Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
07.10.2008 at 13:52 #630704
Eins og Björn sagði hér fyrir ofan, skoðaðu grindina. Ég veit að þær eiga til að ryðga soldið að aftan rétt hjá gormaskálinni.
Pabbi átti svona pajero 92 módelið, 3000 V6 óbreyttann og hann var með eitthvað á milli 18-20 L/100.
29.08.2008 at 23:32 #628478svo má nú benda líka á eitt og það er að sofa í ullarnærfatnaði, föðurlandinu, í svefnpokanum.
27.08.2008 at 01:18 #202834Ef þú hefur áhuga á einhverju af eftirtöldu: Fjallamennsku, útiveru, jeppum, fjarskiptum, klettaklifri, ísklifri, stjórnun beltatækja eða góðum félagsskap, þá gæti þetta verið eitthvað fyrir þig.
Þann 1. og 4. september kl. 20:00 verður Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík með kynningu á nýliðastarfi sínu við Flugvallarveg. Hvetjum alla til þess að koma og kynna sér málin og sjá út á hvað nýliðastarf Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík gengur.
Svipmyndir frá starfi nýliða veturinn ’07-’08
22.06.2008 at 19:48 #624646heppinn er hann þá þurfa ekki að díla við IH því að Hekla er með þessa bíla
20.06.2008 at 18:49 #624630er ekki eins fjöðrun að frama í nýja l200 og er í Pajero, ss. svona coilovers.
En tala nú ekki um hvað nýi L200 er virkilega ljótur miðað við Hiluxinn.
19.06.2008 at 21:17 #624604ég veit ekki, er ekki bara meira af Hilux á götunni.
En ég á 97 módelið af L200 á 35" Hann hefur reynst mér mjög vel. Er búinn að eiga hann í sirka eitt og hálft ár. Hann hefur ekki bilað mikið en hann er nú keyrður 308 þús km. þannig að það er búið að vera smá viðhald bara. Nú hef ég ekki ekið Hilux með turbo vél og þekki ekki til með það en l200 bíllinn minn er nú ekki neitt alveg kraftlaus, hann er merkilega seigur.
19.06.2008 at 21:01 #624600L200 stóðst Elgsprófið
05.05.2008 at 01:53 #622158held að það þurfi ekkert endilega að vera, er ekki bara flæðið í gegnum hana nógu lítið í lausagangi að það hefur engin áhrif, en svo þegar það þarf að vera mikið flæði í gegnum síuna þá teppar hún þá olíu sem þarf til að viðhalda snúningi vélarinnar.
08.04.2008 at 00:12 #619910Ég og frændi minn höfum sandblásið riðbletti með sandblásturkönnu sem við keyptum í Byko og notuðum svona litla loftpressu. Þetta er alveg hægt en ef blettirnir eru mjög stórir þá klárast örugglega loftið úr kútnum.
07.03.2008 at 00:40 #616758já þetta er áhugavert tæki. Ætli sé hægt að nota þetta sem snjóflóðar ýli?
04.03.2008 at 18:44 #616052Ég er með 😀
18.02.2008 at 23:02 #614578Ég fór í nýliða ferð með FBSR á gönguskíðum frá Sigöldu og í Landmannalaugar. Það var rigning allan laugardaginn og sunnudaginn og það er mjög mikill krapi á þessu svæði.
27.01.2008 at 00:09 #611854patínurnar eru nú hættar, eru þetta ekki bara skynjarar á sveifarásnum sem gefur merki á háspennukefli.
17.01.2008 at 21:20 #610438Ég er búinn að nota gráa kortið alltaf þegar ég kaupi olíu og alltaf fengið afsláttinn líka í Skógarhlíð en ekki síðast.
17.01.2008 at 19:46 #610430En ég er bara með Vildarkortið, gráa kortið og ég framvísaði því áður en ég rétti fram debetkortið. En enginn afsláttur kom.
17.01.2008 at 18:54 #610426ég tók olíu í gær á Shell Skógarhlíð. framvísaði kortinu en fékk ekki afslátt, bara punktana.
Er eitthver bilun í tölvukerfinu eða hvað?
17.01.2008 at 09:20 #610460Vá þetta verður örugglega gaman. Vonandi að það verði sæmilegt veður.
Ég mæti á 35 tommum.
kv.
Brynjólfur Árni
09.01.2008 at 19:28 #609682já endilega reyna koma þessu í verk að hafa aðra nýliðaferð.
Er á einum af þessum litlujeppum, bara á 35 tommum.
07.01.2008 at 13:55 #609338ef að það er einginn segulskynjari fyrir þennan hring þá er þetta varla abs kerfið.
29.12.2007 at 01:42 #201467Mig langaði bara að minna ykkur á Flugeldamarkaði björgunarsveitanna. Þetta eru þeirra helstu tekjulindir og erum við jeppafólk skyldug til að styrkja þær. Tala nú ekki um að Flugbjörgunarsveitin er samstarfsaðili.
-
AuthorReplies