You are here: Home / Brynjólfur Árni Gunnarsson
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Já það er víst trúfrelsi á Íslandi.
En aftur um bílinn sjálfann. Ef hann verður svona eins og á myndunum þá finnst mér hann bara ekkert fallegur eins og 100 bíllinn er. Hann er frekar kjánalegur að aftan með þennan stall.
En þetta er mitt álit og myndi ég frekar fá mér LC 80
Ég skal passa mig á vondu köllunum (trúi ekki að þeir séu hér).
En eru herpihólkarnir nógu sterkir fyrir þessi átök
Já þetta er nokkuð góð útskýring hjá þér Grímur.
En Lárus, ég sé að þú ert með gúmmí klæddar lykkjurnar á kaðlinum hjá þér. Er þetta bara reiðhjólasklanga hituð utanum eða hvað.
Takk fyrir þetta Davíð. Jú jú ég er orðinn fullgildur félagsmaður með. Varðandi fundinn og opið hús þá er ég eins og er á fullu í prófum núna og út næstu viku (á að vera að læra stærðfræði núna). En ég mun kíkja opið hús eitthvern tímann seinna.
Og já ég er á L-200. Þannig að ég á þá að fjárfesta í 24 mm kaðli 15-20m löngum og auðvitað splæstum báðumegin. Já ég var búinn að sjá þetta öryggisbelti, mjög sniðugt. Er komin eitthver reynsla á þetta?
Jæja þar sem ég er loksins búinn að skrá mig í þennan klúbb þá langaði mig bara aðeins að kynna mig.
Ég heiti Brynjólfur Árni. Er búinn að vera með mikla jeppadellu frá því að ég var lítill. Jeppa spólurnar eru að verða ónýtar af notkun og er þar helst að nefna Hveravallaskreppurinn með Bláu 60 Landcruiser.
Jeppinn sem ég keypti mér var í eigu eins meðlims hérna hann Gísli R. Fínasta tæki og er ég mjög sáttur með hann.
En mig langaði að skella fram einni spurningu til ykkar varðandi kaðal, ég er búinn að kynna mér þetta nokkuð og er búinn að komast að því að maður á að versla sér svona kaðal hjá Ísfelli. En hvað á hann að vera sver og er ekki 20 metrar lágmarkið
Með von um góðar viðtökur
Brynjólfur