Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
27.10.2003 at 13:33 #479190
Ég keypti fólksbíl og hann var með ljósustu filmunum í öllum rúðum nema framrúðu og bíllinn fékk endur skoðun og ég varð að taka filmuna úr hliðar rúðum frammí.
Þeir sögðu við mig að ef ég vildi hafa eitthvað dekkt frammí yrði ég að kaupa litað gler það er leyfilegt.
Þetta eru frekar skrítin lög.
24.10.2003 at 10:10 #478994Það er nú ekki alveg rétt! 35" bílar komast nú alveg í ferðir á sumrin þá er ekki mikið verið að fara á jökla og 35" kemst alveg í Setrið og eiginlega flest allar leiðir.
15.10.2003 at 09:27 #193021Getur einhver sagt mér hver á skálann Klett í Þjórsárdal?
kv.
Bronco
15.10.2003 at 09:24 #477772Þessi skáli hlýtur að heita Dverghamar því það er fyrrum flott skilti á honum sem að stendur DVERHAMAR.
Ef maður horfir frá kaffistofunni í átt að Jósepsdal þá sér maður brattan slóða utan í hnjúknum vinstra meginn, þegar maður kemur upp þar þá er þar þessi umtalaði skáli nokkrum metrum vestar. Ég var næstum búin að keyra á hann þegar ég kom upp brekkuna (það var þoka).
Það má geta þess að þessi skáli sést frá aðalveginum ef maður er að keyra frá Hamragils aflegeranum og í átt að Þrengsla aflegera þá ber skálinn við himinn í smá tíma.Kv.
Bronco
14.10.2003 at 16:07 #193011Hvað er með síðuna fyrir Suðurlandið veit það enginn?
Eða eru allir komnir á 13″ í vetur.
13.10.2003 at 09:24 #193000Getur einhver sagt mér hvað maður þarf að gera til að gerast félagi?
kv.
06.10.2003 at 09:11 #477342Takk fyrir
Ég á annan startara svo ég held ég skelli mér bara í að skipta um hann:)
03.10.2003 at 14:44 #192946Góðan daginn!
Bíllinn hjá mér á við það vandamál að stríða að hann eyðileggur um 1 startpung á mánuði. Hann fer bara í gang eftir veðri og það heyrist bara klikk klikk þegar ég starta og ekkert skeður en svo get ég komið 10 mínútum seinna og þá rýkur hann í gang. Ef ég skipti um startpung þá fer hann flott í gang í svona mánuð og en svo byrjar hann aftur. Kannast einhver við Þetta vandamál? Ég held að startarinn sé að steikja pungana, getur það verið rétt hjá mér?Kv.Rúna
25.09.2003 at 13:12 #192906Mig langar að forvitnast hvort einhver hefur sett HiCLONE í bensín jeppa og gæti miðlað reynslu sinni?
Ég er að spá í þessu og ég er með V8 302 vél.
-
AuthorReplies