FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Björn Þorri Viktorsson

Björn Þorri Viktorsson

Profile picture of Björn Þorri Viktorsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 421 through 440 (of 730 total)
← 1 … 21 22 23 … 37 →
  • Author
    Replies
  • 24.02.2003 at 22:07 #469312
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Jæja, ekki veit maður allt…

    Já, þá er rétt að óska klúbbnum til hamingju með kerruna. Þetta var búið að vera á óskalistanum lengi og gott til þess að vita að málið sé í höfn.

    Hins vega tek ég undir það að klúbburinn ætti auðvitað að eiga sem mest af kerrum, "35, "38, og "44. Gott væri líka að eiga eina á Unimog hásingu og -hjólum…

    Nei grínlaust, kerrur eru bráðnauðsynlegar og ég hvet aftur handlagna félaga til að gefa sig fram og smíða svona græjur.

    Kannski væri gott að efna til samkeppni, bjóða 50, 75 eða 100 þúsund kall til efniskaupa og leyfa mönnum síðan að "imprúvisera" við útfærsluna… og verðlaun fyrir bestu kerruna???…

    Ferðakveðja,

    BÞV





    24.02.2003 at 21:53 #469142
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Þetta er áhugaverð umræða og ég hafði satt að segja ekki áttað mig á því að innan björgunarsveitanna færi fram mat á því hvort menn greiði fyrir útköll eða ekki eftir því hvort menn teldust "vel búnir" eða á "skynsamlegu ferðalagi".

    Hver metur þetta? Fer mat á þessu fram eins og Bono lýsir því, þannig að ökumaðurinn á bjöggarabílnum metur þetta í snarhasti og réttir síðan lófann út um bílgluggann? – eða ekki??

    Eru til reglur um þetta innan Landsbjargar og ef ekki, eru menn þá að vinna að björgunarstörfum á mismunandi forsendum út um allt land?

    Af hverju er það látið bitna á þeim sem biðja um aðstoð ef skipting peninganna frá Landsbjörg er "ósanngjörn" eða " óeðlileg"?? Af hverju vinna menn ekki frekar að lausn málsins innan samtakanna??? Er ekki mistök að reyna að búa til eitt heildstætt björgunarbatterí úr Slysó, Skátunum, Flubbunum, Slökkviköllunum, Landhelgisgæslunni og Almannavörnum. Auk þess er búið að bæta strípuhneigða ríkislögreglustjóranum inn í þetta ef ég skil þetta rétt????? Auðvitað getur aldrei verið sanngjarnt að þeir sem ekki lyfta litla fingri fái fyrir það eitt einhverjar milljónir…

    Ég þekki fullt af áhugasömu og góðu fólki sem starfar innan hinna ýmsu þessara samtaka/embætta og þetta fólk á það eitt sammerkt að það er gersamlega að gefast upp á valdagræðginni og framapotinu í sumum aðilum sem þykjast "æðri eða merkilegri" en hinir innan þessa björgunargeira. Er þetta ekki allt í tómu bulli?

    Mér finnst ekki fara saman hljóð og mynd hjá þeim sem hvetur fólk til að "endilega að kalla eftir aðstoð" en vera jafnframt tilbúinn að dæma það eftirá hvort ferðinn var glapræði eða skynsamleg og láta þá "aulana blæða"…

    Ferðakveðja,

    BÞV





    24.02.2003 at 21:31 #469302
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Muffin og velkominn í klúbbinn.

    Endilega mættu í Mörkina, láttu menn vita af þér og að þú sért nýr, m.ö.o. berðu þig eftir björginni og þú munnt kynnast helling af hressum og húmorískum mönnum, reyndar líka ýmsum kynlegum kvistum, en allt prýðismönnum… :-)

    Á opnu húsi spjalla menn, skipuleggja ferðir, segja frægðarsögur (bæði sannar og ósannar) og þar er líka hellingur af mönnum sem ferðast mikið í munninum en lítið þar fyrir utan. Menn hafa aðgang að hálendiskortum og ýmsum fróðleik, auk þess sem stundum er sett í spóla til að ná mesta hrollinum úr okkur hér í bænum.

    Afslappaðar og skemmtilegar samkomur.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    24.02.2003 at 21:21 #469308
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Eftir því sem ég veit best, þá á klúbburinn enga kerru, þrátt fyrir að það sé búið að standa til í mörg ár að koma sér upp svoleiðis græju. Mér finnst venjuleg kerra á "38 vera framar í forgangsröðinni en "38 bílaflutningakerra. Gaman væri ef handlagnir menn gæfu sig fram í að smíða kerru(r) fyrir félagið, enda þarft fyrir klúbbinn að eiga öfluga kerru.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    24.02.2003 at 16:12 #469124
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Ég gleymdi… Auðvitað þarf ekki að velta því fyrir sér hvort maðurinn stakk aurunum í vasann, enda hlýtur hann að hafa gefið út kvittun eða reikning á bréfhaus björgunarsveitarinnar við móttöku fjárins.

    BÞV





    24.02.2003 at 16:07 #469122
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Ef menn sem eru að lifa og leika sér í björgunarsveitum (sem er góðra gjalda vert og bráðnauðsynlegt) eru orðnir leiðir á "kvabbi frá vitleysingum", þá mæta þeir því ekki með því að ákveða á sitt einsdæmi að taka greiðslu fyrir útköll "af því að þeir verða pisst…". Það er þá miklu einfaldara að hætta bara í björgunarsveitinni!

    Mér finnst sorglegt ef hinn almenni félagsmaður í björgunarsveit ætlar með þessu móti að eyðileggja það orðspor og þá virðingu sem almenningur ber fyrir þessu fólki og setjast þar með á bekk með yfirstjórn björgunarmála í landinu, þar sem allt er í endalausu rugli og átök um titla og strípur virðist gersamlega blinda mönnum sýn… en eftir höfðinu dansa kannski limirnir.

    Hitt.., helviti er nú gott að heyra að þessi PAJERO stóð sig svona vel, gersamlega óbreyttur… 😉

    Ferðakveðja,

    BÞV





    22.02.2003 at 10:29 #465712
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Óli.

    Þarna erum við greinilega 100% sammála, því þú rekur akkúrat sömu sjónarmiðin og ég byggi mína skoðun á. Svona "fljótræði" eins og þú kallar það, getur hæglega valdið mikilli óeiningu og jafnvel klofið félag/deild í tvennt…

    Menn eiga að mínu viti þá að stofna bara sérsamtök eða þrýstihópa um þessi tilteknu hugðarefni sín, en ekki að álykta um slíkt á vetvangi klúbbsins.

    Efnislega er ég hins vegar alveg sammála þeim sem vilja fara varlega og grandskoða allar svona framkvæmdir á hálendinu áður en ráðist er í þær.

    Helvíti voruð þið annars flottir í Laugatúrnum!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    22.02.2003 at 01:49 #469062
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll muffin.

    Ég hef lýst því áður á spjallinu, að ég hef látið Aron Árnason hjá Jeppaþjónustunni (587-2930) stilla inn öll mín hlutföll frá 1990 og sú vinna hefur reynst afar vel.

    Það er rétt hjá þér að hleypa ekki hverjum sem er í þessa aðgerð, það skiptir miklu máli að þetta sé vel gert.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    22.02.2003 at 01:44 #469030
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll.

    Ef ég man rétt, þá borgaði ég u.þ.b. 70.000 kall 1997 fyrir upptekt á biluðu olíuverki í 2,4 DC.

    Kv. BÞV





    21.02.2003 at 23:11 #469036
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Logi Bergmann og Gísli Marteinn:… ég veit ekki,…. það er erfitt að segja…

    Þetta er allt spurning um áherslur eins og svo margt í þessu ótrúlega skemmtilega sporti okkar. Mér hefur sýnst, að þeir sem setji gorma séu almennt með tiltölulega "vandræðalausan" búnað, sem þó býður ekki upp á neinar breytingar t.d. til samræmis við færð. Hins vegar er loftið lofað af mörgum, sérstaklega þeim sem leggja áherslu á að geta breytt bílnum (sett hann upp) miðað við mismunandi aðstæður. Einhvernveginn hefur mér fundist að almennt sé minna viðhald á góðri gormagjöðrun, en ég hef sjálfur ekki persónulega reynslu af loftpúðafjöðrun.

    Þekki reyndar menn sem hafa gefist upp á að hemja loft í jeppum (þá á ég við ýmisskonar stýringar o.þh.) …loft lekur betur en gormar….

    Örugglega er samt "bæði betra" eins og segir í þekktri morgunkorns/sykurs auglýsingu…

    Ferðakveðja,

    BÞV





    21.02.2003 at 22:45 #469022
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Ég hef einu sinni látið gera við olíuverk og þá hjá Þ. jónssyni (Vélalandi). Ekkert mál, en kostaði auðvitað hellings pening, eins og allar olíuverksviðgerðir. Ef þú ert að leita að einhverjum súperköllum, þá ráðlegg ég þér að tala við umboðið og fá ábendingar hjá þeim.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    21.02.2003 at 21:45 #469016
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll nafni.

    Flottur og nýstárlegur þráður og enn ein leið til að gera spjallið skemmtilegt.

    Iss, ég veit að það er margt miklu meira krassandi sem gengur í slúðri manna í millum eftir þessa stórkostlegu ferð, enda bara eðlilegt miðað við þær hremmingar sem mættu ferðalöngum.

    Það er rétt jon, nú er það bara blöðruskódi… :-)

    Ferðakveðja,

    BÞV





    21.02.2003 at 21:39 #468974
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Hvernig er það, eru engar nýjar fréttir af þessum hetjum sem lögðust í blót þessa helgi?

    Ferðakveðja,

    BÞV





    20.02.2003 at 22:47 #468918
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæl öll.

    Helvítis bömmer að fá allan þenan snjó ofaná þennan hrikalega krapa. Nú tekur það marga daga/vikur að ná að frysta undir snjónum, þar sem snjórinn virkar eins og teppi.

    Ég hef lent í hrikalegum krapatúr í 18 stiga frosti, en þar hafði einmitt snjóað nokkrum dögum áður ofaní krapann.

    Flottast hefði verið að fá 2ja-3ja daga frost á eftir krapanum og síðan snjóinn…

    Ferðakveðja,

    BÞV





    20.02.2003 at 14:58 #467758
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Ég var að fá þýðingu á þessu frá félaga mínum sem er sleipur í spænskunni. Þetta ku þýða "sjálfsfróun". Það er reyndar stórkostlegt og rökrétt nafn á græjuna, eða hvað…??? "FRÓUN" væri kannski rétt einkanúmer…

    Vonandi verður nýja daman þó ekki það krefjandi að maður missi úr ….. á hverju horni… :))

    Ferðakveðja,

    BÞV





    20.02.2003 at 00:55 #468254
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll David.

    Farðu varlega, ekki skrúfa bílinn upp að framan, það eyðileggur að mínu viti þá fínu fjöðrun sem fyrir er. Skoðaðu boddylift, ef það er rétt framkvæmt, þá ertu í fínum málum.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    20.02.2003 at 00:40 #467752
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Ég er einmitt að spá í að nota nýju græjuna eins og Barbí, þ.e. 85% á tjörunni og 15% á fjöllum. Þessvegna hugnast mér ekki að fara á "44 hjól, enda eru flesir sem ég þekki með "aukabíl" til að nota á tjöruna með svoleiðis hjólum.

    Kúlurnar…??? Það eru engar kúlur…

    Vonandi ertu sannspár um að græjan drífi, ég náði hins vegar ekki pointinu með þræðinum sem þú sendir, en það er önnur saga.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    19.02.2003 at 22:42 #467746
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Var að renna yfir þráðinn og sé að ég hef ekki klárað allt sem fram er komið. Vinnan tefur mann svo frá áhugamálunum… En… í réttri röð ca svona:

    Lúther: Þú talar um "erfiða slóð"… en þú veist að við toy… menn fílum betur að klára slíkar slóðir… 😉

    Þú spyrð líka "hvenær sjáum við afraksturinn". Best að lofa engu, en vonandi fyrr en menn ætla. Auðvitað tekur þetta allt tíma eins og þú veist, en það er valinkunnur hópur manna að vinna í að klára málið.

    ólsarinn: Hekla tekur ekki þátt í þessu máli umfram það sem önnur umboð hafa gert og bara svo það sé á hreinu, þá þigg ég ekki greiðslur frá þeim ágætu mönnum.

    PalliHall: "Pajerobróðir" Takk fyrir jákvæð orð vinur minn, en auðvitað varð annar hvor okkar að gefa eftir (sá vægir sem vit…) Ég er sammála þér, Aron í Jeppaþjónustunni er að leysa þetta mál lystavel, enda ekki von á öðru úr þeirri átt.

    PBG: Ég er líka læknaður af ameríska draumnum… hef reyndar ekki þjáðst af slíkum draumförum frá því að ég átti CJ5 með 8 gata vél og tusku hér um árið…

    egillr: Ég er ekki hissa á að Gulli skyldi falla fyrir Barbí. Ég er klár á því að hann verður "sunnudagshressari" úr þessu, enda fer daman þannig með mann að maður vaknar endurnærður og langar "strax út að keyra" ef maður er í tygjum við svona dömur… Gulli og nýja daman eiga eftir að ná vel saman, það er ég viss um… Fjölskyldumálin get ég ekki leyst að öðru leyti…

    Eiki: Ég kannast ekki við að Jói hafi sett pæjuna sína á Sorpu eftir ómerkilega Kjalferð… Þessar dömur éta nú svoleiðis spotta í sig án þess að finna fyrir þvi… er mér sagt… og þetta með nafngiftina, ég gef þessu ekki séns… Og bara að lokum, ef ég kem ekki til með að drífa meira á fjöllum á Sindý en Subaru Impreza, þá máttu eiga dúkkuna fyrir mér…

    Jsk: "LC 90, prófaði á bílasölu…" erum við ekki að tala um reynslu af jeppum…?

    siggias: Takk fyrir jákvæðnina. Leiðinlegt að "stela af þér" fyrsta eintakinu, en ég er reyndar búinn að röfla í mönnum hér á spjallinu í marga máuði og skora á þá að fara út í þetta "project" en enginn er árangurinn, svo það er ekkert annað en að prófa bara sjálfur. Þú talar um að þetta hafi verið til á teikniborðinu lengi, það veit ég ekki um, en Aron Árnason hjá Jeppaþjónustunni er að klára málið á mjög smekklegan hátt sýnist mér, bara á síðustu dögum/vikum. Tek annars undir með þér, vonandi förum við "á túr saman" áður en yfir lýkur.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    19.02.2003 at 21:39 #468828
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Muffin.

    Ég var að rekast á svarið þitt og finnst það með nokkrum ólíkindum!

    Hvernig geturðu fullyrt um svona alvarlegar ásakanir og gagnvart "öllum – allsstaðar"… ég er kjaftstopp??? Auðvitað eru menn að bjóða mismunandi lausnir og mismunandi verð, það er eðlilegt. En að fullyrða heilt yfir að nýliðar séu "teknir í rassgatið" eða að ´"svindlað sé á þeim allsstaðar", það er ekki sanngjörn eða trúverðug fullyrðing.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    19.02.2003 at 21:28 #468786
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Þessi umræða er ekki ný af nálinni og þetta er örugglega mál sem allir eru/verða aldrei nokkru sinni á eitt sáttir um.

    Það er alveg ljóst af myndum að dæma, frásögn manna og síðast en ekki síst tala áverkarnir á Fordinum sínu máli, að mikið hefur mætt á græjunni í túrnum. Mér heyrist á mönnum, bæði meðan á heimferðinni stóð og einnig eftir að heim var komið, að IceCool hafi verið með nokkra yfirburði á aðra við þessar aðstæður, þrátt fyrir öll sín tonn… Auðvitað þarf oft að aðstoða þann sem fer á undan við þessar aðstæður, það segir sig sjálft.

    Á hinn bóginn er það mín skoðun að við verðum alltaf að gera það sem við gerum á okkar eigin ábyrgð, hvort sem það er að gefa í skafl, draga í spotta eða láta vaða í krapapitt. Ef maður ákveður að gera eitthvað sem leiðir til þess að bíllinn manns tjónast, þá er það á eigin ábyrgð. Þetta hlýtur að vera almenna reglan. Að vísu gæti undantekningin frá þessu verið ónýtur spotti sem sá fasti setti í bílinn hjá manni og maður sleit við eðlilegar aðfarir og stórskemmdi bílinn sinn. (Að lögum er það sá sem dregur sem ber ábyrgðina).

    Að mínu viti er lang skynsamlegast að vinna út frá þessu sjónarmiði, því annars erum við í endalausum stúdíum um sök þessa eða hins eða "hópskyldu fjöldans" og "hvort þetta eða hitt atvikið sé sambærilegt við önnur", eins og óli bendir réttilega á. Það sjónarmið gefur líka af sér ábyrgari ferðamennsku og meiri yfirvegun og hugsun hjá hverjum og einum, af því að hann gerir það sem hann gerir á eigin ábyrgð en ekki annarra… Pólitík Hannesar Hólmsteins er sú, að menn fari betur með eigin fjármuni en annarra… 😉

    Ég reikna annars með því að fjöldi annarra ökuþóra í þessari eftirmynnilegu ferð hafi dregið bíl(a) og jafnvel einhverjir tjónast (mér sýndist afturljósið á glæpagula 6 hjólinu ekki alveg heilt…). Hvað þá með þá??? Ætla menn að stofna eða samþykkja fyrirfram einhverja tryggingasjóði fyrir hópinn og samþykkja svo og hafna tjónum eftirá???

    Ég heyrði í Gunnari sjálfur í gærmorgun um kl. 10.30 og hann var ekkert að fara á taugum yfir því sem á hafði gengið, enda ekki hans stíll. Ég hef ekki heyrt í neinum sem hefur haldið öðru fram en að skipperinn og "bláa hótelið" hafi staðið sig frábærlega í þessum túr og ég tæki ofan fyrir hverjum þeim sem finndi hjá sér hvöt til að taka þátt í kostnaði við að laga "hóteltjónið". Það gera menn þá bara skv. eigin ákvörðun og tilfinningu, en mér finnst langsótt að "skylda" menn í slík fjárútlát.

    Til hamingju annars suðurlandsdeild með eftirmynnilega heimferð, mér finnst algert grín að aðeins einn bíll skyldi þurfa að verða eftir í svona erfiðum túr.

    Ferðakveðja,

    BÞV





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 421 through 440 (of 730 total)
← 1 … 21 22 23 … 37 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.