FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Björn Þorri Viktorsson

Björn Þorri Viktorsson

Profile picture of Björn Þorri Viktorsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 481 through 500 (of 730 total)
← 1 … 24 25 26 … 37 →
  • Author
    Replies
  • 17.01.2003 at 00:12 #466620
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Ég er með 2 stk. aukatanka í barbí og með 2 stk. dælur sem dæla úr þeim á aðaltankinn. Aukatankarnir mínir eru úr ryðfríu stáli, smíðaðir fyrir 3 árum. Einu sinni hefur þurft að lagfæra sprungna suðu í örðum þeirra, þrátt fyrir mikið álag og nudd við móður jörð.

    Ég held að álið sé almennt að stríða mönnum meira en stálið, enda þykkara (þolir minni hreyfingu) og því lítið/ekkert léttara en stálið þegar upp er staðið. Skil alveg að menn skoði líka venjulegt smíðajárn, þótt ég þekki einnig til ryðvandamála með það með tímanum (einnig að innanverðu => stíflaðar síur…).

    Ég sé ekki þörf á að nota mælir í aukatank, enda veistu hvað þú ert búinn að dæla miklu af honum/þeim ef þú hefur mælir á aðaltanknum. Sammála að 6,2 GM dælurnar eru ódrepandi og einnig að nauðsynlegt er að hafa ljós á rofum til að gleyma sér ekki við áfyllingu.

    Að mínu viti er best að hafa áfyllingarrör á aukatank út úr hlið aðaláfylingarrörs og taka dælustúta frá aukatönkum upp í áfyllingarstút aðaltanks, þá er einfaldlega hægt að fylgjast með / skoða hvernig dæling á milli tanka gengur (með berum augum).

    Ferðakveðja,

    BÞV





    16.01.2003 at 18:56 #466602
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Mín reynsla er sú að vetrarolían sem verið er að selja er almennt mjög góð og miklu betri en grúturinn sem seldur var árið um kring fyrir nokkrum árum. Ef menn eru að lenda í vandræðum vegna frosts, þá er það oftast vegna þess að það er vatn/raki í tanknum eða í síunni. Það er best að leysa með ísvara.

    Það er mjög fátítt að menn séu að lenda í meira en 20 stiga frosti, en þá er fátt annað er steinolía og örlítið af tvígengis olíu sem tryggir vandræðalausan gang.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    13.01.2003 at 23:30 #466374
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Heirðu kallinn minn…. þú ERT á alvöru bíl! a.m.k. ef það er e-ð að marka skráninguna þína… LC 90.

    Heyrðu, er þetta gamli 90 bíllinn eða sá nýji, með einbunuvélinni eða bara æðubunu… eða er þetta kannski nýji 90 120 bíllinn?

    Þessi númer eru nebblega soldið grúví…

    Kv. BÞV





    13.01.2003 at 23:25 #461634
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Gleðilegt ár á einum líflegasta þræði spjallsins frá upphafi!

    Tek undir þetta með eik, það er ekkert mál að hækka upp bíla sem ekki eru á sjálfstæðri grind. Er hins vegar ekki sammála þeim sem halda því sífellt og endalaust fram að "ekkert vit sé í öðru en að vera á hásingu…", enda eru menn þá bara ekkert að fylgjast með framþróun í fjöðrunarkerfum á þessum bílum.

    Sjáiði t.d. bílinn hjá vini mínum boa. Byrjar ekki nema karlkúlan á að rífa það úr þessum bíl sem gerði hann að "limma", þ.e. framfjöðrunina og vélina. Og hvað haldiðisvo??? Setur hann ekki nema gamla rörið, vélina og "69 módelið af Benz kassanum oní djásnið! (ég reyndar skil þetta vel með vélina, hún er snilld). Þetta kallar maður að vera "fastur í gírnum".

    Ferðakveðja,

    BÞV





    13.01.2003 at 23:04 #466368
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Hæ Palli og þið hinir.

    Helvíti líst mér vel á þetta. Ég er klár og átta mig á að það þarf fullt af mannskap þennan dag, enda mikilvægt að allt skipulag gangi upp.

    Hvet sem flesta til að taka þennan dag frá og vera með í þessu afmælissprelli!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    11.01.2003 at 14:33 #466272
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir heiðursmenn.

    Aðeins til að leiðrétta misskilning fasts, þá var ég í fyrri pósti mínum að tala um nýja bíla, enda skildi ég upphaflegu fyrirspurnina þannig að hún ætti við þá, þar sem einnig var verið að velta fyrir sér kostnaði við breytingarnar. Það eiga því ekki við athugasemdir þínar um kraftleysi, þar sem nýji Hilix Dc er kominn með túrbínuvél (auðvitað þekkja allir raunir 83ja hestafla manna á túrbínulausum gamla Dc. Ég hef ekki ennþá heyrt neinn kvarta yfir kraftleysi í nýja Dc.

    Svo er það þetta með amerísku bílana, sem ég hef alltaf jafn gaman af að tala um. Auðvitað þekkja allir einhverja ákveðna hluti úr þessum bílum sem hægt er að nota, svo sem einhverjar tilteknar týpur af hásingum eða skiptingum. Það væri nú annað hvort, þegar öll ameríska flóran liggur til grundvallar. Hins vegar hefur mér sýnst að þeir sem eru að gera út amerísku bílana til að nota þá á fjöllum, séu flestir í endalausu bilanabasli, enda er það nú einfaldlega svo að þessir amerísku bílar sjást ekki mikið á fjöllum. Auðvitað er það vont mál, því eins og ég hef áður lýst, þá er lang skemmtilegast að jeppaflóran sé sem allra fjölbreyttust. Reynsla manna og álit ræður hins vegar ákvörðunum manna þegar kemur að kaupum á bíl og þess vegna verður niðurstaðan hjá 80-90% kaupenda að kaupa japanskt eins og sing lýsir svo vel í sinni grein.

    Athugasemdin um varahlutaverð á einnig nokkurn rétt á sér, en í þessum skrifuðu orðum var ég einmitt að heyra af einum félaga okkar með brotinn framöxul í Patrol í óbyggðum og er hann nú að klóra sér í höfðinu yfir verðinu á nýjum öxli í umboðinu; 120.000 kr. ! Þessi athugasemd á hins vegar ekki við um öll umboð japönsku jeppanna, en þau litlu varahlutakaup sem ég hef átt hjá P.Sam. eru á mjög sanngjörnu verði. T.d. slithlutir eins og kúpling á sama eða mjög svipuðu verði og hjá öðrum. Þeir eiga einnig heiður skilinn fyrir það að eiga nánast alltaf alla varahluti til á lager.

    Með ferðakveðju,

    BÞV





    10.01.2003 at 22:43 #466266
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Isan.

    Ég hef einhvernveginn aldrei skilið hvað Íslendingar eru fljótir að gleyma. Ýmsir hafa lært að nota sér það, t.d. bæði pólitíkusar og þeir sem selja vilja allskonar dót.

    Amerískir jeppar hafa almennt komið illa út í rekstri hér á landi, enda sýnir hlutfall þeirra í jeppaflóru nútímans það glögglega. Ef menn vilja fá þetta dót til að virka, þá þarf sérstaka kunnáttu og lægni til að breyta þessu og styrkja, þannig að hægt sé að nota það.

    Nú eru menn allt í einu farnir að gefa þessu dóti gaum aftur, einfaldlega vegna þess að allt of margir eru búnir að gleyma baslinu sem var samfara því að gera þetta út áður, einfaldlega af því að svo fáir eru að því í dag. Og staðreyndin er sú, að þeir fáu sem af þrjóskunni einni saman gera þetta út í dag, eru sjaldnast að ferðast mikið, undirbúa hverja ferð sérstaklega vel m.t.t. allskonar endurnýjana og viðhalds og eiga svo "aukabíl" til að nota í bænum, þar sem kaninn kemur oftast heim bilaður í ferðalok.

    Hrísgrjónahýðiskallarnir á japönsku bílunum, fara flestir í túr án þess að huga neitt sérstaklega að bílnum frekar en þeir væru að skutlast í Kópavoginn og eiga sjaldnast aukabíl til að nota á "bilanatímabilum".

    Prísinn á Dollar er örugglega að ýta mönnum til að skoða þessar ammrísku dósir… Kannski er orðið það langt síðan að "Bronco 74" tímabilinu lauk (sem sumir kalla "eins og sitjandi hundur fastur á rassgatinu" tímabilið eða "endalaus öxul- og hjöruliðskrossabrotatímabilið"), að yngri menn í dag hafa aldrei frétt af því. Er þá ekki sanngjarnt að við hinir VÖRUM ÞÁ VIÐ!… (góður þessi CAPS LOCK..)

    Ferðakveðja,

    BÞV





    10.01.2003 at 22:23 #466296
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Bergur.

    Til hamingju með nýja bílinn! Ég gleymdi alveg að óska þér þess á fundinum um daginn.

    Ertu búinn að prófa græjuna eitthvað? Ég vildi gjarnan sjá fleiri myndir af honum, helst á "38 hjólum, eða gerir breytingin e.t.v. ráð fyrir "44 hjólum?

    Kem reyndar til með að sakna gamla bláa, en allt hefur sinn vitjunartíma!

    Var annarst ekki vitleysa að fórna sjálfstæðu fjöðruninni?

    Ferðakveðja,

    BÞV





    10.01.2003 at 19:05 #466260
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll maskin.

    Ég hef sjálfur verið að velta þessu fyrir mér. Hvað er maður að fá fyrir 2,5 millj. sem maður er að borga extra fyrir td. Cruiser og/eða Patrol, ef maður þarf ekki nauðsynlega "margramannabíl".

    Ég átti áður Dc á hásingu á "38 dekkjum. Var hörkubíll og dreif mjög vel. Að vísu var hann á hásingu og blaðfjöðrum og því var fjöðrunin auðvitað takmörkuð. Nú er ég með LC 90 sem einnig er hörkubíll og auðvitað rúmbetri, kraftmeiri og með meiri fjöðrun. Það eru að mínu viti aðalkostir þessara stærri bíla umfram Dc. Aftursætið í Dc. er t.d. ekki boðlegt stórum fullorðnum til langferða, en rúmar börn og smávaxið fólk ágætlega. Ég sakna þess oft að hafa ekki Dc. pallinn, bæði til flutninga og eins í fjallaferðum.

    Hins vegar eru stærri bílarnir líka talsvert þyngri og breytingin kostar mun meira. Nýr Dc er kominn með nýrri 2,5 l. túrbínuvél sem gefur 102 hö., auk þess sem hann er kominn með sjálfstæða fjöðrun að framan. það er lítið mál að setja gormafjöðrun undir hann að aftan um leið og hásing er færð og kostar lítið meira en bara bremsubreytingin í LC 120. Auk þess er t.d. gríðarlegur verðmunur á brettaköntum á LC og Dc. (meira en 100.000 kr. verðmunur á settinu!)

    Ef þú tekur nýjan Dc, þá kostar hann skv. verðskrá P.Sam. 2.695.000. Ef það er rétt hjá þér að "38 breyting kosti ekki nema um 1 millj., Þá ertu með fullbúinn nýjan öflugan "38 bíl á ca. 3,7-3,8 millj.

    Nýr beinskiptur GX LC 120 kostar skv. sömu verðskrá 4.390.000. "38 breyting kostar 1.750.000, þannig að fullbúinn kostar gripurinn þá 6.140.000,- ! Munurinn er u.þ.b. 2,4 millj.! Fyrir það getur þú fengið tvo nýja Yaris handa bæði konunni og viðhaldinu… og átt 150 þús kr. afgang!!!

    Ég er hissa að menn skuli ekki vera að kaupa þennan nýja Hilux Dc meira en raun ber vitni, því þar eru menn að fá heilmikið fyrir peninginn, en reyndar hefur umboðið ekki haldið þessum bíl mikið frammi og virðist leggja meiri áherslu á að selja LC 120.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    09.01.2003 at 18:23 #465596
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll eik og gleðilegt ár.

    Ég hef aldrei heyrt að þeir byðu 7 ára ábyrgð á krami í þessum ammerísku bílum. Ef það er hins vegar rétt, þá er það örugglega skýringin á því að öll bifreiðaumboð hér á landi sem hafa boðið ammeríska bíla eru farinn á hausinn!

    Ég myndi ekki ráðleggja nokkrum að taka ábyrgð á ammerísku krami fram í tímann. Þá er hreinlegra að sturta úr veskinu beint í klósettið.

    Ég er hins vegar sammála þér að þetta væri flottur búnaður ef hann virkar.

    Helvítis pillu fékkstu annars í síðasta SETRI og það frá heilli landsbyggðadeild…

    Ferðakveðja,

    BÞV





    09.01.2003 at 01:23 #466134
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Hlynur.

    Nú er að þyngjast í þér hljóðið, enda liðhlaup úr hernum ömurlegt fyrir "sanna hermenn".

    Þetta er að verða álíka drama og stjórnarslitin um árið í beinni…

    Gangi öllum vel á nýja árinu, líka Datsun mönnum.

    Kv. BÞV





    08.01.2003 at 22:35 #466130
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Haukur.

    Hurðu, þetta átti nú bara að vera smá leiðrétting á fullyrðingar þínar, engin leiðindi sko…

    Það var einkum tvennt sem mér fannst/finnst ekki ganga upp í fyrri pósti þínum. Í fyrsta lagi að LC 90 og gamli Patrol séu álíka þungir og í öðru lagi að LC 120 sé 300 kg. þyngri en LC 90.

    Eftir minni bestu vitund er hvorttveggja rangt. Það skýrir kannski hið fyrra að þú miðar við upplýsingar úr ökutækjaskrá. Ég miða við vigt, þ.e. raunverulega vigtun. Eins og allir vita, þá er lítið að marka opinberar upplýsingar um þyngd breyttra Patrol bíla úr ökutækjaskrá, enda er "feik" í þeim efnum grundvöllur þess að þessir blessaðir Datsun kallar megi yfir höfuð taka með sér farþega í bílana, þar sem verksmiðjurnar gúddera ekki heildarþyngd þeirra í samræmi við raunverulega heildarþyngd breytts bíls. Ótrúlegt að þeir skuli ekki vera búnir að leysa þetta mál, sérstaklega í ljósi þess að þessir bílar eru næstum einráðir í túristaakstri hér á landi og því auðvelt skotmark ef eitthvað kemur uppá… Hins vegar vita allir að þessir bílar geta vel borið miklu meira en skráningin segir til um, en það er bara ekki nóg í heimi þar sem "reglur eru reglur". Ef mínar uppl. eru réttar, er gamli "38 patrol (þ.e. 89-00 boddýið) að vigta a.m.k. 250-350 kg. meira en LC 90, fer eftir gerðum (ef þú ert að tala um eldri Patrol en 89 þá þekki ég lítið til hans, nema að ég veit að öruggast er að hafa hann á "44 ef menn vilja drífa í snjó).

    Upplýsingar mínar um mismun á þyngd á LC 90 og LC 120 hef ég svo bara munnlega frá fulltrúa Arctic Trucs, en þar var mér sagt að um væri að ræða 100-150 kg. mun, fer eftir gerðum og búnaði.

    Þyngd skiptir verulegu máli. Ég hef átt tvo LC 90 og báðir eru rétt um 2000 kg. á "38 (slefa yfir það með aukatönkum, spilgrind og drullutjakk). Gera menn sér almennt grein fyrir því að 50-100 kg. til eða frá geta skipt sköpum um það hvort menn komast leiðar sinnar í þungu færi eða ekki? Þetta hef ég margsinnis staðreynt!

    Með ferðakveðju,

    BÞV





    08.01.2003 at 09:33 #466156
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll.

    Þetta er við fyrstu sýn það foráttuljótasta sem ég hef séð nokkrum manni detta í hug að líma Toy merki á…

    Það er engu líkara en að þetta sé einhverskonar samsuða af Korando og Hummer, sem seint verða jú taldir fegurstu bílar í flórunni. Ég tel langsótt að það verði markaður hér fyrir þetta skrípi, jafnvel þótt menn setji í það díeselvél, þar sem þetta er jú bara 2ja dyra bíll og hentar því fáum.

    Ef þú nærð því í gegn, þá legg ég til að Óli Grís sæmi þig fálkaorðu með stórriddarakrossi með stjörnu eða hvaðþettanúheitir…

    Ferðakveðja,

    BÞV





    08.01.2003 at 09:26 #466154
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll.

    Þetta er við fyrstu sýn það foráttuljótasta sem ég hef séð nokkrum manni detta í hug að líma Toy merki á…

    Það er engu líkara en að þetta sé einhverskonar samsuða af Korando og Hummer, sem seint verða jú taldir fegurstu bílar í flórunni. Ég tel langsótt að það verði markaður hér fyrir þetta skrípi, jafnvel þótt menn setji í það díeselvél, þar sem þetta er jú bara 2ja dyra bíll og hentar því fáum.

    Ef þú nærð því í gegn, þá legg ég til að Óli Grís sæmi þig fálkaorðu með stórriddarakrossi með stjörnu eða hvaðþettanúheitir…

    Ferðakveðja,

    BÞV





    08.01.2003 at 09:05 #466116
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Þetta er nú ekki rétt. Skv. uppl. frá þeim Toyota mönnum, þá er þyngdarmunurinn á 90 Cruiser og 120 Cruiser ekki nema um 100 kg., þótt bíllinn sé allur mun rýmri (bæði breiðara og lengra innanrými).

    Þá kannast ég heldur ekki við að LC 90 og gamli Patrol séu álíka þungir. Gamli Patrol er klárlega 200-300 kg. þyngri (fer eftir því hvaða týpur menn eru að tala um).

    Með léttri ferðakveðju,

    BÞV





    03.01.2003 at 10:50 #465954
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll.

    Eins og þú sérð á spjallinu, þá var stór hópur þarna uppfrá rétt fyrir áramót, Sindri, Ella, Hlynur og fleiri. Sjá m.a. undir dálknum uppl. um færð.

    Settu þig í samband við þau, síminn hjá sindra er 861-7080/854-7080.

    Kv. BÞV





    24.12.2002 at 17:32 #465866
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Óska félagsmönnum og öðru jeppafólki gleðilegra jóla og ferðaríks nýs árs með þökk fyrir samskiptin á árinu sem er að líða.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    22.12.2002 at 22:33 #465802
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Hlynur.

    Þakka gott boð, en verð þó að hryggbrjóta ykkur Datsunbræður, því að ég mun ekki ganga í klúbbinn alveg í bráð. Á ekki fyrir félagsgjaldinu…

    Með von um SNJÓ!

    Kv. BÞV





    21.12.2002 at 01:48 #465790
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Hlynur.

    Lúther er á réttri leið, hann hjálpar þeim sem villast af "rangri leið"… það þarf ekki síður að hjálpa þeim en þeim sem villast af réttri leið…

    Þú og aðrir patrolkallar eruð á rangri leið… og ef þið villist af henni, þá eigið þið séns á að lenda á réttri leið… Hver sú leið er, er svo alltaf spurning… Ég hugsa talsvert um það um þessar mundir… 120 bíllinn er örugglega frambærilegur kostur, en, það eru hugsanlega aðrir kostir líka…

    Vek m.a. athygli á fróðlegum uppl. frá eik um léttan bensíntogara… þó ég sé reyndar ekki að hugsa um hann.

    Hvernig er annars hitafarið í Daddanum núna. Er hann enn á Parkodíni?

    Ferðakveðja,

    BÞV





    16.12.2002 at 01:31 #465450
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Jón.

    Gaman að sjá að þú ert að hressast!

    Kv. BÞV





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 481 through 500 (of 730 total)
← 1 … 24 25 26 … 37 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.