FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Björn Þorri Viktorsson

Björn Þorri Viktorsson

Profile picture of Björn Þorri Viktorsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 401 through 420 (of 730 total)
← 1 … 20 21 22 … 37 →
  • Author
    Replies
  • 27.02.2003 at 22:54 #469520
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Blessaður Jong.

    Helvíti verður nú gaman að fylgjast með ykkur snillingum í þessum túr. Varaðu nú samt félaga þína við því að vera á nógu breiðum felgum, enda ku fátt annað að varast þarna þar sem sólin kemur upp…

    Ferðakveðja,

    BÞV





    27.02.2003 at 22:49 #469678
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll bandi (í bandi??) :)

    Þessi flokkun er nú ekki nein endanleg sannindi, enda sýnist mér að færið geti orðið með ýmsu móti. Ef áfram verður jafn hlýtt og verið hefur, gæti orðið erfitt að komast í nokkurn snjó með allan þennan fjölda… en reyndar ku spá kólnandi eftir helgina.

    Þú getur örugglega valið þér flokk að vild, enda er þetta nú bara dagpartur og menn stefna ekki að því að setja sig í neinar svaðilfarir…

    Við erum hins vega ákveðin í að hafa rosalega gaman af þessu, burtséð frá því hvernig veðrið verður!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    27.02.2003 at 22:29 #469582
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Ég legg til að sá sem valinn verður í að prófa sé félagsmaður í F4x4. Hvet jafnframt alla þá sem veita F4x4 félögum afslætti að ganga hart eftir gildum félagsskírteinum og synja afdráttarlaust um afsláttarkjör ef þau eru ekki til staðar. Var sjálfur að versla í Bílabúð Benna á dögunum og var krafinn um félagsskírteini eins og vera ber – ekkert múður!!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    26.02.2003 at 20:49 #469276
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Tvennt í framhaldi af þessu síðasta. Ég er alls ekki sammála því að vont sé að byrja sem nýliði í F4x4 (ég var nú einu sinni nýliði sjálfur). Ég t.d. hóf mitt starf í klúbbnum með því að fara í landgræðsluferð, en það er einmitt mjög hentugur vetvangur fyrir nýliða og menn á lítið breyttum bílum. Fastar nýliðaferðir á sl. árum eru Jónsmessuferð og ferð í okt/nóv. Með þessu er ég alls ekki að kasta nokkurri rýrð á Jeppadeild Útivistar.

    Jón. Langt síðan heyrst hefur í þér! Árið 1978 og 1980, þegar þú varst að æfa þig með þessi stóru hjól, þá varstu kolólöglegur og fékkst ekki skoðun á bílinn þinn… Það breyttist með þrautseigri baráttu félaga okkar í F4x4.

    Skilaðu svo kveðju til snillinganna í jeppaklúbbnum þínum (Nesbirnir) og takk fyrir síðast!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    26.02.2003 at 11:15 #469262
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    hættiði nú alveg. Maður er gersamlega hættur að geta skrifað nokkurn hlut nema að gleyma helmingnum… :)

    Tillagan til VP36 var sú, að hann (ásamt fleirum sem langar e.t.v. til þess) sæki nú um það til stjórnar að fá að halda nýliðaferð(ir). Alveg tæki ég ofan fyrir honum ef hann beislaði nú óánægju sína með ástandið á jákvæðan hátt með því að gera eitthvað í málinu. Eiga frumkvæðið félagar, ekki ætlast endalaust til að það komi frá öðrum!

    BÞV





    26.02.2003 at 11:07 #469260
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Athyglisverð sýn sem VP36 hefur á móralinn innan klúbbsins. Auðvitað er það bara eðlilegt að ferðahópar verði til í gegnum kunningsskap. Reynslan hefur sýnt að þeir hópar sem myndast eru langlífastir, ef búnaður og geta bílanna er svipuð. Þetta er í mínum huga svo eðlilegt, að það tekur því varla að minnast á það.

    Hins vegar hafa þeir sem hafa meiri reynslu af ferðalögum efnt til svokallaðra Nýliðaferða sem VP36 hefur sennilega ekki heyrt um. Þá er nýliðum boðið sérstaklega að koma með á fjöll, oft að undangengnum fundum og/eða námskeiðum sem haldin eru til undirbúnings. Í fjölda ára hefur verið farin svona ferð um mánaðarmót nóv/des og hafa þær notið mikilla vinsælda. Til langs tíma var farið í Setrið og Árbúðir, en árið 2000 var Hveravallaferð bætt við flóruna. Í síðustu ferð var 3ju ferðinni bætt inní, sem var ferð í Jökulheima. Mikil lukka hefur ætíð verið með þessar ferðir, þótt náttúran og veðurguðirnir hafi ekki alltaf farið mjúkum höndum um nýliðana. Líklega hafa milli 80 og 90 bílar tekið þátt í síðustu nýliðaferð(um).

    Þessu til viðbótar hafa svo nefndir innan klúbbsins staðið að nýliðaferðum, t.d. umhverfisnefnd og skálanefnd. Svo er sumarhátíð og fjölskylduhátíð á hverju ári, þar sem óbreyttir bílar og jafnvel fólksbílar eru oft í meirihluta. Nú stendur fyrir dyrum 1000 bíla ferð, þar sem ÖLLUM jeppaeigendum á Íslandi er boðið að taka þátt.

    Að halda því svo fram að "strákarnir á stóru dekkjunum" geri ekkert fyrir hina á minni hjólunum er því bara alrangt. Það er einmitt svona ómálefnanleg umræða sem dregur kraft úr öllum þeim fjölda topp fólks sem er að gefa vinnu sína allt árið um kring út um allt land, í þágu þessa áhugamáls okkar. Gagnrýni á alltaf rétt á sér, hún er bara svo leiðinleg ef hún byggist ekki á rökum.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    25.02.2003 at 14:33 #469202
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Óli stóri. Auðvitað veit ég að menn geta lent í háska, þótt þeir séu vel búnir. Ég hef aldrei haldið öðru fram. Hins vegar var maðurinn í Grímsvötnu ekki í neinum háska, enda hafði hann góðan búnað, nægan mat og síma sem virkaði. Þetta kom allt fram hjá bjöggurunum í útvarpinu, enda urðu þeir hálf kindarlegir þegar fréttamaðurinn spurði hvort allur þessi viðbúanaður væri nauðsynlegur…

    Gott að heyra líka sjónarmið upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Hann þarf greinilega að hlutast til um að kynna "óreglulegu reglurnar" innan björgunarsveitanna, en kannski er valdabaráttan og óeiningin innan sveitanna svo mikil að það hlusti enginn á eitthvað "miðstýrt hjal" úr Reykjavík…

    Varðandi fjáröflun Björgunarsveitanna, þá finnst mér nú ekki allt stórmannlegt sem aðhafst hefur verið hjá þeim í þeim tilgangi að "klekkja á og klaga" ýmsa aðra sem einnig hafa notað þessa sprengiáráttu landans sem fjáröflun, t.d. Kiwanisklúbba.

    Annars óska ég björgunarsveitunum alls hins besta, en eins og ég sagði áður, þá byggist velvilji almennings sem er þeim svo mikilvægur, mest á þeirra framkomu sjálfra.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    25.02.2003 at 08:44 #469182
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Aðeins í framhaldi af þessu.

    Það kom mér og mörgum öðrum á óvart fréttin af björgunaraðgerðum Landsbjargar núna rétt fyrir sl. áramót, þar sem fram kom að 38 manns á fjölda björgunartækja var sendur í ´Grímsvötn til að sækja erlendan göngumann. Þó var ekkert að hjá þessum manni, hann var með nægan mat, vistir, staðsetningarbúnað og var einnig í fjarskiptasambandi.

    Gerðir voru út leiðangrar bæði úr vestri og austri (áhlaup úr báðum áttum eins og hjá herjum…) og virtist eftirá sem eitthvert kapphlaup hafi verið sett í gang.

    Hvað skyldi gönguhrólfurinn hafa þurft að borga fyrir allt þetta tilstand? Af hverju var settur í gang þvílikur viðbúnaður, maðurinn hafði jú allt til alls (nema félagsskap) og gat gefið upp nákvæma staðsetningu.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    25.02.2003 at 00:26 #469172
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Muffin.

    Takk líka fyrir svarið þitt.

    Samt er þetta svolítið spurningin um að vera eða vera ekki. Annað hvort koma menn fram á sömu forsendum allsstaðar eða hvergi… a.m.k. ef þeir tilheyra sama félagsskapnum.

    Mig tekur sárt að heyra að þú staðfestir þessa óeiningu og valdabaráttu (stríðpuhneigðina benti Eiki okkur á fyrr í kvöld) innan björgunargeirans á Íslandi sem fjölmargir vinir mínir og kunningjar hafa sagt mér frá á liðnum misserum. Því miður finnst mér þetta virka eins og skipulega sé verið að vega að grasrótar- og hugsjónastarfi björgunarsveitanna, með nýjum og nýjum skipuritum og titlatogi sem færa kerfisköllum innan ríkisins og sveitarfélaganna stöðugt meiri (og óverðskulduð) völd.

    Vonandi klúðrar grasrótin ekki sínum málsstað í þessari valdabaráttu með því að koma fram með þeim hætti sem Bono lýsti í upphafi þessa þráðar.

    Aftur: Velkominn í klúbbinn!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    25.02.2003 at 00:14 #468872
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Úpps, ég hef sjálfur ekki í annan tíma komist í aðrar eins annir á spjallinu…

    Var að svara Emil á öðrum þræði og er svo ekki kallinn búinn að vera hér líka. Þetta er eins og að vera í berjamó eða á rjúpu og sjá að kallinn er búinn að labba allsstaðar á undan manni… :-))

    Annars skil ég þetta vel með krampann hjá þér Emil, ég er enn alveg rasandi bit. Ég er á leiðinni til þeirra AT manna á morgun að kaupa dekk og felgur undir Sindy (er þetta ekki bara allt í lagi nafn… -líka pínu synd að hverfa af braut hinna rétttrúuðu…), þar sem tilboðið hans Benna á "38 Mudder reyndist plat (þeir eiga engan "38 Mudder fyrr en 6. eða 7. mars nk.) og þá ætla ég að heyra þeirra sjónarmið fyrst þeir svara ekki í kvöld. Það hlýtur að vera einhver alvöru skýring á þessu!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    25.02.2003 at 00:04 #469234
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Auðvitað hefur Einar Sól áhrif. Eins og við allir. það sem meira er, Einar er eldhugi og tekur þau mál sem hann tekur að sér föstum tökum og stýrir því sem hann vill stýra. Það sanna störf hans fyrir félagið í gegnum tíðina.

    Menn verða hins vegar að skilja það, jafnvel þótt þeim þyki gott og notalegt að fá klapp á bakið, að þegar þeir taka að sér að starfa fyrir klúbb eins og félagið okkar, þá eru þeir að starfa á þess vegum en ekki eigin. Menn í slíkri stöðu mega ekki gera viðburðina að "eigin uppákomum". Þetta er ekki flókið. Ég tek það fram að ég hef sjálfur hælt Einari fyrir þau mál sem hann hefur klárað vel, bæði við hann sjálfan beint og eins útávið (m.a. á fundum). Orð mín og skoðanir má alls ekki skilja svo að Einar sé alslæmur, hins vegar gleymdi hann sér vegna þess að hann var of upptekinn af eigin persónu í þeim störfum sem hann tók að sér fyrir klúbbinn. Hætti að ráðfæra sig við stjórn, setti árshátíðina á sömu helgi og landsfundinn í Setrinu og var ófáanlegur til að hnika til o.fl. o.fl. (ég nenni ekki að telja það allt upp hér.)

    Þetta með árshátíðina nefni ég bara af því að ég VEIT það. Þessu var bara óvart lýst á mánudagsfundi á Loftleiðum, eins og ég lýsti áður. Þetta er ekki minn tilbúningur.

    Auðvitað hefði hreinskiptin og opin umræða um þessi mál verið góð, strax í upphafi. Hins vegar tók núverandi stjórn ákvörðun um það (Einars vegna) að reyna til þrautar að leysa málin í sátt. Þrátt fyrir mörg handabönd og loforð hefur bara engin sátt orðið… og ég varð sjálfur vitni að síðasta loforði Einars á sáttafundinum. Annars er það þyngra en tárum taki að vera að rifja þetta upp hér, en því miður nauðsynlegt úr því sem komið er.

    Um nýliðana get ég bara sagt það, að ég held að þeirra hagur sé góður í okkar ágæta félagsskap. Auðvitað verða þeir að vera pínu framfærnir og kynna sig í Mörkinni, komast í ferðir með öðrum og ástunda mannleg samskipti á þann hátt að öðrum þyki þeir eftirsóknarverður félagsskapur. Það er ánægjulegt að segja frá því, að stór hluti þess góða hóps sem kom með okkur í nýliðaferð í Jökulheima í desember sl. mætti á þorrablót í Setrinu nú í febrúar. Þorrablótin í ár voru ÖLLUM opin og var það vel.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    24.02.2003 at 23:44 #469162
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll.

    Þú svarar engum af spurningum mínum í pistli 312.

    Ég hef meiri áhuga á svörum við því en einhverju peninga- og réttlætingarvæli frá bjöggurum í "fátækum björgunarsveitum". Þetta er pólitískt mál og varðar framkomu og stefnu allra þeirra sem koma fram undir merkjum Landsbjargar.

    Tek hins vegar undir með Palla, auðvitað býður samviska allra almennilegra ferðamanna að þeir taki þátt í kostnaði, en það gerist þá á öðrum forsendum en Muffin lýsir.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    24.02.2003 at 23:37 #468856
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Hó aftur Páll.

    Ég var að huxa áðan, vonandi verðum við bara heppin með veður þennan dag. Þetta er jú sameiginleg 20 ára afmælisveisla og m.t.t. þess hve glæsilega tókst til á 10 ára afmælinu, þá bara má þetta ekki klikka.

    Reyndar er það nú eitt af aðalsmerkjum þessarar vetrar- jeppaferðamennsku að við erum klár í "hvaða veður sem er"

    Það er ekki gert ráð fyrir að hópar hittist neins staðar á leiðinni yfir daginn, nema bara í ferðakok í Kringlunni?

    Hvað verður boðið uppá þar? Eru Kringlumenn með okkur í þessu að einhverju leiti? Hvað með þessa útvarpsstöð? Verður hún með sendingar úr ferðunum?

    Ferðakveðja,

    BÞV





    24.02.2003 at 23:20 #468850
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Jæja, ég missti mig aðeins, en þetta kom ekkert smá á óvart. Auðvitað hafa menn einhver ráð til að ná til Toyota eigenda, en ma´r hélt nú bara að þetta væri sameiginlegt áhugamál (og hagsmunamál) okkar allra, þessi jeppamennska.

    Nóg um það, er eitthvað að fæðast um ferðaleiðir? Verða margar ferðir í boði frá hverju umboði (og Kringlunni)?

    Undrunarkveðja,

    BÞV





    24.02.2003 at 23:13 #469152
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Þessi lýsing hjá PBG er áhugaverð og tekur að hluta á því sem ég velti upp áðan. Hver á að dæma? Hafa menn rétt til að dæma? og ef svo er, hver veitir slíkan rétt?

    Auðvitað verður seint hægt að flykkja sér um þá skoðun að bílstjóri sem verður "pisst" eigi að hafa slíkan rétt, ef það á þá yfir höfðu nokkur að hafa hann.

    Auðvitað styrkja menn björgunarsveitir, en "veldur hver á heldur" í Því efni og þar hlýtur þeirra framkoma og taktík að spila stærsta hlutverkið.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    24.02.2003 at 23:04 #468846
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Eiki.

    Ég gleymdi aðalmanninum. Hvað segir Páll Samúelsson um þetta? Er þetta ekki blautasta tuska í andlit Toyota jeppamanna sem hent hefur verið???

    Kannski var klúbburinn að leggja óásættanlegar kvaðir á umboðin, nú veit ég það ekki, en vonandi fáum við svör við því.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    24.02.2003 at 23:01 #469150
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Freyr.

    Þú áttar þig ekki á því að það að vera bjöggari er eins og að vera landgönguliði. Liðsforinginn þarf ekki að réttlæta ákvörðun sína fyrir hinum óbreyttu, sem hafa samþykkt að fara að skipunum hans án þess að krefjast rökstuðnings. Ef þú ert ósáttur við þetta, þá skaltu hætta að vera bjöggari. Annars heldur þú bara áfram að tína rækjur úr vegaköntum með bros á vör ef þér er sagt að gera það…

    Þeir sem stjórna svona batteríum verða að fá að gera það á eigin forsendum, ef samviska "alþýðunnar" býður henni að það sé röng stjórnunarstefna, hætta menn einfaldlega. Það er hægt í "íslenska hernum " en ekki þeim herjum þar sem herskylda ríkir.

    Ferða- og rækjukveðja,

    BÞV





    24.02.2003 at 22:54 #468842
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Hvað er að gerast hjá þessum snillingum þarna suðurfrá?????

    Þetta kemur mér verulega á óvart, sérstaklega þar sem 60-70% af félagsmönnum eru á Toy… Hvað finnst Toy mönnum um þessi viðbrögð? Hva… hva.. hvað segir Freyr, Skúli, Loftur, Emil, Lúther… og allir hinir… Ég trúi því ekki að menn séu allir sammála um þetta!

    Er klúbburinn að setja einhverjar "mega kvaðir" á þá umboðsaðila sem byrja túrana frá sér?

    ?????

    BÞV





    24.02.2003 at 22:37 #468838
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Hæ Palli.

    Var að lesa þráðinn þinn. Ætla Toy menn ekki að hittast á Nýbýlaveginum um morguninn???

    Hvenær er gert ráð fyrir að menn hittist í Nóa- Síríur súkkulaðinu í Kringlunni?

    Ferðakveðja,

    BÞV





    24.02.2003 at 22:33 #469226
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Þetta er umræða sem hlaut fyrr eða síðar að skjóta upp á yfirborðið. Það er ánægjulegt að heyra að Emil mætti ekki á blótið hjá Einari Sól til að kljúfa félagið. Reyndar held ég að fæstir sem mættu á hans blót hafi mætt í þeim tilgangi (vona það í það minnsta).

    Hins vegar verður því ekki á móti mælt, að þetta uppátæki, í kjölfar liðinna atburða, er varla til þess fallið að sameina félagsmenn eða lægja öldur innan félagsins, enda lofaði Einar því hátíðlega að efna ekki til "einkateita" í samkeppni við uppákomur í félaginu á sáttafundi í haust, en virðist hafa kosið að ganga á bak orða sinna í því efni. Skemmst er að minnast umræðu á mánudagsfundi í haust, þar sem mætur félagsmaður lýsti því að hann teldi að a.m.k. 100-120 manns hefðu ákveðið að sækja ekki árshátíð félagsins "til að styðja Einar Sól" eins og hann orðaði það. Hvað er undirróðurstarfsemi eins og sú að fá fólk til að mæta ekki á helsta skemmtiviðburð félagsins annað er til þess fallin að skapa klofning?

    Ég þekki mæta félagsmenn sem kusu að fara á ekkert blót í ár til þess eins að taka ekki þátt í þessu átakamáli og láta ekki draga sig í dilka skv. því. Ömurlegt!

    Það ömurlega er, að núverandi stjórn hefur talið sér skylt, af tillitssemi við persónu viðkomandi, að ræða málin ekki opinberlega og því þekkja margir bara aðra hlið málsins. Hins vegar voru menn hreinskilnir og opinskáir á þeim "sáttafundi" sem ég nefndi áður og fullyrði ég að þar kom mörgum sem ekki mættu á árshátíðina á óvart hvernig málin voru raunverulega í pottin búin.

    Ég minni á að þegar Einar Sól sá um þorrablót og árshátíð félagsins, þá valdi hann sjálfur á uppákomurnar og oft hafa nýliðar kvartað undan því að fá ekki miða á þær uppákomur, jafnvel þótt aðrir "góðkunningjar" fengju síðar miða. Það þekki ég sjálfur persónulega.

    Reyndar veit ég ekki til þess að innheimta félagsgjalda sé með minna móti í ár en undanfarin ár og ég hélt reyndar að nýjum félagsmönnum fjölgaði nú með meiri hraða en oft áður. Vour ekki 250 manns á síðasta mánudagsfundi??

    Að mínu viti eiga þeir sem finna sig í því að vinna gegn hagsmunum félagsins og félagsmanna að finna sér annan vetvang til að nýta krafta sína. Ég lofa ykkur að það mun ég gera ef ég mun nokkru sinni finna slíka hvöt hjá mér!

    Ferðakveðja,

    BÞV





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 401 through 420 (of 730 total)
← 1 … 20 21 22 … 37 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.