FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Björn Þorri Viktorsson

Björn Þorri Viktorsson

Profile picture of Björn Þorri Viktorsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 501 through 520 (of 730 total)
← 1 … 25 26 27 … 37 →
  • Author
    Replies
  • 12.12.2002 at 20:57 #465360
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Bjarni G.

    Gaman að þessum link. Mig grunaði alltaf að það leyndist í þér díeselkall… allavega er ljóst að þú ert að stelast í svona grútarbrennaraupplýsingar á netinu :)

    TD. kveðja,

    BÞV





    09.12.2002 at 10:51 #464824
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Reynslusaga…

    Fór í fatahreinsun í morgun… sparaði 1.185 kr. með því að framvísa félagsskírteininu…

    alltaf að græða…

    Ferðakveðja,

    BÞV





    07.12.2002 at 11:39 #464820
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Toni.

    Það kom upp í hugann eftir bjórkvöldið og kynninguna hjá Bílanausti í gær, að félagsmenn kunna greinilega að meta svona uppákomur. Mér er sagt að u.þ.b. 400 manns hafi mætt til að kynna sér kælingu öls og allar vörurnar sem þeir bjóða uppá en þær voru boðnar á sérstökum afsláttarkjörum bara í gærkveldi. Ég komst því miður ekki, en lofa að mæta að ári ef þeir heiðursmenn hjá Bílanausti endurtaka leikinn. Við erum að fá MIKIÐ fyrir félagsgjöldin okkar!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    06.12.2002 at 23:33 #464992
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Ég varð fyrir því óláni 1997 að aka fram af hengju, jafnvel þótt ég hafi ekið eftir vegi, þannig að ég þekki tilfinninguna og einnig óvissuna um það hvort tjónið fæst bætt eða ekki. Fór endastungu og fjórar eða fimm veltur og… allt í steik.

    Ég mæli hiklaust með utanvegakaskó, jafnvel þótt sjálfsábyrgðin sé tiltölulega há, en það má semja um hana með því að greiða aðeins hærra iðgjald. Mér finnst þessi trygging reyndar á mjög sanngjörnu verði (sem því miður er ekki hægt að segja um tryggingariðgjöld almennt).

    Keyrum samt helst þannig að tryggingar skipti ekki máli… :o)

    Ferðakveðja,

    BÞV





    05.12.2002 at 22:13 #464856
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Arnor.

    Það stóð til að aka suður á Tungnaárjökul og koma þar niður. Það hefði væntanlega ekki verið neitt mál, en þar sem við höfðum ekkert skyggni, sáu menn ekki tilganginn í því, bara til að geta sagst hafa farið þetta. Í staðinn ókum við gamalt og krefjandi trakk í gegnum hraunið meðfram Jökulgrindunum. Það er kannski fullsnemmt að fullyrða að einhver tiltekin svæði á jöklum séu örugg á þessum tíma, einkum þegar haft er í huga ruglið á veðurguðunum undanfarnar vikur…

    Með ferðakveðju,

    BÞV





    05.12.2002 at 00:16 #464738
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Lúther!

    Ég tek undir með þér, þessi Jökulheimaferð lukkaðist miklu betur en ég hafði þorað að vona, enda flottur hópur og var málum skipað eftir aðstæðum á staðnum. Bestu kveðjur,

    Björn Þorri





    04.12.2002 at 23:57 #461614
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    AGNARE hefur margt til síns máls, enda er mér ekki kunnugt um að menn hafi staðið í stórvandræðum með þennan búnað í Pajero. Hins vegar kann að vera að menn fái sterkari búnað með heilli hásingu, en þá fórna þeir auðvitað ýmsu öðru í staðinn (aðallega fjöðrun og aksturseiginleikum).

    Ég er reyndar hissa að menn skuli ekki hafa spáð meira í gamla Pajero til breytinga og enn meira hissa að enginnskuli enn hafa breytt nýja Pajero á "38 hjól. Það yrði örugglega meiriháttar bomba, léttur bíll með öfluga vél.

    Ferðumst í friði og á stöðugu iði…

    BÞV





    04.12.2002 at 23:43 #464844
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll AtliE.

    Ef þig langar alls ekki í sprungu á jökli, þá er þetta sennilega ekki réti tíminn til ferðalaga á þeim svæðum fyrir þig…

    þetta er klárlega krítískur árstími, sérstaklega í ár, þar sem vetrarákoman hefur alls ekki náð að hylja vatnsrásir og sprungur sem myndast hafa sl. sumar og haust.

    Eins og ég sagði í öðrum þræði hér á spjallinu áðan, þá fórum við á 20 bílum sl. helgi austur á Sylgujökul í Vatnajökli og gekk mjög vel. Við hefðum örugglega skoðað stærra svæði af vesturhluta jökulsins ef við hefðum fengið skyggni, en því var því miður ekki til að dreifa.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    04.12.2002 at 23:36 #464840
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll ÞK.

    Við fórum nýliðaferð í Jökulheima og víðar um sl. helgi. Við fundum snjó á Vatnajökli (ath. það er ekki langt þarna austur) og einnig fundum við snjó í brekkunum upp á Breiðbak. Þekki ekki Langjökul núna, en veit að þú getur ekið a.m.k. 10 km. inn á Sylgjujökul í Vatnajökli án vandræða, því það gerðum við um sl. helgi á 20 bílum og þar af af tveim á 33" hjólum. (Ath. Sylgjujökull er næsti jökull norður af Tungnaárjöklí í Vatnajökli og er kallaður "jökulkambur" á mörgum kortum Landmælinga Íslands, þrátt fyrir að vera ævinlega rétt skírður í öllum ritum um Vatnajökul, svo og á hinum nýju kortum Máls og Menningar.

    Gættu samt að þér ef þú ferð á jökul á þessum árstíma. Góða ferð!

    BÞV





    04.12.2002 at 23:25 #464818
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Toni.

    Ég hvet þig til að senda alls ekki frúna þína út í búð til að kaupa vara- eða aukahluti í jeppann. Það verður seint sparnaður úr svoleiðis háttalagi… (fyrirgefið alhæfinguna Soffía, Margrét, Kristín, Ella, Guðrún og allar hinar sem þetta á alls ekki við um…).

    Hins vegar finnst mér athugasemd þín eiga fullan rétt á sér, einkum í þeim tilgangi að hvetja stjórn og starfsmann klúbbsins til dáða, enda er það vissulega athyglisvert ef vara- og aukahlutasalar bjóða sauma- og kvennaklúbbum betri afslátt en okkur jeppamönnum sjálfum. ÉG gekk t.d. sjálfur í klúbbinn 1991 eða 1992 af hreinum sparnaðarástæðum, þar sem ég var þá að breyta bíl og vantaði afláttarkjör. Síðar heillaðist ég af hinu blómlega starfi félagsins og fór að taka þátt í félagsstörfunum 1995.

    Skil hins vegar sjónarmið Páls Halldórs einnig vel, að betra hefði verið að koma þessu til stjórnar beint án þess að gera lítið úr starfi stjórnar á spjallvefnum. Það er lítt uppörfandi fyrir þá sem eru af heilumhug að gefa klúbbnum heilmið af tíma sínum í hugsjónastarf.

    By the way, þá tel ég afsláttarkjör félagsmanna hjá samsstarfsaðilum félagsins frekar hafa batnað á síðastliðnum árum, enda hafa bæði komið inn nýjir aðilar með afslætti og afslættir eldri samsstarfsaðila hafa verið auknir (t.d. Bílanaust o.fl.) Kannski er samt hægt að gera enn betur?

    Ferðakveðja,

    BÞV





    04.12.2002 at 23:07 #464800
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Fyrir þá sem ekki vita, þá vorum við Valdi ásamt bræðrum hans og fleiri fínum fírum (og kvinnum) í flottustu nýliðaferðinni, í Jökulheima um síðustu helgi…

    Þú ert búinn að fá fín komment á þessa pælingu þína hér að framan. Bara svo að ég beri aðeins í bakkafullan lækinn líka, þá er það með þetta eins og svo margt annað, að mestu máli skiptir hvernig og á hvað þú ert að nota þann búnað sem þú ert að spá í. Ég er algerlega sammála því sem fram hefur komið, að gírspil er "öflugri búnaður" að því leyti að þú getur spilað "endalaust" með svoleiðis græju og svo gefur hún líka minna eftir… sem aftur er spursmál hvort er kostur eða galli…

    Hins vegar er rafmagnsspil léttara, ódýrara og meðfærilegri búnaður. Í ferðinni okkar um daginn var ég með spilið framan á Barbie, sem var vont. Bæði fjaðrar þessi elska það vel, að svona 25-30 kg. þyngd fremst framaná hefur heilmikið að segja og einnig þurfti ég stundum að sæta lagi til að plægja ekki fósturjörðina þar sem vegur var sem torsóttastur. Við venjulegar aðstæður geymi ég spilið heima, nema að ég telji mjög líklegt að þurfa að nota það í túrnum. Ef ég tek það með mér, geymi ég það alla jafna frekar aftan á bílnum en framaná, (en núna var ég með 800 kg. kerru þar svo þeim möguleika var ekki til að dreifa).

    Fyrir súkkuna þína mæli ég frekar með rafmagnsspili, enda tæmirðu trauðla geymana þótt þú spilir svoleiðis fis talsverða leið. Ef þú værir hins vegar á 2,5-3ja tonna bíl, finndist mér glussahugmyndin meira heillandi.

    Auðlvitað er hægt að útbúa hraðtengi á glussaslöngurnar þannig að hægt sé að taka spilið af, en það tel ég mjög mikilvægt, í þeim tilgangi að auka umferðaröryggi, en mér finnst frekar óskynsamlegt og algerlega óþarft að aka með spil skagandi fremst framúr bílnum allan ársins hring.

    Með ferðakveðju,

    BÞV





    29.11.2002 at 01:09 #464674
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Hæ hó.

    Það er hörkustemmning fyrir þessu. Veðrið er ótrúlegt miðað við ársríma… Við sleppum sennilega snjóakkerinu í þetta sinn…", Við í Jökulheimaferðinni erum gallhörð á því að hafa þetta bara þrælskemmtilegt og látum náttúruöflin ekki aftra okkur á nokkurn hátt.

    Óskum hér með eftir hljóðfæraleikara í túrinn. Það er það eina sem virðist ekki endanlega frágengið. Má hafa með sér barn/börn og traktor engin fyrirstaða… Þetta er svona eins og að auglýsa eftir ráðskonu í sveit…

    Góða ferð!

    BÞV





    20.11.2002 at 18:54 #464438
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Daníel.

    Þær tillögur sem tækninefndin í samvinnu við breytingaaðila eru sniðnar að verulegu leyti að hverri bíltegund fyrir sig, þ.e. við viljum gjarnan sjá útfærðar breytingar sem henta hverjum bíl/gerð fyrir sig. Við höfum ekki birt þær tillögur sem liggja fyrir á þessari stundu, en búið er að útfæra tillögur fyrir flesta algengustu bílana sem menn eru að breyta í dag, m.t.t. þess á hvað stór hjól til stendur að setja þá.

    Þá höfum við viljað leggja til að allar breytingar t.d. á burðarvirki, fjöðrunarkerfi og bremsum verði skoðaðar, þannig að tryggt sé að ekkert fúsk komist á göturnar í þeim efnum.

    Þótt núverandi reglur hafi að mörgu leyti reynst vel, þá er löngu orðið tímabært að endurskoða og lagfæra reglur um þessi mál, enda hafa jeppabreytingar þróast talsvert á þeim tæpu 20 árum sem liðin eru síðan núverandi reglur voru settar.

    Gaman væri að heyra hvað félagsmönnum finnst um þessi mál, enda erum við "neytendurnir" í þessum málum og allt fúsk sem kemst á göturnar lendir að lokum á okkur.

    Með ferðakveðju,

    BÞV





    20.11.2002 at 00:54 #464428
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Hjalti.

    Minniháttar breytingar krefjast ekki sérskoðunar, þ.e. ef upphækkun er minni en tvær tommur minnir mig og dekkjastærð breytist innan við 10%. Þú þarft klárlega að láta sérskoða bílinn, en ef þú hefur verið búinn að því (harla ólíklegt á ekki stærri hjólum) þá er breytingaskoðun nægjanleg. Ef ég skil þetta rétt, þá á að fá úttekt á öllum breytingum sem gerðar eru, ýmist í sérskoðun eða breytingaskoðun.

    Gallinn er bara sá, að sérskoðun eins og hún er framkvæmd í dag er hvorki fugl né fiskur. Nær væri að tala um "skráningarskoðun", þar sem mest virðist lagt upp úr því að færa ný tölugildi um bílinn inn á skráningarvottorð, en skoðunin sjálf er meira í skötulíki. Mér er t.d. ekki kunnugt um að þú þurfir á nokkurn hátt að forsvara breytingar á burðarvirki (grind), bremsukerfi né fjöðrunarkerfi svo dæmi séu tekin.

    Tækninefnd Ferðaklúbbsins 4×4 hefur lagt til að reglur verði útfærðar með vitrænum hætti um ýmislegt sem að þessu lýtur, en virðulegt dómsmálaráðuneytið hefur ekki enn svarað bréfi okkar frá því um september sl. þar sem við óskuðum eftir að fá fulltrúa í nefnd sem til stendur að setja á laggirnar til að endurskoða þessi mál.

    Vonandi kemst sú nefnd á laggirnar sem fyrst.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    19.11.2002 at 22:43 #464362
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælt veri fólkið.

    Ég verð nú að segja að fólk þarf að hafa frjótt ímyndunarafl til að túlka skrifin í þessum þræði sem "kvennahatur". A.m.k. hafði mér ekki dottið slík fásinna í hug. Ég trúi því að upphafsmaðurinn hafi fremur verið að setja af stað kraftmikla umræðu, enda hafa ýmsar valkyrjur í klúbbnum (sem m.a. kláruðu "kvennakrapatúrinn" í fyrra með eftirmynnilegum hætti) svarað kröftuglega fyrir sig, enda klárlega til þess ætlast.

    Í öllum bænum höfum hóflega mikinn húmor við höndina og jafnframt gaman af þessu.

    Auðvitað eru konur sérstaklega velkomnar í klúbbinn, enda hefur þeim sem betur fer fjölgað talsvert á síðustu misserum.

    Með húmorinn í lagi.

    BÞV ",





    19.11.2002 at 22:29 #464424
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Magnús.

    Þú þarft vigtarseðil, vottorð um hraðamælabreytingu, vottorð um stýrisbreytingu ef hún hefur verið framkvæmd, sjúkrakassa og slökkvitæki.

    Gættu að þér að aukaljós séu rétt tengd, svo og kerrutengillinn. Það er mjög vinsælt efni í athugasemdir.

    Gangi þér vel.

    BÞV





    16.11.2002 at 13:06 #461590
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir drengir.

    Þú ert stórskáld Emil. Flott vísa og nýmóðins bragháttur.

    Bjarni minn, ég ætlaði varla að sofna í gærkveldi eftir að hafa áttað mig á því hve veröldin yrði fátækari ef ekki væru til græjur eins og ÝKTUR. Tilhugsunin ein olli mér andvöku langt fram á nótt… Flottur bíll sem þú mátt vera stoltur af og gaman væri að sjá fleiri smíða bíla "frá grunni" af jafn mikilli vandvirkni og þú hefur gert.

    Það er auðvitað skemmtilegast að hafa flóruna sem fjölbreyttasta og út af fyrir sig ánægjulegt þess vegna að menn skuli enn fást til að gera út ameríkudæmið…

    Kv. BÞV





    15.11.2002 at 23:33 #461584
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir aftur.

    Nú er gaman að vera til.

    Bjarni G. er þá laumubóndi eftir allt saman… auðvitað hefði maður átt að vera búinn að átta sig á því, karlinn ekur á draumi íslenska bóndans og er stoltur af! Hvernig er það með ykkur mjólkurbændur, komist þið nokkuð á fjöll yfir höfuð, þjakaðir af mjaltatímum bæði kvölds og morgna…

    Reyndar hélt ég eitt augnablik að karlinn væri skurðlæknir… en sá svo að það gat ekki verið.

    Óskar á stórleik með nýyrðinu "rangskreiður". Þetta er hrein snilld og ég vona bara að þú hafir sagt Merði Árna frá þessu áður en nýja orðabókin kom út.

    Fyrir þá sem ekki vita, enduðu lífdagar Patróls Palla Hall með smá tjóni, er hann kyssti fósturjörðina helst til harkalega. Af því hlaust illvíg grindarskekkja, auk þess sem báðar hásingar bognuðu talsvert. Bílinn gerði Páll þó ótrauður út um nokkurt skeið eftir óhappið og plataði mig m.a. með sér í "Pabbatúr" á fjöll áður en tryggingarnar leystu djásnið til sín. það varð mér nánast til ólífis, er páll á 3ja degi opnaði vélarhlífina til að athuga með nýtilkomið kraftleysi í bílnum (túrbórör hafði farið í sundur) og ég áttaði mig á því í hvílíkum henglum bifreiðin var. Gerðist ég óðamála mjög og ásakaði félaga minn um óábyrga ferðamennsku að þvælast með börnin á bílnum svona til höfðum, en þá var karlinn búinn að strappa túrbórör og allan fjandan til og frá, þar sem vélin var gengin margar tommur til frá upphaflegri legu. Hásingaskekkjan gerði það svo af verkum að bíllinn keyrði hálfpartinn útá hlið (eins og hundur í hliðarvindi) en hann var líka svaka fínn í vinstri hliðarhalla…

    Rangskreiður er rétta orðið yfir þetta ástand bílsins. Vel mælt Óskar.

    Hvernig er það annars með ykkur stórferðamenn sem aldrei stoppið. Af hverju leyfið þið okkur malbikskörlunum ekki að fá fréttir af færð á fjöllum. Endilega skrifið fréttir í dálkinn á heimasíðunni.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    15.11.2002 at 22:03 #464200
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Hlynur.

    Þú ert ekki í lagi að vera að rifja upp svona uppákomur, en því miður stóðst ég ekki mátið og kannaði hvað þú varst að leiða okkur útí… og það varð mér næstum að aldurtila…

    Hvurnig er það annars með grána þinn. Er hann orðin heill heilsu? Síðast þegar ég heyrði í þér keyrðirðu hann áfram á hitalækkandi Parkódín töflum…

    Með langferðakveðju,

    BÞV





    15.11.2002 at 21:37 #461574
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæl öllsömul.

    Það er mikið að menn eru farnir að ræða þessi heimsálfumál í jeppaframleiðslu án fordóma og af fullkominni einurð! Ég hef satt að segja saknað umræðu sem er ekki lituð af sleggjudómum og fávísi, heldur vel ígrunduð og með tilliti til reynslu íslenskra jeppamanna sl. ár og áratugi.

    Að vísu sýnist mér að það sé einungis ríflegur helmingur þeirra sem tjáir sig sem virðir þessi grundvallarviðmið heilbrigðrar rökræðu, þ.e. þeir sem séð hafa ljósið í jeppaferðamennskunni. Þarna á ég við þá sem náð hafa að þróast með reynslunni frá gömlum, stífum traktorsjeppum frá USA (ennþá afgreiddir á blaðfjöðrum eins og hestvagnar villta vestursins) yfir í japansk-framleidda eðaljeppa.

    Ef þú sérð jeppamann á fjöllum, sem er úttaugaður, dauðþreyttur og löngu hættur að hafa gaman af túrnum, auk þess sem hann er allur haugskítugur af smurolíu uppfyrir haus og konan hans annað hvort farin frá honum eða að íhuga það alvarlega, þá geturður verið viss um að þar er á ferð vírussmitaður Ford, Chevy eða Dodge eigandi, sem sér ekkert annað og munaldreisjáannað sama á hverju gengur.

    Það eina sem vinnst með þessari ameríkuútgerð hinna vanþróuðu, er að við hinir á japönsku hrísgrónahýðunum fáum með því staðfestingu á því að við völdum rétt!

    FERÐAKVEÐJA (á Caps Lock)

    já vel á minnst ORMUR, ég nenni ekki að elta ólar við að svara þínum pistli núna, til þess er ég einfaldlega í allt of góðu skapi, en ÞVÍLÍKT BULL!!!!! (nú notaði ég upphrópunarmerkin eins og hann)

    BÞV





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 501 through 520 (of 730 total)
← 1 … 25 26 27 … 37 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.