Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
10.03.2003 at 19:35 #469732
Sælir félagar.
Takk fyrir hamingjuóskirnar! Já, ég tek undir það að breyttir bílar (á stærri hjólum) eru almennt fallegri en óbreyttir. A.m.k. held ég að við jeppafólk séum flest sammála um það.
Ég setti nokkrar myndir í albúmið mitt í gær og tek svo vonandi fleiri þegar farið verður að ferðast af einhverju viti.
Ferðakveðja,
BÞV
10.03.2003 at 19:30 #470398Sælir.
Þessi umræða hefur verið tekin áður hér á spjallinu. Gaman væri að vita hvort eik hefur öðlast reynslu af notkun á VHF í jeppaferðum síðan þá, en mér er enn í fersku minni afstaða hans til þessa kerfis þá, þrátt fyrir að búa á þeim tíma ekki yfir slíkri reynslu!
Í mínum huga er þetta spurning um að menn eru að bera saman algerlega ólíka hluti (baunabyssu vs. haglabyssu). Ef nýliðar eru að spá í annan hvorn kostinn, þá mæli ég hiklaust með VHF nr. 1. Þetta er alvöru öryggistæki eftir alla þá uppbyggingu klúbbsins á VHF endurvarpakerfinu og enn er Eddi karlinn ekki af baki dottinn og er með enn frekari uppbyggingu í huga.
CB. er ágætt milli bíla sem ekki er langt á milli. VHF er enn betra á milli bíla, þar eru truflanalaus samskipti!
Ég get alveg tekið undir þá skoðun eik að betra væri að þessi búnaður kostaði minna, en það á bara við um svo margt annað. Ég vildi t.d. gjarnan sjá að bílar kostuðu það sama hér á landi og í USA. En kæri eik, að mæla með því að menn fari með lokaðan NMT síma á fjöll í trausti þess að hægt sé að nota hann til að ná í 112, það slær nú flest út í sparnaðarráðum sem ég hef heyrt um… Í guðs bænum höfum búnaðinn í lagi!
Ég er stórundrandi á því hvað það stendur í sumum að fá sér VHF. Í dag voru nokkur hundruð leitarmenn á Langjökli að leita að mönnum sem voru þar sambandslausir. VHF handtalstöð tekur lítið meira pláss í vasa en gamaldags GSM sími. Ef þeir menn hefðu haft vit á því að vera með svona stöð, þá hefði þessi uppákoma aldrei orðið.
Ég hvet hér með LÍV til að taka nú upp öflugan áróður innan sinna raða og hvetja menn til að koma sér upp VHF stöðvum. Hörmulegu dauðaslysi vélsleðamanns fyrir ca. tveimur árum hefði að öllum líkindum verið afstýrt ef hann hefði haft VHF stöð í vasanum.
Notum skynsemina og spörum á öðrum sviðum en í öryggismálum!
Ferðakveðja,
BÞV
08.03.2003 at 21:29 #469726Sælir.
Já, báðir nýju "38 Pajero bílarnir fóru í 100 bíla ferðina í dag og reyndust vel. Frábær fjöðrun og fínn kraftur/tog. Það náiðist ekki að setja í þá hlutföll fyrir daginn í dag, þannig að vonandi verður snjóaksturinn enn betri á lægri hlutföllum. Svo þarf aðeins að laga úrklippu (2-3 cm. sýnist mér) en annars allt í standi.
Ferðakveðja,
BÞV
07.03.2003 at 23:11 #469990Sælir félagar.
Var að lauma inn fyrstu myndinni í albúmið. Sjáumst vonandi hress í fyrramálið í 1000 bíla túrnum.
Ferðakveðja,
BÞV
06.03.2003 at 17:12 #469986Sælir.
Bíllinn er ekki tilbúinn ennþá og myndir koma inn á laugardag ef ekkert klikkar. Maður birtir ekki myndir á vefnum af dömunni sinni ótilhafðri…
Ferðakveðja,
BÞV
06.03.2003 at 17:08 #470060Sælir.
Það er kynning í B&L t.d., svo er auðvitað opið hús í Mörkinni. Hættum þessu "lillakjaftæði" og höfum gaman af þessu öllu saman! (:)
Feeeeerðakveðja,
BÞV
06.03.2003 at 17:06 #470008Sælir félagar.
Mig langar að segja ykkur frá búnaði sem ferðafélagi minn Bjarki Waage notaði með góðum árangri hér á árum áður.
Hann ók FORD F-250 extra cab. Í honum var 6,9 lítra vél með Bjarkasmíðaðri Scania Túrbínu (virkaði helvíti vel). Aftan á vélinni var original sjálfskipting og aftaná henni var svo 4 eða 500 kg. Fuller vörubíla gírkassi með einhver ósköp af gírum og innbyggðan þrefaldan loftskiptan millikassa. Það var nóg að gera að raða upp gírunum á þeim bænum. Þetta er eini bíllinn sem ég veit um sem sannarlega var alvöru- bæði beinskiptur og sjálfskiptur…
Ef ég man rétt var hann með 316 gíra áfram og eittvað um 20 afturábak og heildarniðurgírunin var áður óþekkt stærð… Þetta kallar maður LÓLÓ!
Ferðakveðja,
BÞV
06.03.2003 at 00:14 #469982Sælir félagar.
Hef því miður ekkert komsist á spjallið í dag, vinnan tefur mann svo…
Bara af því að menn eru að velta því fyrir sér hvað breyting á svona bíl kosti, þá hef ég heyrt að það verði u.þ.b. kr. 1.300.000. Inni í þeirri tölu er öll vinna, upphækkun, "hásingafærsla", úrklippa, felgur, dekk, brettakantar, málningarvinna, gangbretti, drifhlutföll, drullusokkar o.fl.
Tæknimenn Heklu telja sig vera búna að finna lás í framdrifið, en það er 100% lás í afturdrifi original.
Ferðakveðja,
BÞV
04.03.2003 at 12:10 #469786Sælir félagar.
Athugið líka að ventlarnir geta verið hættulegir, veit að einu sinni missti einn slöngutemjari næstum augað.
Ferðakveðja,
BÞV
04.03.2003 at 00:58 #469798Sæll Óli.
Takk fyrir frábæra ferðalýsingu ykkar Jóns Bergssonar á fundinum í kvöld.
Mér þótti lýsing þín og tilþrif með eindæmum góð, eins og að "vakna 3x við að aka yfir stein" og að "verða a.m.k. 2x þunnur í túrnum" auk ýmissa annarra gullmola sem fuku um salinn. Svona sýn á lífið og tilveruna er ekki öllum gefin, haltu því endilega áfram á sömu braut!
Ferðakveðja,
BÞV
03.03.2003 at 19:35 #469434Sælir félagar.
Ég hef alveg misst af þessum þræði um daginn. Gaman að þessari útskýringu Braga. Takk fyrir hana.
Ég tek annars heilshugar undir þá krítík sem fram kom fyrr í þræðinum, það verðfellir mjög alla umræðu um ferðir og ferðamennsku ef menn nota röng nöfn, rugla nöfnum o.þh.
Alltaf pirrar það mig jafn mikið þegar menn segjast hafa gist í "Grímsvötnum" og ekið "Kvísláveituveg".
Vöndum okkur við lýsingar á staðháttum, jafnvel þótt við séum ekki kunnug á þeim slóðum sem farið er um (kíkjum þá á kort eins og Hlynur bendir á). Umfram allt, vitum hvar við erum…
Ferðakveðja,
03.03.2003 at 12:28 #469932Sælir félagar.
Sjáið pistla jong í þræðinum um þorrablót austurlandsdeildar. Greinilega fínt færi hjá þeim og eins norður með Vatnajökli.
Bendi líka á pistil Einars Kjartans á þeim þræði, þar sem hann sagði nógan snjó á leiðinni frá Keldum og austur fyrir Heklu. Nú er þetta allt að koma, enda er aðal ferðatíminn að ganga í garð. Hafið þið líka tekið eftir því að nú er farið að birta á morgnana og orðið bjart fram yfir kvöldmat
Ferðakveðja,
BÞV
03.03.2003 at 12:23 #469770Sæll Beggi.
Daman er ekki fyllilega tilhöfð ennþá (ekki myndi Soffía vinkona mín verða ánægð með þig ef þú laumaðir myndum af henni nývaknaðri og ótilhafðri á netið
Það vantar brettakantana og gangbrettin, en annað er svo að segja klárt. Ég sendi myndir um leið og hægt er, en reyndar er viðbúið að það verði allt á haus til að ná í 1000 bíla túrinn…
Ferðakveðja,
BÞV
03.03.2003 at 09:08 #469766Blessaður ÁÁB.
Já, já, það er alltaf heitt á könnunni í Heklu! Ég held nú samt að þeir bjóði ekki uppá neitt sterkara en það…
Ferðakveðja,
BÞV
02.03.2003 at 22:41 #469762Sælir.
Þarna sjáið þið, þetta er bara spurning um að drífa sig af stað, sjáið einnig hvað ferðamennskan í þorraferð austurlandsdeildar gekk vel, bæði hér vestur úr og einnig fyrir austan. Varla nokkurn krapa að sjá.
Það er eins og margir séu með í maganum eftir krapatúrinn um daginn og nái sé ekki af stað…
Ferðakveðja,
BÞV
02.03.2003 at 22:37 #469548Sæll Jong og takk fyrir fréttaflutninginn.
Vonandi verður þetta til þess að við hér á tjörunni á höfuðborgarsvæðinu hættum þessu væli og drífum okkur bara af stað. ÞAÐ ER GREINILEGA VANDRÆÐALÍTIÐ AÐ FERÐAST, AÐALVANDAMÁLIÐ ER AÐ KOMA SÉR AF STAÐ Í SNJÓLEYSINU (festist smá í Caps Lock)…
Ferðakveðja,
BÞV
02.03.2003 at 21:13 #469720Sælir.
Já, nú er maður í skýjunum :)))
Skruppum smá prufutúr í dag. Daman fór vel með bílstjóra og farþega… Virtist til í tuskið og enga leti að finna… (kvartaði a.m.k. ekki undan höfuðverk).
Tókum formann Pajero klúbbsins með og hann var ekki lítið montinn, – fékk að keyra og ætlaði ekki að fást til að stoppa…
Ferðakveðja,
BÞV
02.03.2003 at 10:31 #469718Sæll Siggias.
Jú, vonandi verður bíllinn klár fyrir 1000 bíla túrinn, en þó má ekkert út af bregða til að það náist. Það leggja allir nótt við dag til að breytingin klárist fyrir þann tíma.
Bíllinn stendur nú í hjólin og nánast allri vinnu í krami er lokið. Það gleymist hins vegar alltaf hve mikil vinna er í kantasmíði, en Gunnar Ingvi á Höfðanum er að klára kantamálin og lítur þetta út fyrir að verða helvíti flott.
Hvernig sem allt veltist, verður bíllinn frumsýndur í HEKLU nk. laugardag en vonandi verður græjan líka ferðafær. Ég lofa mynd í albúmið mitt um leið og allt er klárt.
Ferðakveðja,
BÞV
28.02.2003 at 00:24 #469586Sæll Hlynur lóló lover. Eins gott að við erum ekki að tala um bíla, því ekki vildi ég verða sammála þér á þeim vetvangi
Þetta var þörf ábending, en auðvitað er mjög mikilvægt að benda félagsmönnum á að selja alls ekki utanfélagsmönnum VHF stöðvar. Ferðaklúbburinn uppfærir félagatal og skrá frá þjónustuaðilum um seldar stöðvar reglulega, enda fráleitt að þeir sem ekki eru félagsmenn nýti kerfið okkar.
Þeir sem skráðir eru fyrir stöðvum, greiða afnotagjald þeirra, burtséð frá því hvort þeir hafa látið þær af hendi eða ekki. Fjarksiptaeftirlitið er grjóthart á þessu.
Skilaboðin eru því einföld: Þeir sem sá ekki fræjunum, borða ekki brauðið…
Hefurðu annars nokkuð smellt kossi á Lóló nýlega???
Ferðakveðja,
BÞV
27.02.2003 at 23:09 #469640Sæll Eiki.
Ég er þér sammála, þetta er ekki fyndið lengur, menn eru að setja sig niður í sömu vakirnar ár eftir ár (sjá fleiri myndir í albúminu okkar, sem teknar eru á nákvæmlega sama stað!!)
Það eru nákvæmlega svona atriði sem við eigum að vara sérstaklega við, enda óþarfi að allir læri "the hard way".
Ferðakveðja,
BÞV
-
AuthorReplies