Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.10.2003 at 10:25 #477954
Til hamingju með þennan áfanga, nú verður gaman að lifa þegar myndirnar fara að streyma inn.
B.Rich
26.09.2003 at 13:46 #476976Get nú ekki sagt að mig langi til að mæla með honum – dró það í mánuð að senda bílinn af stað og sá ekki ástæðu til að láta mig vita.
Margir mæla með IB ehf á Selfossi, ég byrjaði þar en fann þennan bíl á undan þeim.
26.09.2003 at 13:34 #476972Mér er sagt að rokkurinn sé í Skógafoss – en ég á eftir að fá það staðfest – trúi engu nema stimpluðum pappír frá Eimskip.
26.09.2003 at 12:02 #192912Hefur einhver reynslu af því að vera með LCD skjá boltaðann í þakið? T.d. 14-15″ eins og sjá má t.d. á þessari síðu:
http://www.sounddomain.com/shoplist~b~Power+Acoustik~t~LCD+Monitors
Mér finnst þetta spennandi kostur í Fordinn, en tvær spurningar vakna.
1. Hristist þetta í sundur í jeppa (þó maður sé á loftpúðum!) og
2. Sér maður á skjáinn úr bílstjórasætinu án þess að snúa skjánum? Það er talað um 60° vinkil til hægri og vinstri en er það nóg?
Kannski er þetta ekkert viðkvæmara en skjárinn á laptoppnum fyrir hristingi en gaman væri að heyra frá einhverjum sem hefur prófað þetta t.d. í húsbíl.
B.Rich
24.09.2003 at 12:31 #47674019.08.2003 at 15:08 #475704Talaði við Gunnar og hann sagði að ekkert hliðarskrið væri í 44" Trxus (það hefði e-ð verið í 38"), þau væru hljóðlát, þægileg í akstri og drifu vel. Eina væri að þegar þau slitna þá færu þau aðeins að rása. Mælti ekki með að microskera þau.
Svo mörg voru þau orð. Kostur kannski að þau er þó nokkuð breiðari og ættu að gefa meira flot.
Fleiri með skoðanir á þessu máli?
B.Rich
19.08.2003 at 13:17 #192806Undir +3 tonna Econoline, með hvaða dekkjum mæla menn?
Er einhver með reynslu af 44″ Trexus og hefur samanburðinn við önnur dekk?
B
13.08.2003 at 15:05 #475384Já, Garmur er að nálgast ellilaunin þannig að það er strax byrjað á nýjum. Félaginn er svört tík nefnd Dimma (að sjálfsögðu Labrador) og er komin áleiðis í veiðihundaþjálfun. Núllaði að vísu glæsilega í fyrsta veiðiprófinu, en er alveg eins hrifin af snjó og sá gamli þannig að hún á eftir að kæta mörg börnin á fjöllum þegar hún sleppur útúr stofunni. Bara gaman að vera til. Svo eigum við eina tvífætta á sama aldri þannig að það er aldrei of róleg stund.
13.08.2003 at 09:44 #475380Nei, ég fann þennan í Boston. Ég talaði við þá í IB á Selfossi og þeir sögðu að svona bíll eins og ég vildi væri afskaplega fáséður. Fyrir tilviljun fann ég þennan annarsstaðar í fyrradag og keypti hann í gær. En þeir hjá IB fundu svo annan fyrir mig í Kanada í gær þannig að þvert á væntingar hefði ég getað valið.
En talaðu við þá hjá IB, það eru margir búnir að nefna þá við mig varðandi það að finna bíla í Kanada.
Ég fékk XLT Chateau týpuna og þó ég hafi aldrei verið hrifinn af rafdrifnu dóti verð ég bara að læra að sætta mig við það, nú eða skipta við einhvern sem á manual rúðuhalara, gæti jafnvel skipt á sléttu! Það er verið að fylla bílinn af dóti og svo kemur hann um mánaðamótin. Hann verður í fjölskylduútgáfu með 6 Captian stóla og króka í gólfinu fyrir hundana. D60, 4,56:1, loftlæsingar, loftpúðar tengdir stýrikerfi, 44", skriðgír, fj…, með 7,3L Powerstroke+kubb ætti þetta að duga til að komast eitthvað áfram. Og loksins komið pláss til að fella sjónvarpið í toppinn, ekkert vesen með stand í gólfinu undir laptoppinn.
12.08.2003 at 10:57 #475376Sælir félagar og takk fyrir innleggin.
Maður átti náttúrulega að vita það að olíuheili eins og ég gæti aldrei sætt mig við annað en dísel. Þar skiptir mestu málið togið, ég myndi aldrei geta sætt mig við að geta ekki læðst yfir krapapitt eða rölt yfir krappar afætur og þurfa að taka allt á ferðinni.
Það sem meira er, ég fann bíl sem er eins og ég vil hafa hann, stuttur E350 með 7,3L Powerstroke. Svo má bæta við kubb til að geta stokkið hærra, hafa menn annars reynslu af því varðandi afl og eyðslu við þessa vél?
08.08.2003 at 14:15 #475358Ég þekki þessar Econoline-vélar ekki það mikið af eigin reynslu en hélt einmitt að þessi 7,3L vél væri svo gömul hönnun að afl og virkni miðað við þyngd væri nú ekki til mikillar fyrirmyndar. En mér er líka sagt að powerstrokeinn fáist ekki í 250/350 fyrr en 2003 árgerð, hafi aðeins verið í pickupum og álíka til þessa, er það kannski ekki rétt? Ég er að láta leita að svona bílum fyrir mig í Canada og ætla að sjá hvað er í boði. En já, best þætti mér að ná í ca 2000 árgerð með 6,0L powerstroke ef það er til.
ÞÁL ætlar að éta pulsur á fimmtudaginn í tilefni 10 ára afmælisins og drekka sig fulla í London í haust af sama tilefni, en annars er lítið á dagskránni ennþá. En það verður vonandi komin alvöru koníaksstofa í hópinn fyrir páska.
08.08.2003 at 10:28 #192778Nú þarf að endurnýja fjallafákinn eftir að gamli LC fór flikkflakk á malbikinu.
Planið er Econoline, ca 2000 árgerð, 250 bílinn eða stuttur 350 eins og þeir heita víst. Dana 60 er krafan þar sem 44″ fer undir hann með tímanum.
En spurningin er, bensín eða dísel? Er eitthvað vit í þessari 5,4L bensínvél eða verður maður að sætta sig við kolareykinn úr 7,3L vélinni? Hef heyrt að togið í 5,4L vélinni sé þannig að það komi einfaldlega ekki til greina.
Comments, any one?
B
16.04.2003 at 10:23 #472448Vorum þarna á sunnudag og mánudag og eins og Hlynur segir er fínt færi inn í Laugar. Þaðan fórum við svo inn á bakdyraleiðina, meðfram Höfðavatni og upp í Hrafntinnusker. Þaðan yfir Torfajökul í Strútslaug, yfir í Skófluklif og upp á Mýrdalsjökul. Efst í jöklinum var nokkuð þungt færi en annars var færið frábært alla leið. Og sama sagan og áður, enginn á ferðinni og bara mottuför sjáanleg.
Þegar við vorum að renna upp síðustu brekkunar gaf sig einn kross þannig að við renndum til baka og fórum niður í Fljótshlíð. Þangað var líka fínt færi, nokkrar afætur í kringum Hattfellið en annars fínt. Snjór nánast niður á Flatir og engin drulla. Sneiðingurinn nokkuð tæpur en slapp til. Að vísu er ekki mikill snjór þarna þannig að þessi 15°C hiti gæti breytt þessu fljótt.
Í sama túr var reynt við Jökulheima o.fl. og með því að þræða fjöll var fínt rennsli inn að hrauni en þar var dagurinn búinn og næsta ljóst að góða stund gæti tekið að komast síðustu 2 km.
27.03.2003 at 15:41 #192406Hefur einhver upplýsingar um færð á Langjökli síðustu daga?
Ætla með börnin þarna yfir á morgun (Föstudag 28.3.)
B
-
AuthorReplies