FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Björn Þorri Viktorsson

Björn Þorri Viktorsson

Profile picture of Björn Þorri Viktorsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 461 through 480 (of 730 total)
← 1 … 23 24 25 … 37 →
  • Author
    Replies
  • 16.02.2003 at 09:32 #468654
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Ég hef ekki prófað þessi dekk sjálfur, en ég hef séð þau svínvirka hjá félögum mínum, bæði undir þungum og léttum bílum (þ.e. í snjó). Þau eru frekar stíf ný, en virðast mýkjast fljótt þannig að þau leggjast vel.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    13.02.2003 at 03:03 #468306
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Einar.

    Nú þekki ég ekki þetta Mitsubishi mál sem þú ert að tala um, en endilega upplýstu okkur um það. Ég vil endilega hreinskipna umræðu um þessi mál, byggða á staðreyndum og rökum.

    Mig mynnir reyndar að einhver þingmaður að norðan hafi brotið stýrisupphengju í Mitsubishi og taldi sig fá það léleg viðbrögð frá umboðinu að hann fór með málið í blöðin. Er það það mál sem þú átt við?

    Mér sýnist Stebbi leggja enn eitt lóðið á þá vogarskál að aðrar hvatir en þú hefur haldið fram hafi leitt til þess að hásingabíllinn frá Toyota var tekinn af Ameríkumarkaði.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    12.02.2003 at 12:37 #468298
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Einar.

    Það hefur enginn (nema þú) talað um að til standi að skylda stýristjakka í alla bíla. Menn eru bara að tala um að setja reglur um að skylda menn til að bregðast við þekktum vandamálum á þann hátt sem menn best kunna. Það að setja reglur um hverja gerð fyrir sig er einmitt gert til að neyða ekki óþarfa upp á alla!

    Enn vil ég ítreka þá skoðun mína að mér finnst ósmekklegt af þér að slá fram fullyrðingum um að einstakir bílaframleiðendur séu að selja "gallaða" vöru á tilteknum markaðssvæðum af því að skaðabætur á þeim séu hvort sem er svo lágar. Þetta eru sleggjudómar og upphrópanir í sinni tærustu mynd, eða hefur þú einhverjar sannanir fyrir þessum fullyrðingum?

    Ferðakveðja,

    BÞV





    12.02.2003 at 10:43 #468240
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sammála Skúla.

    Ég ók sjálfur á 1:5,71 hlutföllum í nokkur ár og þau entust vel þrátt fyrir talsverða notkun. Hins vegar er þetta aldrei í lagi hjá sumum og ég held að innstillingin (ásamt auðvitað meðferð) skipti miklu meira máli en margir halda.

    Það er einungis á færi nokkurra manna að stilla inn hlutföll svo vel sé.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    12.02.2003 at 10:04 #468294
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Einar.

    Ég þekki að sjálfsögðu þær hefðir sem tíðkast við mat á fjárhæð tildæmdra skaðabóta í svona málum í USA. Við getum tekið langa umræðu um það hversu gáfuleg þau fræði eru. Það sem ég er hins vegar að benda á með svari mínu er það, að mér finnst það ómakleg einföldun á málinu hjá þér að telja það helstu ástæðu þess að Toyota sé að selja "hættulegan búnað" á Íslandi og í 3ja heims löndum af því að þar séu skaðabætur svo lágar.

    Þar held ég að önnur sjónarmið hafi hlotið að ráða eins og menn hafa nefnt hér framar í þræðinum.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    11.02.2003 at 19:03 #468182
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir Datsunbræður!

    Í hvaða lyfjaskrín stálust þið núna?

    Þið vitið að landlæknir er víst að skrá sig sem notanda á síðunni, í þeim tilgangi að ná til "skottulækna" eins og ykkar. Það að stunda skottulækningar er lögbrot á Íslandi, en í skottulækningum felst að ófaglærðir "lofa sjúklingi bót á meini sem er ólæknandi". Þetta á við um ykkur, enda vita allir að Datsundæmin eru vonlaus… : )

    Ferðakveðja,

    BÞV





    11.02.2003 at 18:51 #468284
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll eik.

    Að sjálfsögðu hefur þú skoðun á þessu eins og öllu öðru. Nú er ég alls ekki sammála þér (hefur gerst einu sinni eða tvisvar áður). Auðvitað eykur það álag á stýrisgang að setja stærri hjól undir bílana. Að koma og halda öðru fram er ekki trúverðugt né líklegt til að það sé tekið alvarlega.

    Ég get ekki fallist á þá skoðun þína að Toyota sé meðvitað að selja hættulega bíla á Íslandi og í þriðja heiminum af því að skaðabætur séu hvort sem er svo lágar á þeim svæðum… Ég held að framar í þræðinum séu komnar fram miklu líklegri skýringar á því af hverju hásingin var tekin af Ameríkumarkaði, svo og réttmæt ábending um að upphengjubúnaðurinn í klafabílunum getur nú bilað líka (það þarf að styrkja upphengjuna við breytingar).

    Þessi lögfræði þín er vissulega allrar athygli verð, en af hverju er þá enn verið að framleiða og selja ónýta spindla, ljós og hjöruliðskrossa í Ameríku ef allir eru svona hræddir við skaðabótakröfur?

    Athugasemd þinni um að tækninefnd 4×4 ætti að reyna að snúa sér að umboðsmönnum hér á landi til að uppræta "framleiðslugalla" í stað þess að fá settar reglur, hefi ég reynt að svara áður, bæði í okkar prívat samtali og eins á fundi á Loftleiðum. Ég reyni að koma svarinu einu sinni enn á framfæri þótt þú sért ekki sammála eða viljir ekki skilja það, því kannski eru einhverjir aðrir sem lesa athugasemd þína sem hafa ekki heyrt okkar skýringu:

    Núverandi tækninefnd hefur unnið að því í samvinnu við stjórn og samráðsnefnd breytingaaðila að taka á þeim þekktu vandamálum sem lúta að öryggismálum breyttra bifreiða, í þeim tilgangi að tryggja að menn standi að slíkum breytingum með vitrænum hætti. Þetta á einkum við um breytingar á stýrisgangi, bremsum, fjöðrunarkerfi og burðarvirki. Sjónarmið okkar er að við lítum á það sem hagsmunamál okkar allra að þessi atriði séu í sem allra bestu lagi og að menn sem eru að breyta bílum sínum fái réttmætar ábendingar um það hvað þurfi að gera við hverja tegund. Það er ekki endilega af því að menn vilji ekki breyta á þann hátt sem talinn er bestur, heldur þekkja menn kannski ekki endilega á hvern hátt best er að gera hlutina.

    Þá lítum við á það sem sameiginlegt hagsmunamál að öryggið sé í sem allra bestu lagi, þar sem ákveðin hætta er á að það bitni á okkur jeppamönnum öllum sem heild í formi þrengri reglna, ef slys eða óhöpp verða sem rekja má til aðferða við breytingu á bílum. Svo er þetta líka neytendamál, þ.e. að sá sem er að kaupa sér breyttan bíl, geti verið viss um að honum sé breytt á sem bestan hátt ef hann hefur komist í gegnum skoðun. Hópur jeppamanna í dag er svo stór og ólíkur að ekki er lengur hægt að reikna með að allir jeppakallar og kellingar haldi til undir bílum sínum í endalausum stúdíum um útfærslur og aðferðir við breytingar. Jeppafólk hefur margt hvert ekki meira vit á bílum en aðrir ökumenn almennt (og á út af fyrir sig ekkert endilega að þurfa þess).

    Það að berjast við umboðin sjálf tel ég ekki heppilegt. Það sýnir t.d. hrútshornsmálið. Ég hef aldrei legið á þeirri skoðun minni (hvorki við þá sjálfa né aðra) að í því máli sé Toyota umboðið með allt niðrum sig. Þeir eru búnir að vita af því í mörg ár að hrútshornin eru að brotna út um allt, enda selja þeir auðvitað sjálfir hornin og þekkja því tölurnar um fjölda brota nákvæmlega. Ég fylgdist með því fyrir nokkrum árum þegar hrútshorn brotnaði hjá félaga mínum og hann var að reyna að fá þá til að taka málinu alvarlega (og reyndar skoðunarstofu líka) en talaði vægast sagt fyrir daufum eyrum. Enn í dag er ekkert sem segir að "44 hilux þurfi nokkra styrkingu á hrútshorni eða stýrisgangi til þess að fá skoðun og teljast þar með "öruggt farartæki". Allir sem eitthvað vita um þessi mál eru hins vegar meðvitaðir um að slík útfærsla á breytingu er óskynsamleg, enda er hægt að leysa þetta mál á einfaldan hátt með stýristjakki.

    Umboð Datsun bifreiða má þó eiga það að þeir gengu í það að leita lausna á því þegar stýrisarmarnir frá þeim byrjuðu að brotna og innkölluðu m.a. bíla til að skipta um arma þannig að auðvitað er ekki hægt að alhæfa í þessu efni.

    Okkar sjónarmið er einfaldlega það að skynsamlegra sé að eiga frumkvæði að nánari útfærslu þeirra reglna sem settar voru fyrir tæpum 20 árum (og hafa reynst mjög vel), frekar en að horfa uppá þau mál sem reglurnar leysa ekki og fá svo í hausinn reglur eða bönn e.t.v. án samráðs við okkur sem erfitt yrði að sætta sig við.

    Reyndar má ekki gleyma því að almennt eru þessi mál í mjög góðu lagi og því má ekki taka umræðunni sem einhverri upphrópun um að hér sé allt í vondum málum, en okkur ber heilög skylda til að standa vörð um þetta fjöregg okkar, þ.e. að fá að breyta bílunum okkar.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    10.02.2003 at 22:44 #468172
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Eiki.

    Ja for helvede… Hvað var í vinning? Djöfull eru menn pólitískt þenkjandi… ertu í framboði til Alþingis í vor???

    Jú, það var nauðsynlegt að útskýra aðeins þessa sérstöku nafngift sem þessi frábæri ferðahópur valdi sér, enda ekki fordæmi fyrir slíkri sjálfsgagnrýni á lýðveldistímanum…

    Hvurnig er það annars með rjúpnadoktorinn á hægfara fisksalabílnum, hefur hann nokkuð gefið þér VIAGRA nýlega? Það var auðséð að þú varst undir slíkum áhrifum þarna um daginn þegar þú varst að lesa úr lyfjabókinni. "Pinnstífur og réðir ekki við þig". Í lyfjabókinni segir: "Lyfið veldur langvarandi stinningu og verða veikgeðja sjúklingar oft reigðir um of. Hættir þeim til að fá ranghugmyndir um raunverulega getu tóla sinna. Auðvelt er að verða sér til skammar ef lyfið er tekið í of stórum skömmtum."

    Hlynur #2208 er iðulega á lyfinu…

    BÞV





    10.02.2003 at 20:44 #468216
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Ef þú ert að hugsa um að fá sem mesta drifgetu út úr Ex Cap, þá mæli ég hiklaust með "38. Þú ert álíka vonlaus á óbreyttum hlutföllum á "36 hvort sem er og þú þarft einnig að breyta hraðamæli fyrir þau hjól.

    Þetta með "4 rör framaná stuðarann er að mínu viti ekki snjallt. Hafðu í huga umræðuna um öryggismál breyttra bíla, tengt kastara- og stuðaragrindum. Bendi á nýtt íslenskt hugvit hjá Arctic Trucks, þar sem þeir hanna grindina þannig að hún gefi eftir við árekstur.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    10.02.2003 at 15:35 #468168
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Hvar var fulltrúi sýslumanns þegar dregið var í þessu "happdrætti"… Það er grunsamlegt að þau skuli falla formanninum í skaut… Er þetta nú ekki "sóðalegt".

    Þetta með strípalinginn kemur Sóðagenginu ekkert við, því þar stunda menn annarskonar sóðaskap en að afklæðast fyrir framan sómakært fólk. Þar láta menn duga að sleppa uppvaski, skúringum og allskyns slíkum óþarfa sem öllum hundleiðist hvort sem er. (Hefur reyndar bara gerst einu sinni fyrir herfileg mistök og því þótti rétt að "brennimerkja" hlutaðeigendur til æfiloka til að fyrir byggja að slíkt gæti nokkru sinni gerst aftur).

    Ferðakveðja,

    BÞV





    08.02.2003 at 22:51 #468164
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Var að heyra frá Eiríki formanni vesturlandsdeildar. Nú eru um 150 manns á þorrablóti deildarinnar í Húsafelli, mmmmikið grín og mmmmmikið gaman! Gleðskapurinn fer fram í flugskýlinu og hafa heimamenn á orði að þessi blót vesturlandsdeildar séu með fjölmennustu samkomum í sýslunni eftir að aðsókn í réttir dróst saman.

    Formaðurinn var að verða pínu þvoglumæltur nú rétt áðan og talaði mjög undir rós um "strip show" sem ónefndur félagi hefði boðið uppá…

    Vonandi fáum við nánari fréttir af þessu síðar.

    Kv. BÞV





    08.02.2003 at 21:53 #468162
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Var að heyra í Palla Hall, allir búnir að raða í sig eistum og kindaheilum, skjóta upp flugeldum og alles. Góð stemmning og milli 50 og 60 manns í góðu yfirlæti í Setrinu.

    Þung færð og mikið púður. Ló ló færi.

    Kv. BÞV





    06.02.2003 at 10:06 #467876
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Er ekki kaninn ennþá að nota H4 samlokurnar í aðalljós á nokkrum tegundum? Þau lýsa nánast ekkert, eru meira til skrauts. Þetta ónýta dót rúllaði a.m.k. áratugum saman út af færiböndunum hjá þeim og allir brostu hringinn! ..enda illa upplýstir…

    Kv.

    BÞV





    04.02.2003 at 23:09 #467890
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Tek undir með Jónasi.

    Þú ert að fá miklu meiri bíl með því að fara á "38, en hins vegar munar þetta þig sáralitlu í vinnu og kostnaði umfram "36 breytingu.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    04.02.2003 at 22:31 #467846
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Ég skil ekki þessa ótrúlegu ákvörðun "Loðmundarhópsins" að snúa við einungis 7 km. frá Setrinu, af því að "fyrirsvarsmenn blótsins voru víst ekki komnir í Setrið". Mér er spurn: Af hverju í ósköpunum hringdu ekki þessir þátttakendur í fyrirsvarsmennina ef þá vantaði að vita eitthvað, frekar en að vera að svekkjast á því eftirá að ekki hafi verið hringt í þá??? Er ekki eins hægt að hringja úr þeirra símum??? Var ekkert VHF samband á svæðinu eins og Eiki spyr?

    Það að snúa við með lafandi skott þegar einungis 7 km. voru eftir bendir að mínu viti til þess að menn hafi einfaldlega verið búnir að missa móðinn, sem þeir í þorrablótsnefndinni og þeirra félagar máttu þó eiga að þeir gerðu aldrei! Jafnvel þótt Loðmundarmenn hafi talið sig vita að enginn væri fyrir í skálanum, mátti hæglega hafa það ljómandi gott í fremri skálanum og á svefnloftinu þar, ef svo ólíklega hefði viljað til að fyrirsvarsmennirnir hefðu aldrei komið. Það að vera að gagnrýna fyrirsvarsmennina fyrir að "hringja ekki í hina" er að mínu viti fráleitt og bara til þess fallið að minnka líkurnar á því að menn nenni að taka að sér að skipuleggja uppákomur fyrir aðra félagsmenn (sem alltaf verða að ferðast á eigin ábyrgð og beita skynsemi sinni ekki síður en aðrir) eins og margoft hefur komið fram.

    Hins vegar tek ég undir gagnrýni á leiðarval mannanna, þar sem í raun ekkert átti að koma mönnum á óvart með snjóalög og vind. Klakksleiðin er að mínu viti sú leið sem er erfiðust og býður uppá flestar hætturnar og brasið í blindu og þungu færi.

    Hættum þessu voli, grípum Tippið á lofti og munum að við erum íslenskir karlmenn!!! (…nema auðvitað Soffía sem hafði vit á að setja ekki Súshíið á fjöll í snjónum…) 😉

    Ferðakveðja,

    BÞV





    04.02.2003 at 15:38 #192116
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    geeeeeenguuuuuuur hææææææægaaaaaar…

    Sælir félagar.

    Ég mætti á fundinn í gær og hlustaði með athygli á kynningu/erindi Benna Eyjólfs (takk fyrir flottar kökur Benni!) Þá allt í einu skildi ég allt miklu betur…

    Fram kom hjá Benna að í Ameríku teldu menn í jeppabransanum 5 ára gömul project „ný“ og þannig væri sami hluturinn kynntur sem „nýjung“ í allt að 5 ár á þarlendum jeppasýningum! Þetta skýrir væntanlega af hverju framþróun í þessum jeppamálum er svona hæg hjá þarlendum, enda eru menn að selja nýja bíla þar í landi með 20-50 ára lausnum í t.d. fjöðrunarbúnaði (blaðfjaðrir) og ýmsu öðru og allir brosa hringinn, enda „nánast nýjar uppfinningar“!

    Allt á sér skýringar…

    Ferðakveðja,

    BÞV





    02.02.2003 at 21:04 #467478
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Jedúddamía, mar bara búinn að missa af öllu fjörinu!

    Skrapp á þorrablót í byggð í gær (hitti Jón Snæbjörnsson og félaga) og fór bara ekki á netið fyrr en um miðjan dag í dag. Ef veðrið er snarvitlaust, þá verða þeir 22,5 klst. í bæinn miðað við að fara Sóleyjarhöfðann ", Lentum í þannig veðri á heimleið úr Setrinu 1997 eða 1998, en þá bauð almættið einnig reyndar einnig upp á mikinn krapa í kaupbæti, þannig að einhverjir klukkutímar skrifuðust á þann fjanda.

    Megi heimferðin ganga sem best. Nú fer ég og hringi í einhvern til að fá fréttir… held þetta ekki út.

    BÞV





    28.01.2003 at 18:18 #467172
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Þetta er sannarlega stórmál og ég tel að erfitt yrði að fá sér-íslenskar reglur um jeppa og breytingar eins og reyndar er um allar undanþágur. Það að ganga í svona bandalag þýðir nefninlega í grófum dráttum það, að allir samþykkja að láta steypa sig í sama mótið hvað reglur varðar, gegn því að fáaðverameð… sem aftur er metið sem fjárhagslegir hagsmunir s.s. lækkanir eða niðurfellingar á tollum á íslenskan varning.

    Þó má ekki gleyma því að í reglum ESB er að finna heimildir til undanþágu ef um er að ræða t.d. minnihlutahópa eða sérstakar land- eða samfélagslegar aðstæður. Kannski hafa svíar bara gleymt því að vísa í undanþáguheimildirnar í tóbaksmálinu…

    Ferðakveðja,

    BÞV





    17.01.2003 at 00:31 #466638
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæl öll.

    Tek undir með Munda, ekki stela disknum, sameinumst frekar öll um að kaupa hann á heiðarlegan hátt, enda hræódýr!

    Það verður einfaldlega engin þróun í þessu ef allir stela afurðunum með því að "brenna bara diskinn" eins og virðist vera að verða ein helsta þjóðaríþrótt landans.

    Ótrúleg háðung fyrir okkur jeppamenn, að langflestir okkar skuli vera með Nav Treck / Nobel Tec korta-forritið stolið… Svo eru menn endalaust að fjargviðrast yfir því að þetta og hitt mætti vera betra (eins og t.d. skönnun korta o.fl.). Auðvitað gefast allir þjónustuaðilar upp á að leggja vinnu og peninga í framþróun í forritun ef allir stela bara hugbúnaðinum um leið og hann kemur á markað!

    Huxum áður en við stelum!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    17.01.2003 at 00:29 #466636
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæl öll.

    Tek undir með Munda, ekki stela disknum, sameinumst frekar öll um að kaupa hann á heiðarlegan hátt, enda hræódýr!

    Það verður einfaldlega engin þróun í þessu ef allir stela afurðunum með því að "brenna bara diskinn" eins og virðist vera að verða ein helsta þjóðaríþrótt landans.

    Ótrúleg háðung fyrir okkur jeppamenn, að langflestir okkar skuli vera með Nav Treck / Nobel Tec korta-forritið stolið… Svo eru menn endalaust að fjargviðrast yfir því að þetta og hitt mætti vera betra (eins og t.d. skönnun korta o.fl.). Auðvitað gefast allir þjónustuaðilar upp á að leggja vinnu og peninga í framþróun í forritun ef allir stela bara hugbúnaðinum um leið og hann kemur á markað!

    Huxum áður en við stelum!

    Ferðakveðja,

    BÞV





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 461 through 480 (of 730 total)
← 1 … 23 24 25 … 37 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.