú ferð þá leið, þá verður þú bara að hella þér uppá kaffi sjálfur…
Gangi þér vel.
BÞV
07.11.2002 at 15:04 #464086Sæll heijo.
Ég tek undir með Lúther að þú ættir að mæta í opna húsið í kvöld, tala við stjórnarmenn og tryggja að skráningin ykkar feðga sé í lagi. Svo er líka bara gaman að líta við og kynnast þessum jöxlum sem mæta í opna húsið og heyra lygasögurnar sem velta upp úr þeim…
Ferðakveðja,
BÞV
07.11.2002 at 00:23 #464072Sælir félagar.
Fyrr í kvöld var haldinn fundur með hlutaðeigendum vegna deilumála Einars og stjórnar. Farið var rækilega ofan í málið og það rætt á alla kanta á hreinskilinn hátt. Umræðan var að sjálfsögðu upplýsandi fyrir alla aðila og sjálfsagt er það í þessu máli eins og öllum öðrum að það eru a.m.k. tvær hliðar á öllum málum (oftast miklu fleiri) og að sjaldan veldur einn þá tveir deila.
Hið jákvæða í málinu er að menn sættust heilum sáttum á fundinum og von er á staðfestingu þ.a.l. frá deilendum sjálfum á netið vonandi strax á morgun.
Ég vil hér með koma á framfæri þökk til stjórnar og Einars og hans manna fyrir að hittast, ræða málin og skýra sjónarmið hvors annars, enda var það kannski það eina sem þurfti og hefði átt að gerast fyrr.
Með ferðakveðju,
BÞV
06.11.2002 at 00:06 #464062Sæll Ásgeir og aðrir félagar.
Takk fyrir síðast (árshátíðin) og ég skemmti mér alveg konunglega. Tek undir að atriði Flugfélagsins EJS toppaði annars önnur atriði í flottri dagskrá skemmtinefndarinnar og vil ég hér með koma á framfæri þökk til þeirra félaga okkar sem að því stóðu svo og skemmtinefdarinnar sem vann að mínu viti frábært verk á stuttum tíma. Örn Árnason og Jónas voru auðvitað frábærir líka, en það vissi maður nú fyrirfram.
En þá yfir í leiðinlegri mál: Ég komst því miður ekki á fundinn í gærkvöldi, en hef heyrt frá ýmsum sem þar voru. Það vill svo til að ég þekki nokkuð til þessara mála en vil ekki tjá mig frekar um þau efnislega hér. Að mínu viti er þó athyglisvert að nokkrir félagsmenn hafa tekið afstöðu, þótt aldrei hafi nema önnur hliðin á málinu komið fram. Það finnst mér óábyrgt, einkum ef í framhaldinu eru teknar ákvarðanir um að vinna gegn þeim saklausu félagsmönnum sem eru á óeigingjarnan hátt að starfa í sjálfboðavinnu í þágu félagsins (núverandi skemmtinefnd). Mér skilst að komið hafi fram yfirlýsing um þetta frá félagsmanni á fundinum í gær, en hann taldi að 100 manna hópur hefði ákveðið að "standa með Einari" í þessu máli og mæta ekki á árshátíðina.
Mér vitanlega hefur stjórn aldrei rætt útávið þær ástæður sem lágu að baki erfiðleikunum í samstarfi við Einar Sólonsson. Sú ákvörðun er eftir því sem ég best veit einungis tekin með hagsmuni Einars að leiðarljósi, enda hafa stjórnarmenn sem betur fer ekki smekk fyrir að fara í leðjuslag við einstaka félagsmenn á opinberum vetvangi, jafnvel þótt þeir tjái sig út og suður um störf og afstöðu stjórnarinnar. Slíkt má enda aldrei gerast. Ég er því ósammála þér Ásgeir að stjórn hafi valtað harkalega yfir Einar í málinu, en tek að öðru leyti heilshugar undir pistil þinn.
Ég tel að miðað við þann farveg sem þessu máli hefur verið komið í, sé ekki annað hægt en að stjórn og "stuðningsmenn Einars" hittist á fundi til að ræða þetta mál og leiða það til lykta í eitt skipti fyrir öll. Það gengur ekki að jafn heimskulegt mál skuli ná að koma félagsstarfinu í annað eins uppnám og nú er orðið og því mál að linni og það fyrir löngu síðan.
það mun enginn nenna að starfa í þágu félagsins okkar í því andrúmslofti sem nú ríkir og því verður að hreinsa andrúmsloftið með því að stjórn fái að koma sínum sjónarmiðum á framfæri við þá sem láta sig málið varða og hreinsa borðið í eitt skipti fyrir öll.
Ef menn telja heppilegt að ég komi með einhverju móti að slíkum sáttafundi, lýsi ég mig hér með reiðubúinn til þess.
Með von um að takist að skýra málin sem fyrst og sættir takist.
Björn Þorri Viktorsson
09.10.2002 at 23:16 #463540Sælir félagar.
Tek undir með greinarhöfundum hér á undan. Þetta eru flottar myndir og einnig finnst mér það gefa myndunum aukið gildi ef menn nenna að skrifa smellinn texta með þeim.
Ferðakveðja,
BÞV
04.10.2002 at 07:07 #463462Sælir.
Ég er ósammála ykkur R12 og boi.
VHF kerfið byggir á því að þú nýtir einungis þær rásir/tíðnir sem þú hefur heimild til að nota. Þess vegna eru engar fastar tíðnir/rásir í stöðinni þegar hún er keypt, heldur eru þær settar í hana ef þú framvísar skriflegri heimild frá umráðamanni viðkomandi tíðnar/rásar. Þannig getur sá sem fengið hefur úthlutað tiltekinni tíðni/rás á VHF stjórnað því hver/hverjir hafi heimild til að nýta hana.
Mér er ekki kunnugt um að þetta fyrirkomulag hafi valdið neinum óþægindum, nema auðvitað þeim sem vilja nýta rásir í heimildarleysi, annað hvort vegna þess að þeir hafa ekki heimildina frá umráðamanni rásar/tíðnar eða vegna þess að þeir eru með talstöð sem ekki er lögleg hér á landi.
Ferðaklúbburinn 4×4 heldur t.d. vandlega utanum þann hóp félagsmanna og utanfélagsmanna (t.d. LÍV félagar, Ferðafélagið o.fl.) sem fengið hefur úthlutað rásum klúbbsins. Klúbburinn setur það að sjálfsögðu sem skilyrði að menn greiði félagsgjöld eða semji með öðrum hætti um afnot af klúbbrásunum. Þetta er hið eðlilegasta mál, enda búið að eyða gríðarlegri vinnu og fjármunum í uppbyggingu þessa fína VHF kerfis. Þannig verða t.d. rásir innkallaðar frá þeim sem hætta að greiða félagsgjöld.
Ég tel því boi, að útdeiling þín á VHF tíðnum á internetinu sé í óþökk klúbbsins og hvet þig til að hætta því hið snarasta. ÞETTA UPPÁTÆKI ÞITT ER ALFARIÐ Á ÞÍNA ÁBYRGÐ. Þið sem hafið áhuga á því að vera með búnað sem ekki er viðurkenndur hér á landi("smeglaður" eins og þú skrifaðir eftirminnilega í eldri pistli) eigið að hafa vit á því að vera ekki að gaspra með þau mál á netinu, hvað þá á sjálfri heimasíðu klúbbsins sem er að reyna að halda utanum útdeilingu á þessum rásum!
Þú þekkir vonandi söguna um Litlu gulu hænuna. Að sjálfsögðu eiga aðeins þeir sem sá fræjunum að fá að borða brauðið, en það eru alltaf hinir sem vilja líka fá…
Ferðakveðja,
BÞV
03.10.2002 at 21:16 #463336Sæll R12.
Það er rás 44 sem truflast helst, en einnig verður þess vart á 46, þó mun sjaldnar (endurvarparásirnar okkar). Mér skilst að þegar þessi lélegi/ónýti endurvarpi leigubílastöðvarinnar byrjaði að trufla hér á svæðinu þá var hann staðsettur í Engihjalla. Menn voru að vonum pirraðir og virðuleg Fjarskiptastofnun brást skjótt við kvörtununum og ….. færði endurvarpann á Hótel Sögu…
…dæmigert fyrir fagmennskuna þar á bæ.
Kv. BÞV
02.10.2002 at 17:15 #463332Sæll R12.
Ég hef ekki heyrt fyrr um þessi vandamál sem þú lýsir. Ég hef svo sem ekkert sérstakt tæknivit á þessum VHF málum, í því er td. Eddi (Eðvald Geirsson) félagi okkar betri kostur, svo og aðrir félagar okkar í fjarskiptanefnd, m.a. okkar ástsæli formaður og Kalli (báðir símamenn til margra ára og þekkja þetta allt í smáatriðum).
Ég hef hins vegar staðið í þeirri meiningu að með því að setja sítónloka á rásir, þá sé í raun hægt að skipta hverri rás upp í fleiri rásir með mismunandi sítón (ég held að með því megi skipta hverri rás upp í a.m.k. fjórar).
Ég bið mér fróðari menn að leiðrétta mig ef ég er að fara með fleipur í þessu efni.
Ég held að þetta sé gert að tilstuðlan Fjarskiptastofnunar sem eins og ég lýsti í upphafi pistilsins er að mínu viti með allt niðrum sig í VHF málum hér á höfuðborgarsvæðinu.
Ég væri feginn ef fjarskiptanefndin léti okkur vita á síðunni hvenær við getum farið að kveikja aftur á skannernum á VHF hér á Reykjavíkursvæðinu án þess að vera með röflandi leigubílstjóra í eyrunum…
Ferðakveðja,
BÞV
30.09.2002 at 20:24 #463374Fyrirgefðu GGI !
Ég hafði ekki tekið eftir því að þú varst búinn að benda á gripinn. Ég rakst á þetta á síðunni hjá þeim í dag og fannst tilvalið að láta vita. Ég þarf greinilega að lesa betur áður en ég helli úr skálum visku minnar…
Ferðakveðja,
BÞV
30.09.2002 at 18:38 #463370Sælir félagar.
Ég get nú ekki sagt að ég sé heitasti Lödu aðdáandinn í bænum, en reyndar átti ég einu sinni svona vagn, station með 1500 vél og reyndist hann vel.
Þar sem ég sé hins vegar að það eru til mikil "Lödufön", þá datt mér í hug að benda ykkur á síðuna hjá Skagafjarðardeildinni. Þar er lada á "44 í þorrablótsferð 2001. Ath. það er linkur af heimasíðu klúbbsins undir "deildir".
Með ferðakveðju,
BÞV
28.09.2002 at 22:46 #463328Sælir félagar.
Þegar ég fékk mér VHF stöð 1998, minnir mig að hún hafi kostað ca. 48.000 kall, ekki með ísetningu. Þá kostaði handstöð um 50.000 kall og hefur mér sýnst að þær hafi hangið þar rétt undir þar til alveg nýlega að þær fóru að bjóðast á 29.900. Ég hef svosem ekki verið að fylgjast með þessu frá degi til dags, en mér sýnist klárt mál að verðin hafa lækkað, bæði í krónum talið og því til viðbótar m.t.t. almennrar verðþróunar (vísitöluhækkunar) á síðustu árum.
Mér finnst þú Árni hitta naglann á höfuðið þegar þú jafnar samanburðinum á VHF og CB við muninn á dyrasíma og síma. Þetta er nánast ekki sambærilegur búnaður, þótt vissulega hafi CB gagnast mörgum í gegnum tíðina. Mig grunar að CB með loftneti kosti nálægt 20.000 kr. Ef hægt er að fá VHF bílstöð í dag, með loftneti á rúmlega helmingi meira, þá er það að mínu viti miklu skynsamlegri fjárfesting.
Stöðin mín heitir Mororola, Skúli, ef ég man rétt og reynsla mín af þessu dæmi miðast bara við hana (árið 1998 fékkst engin önnur viðurkennd stöð (þ.e. ekki þerrar litlu) og Siggi Harðar var fastur með sína litlu Yesu stöð hjá Fjarskiptastofnun, til að fá gerðarviðurkenningu, í meira en heilt ár ef ég man rétt). Stöðin mín er með skanner (tveimur skilgreindum rásagrúppum á skanner) og möguleika á 99 rásum ef ég man rétt.
Ég sakna þess að geta ekki skilgreint skanngrúppurnar mínar sjálfur (þarf að fara í Hátækni til þess). Að öðru leiti kann ég vel við þessa stöð. Möguleiki á 256 rásum í nýju stöðinni hjá Aukarafi eru að mínu viti alger óþarfi. Klúbbrásirnar eru ekki nema 12 og ef menn eru líka í björgunarsveit með heimild til að hafa þær rásir, þá bætast ca. 10 rásir við held ég og svo eru nokkrir með einkarásir líka (t.d. jeppaferðaþjónusturnar). Möguleiki á 30 rásum er því meira en nóg fyrir þá sem eru með allt þetta. Að vísu er sniðugur þessi textaskjár sem hægt er að fá í stöðvum í dag. Það er gott að fá það á skjáinn hvað hver rás stendur fyrir. Nú fyrir tækjaóða jeppamenn er svo auðvitað eitthvað borgandi fyrir fullt af tökkum þótt þeir séu ekkert notaðir… : )
Ef menn eru að spá í notaða stöð (það hlýtur að vera fullt til af stöðvum úr leigubílum eftir að þeir hættu að nota þær…) þá er skanner lykilatriði til að menn fái það út úr þessum búnaði sem hann býður uppá. Rásafjöldi og takkafjöldi er aukaatriði. Að lokum ráðlegg ég mönnum sem fá sér veðurrásirnar í stöðvarnar sínar, að láta ekki setja þær í skanngrúppur.
Allir í VHF !
Ferðakveðja,
BÞV
26.09.2002 at 00:45 #463314Sæll Árni Bergs.
Verðin hafa lækkað…
Nú getur þú fengið 25W stöð í Aukaraf á 39.990,- og handstöð hjá RSH á 29.900.
ÞAÐ ER LÆKKUN Á VERÐUM.
Ef þú getur sýnt mér fram á annað, þá skora ég á þig að benda mér á feil í þessari ályktun minni, a.m.k. þekki ég ekki lægri verð úr fortíðinnin hér á landi. Annars tek ég pistil þinn sem hvert annað röfl!
Gaman væri líka að heyra skoðun þína á mismun á VHF og CB sem er megininntakið í minni grein, en kannski þekkir þú það ekki…
Með VHF kveðjum,
BÞV
25.09.2002 at 16:20 #463310Sæll Skúli.
Ég held að CB detti kannski aldrei alveg út. Hins vegar er það reynslan í mínum ferðalögum að ef allir eru með VHF er slökkt á CB. Þetta er einfaldlega ekki sambærilegur búnaður. Það eina sem þessar stöðvar eiga sameiginlegt er að báðar hafa míkrafón og kallast talstöðvar… : )
BÞV
25.09.2002 at 16:19 #463308Sæll Skúli.
Ég held að CB detti kannski aldrei alveg út. Hins vegar er það reynslan í mínum ferðalögum að ef allir eru með VHF er slökkt á CB. Þetta er einfaldlega ekki sambærilegur búnaður. Það eina sem þessar stöðvar eiga sameiginlegt er að báðar hafa míkrafón og kallast talstöðvar… : )
BÞV
25.09.2002 at 16:09 #463306Sæll Rúnar.
Ég er sammála Frey. Við borgum fullt af peningum (árgjald af mörg hundruð stöðvum) til þessarar blessuðu Fjarskiptastofnunar og eigum að sjálfsögðu að fá þá þjónustu sem við eigum rétt á, þ.e. að það sé friður í loftinu á okkar rásum. Það er þeirra hlutverk að útdeila rásum, skipuleggja umferð í loftinu og gæta þess að menn séu ekki með ónýtan búnað í gangi.
Nú veit ég ekki hvað af ofangreindu er að valda okkur þessum leiðindum, en það er örugglega afleiðing mistaka þessarar vonlausu stofnunar.
Ég get upplýst það hér að meðan ég var formaður félagsins, þá hringdi ég nokkrum sinnum og gerði við þetta athugasemdir á mannamáli, en varð aldrei var við nokkurn vilja til að bæta úr þessu, einungis afsakanir um að búnaður uppfyllti staðla og bla bla bla.
Ef þú átt enn fleiri sögur um langvarandi slóðaskap þessarar stfnunar, þá er enn meiri ástæða til að spyrna ærlega við fótum og krefjast úrbóta.
Með ferðakveðju,
BÞV
24.09.2002 at 21:35 #191697Sælir félagar.
Nú eru endurvarpar Ferðaklúbbsins orðnir 8 í það heila og má segja að flest fjölförnustu hálendissvæði landsins séu nú í sambandi. Auðvitað verður seint hægt að þekja öll svæði 100%, en nú er víðast hvar fínt samband á þeim hluta leiðanna sem liggja sæmilega hátt. Risa skref voru stigin í þessum málum nú í sumar og haust með uppsetningu endurvarpa á Vaðöldu, Háskerðingi, Gagnheiði og Strút.
Nú er svo komið að ýmsir aðrir hafa óskað eftir aðgangi að endurvörpunum okkar og er það vel. Um að gera að hleypa fleirum að kerfinu, að sjálfsögðu gegn sanngjörnu gjaldi sem nýtt verður til þess að viðhalda kerfinu og endurbæta það enn frekar.
Ég mæli með því við alla þá sem eru að velta fyrir sér fjárfestingu í talstöð að leita allra leiða til að komast yfir VHF fremur en CB, þar sem virkni og möguleikar þeirra eru miklu meiri/betri. Verð á VHF stöðvum hafa líka lækkað, auk þess sem hægt er að finna ágætar notaðar stöðvar (sjá t.d. heimasíðu Sigga Harðar rsh.is). Passið bara að þær séu helst með scanner.
Þó er einn skugga sem ber á þetta annars fína kerfi. Leigubílastöð hér í borginni truflar rás 44 ótt og títt á stórum svæðum, einkum í vesturhluta borgarinnar. Þetta verður þess valdandi að maður nennir ekki að hafa skannerinn á og jafnvel slekkur á stöðinni. Þar með hættir maður að hafa þau not af búnaðinum sem maður vill, en nú nást t.d. bæði 44 og 46 á höfuðborgarsvæðinu.
Spurning er hvort fjarskiptanefnd klúbbsins reyni að gera atlögu að Fjarskiptastofnun sem á auðvitað að passa að þessir hlutir séu í lagi. Það er hálf aumt til þess að vita að þeir aðilar (stofnunin) gæti þess ekki að þessir hlutir séu í lagi, en ég veit að það er oft búið að reyna að fá þá ágætu menn tila að vinna vinnuna sína og koma hlutunum í lag, en því miður án árangurs. Rétt er einnig að hafa í huga að stundum heyrir maður öll samskipti leigubílastöðvarinnar við sína menn, og augljóst er að þar eru í gangi samskipti sem menn reikna ekki með að við getum hlustað á.
Með ferðakveðju,
BÞV
-
AuthorReplies