Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.01.2008 at 21:39 #608482
er fyrir öllu að fólk komist heilt heim og svo ekki vera að koma bílunum heim í kjölfarið af því. Svo er ekki verra að aðrir gætu lært af reynslu þessa fólks og tekið mark á Sigga storm áður en haldið er til fjalla og jökla.
Íslenska náttúran og veðráttan er bara þannig að ef þannig eru aðstæður er mannlegur máttur frekar aumur.
25.11.2007 at 11:36 #201250Það er undarleg kúplingin í konungnum. Hún virkar en það er dautt slag hálfa leið niður. Hún slítur vel og snuðar ekkert en þetta dauða slag er hundleiðinlegt, veit einhver hvað þetta gæti verið ?
14.11.2007 at 17:00 #603118Er hún eins, hafa menn eitthvað mælt hana og hvað segja menn um aflaukningu er hún einhver ?
13.11.2007 at 21:01 #201168Hvað segja menn er þetta að virka hjá mönnum eða borgar sig ekki að standa í þessu. Ég setti svona í pajero v6 bensín en seldi hann skömu síðar þannig að ég veit ekki hvort það skilaði einhverju.
Er með pajero 2,5 tdi núna og er að spá í þessu.
MBK. Vilmundur
13.03.2007 at 20:26 #584390Ég er ekki að tala um að halda sig innandyra í rigningu.
Þá skulu þeir sem eru svo vel búnir að geta tekist á við hvað sem er taka það fram áður en þeir bruna af stað á fjöll.
Þá þarf ekkert að pæla í því meir þó svo að þeir komist ekki heim af sjálfsdáðum.Svo eru líka svartir sauðir í þessu sem hugsa með sér að þetta fari ekki verr en svo að þeir verði sóttir.
13.03.2007 at 18:44 #584382Benni segir eftirfarandi.
Varðandi veðrið þá benti ég bara á það augljósa – þetta eru veðurSPÁR og ganga því miður ekki alltaf eftir, og reyndar þykir mér að í seinni tíð gangi þær sjaldnar eftir en hitt (án þess þó að ég hafi neina vísindalega mælingu) Og þessu til stuðnings benti ég á að á því svæði sem ég fór um um helgina var mun betra veður en spáð hafði verið, og þannig hefur það verið í flestum ferðum mínum í vetur (sem eru orðnar á þriðja tug).Þessi hugsunarháttur hefur komið mörgum manninum í vanda.
Þeas. taka ekki mark á veðurspá vegna þess að þeir telja sig vita betur.Það er nú líka þannig með veðurspána að hún getur mildast helling en einnig versnað til muna. Enda bara spá eins og maðurinn sagði.
Menn sem halda til fjalla þrátt fyrir slæma spá og sitja svo fastir í bílnum loppnir og kaldir eiga að mínu mati að borga þann kostnað sem til fellur við það að sækja þá.
Ef ég verð bensínlaus á Kilinum á þá að sækja mig mér að kostnaðarlausu ?
Bara vegna þess að mig langaði svo að láta á það reyna hvort mér tækist að hundskast yfir á 1/4 af tank ?
Sennilega ekki.
29.01.2007 at 19:08 #199527Er að fara að sækja cherokie 88 árg. ekinn 175.000 á fínum álfelgum sjálfsk. leður og straumur í öllu draslinu.
Bíllinn er gylltur á lit og lítur mjög vel út.
Hvað selst þetta á svona sirka ?
16.10.2006 at 18:57 #563616Er þetta viðkvæm umræða eða er enginn með svör við þessu ?
15.10.2006 at 22:52 #198738Segið mér nú viskubrunnar spjallborðsins, hver er vandinn með musso ?
Annað hvort eru þeir ágætis bílar eða þá algert haugafóður sem er yfirleitt með opið húdd og maður hálfur ofan í því ?
Er munur á Daewoo bínum eða S/Y ?Eða er þetta eingöngu bjórinn sem er stiginn mér til höfuðs ?
Jæja piltar, lát heyra !
02.10.2006 at 15:49 #562038Blessaður Hilmar gaman að sjá að þú lifir enn, merkilegt nokk sé litið til aksturslags á liðnum bílprófsárum hjá þér.
Kv. Vilmundur Árnason.
Raufsari.
25.09.2006 at 14:53 #561292Hvaða verð er ca á 33" BF;Goodrich miðað við ónegld.
19.09.2006 at 20:47 #560704Sleppur 33" undir með því einu að hækka hann um einhverja cm ?
-
AuthorReplies