Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
15.06.2012 at 12:23 #223717
Góðan dag, af hverju sést ekki fullt nafn og félagsnúmer við póstana frá mér? Hvað þarf ég að gera til laga þetta (sé þetta ekki í stillingunum)?
01.06.2012 at 09:35 #223627Góðan dag, veit einhver um hvort þessar leiðir eru orðnar eða að verða færar fyrir lítt breytta jeppa?
30.04.2012 at 21:43 #753713Takk aftur, Ásgeir, en ég er af Norðvesturhorninu þó að ég sé fæddur og uppalinn í Rvík 😉
Ég verð í Skagafirði um mánaðarmótin júní-júlí og er að spá í að fara heiðina suður í Borgarfjörð en er ekki búinn að ákveða hvaða leið. hvernig er leiðin upp úr Vatnsdal?
30.04.2012 at 21:01 #753709Takk fyrir þetta, Ásgeir, en athugaðu að ég er að spá í að fara suður heiðina en ekki norður 😉
30.04.2012 at 20:27 #753705Takk fyrir þessar upplýsingar. Kannski ég skoði Skyndidalsá næst þegar ég á leið þar um. Varðandi Arnarvatnsheiði:
1. Er það rétt að búið sé að laga veginn þar töluvert á síðustu árum, t.d. Leggjabrjót?
2. Er mikill tímamunur á að fara Stórasand og svo heiðina niður í Borgarfjörð eða fara upp úr Miðfirði? Hvort er erfiðara?
29.04.2012 at 20:53 #223376Góðan dag, Björgvin R. Leifsson heiti ég og gekk í 4×4 í febrúar sl. Ég ferðaðist talsvert á fjöllum á árum áður þegar ég var bæði ungur og fallegur en hef lítið til fjalla farið sl. 20 ár eða svo. Á þeim árum átti ég stundum breytta bíla en á núna Grand Vitara 2012, upphækkaðan fyrir 30″ dekk og reikna ekki með að breyta honum mikið meira en það.
Ég hef farið ýmsar leiðir, svo sem Kaldadal, Kjöl, Sprengisand (þ.m.t. Eyjafjarðar- og Skagafjarðarleið), allar Fjallabaksleiðirnar, Þórsmörk, Laka, Gæsavatnaleið (áður en hún var brúuð), Herðubreiðarlindir, Öskju, Kverkfjöll, Hólmatungur og Flateyjardal svo eitthvað sé nefnt. Ég hef engan sérstakan áhuga á vetrarferðum en hef hugsað mér að bæta við Arnarvatnsheiði og leiðum þar, hálendinu austan Kreppu og Loðmundarfirði. Þá á ég eftir leiðirnar sunnan Hofsjökuls, Núpsstaðaskóg og Lónsöræfi. Ég ætla nú ekki á nánast óbreyttum GV út í Núpsvötn og Skyndidalsá en mér skilst að einhverjar af leiðunum sunnan Hofsjökuls að Setrinu séu þokkalega færar lítt breyttum jeppum, er það rétt?
04.04.2012 at 23:28 #223157Góðan dag, hvar er hægt að nálgast bókina „Ekið um óbyggðir“ eftir Jón G. Snæland?
-
AuthorReplies