FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Björn Þorri Viktorsson

Björn Þorri Viktorsson

Profile picture of Björn Þorri Viktorsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 361 through 380 (of 730 total)
← 1 … 18 19 20 … 37 →
  • Author
    Replies
  • 31.03.2003 at 16:26 #471754
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Hó hó.

    Þetta kröftuga fólk er nýkomið til byggða (eða svo að segja) eftir ca. 25-30 tíma akstur og þar af talsverðar hremmingar. Ég læt mér detta í hug að fólkið sé einfaldlega að hvílast en hafi ekki farið beint á spjallið við heimkomuna…

    Ferðakveðja,

    BÞV





    31.03.2003 at 10:53 #471650
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Hlynur.

    Þetta er nú ekki allskostar rétt hjá þér. Sóðagengið ætlaði alltaf að fara upp Skálafellsjökul og reyndar var ekkert endanlegt ákveðið með gistingu, en þar kom helst til greina Esjufjöll eða Kverkfjöll. Á leiðinni austur brá hins vegar svo við að í hópinn bættust félagar sem ekki leist á að fara Jökulheimaleið (m.a. heimildarmaður/menn þinn…), en þau voru á leið á Grímsfjall. Það var því aldrei nein hræðsla hjá Sóðunum, enda það orð ekki til í þeirra orðabók…

    Það er skemmst frá því að segja að úr þessu varð hörkutúr. Við gistum á Smyrlabjörgum og fórum á Skálafellsjökul á laugardagsmorgni í einstöku veðri, heiðríkju og logni. Eftir að hafa farið fram á Brókarjökul og notið útsýnis suður og vestur yfir Kálfafellsdal, var ekið norður á hájökulinn og stefnan sett á Grímsfjall. Eftir að komið var vestur á móts við Esjufjöll, varð færið gríðarþungt og hélst þannig alla leið vestur á Grímsfjall. Það er rétt að ég hafði á því orð að ég öfundaði Rúnar á Grána (þrælseigur "38 Dc, heppinn með bílstjóra:), en á tímabili dreif enginn svo heitið gæti nema hann og Páll á Eiríki. Óskar var reyndar alltaf á ferðinni á lóló, kjaftfullur af olíu, en það er ekki tilkomumikill ferðahraði.

    Á sunnudeginum var ekið af Grímsfjalli niður Sylgjujökul í frábæru veðri og var jólaskrautið tekið niður í Sylgjufelli. Þá voru í hópnum 11 bílar.

    Þetta með tilurð nafns Sóðagengisins er alrangt, þar voru miklu tilkomumeiri atvik sem réðu. Nánar um það síðar…

    Þetta var enginn leynitúr Lúther, en hins vegar þykja mér fara heldur leynt afrek hins nýja 120 bíls. Er búið að sýna honum snjó?

    Ferðakveðja,

    BÞV





    31.03.2003 at 09:27 #471726
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Var að heyra af ferðum Jökulheimahópsins. þau eru nú við Þjórsárbrú, búin að fá olíu í Hrauneyjum og allir í megastuði. HSSR skildi eftir olíusopa vestan við Þröskuldinn, þannig að allir sluppu í Hrauneyjar, þótt sumir væru bara á lyktinni.

    Soffía og Beggi tóku með shampo og þvoðu "sushíið" og settu hárnæringu líka…

    Þetta er greinilega hörkuhópur sem notar vandamálin bara til að leysa þau.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    26.03.2003 at 23:47 #471474
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Lúther.

    Fari það í kolaðar kolbrúnar kálsúpur frá Kópaskeri, fær ekkert að vera í friði hérna lengur???

    Djöfulsins aumingjar eru þetta, við þurfum að finna þá og kjöldraga í hvelli með miklum kvölum frá Kvíindisdal….

    Kolbein Kafteinn…

    Þessir fáráðar brutust inn í bíl hér við bæjardyrnar í sveitinni í haust og stálu húðarjakka virðulegs gjaldkera vors. Á hverju getur maður eiginlega átt von???

    Eru engar vísbendingar, einhversstaðar er kagginn??

    Hvar á maður að leita..???

    Ferðakveðja,

    BÞV





    26.03.2003 at 10:06 #471272
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Blessaður Beggi.

    Til hamingju með frammistöðu frúarinnar og allra hinna þokkadísanna úr kvennaferðinni, já til hamingju stelpur!

    Ég er alveg ósammála þér um að nú sé að ganga í garð síðasta helgin til að ferðast að vetri (á snjó). Mín reynsla er þvert á móti sú, að nú er að fara í hönd albesti ferðatími ársins (á snjó). Apríl og fram í maí er alveg meiriháttar tími, dagur langur, mikil birta, þjappaður snjór (sólbráð á daginn og frost á nóttunni). Ég er grjótharður á að fara 1. maí túr í ár eins og flest undanfarin 8-10 ár, en það eru ferðir sem klikka ekki.

    Jú, nú stendur til að sýna Pæjunni eitthvað annað en malbik og leyfa þessari elsku að anda að sér tæru fjallalofti. Hvert farið verður er alveg óráðið, en eitthvað eru menn að byrja að tala um "andfýluferð" eða "táfýluferð", við fórum jú í Fýluferð í fyrra… Myndbandstökuvél verður örugglega með í för!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    24.03.2003 at 22:23 #471370
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll.

    Um þetta var gerður sérstakur samningur, þ.e. að bjöggararnir mættu hafa okkar rásir líka. Það er reyndar öryggismál fyrir okkur sjálfa…

    Góður Emil, villt allt gera sjálfur sem er vissulega vel. Nú mæli ég með að þú finnir út heppilegustu lengdina á toppnum og látir drengina í RSH vita hvað er "rétta lengdin" miðað við tíðnirnar okkar, fyrst þeir voru svo vitlausir að játa á sig óeiningu í þessu efni… 😉 Annars met ég það bara svo að það séu meiri hagsmunir fyrir minni að halda þessu með tíðnirnar innan hópsins, þannig að þeir með "smegluðu" stöðvarnar verði bara áfram í brasi með að nota þær…

    Annars að öllu gamni slepptu, þá kemur mér ekkert við hvort menn eru með smíglaða (nýyrði) stöð eða ekki, svo lengi sem þeir eru félagar, ég er aftur á móti viðkvæmur fyrir því að utanfélagsmenn séu að nota okkar kerfi. Til þess að geta það eiga menn einfaldlega að gerast félagar. Ég vísa öllum pælingum manna um að svona afstaða "fæli nýja félaga frá klúbbnum okkar", enda veit ég ekki um neinn sem ekki verslar í Hagkaup af því þar er tekið hart á þjófnaðarmálum…

    Ferðakveðja með suðlausu VFHi,

    BÞV





    24.03.2003 at 09:57 #471356
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Emil.

    Mér finnst ekki erfitt að skilja rök Jong. Þetta frábæra VHF kerfi okkar kostar peninga, bæði að byggja það upp og reka það. Það er hugsað fyrir FÉLAGSMENN og þá sem gera sérstaka samninga um að fá að því aðgang.

    Það hvort Radíoþjónusta SH dreifir tíðnum björgunarsveitanna breytir engu í þessu máli og kemur okkur í raun ekkert við. Ég leyfi mér þó að efast um að það sé gert með vitund og vilja Landsbjargar án þess að geta þó um það fullyrt.

    Við erum endalaust að fást við sömu vandamálin í þessum félagsskap, þ.e. að allir vilja njóta starfa klúbbsins, þótt þeir tími ekki að borga fyrir það og eru jafnvel ekki félagsmenn (Lalli td. birtir ekki félagsnúmer). Þetta á við um VHFið, skálana, heimasíðuna o.fl. o.fl. Ótrúlegur hópur manna (jóakimar eins og Ólsarinn kallar þá) greiðir ekkert nema að vera nauðbeygður til þess.

    Það er röng ályktun hjá þér Emil að það sé ekki mikið um að menn geti forritað sínar stöðvar, það er þónokkur hópur manna með slíkar ólöglegar stöðvar og það eru væntanlega þeir sem þurfa upplýsingar um þessar tíðnir. Ekki hef ég nokkra þörf fyrir að vita þetta, enda með löglega stöð.

    Þeir sem nenna ekki að sá fræjunum eiga heldur ekki að borða brauðið!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    22.03.2003 at 13:26 #192385
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Mig langar að vekja athygli ykkar á grein/frétt á síðu 9 í Mbl. í dag.

    Þar heldur Jón nokkur Stefánsson, varaformaður bifreiðastjórafélagsins Átaks, fram ýmsum athyglisverðum fullyrðingum sem mér sýnist að séu ekki beinlínis vel rökstuddar. Svo virðist af málflutningi hans, að honum finnist að leigubílar eigi að aka túristum að óbyggðavegum og þar sé fólkinu skipt yfir í jeppana…

    Umfjöllun um tjónatíðni í greininni finnst mér einnig mjög athyglisverð. Hvernig er það fengið út að jeppabifreiðir séu með 100% hærri tjónatíðni en leigubílar skv. skýrslu Umferðarráðs fyrir árið 2000??? Er maðurinn ekki á hálum ís þarna? Getur verið að hann fái út þessa tölu með því að miða við alla „jeppa“ á landinu sem eru mörg þúsund vs. leigubíla sem eru einungis nokkur hundruð? Getur verið að maðurinn sé viljandi að sleppa því að bera saman tjón og slys á fólki í ferðum með jeppum vs. leigubílum?

    Ég verð að játa að mér hitnaði nokkuð í hamsi við lestur þessarar greinar/fréttar, sérstaklega í ljósi þess hve jákvæðar niðurstöður voru úr hinni málefnalegu og vönduðu skýrslu verkfræðistofunnar Orion, varðandi tjón og tjónatíðni breyttra jeppabifreiða.

    Er þetta ekki annars bara týpískt væl frá stétt manna sem hefur lifað of lengi í vernduðu umhverfi sem byggist á einkaleyfum, bitlingum og fríðindum, án þess að nokkrar konkret skyldur komi þar í staðinn. Skoðum til gamans kaflann um starfsskyldur leigubílstjóra í 9. gr. laga nr. 134/2001 sem tóku tildi 15. mars í fyrra, en með þeim lögum varð heilmikil lagfæring á þessum málum, sem voru áður í afleitu horfi. Skoðið sérstaklega til gamans síðustu málsgreinina….

    Hvet hér með hagsmunaaðila í jeppaferðamnnesku til að bera hönd fyrir höfuð sér og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

    Ferðakveðja,

    BÞV

    9. gr. Nýting atvinnuleyfis.
    Leyfishafi skal hafa leigubifreiðaakstur að aðalatvinnu. Þó má víkja frá því skilyrði á svæðum þar sem íbúar eru færri en 10.000.
    Veita má leyfishafa tímabundnar undanþágur frá akstri eigin bifreiðar vegna:
    1. orlofs, þ.m.t. fæðingar- og foreldraorlofs, veikinda eða annarra forfalla,
    2. vaktaskipta á álagstímum,
    3. viðgerðar eða endurnýjunar á bifreið.
    Samgönguráðherra setur nánari reglur um undanþágur skv. 2. mgr. að fengnum tillögum Vegagerðarinnar og félaga leigubifreiðastjóra. Leigubifreiðastöðvar geta annast veitingu undanþágna á grundvelli upplýsinga í gagnagrunni sem Vegagerðin heldur og hefur að geyma upplýsingar um leyfishafa, undanþágur til þeirra, forfallabílstjóra og annað sem nauðsynlegt þykir í þessu skyni, sbr. 2. gr. Ráðherra er heimilt með reglugerð að ákveða gjald fyrir afgreiðslu veittra undanþágna.
    Vegagerðin getur heimilað að félög leigubifreiðastjóra annist afgreiðslu undanþágna, sbr. 3. mgr., standist þau kröfur hennar.
    Leigubifreiðastjóra sem öðlast atvinnuleyfi ber að hefja nýtingu þess innan sex mánaða frá útgáfudegi og að nýta það samfellt í tvö ár áður en til fyrstu innlagnar kemur. Að öðrum kosti fellur atvinnuleyfi úr gildi.
    Vegagerðin setur reglur um heimildir til tímabundinna innlagna atvinnuleyfa.
    Atvinnuleyfi fellur úr gildi við lok 70 ára aldurs leyfishafa. Þó er heimilt að framlengja atvinnuleyfi til eins árs í senn þar til atvinnuleyfishafi nær 76 ára aldri ef hann telst hæfur til að stunda leigubifreiðaakstur. Nánar má kveða á um þessi atriði í reglugerð.
    Heimilt er að leyfa eftirlifandi maka leyfishafa að nýta atvinnuleyfi hans í allt að þrjú ár eftir andlát leyfishafa, þó eigi lengur en til þess tíma er leyfishafi hefði misst leyfið fyrir aldurs sakir ef hann hefði lifað, þó aldrei skemur en tólf mánuði. Þegar maki er ekki til staðar er dánarbúi leyfishafa heimilt að nýta atvinnuleyfi hans í allt að þrjá mánuði eftir andlát leyfishafa en þó ekki eftir lok búskipta.





    22.03.2003 at 11:18 #467246
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Gaman að þessu.

    Hér eru mættir tveir rökfastir menn. Óla karlinn þekkjum við af góðu einu saman (margir flottir pistlar um tæknimál)en hinn nýji TekniQue kemur líka sterkur inn.

    Hvar eru svo vélfræðingarnir okkar Jóhann Rúnar, Aron og örugglega margir fleiri? Ég skal ekki trúa öðru en að tæknimenntaðir menn á borð við S og G Ingimarssyni hafi einnig skoðað þessi mál…

    Ausið nú úr skálum visku yfir okkur hina fáfróðari í þessum málum, allir vilja jú auka aflið í bílnum sínum á þann hátt að sem minnst komi niður á endingunni.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    22.03.2003 at 11:07 #467774
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir kappar.

    Jú, það er mikið rétt, auðvitað er "grind" í bílnum, en hún er eins og Hlynur bendir á innbyggð í yfirbygginguna. Við breytinguna er örlítið klippt úr fremsta hluta sílsins aftan við framhjólið og þá sá maður vel hvernig þetta er uppbyggt. Þarna er fimm eða sexfalt 1-1,5 mm stál beygt í U eins og hefðbundin grind og krumpað eftir kúnstarinnar reglum til að fá út úr því styrk. Auðvitað er burðurinn í bílnum þarna, þótt þetta sé sambyggt yfirbyggingunni. Þetta er sýnist mér mjög svipuð uppbygging og t.d. í Cherokee.

    Hlutföllin sem bíllinn kemur original á eru 1:3,9 en nýju hlutföllin eru 1:4,88. Það á nú svo sem eftir að reyna almennilega á þennan búnað við alvöru erfiðar aðstæður, en hingað til hefur ekkert komið uppá. 4ra ferða helgin er framundan og þá verður væntanlega tekið almennilega á þessu, en reyndar er Jóhannes kominn á fullt með sinn bíl í túristakeyrlsu.

    Ég sé því ekkert til fyrirstöðu Hlynur að svona dúkka verði sett á "44 hjól, enda hef ég látlaust hvatt menn til að setja LC 90 á svoleiðis hjól á original framfjöðrunarbúnaði. Eina ástæðan fyrir því að ég fór ekki þá leið er sú, að ég nota bílinn minn mjög mikið í daglegu snatti í bænum og nenni því ekki að túttast á þessum "44 kringlum. En fyrir þá sem nenna því á annað borð, þá sé ég því ekkert til fyrirstöðu.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    21.03.2003 at 21:19 #471198
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Var að rekast á þetta. Veit vel að Snorri er fyrir löngu búinn að pæla þetta í drep. Hann leggur vísvitandi fyrir okkur gildru, þegar hann fer að blanda saman í þessa umræðu 2 x radíus x pí. Úrhleypt hjól er ekki hringur og því eiga þau vísindi ekki við…

    Við förum jafnlangt (nema að teygt sé á gúmmíinu eða að baninn krumpist inní sig… það hef ég aldrei heyrt um).

    Ferðakveðja,

    BÞV





    21.03.2003 at 20:57 #471240
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Það spáir kólnandi eftir helgina þannig að það veit á gott. Bara að það snjói ekki beint oná krapann, þá tekur svo helv. langann tíma að frysta grautinn…

    Ferðakveðja,

    BÞV





    19.03.2003 at 21:58 #467768
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Jónas.

    Í stuttu máli er ég í sjöunda himni með græjuna. Hún fjaðrar, kraftar og skiptir sé afburðavel. Það sem mér virðist í fljótheitum að þessi bíll hafi helst fram yfir LC 90 er meira pláss og meira comfort, meiri kraftur og betri fjöðrun.

    Að vísu hef ég ekki farið mikið meira út fyrir veg en í 1000 bíla ferðinni (fór þá upp á Skjaldbreið) en þá var þetta prófað nokkuð vel.

    Það sem mér finnst síðra í þessum bíl er heldur meira vélar-og veghljóð en LC 90 (að vísu er heldur hrárri gangur í þessum common rail vélum almennt en það er ekki svoleiðis vél í gamla mínum). Nú svo er ég enn að finna út úr stýringu á t.d. þurrkum, miðstöð og ljósum, eftir að hafa verið fastur í Toyota tökkum sl. 13 ár…

    Vonandi verður ferðafært fyrir krapa um 4ra ferða helgina, en þá er stefnt að því að taka alvöru túr og reyna á græjuna. Verið er að smíða aukatank og hlutföllunum þarf ég einnig að koma í áður.

    Með ferðakveðju,

    BÞV





    19.03.2003 at 21:34 #467238
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Nú er sjálfur bensíndraugurinn að ná sér á strik!

    Flottur þráður og fínar útskýringar á mannamáli.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    17.03.2003 at 21:42 #467764
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir félagar.

    Takk abv, bíllinn lofar mjög góðu og vinnubrögðin við breytingarnar eru að sjálfsögðu til fyrirmyndar, enda ekki von á öðru úr þeirri átt eins og þú bendir á.

    En…, sjaldan er ein báran stök…

    Það er ekki útlit fyrir að maður fái lengi að vera flottastur… :)

    Heyrst hefur að í undirbúningi sé að fyrsti Pajeroinn verði settur á "44 hjól! Hlynur, þá má nu fuglene fara að vare sig…

    Ferðakveðja,

    BÞV





    17.03.2003 at 09:33 #470858
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Felgurnar keypti ég reyndar hjá mínum ágætu félögum á Nýbýlaveginum án nokkurra athugasemda. Hekla hefur mælt með því að menn setji rennda nylon hringi innan í felgurnar til að fá stýringu af hjólnafinu, en auðvitað hljóta felgurærnar að ráða nokkru um setu felganna á hjólskálunum (sennilega er öll stýring til bóta). Eftir að ég lét jafnvægisstilla hjólin er enginn titringur í bílnum, alveg sama á hvaða hraða ekið er.

    Jú ólsarinn, ég er aldeilis ættaður frá Mælifellsá (áður Syðri-Mælifellsá, en því hefur nýverið verið breytt til samræmis við málvenju), Björn Hjálmarsson frá Mælifellsá er afi minn.

    Það er rétt hjá þér eik að það komast mun innvíðari felgur á MMC en Toy, þess vegna eru menn að sjá fyrir sér að kantarnir hans Gunnars Ingva fari létt með "14 felgur, ef þær eru aðeins innvíðari en "12,5 Prime, sem reyndar eru frekar útvíðar.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    16.03.2003 at 16:58 #470852
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir ólsarinn.

    Ég sá að þú varst að velta fyrir þér spurningu um felgur á nýja vagninum. Því er til að svara að ég keypti samskonar "12,5 Prime álfelgur og ég hef notað undanfarin ár á Barbí. Gatasetningin er sú sama, en nafið á Pajero er grennra, það þarf engu að breyta.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    10.03.2003 at 23:30 #470420
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Blessaður eik.

    Auðvitað eiga ferðalög um hálendi Íslands að vera aðgengileg sem flestum, hvort sem þeir hafa aðstöðu til að kaupa sér bíl eða láta aðra kaupa fyrir sig bíl (skildi nú ekki alveg þessa pælingu hjá þér, en hvað um það). Það hefur enginn talað um tísku í þessum fjarskiptamálum nema þú, enda leit ég svo á að verið væri að reyna að svara á málefnanlegan hátt fyrirspurn frá manni sem er að velta fyrir sér að kaupa sé talstöð eða talstöðvar í bílinn sinn.

    Auðvitað er VHF kerfi félagsins fyrir félagsmenn. Er það nú allt í einu einhver frétt? Er ekki bíllinn þinn eingöngu fyrir þig? Geta aðrir kannski gengið að því sem vísu að þeir geti notað hann? Hver hefur haldið því fram að það eigi ekki að taka aðra en félagsmenn með sér í ferðir? Og svo talar þú um að ég snúi út úr!

    Auðvitað sníður sér hver stakk eftir vexti, það er ekkert nýtt. Ég hef bæði nú og áður bent mönnum á ótvíræða kosti VHF kerfisins umfram CBið, sem ég tel á engan hátt sambærilegt þar sem gæði, möguleikar og öryggi VHF er bara á allt öðrum standard en CB.

    Hver heildarkostnaður klúbbsins af VHF kerfinu er þekki ég ekki nákvæmlega, en ég get upplýst þig um að aðalfundir og félagsfundir í klúbbnum á sl. árum hafa ákveðið uppbyggingu og fjármögnun þessa kerfis. Þær ákvarðanir hafa verið teknar á lýðræðislegan og málefnanlegan hátt eftir því sem ég best veit og almennt ríkt samstaða um þau mál. Ég tek undir það með þér, að uppbygging kerfisins hefur verið ævintýri líkust og ótrúlegt hve mikil dekkun er í endurvarpakerfinu nú þegar.

    Hvað heldurðu að það hefði mátt kaupa margar VHF stöðvar, setja upp marga VHF endurvarpa og borga mörg árgjöld af VHF fyrir þann kostnað sem hlaust af leitinni á Langjökli í gær, nótt og í dag, þar sem hundruð manna á tugum björgunartækja leituðu að mönnum sem ekki gátu látið vita af sér? Heldurðu að það hefði ekki verið gáfulegra að vera með netta VHF stöð í vasanum og geta kallað í félagana um leið og menn urðu viðskila?

    Ég þekki engann sem hefur verið jafn ötull niðurrifs talsmaður VHF kerfisins, sbr. þennan pistil þinn nú og einnig þegar við skiptumst á skoðunum um þetta í fyrra. Ég virði að sjálfsögðu skoðanir þínar þótt rangar séu. Ég spyr þig samt aftur: "Hefurðu aflað þér reynslu af notkun VHF í jeppaferðum nú?"

    Með jákvæðum ferðakveðjum öllum til handa,

    BÞV

    Es. Þú kannski setur inn svona "link" í svarið þitt, þannig að menn geti skoðað það sem okkur fór á milli í fyrra, ég kann það því miður ekki.





    10.03.2003 at 22:37 #469736
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Palli.

    Það er naumast að formaður Pajero klúbbsins hefur góðar heimildir… Varst þú ekki að hræra í súkkulaði á Kringluplaninu allan daginn???

    Nei, ég botnaði hana aldrei – auðvitað tilkeyrir maður dömuna ljúflega fyrst um sinn, annars verður sambandið aldrei gott… (ég hef líka heyrt að það sé gott ráð að bjóða nýjum dömum í bíó svona meðan sambandið er að þróast).

    Annars er það rétt, þótt ég teldi fyrirfram að fjöðrunin myndi virka vel, þá kom það sannarlega á óvart hvílíkur draumur þar er á ferð. Jú jú, það var talsvert sprett úr spori á hluta heimleiðarinnar, enda eins gott að brjóta draslið strax eins og að lenda í því síðar og þá hugsanlega við verri aðstæður.

    Mótorinn er líka ferlega skemmtilegur og togar heil ósköp og þessi 5 þrepa skipting kom þægilega á óvart. Ég hef nú aldrei fyrr átt sjálfskiptan jeppa, þannig að maður kann nú svo sem ekkert sérstaklega á svoleiðis búnað, en það hlýtur að lærast.

    Annars ætla ég nú ekkert að fara að hljóma eins og Gressi á Terracan á sínum tíma, en þetta er nú samt tilfinningin við fyrstu viðkynni… og á maður ekki að segja það sem manni finnst… það segir mamma mín að minnsta kosti.

    Það á nú samt eftir að taka á þessu dóti í alvöru túrum og við erfiðar aðstæður og best að sjá til hvernig það gerir sig.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    10.03.2003 at 20:12 #470402
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Ég játa að ég hef ekki kynnt mér verðin á VHF og CB í dag, en þegar þessi umræða var tekin fyrir u.þ.b. ári síðan, þá var tilboð til félagsmanna 39.900 VHF með loftneti komin í bílinn, en þá kostaði CB+loftnet+ísetning u.þ.b. 22-25.000.

    Hlægilegur verðmunur á búnaði sem er algerlega ósambærilegur. Það má ekki gleyma því að VHF er enn betra en CB við ALLAR aðstæður, þ.á.m. í samskiptum milli bíla í sama ferðahópi.

    Ferðakveðja,

    BÞV





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 361 through 380 (of 730 total)
← 1 … 18 19 20 … 37 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.